Morgunblaðið - 29.10.1993, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
UM HELGINA
Myndlist
Þrjár sýningar í
Nýlistasafninu
Þijár sýningar verða opnaðar í Ný-
listasafninu á morgun, laugardaginn
30. október, kl. 3.
Inga Þ. Jóhannsdóttir sýnir málverk
unnin með olíu í gamla SÚM-salnum.
Inga útskrifaðist úr nýlistadeild MHÍ
1988. Hún nam síðan við Hoochschule
fur Angewandte Kunst í Vínarborg
1988-1989. Inga býr og starfar í
Glasgow og hefur haldið þijár einka-
sýningar og tekið þátt í nokkrum sam-
Hólmfríður, Matthildur og Inga
Þórey.
sýningum hérlendis. Verkin á sýning-
unni eru öll unnin á þessu ári.
Matthildur Leifsdóttir sýnir á palli
og forsal lágmyndir sem m.a. eru unn-
ar beint á vegginn. Hún útskrifaðist
úr myndhöggvaradeild MHÍ 1989. Hélt
hún síðan til framhaldsnáms suður til
Flórens á Ítalíu 1990-1992. Þetta er
fyrsta einaksýning Matthildar en hún
hefur tekið þátt í samsýningum. Matt-
hildur býr og starfar í Galliano í To-
skana-héraði á Italíu.
Hólmfríður Sigvaldadóttir sýnir í
Gryfjunni skúlptúr og lágmyndir sem
unnið er á þessu ári. Hún útskrifaðist
úr myndhöggvaradeild MHl 1988 og
nam síðan við listaakademíuna í Flór-
ens 1989-1992. Hólmfríður hefur hald-
ið eina einkasýningu og tekið þátt í
samsýningum. Hún býr og starfar í
Flórens á Ítalíu.
Síðasta sýningarhelgi
Ólafar Erlu í Stöðlakoti
Á sunnudaginn kemur lýkur sýningu
Ólafar Erlu Bjamadóttur í Stöðlakoti
við Bókhlöðustíg. Ólöf Erla sýnir list-
muni unna í steinleir og postulín. Mun-
irnir eru flestallir nytjahlutir, ýmist litl-
ar seríur eðða stakir hlutir. Ólöf Erla
lauk námi úr keramikdeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands árið 1982 og
sl. 6 ár hefur hún starfrækt eigið verk-
stæði á Hvanneyri. Hún hefur tekið
þátt í mörgum samsýningum en þetta
er hennar önnur einkasýning. Sýningin
er opin frá kl. 14.-18.
Verk Victors G. Cilia
í Götugrillinu
Nú stendur yfír sýning á verkum
eftir Victor G. Cilia í Götugrillinu. Vict-
or lauk námi frá MHÍ vorið 1992.
Hann hefur haldið sýningar í Geysis-
húsinu á vegum óháðu listahátíðarinnar
sumarið 92, Ganggallerí Ármúla 92 og
í Nýlistasafninfu 93. Verkin eru öll
unnin með gvasslitum á pappa. Sýning-
in stendur til 13. nóv.
Samsýning í Listhús-
inu Laugardal
Myndlistarsýning fjögurra nema á
myndlistarbraut í Fjölbrautarskólanum
í Breiðholti opnar á morgun laugardag-
inn 30. október í Listhúsinu í Laugar-
dal, Þeir sem sýna eru; Baldur Helga-
son, Birgir Örn Thoroddsen, Magnúsar
Unnar Jónsson og Hafsteinn Michael
Guðmundsson.
Sýningin er opin daglega frá kl.
10-18 nema sunnudaga kl. 14-18.
Sól og stjörnur
í Slunkaríki
Sýning á sex teikningum og jafn
mörgum tréristum eftir Rögnu Her-
mannsdóttur hefst í Slunkaríki á
ísafírði á morgun, laugardaginn 30.
október, kl. 16. Sýningin ber heitið Sól
og stjörnur og eru allar myndimar
unnar á sl. ári.
Ragna er fædd í Bárðardal árið 1924.
Hún lauk jirófi frá Myndlista- og hand-
íðaskóla Islands 1983, framhaldsnám
í myndlist stundaði hún í Bandaríkjun-
um og í Hollandi. Ragna hefur haldið
tíu einkasýningar á Islandi og í Hol-
landi, jafnframt þátttöku á samsýning-
um hér heima og erlendis.
Slunkaríki er opið frá fimmtudegi til
sunnudags kl. 16-18.
EHn Perla, Eygló og Kristín.
Samsýning
í Hafnarborg
Elín Perla Kolka, Egló Harðardóttir
og Kristín Reynisdóttir opna sýningu á
morgun, laugardaginn 30. október, í
Hafnarborg. Þær útskrifuðust úr
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1987.
Elín sýnir grafíkverk unnin í ætingu
og þurrnál. Hún hefur einnig stundað
listnám í Frakklandi.
Eygló sýnir veggverk unnin með
bleki á pappír 2X2 metrar og stein-
steypt verk á gólfi. Hún stundaði
þriggja ára framhaldsnám í Hollandi.
Kristín sýnir þrívíð verk og innsetn-
ingu (installation). Hún stundaði
tveggja ára framhaldsnám i Þýskalandi
eftir útskrift úr myndmótunardeild
MHÍ. Hún sýndi síðast í Nýlistasafninu
1991. Sýningin er opin frá kl. 12-18
alla daga vikunnar nema þriðjudaga.
Síðasti sýningardagur er 15. nóvember.
Jón Reykdal
sýnir í Fold
í Gallerí Fold, Austurstræti 3, sýnir
Jón Reykdal pastelmyndir dagana 30.
okóber til 13. nóvember.
Jón Reykdal er fæddur árið 1945 í
Reykjavík. Hann stundaði _ nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands og
framhaldsnám við Gerrit Rietveld Aka-
demie í Amsterdam og Konunglega
listaháskólann í Stokkhólmi. Jón hefur
haldið flölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum hérlendis og er-
lendis. Verk hans er í eigu margra
opinberra safna og stofnana.
Opið er f Gallerí Fold mánudaga til
föstudaga frá kl. 10-18 og laugardaga
frá kl. 10 til 16.
Sýning á
damaskdúkum
Sýning á damaskdúkum frá Georg
Ragnheiður Thorarensen kynn-
ir ný mynstur og nýja liti í dam-
askdúkum.
Jensen í Danmörku verður á laugardag
og sunnudag í Safamýri 91 frá kl.
14-18 báða dagana. Þar kynnir Ragn-
heiður Thorarensen umboðsmaður Ge-
org Jensen á Islandi, ný mynstur og
nýja liti í dúkum. Georg Jensen damask
er 500 ára gamalt listvefnaðarfyrirtæki
sem alltaf hefur verið í eigu sömu ætt-
ar. Dúkarnir eru úr 100% bómull og
öll mynstrin teik'nuð af viðurkenndum
hönnuðum og arkitektum. Þeir eru
sniðnir að óskum hvers viðskiptavinar
og þola 90 gráðu hita í þvotti. í meira
en öld hefur þessi háttur verið hafður
á að kynna og selja vaminginn í heima-
húsi.
Vefjarlist frá Eistlandi
í Norræna húsinu
Sýning á veijarlist frá Eistlandi verð-
ur opnuð í sýningarsölum Norræna
hússins á morgun, laugardaginn 30.
október, kl. 15.
Sýningin er hingað komin í samvinnu
Textílfélagsins og Norræna hússins.
Ellefu listamenn eiga verk á sýning-
unni og eru þau ólík í efni og aðferð-
um, m.a. vefnaður, silkiþrykk og búta-
saumur. Verk þeirra eru valin til þess
að sýna fjölbreytni í eistneskri veijar-
list, en einnig eru á sýningunni verk
unnin með nýrri aðferðum. Þrír lista-
mannanna, Liivia Leskin, Anna Gerretz
og Signer Kivi koma til íslands og setja
sýninguna upp í Norræna húsinu. Anna
Gerretz mun segja frá eistneskri vef-
jarlist við opnun sýningarinnar og sýna
litskyggnur.
Rúnar Lund og Hulda Hákonar-
dóttir í hlutverkum sínum.
í ágúst 1992 sýndu ellefu listamenn
úr Textílfélaginu verk sín í Tallinn í
boði textílfélagsins í Eistlandi og með
þessari sýningu í Norræna húsinu er
verið að endurgjalda það boð.
Norden-Baltikum-sjóðurinn veitti
styrk til sýningarinnar.
Sýningin í Norræna húsinu verður
opin daglega kl. 14-19 og stendur til
14. nóvember. __________________
Tónlist
Gítarleikur
í Kringlunni
Gítarleikarinn Sveinn Eyþórsson
mun leika klassíska gítartónlist í
Kringlunni á morgun laugardag. Tón-
leikarnir era í tveimur hlutum og hefst
fyrri hluti kl. 13 og síðari hlutinn kl.
14. Um er að ræða framhald á sam-
starfi Kringlunnar og hóps gítarleikara,
en á hveijum laugardegi í októbermán-
uði hefur verið leikin klassísk gítartónl-
ist í Kringlunni og mun því vera fram-
haldið út nóvembermánuð.
Flest þeirra verka sem flutt verða
hafa verið flutt af Andrési Segovia, en
tónleikarnir eru tileinkaðir hundrað ára
minningu hans.
Sveinn Eyþórsson hóf gítarnám 6
ára gamall hjá föður sínum. Hann
stundaði grunnnám og framhaldsnám
á Spáni. Sveinn starfar nú sem tónlist-
arkennari hér heima.
Prof. Clara Taylor ásamt píanó-
leikurum skólans, f.v. Davíð
Játvarðsson Knowles, Lára
Rafnsdóttir, Elín Guðmunds-
dóttir, Ólafur Vignir Alberts-
son, Jórunn Viðar, Kolbrún
Sæmundsdóttir, Katrín Sigurð-
ardóttir og Hólmfríður Sigurð-
ardóttir.
Söngskólinn í Reykja-
vík með námskeið
Söngskólinn í Rekyjavík gengst
þessa dagana fyrir námskeiði fyrir
kennara og nemendur skólans. Þar leið-
beinir prófessor Clara Taylor píanólei-
kurum skólans í tækni og túlkun, með
sérstaka áherslu á samvinnu og sam-
leik söngvara og píanóleikara.
Clara Taylor er fædd í London og
stundaði nám í píanóleik við Royal
Academy of Music þar sem hún var
skipuð prófessor 1974. Eftir að hafa
unnið til ýmissa verðlauna ákvað hún
að sérhæfa sig í samspili með söngvur-
um og hljóðfæraleikurum._______
Leiklist
Barnaleikritið Tritill
Barnaleikrit um ævintýri Trítils verð-
ur frumsýnt hjá Frú Emilíu í Héðins-
húsinu, laugardaginn 30. október kl.
15. Leikritið samdi Ása Hlín Svavars-
dóttir og leikarar sýningarinnar upp
úr barnasögum Hollendingsins Dick
Laan. Helga Braga Jónsdóttir, Kjartan
Bjargmundsson og Barði Guðmundss-
son leika Trítil og félaga.
Hugleikur frumsýnir
„Eg bera menn sá“
Áhugaleikfélagið Hugleikur frum-
sýnir annaðkvöld, laugardagskvöld,
leikritið „Ég bera menn sá“. Höfundar
verksins eru þær Anna Kristín Krist-
jánsdóttir og Unnur Guttormsdóttir.
Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson.
í fréttatilkynningu segir m.a.: „í
verkinu segir frá bændum og búaliði í
Gröf og samskiptum þeirra við annars-
heimsverur af öllum stærðum og gerð-
um. Víst er að hin hugleikska sýn á
veruleika hins íslenska kotbónda og á
bændamenningu almenn er síst ómerk-
ari en aðrar sem nýlega hafa komið
fyrir sjónir manna. Sauðkindinni er
gert hátt undir höfði og segja má að
þetta harðgera og launvitra dýr fái þar
upreisn æru eftir að hafa verið á milli
tannana á fólki um langa hríð.“
Sýningarnar verða í Tjarnarbíói og
hefjast kl. 20.30. Miðasala verður opin
milli kl. 17 og 19 alla daga og fram
að sýningum sýningardagana.____________
Fyrirlestur
Fyrirlestur 1
Ásmundarsal
Norski arkitektinn Per Morten Josef-
son heldur fyrirlestur í Ásmundarsal
við Freyjugötu á morgun, laugardag,
kl. 20.
Per Morten er einn af meðlimum
„Snöhetta“-hópsins sem vakið hefur
athygli fyrir framsækna byggingarlist.
„Snöhetta“-hópurinn hefur verið mjög
áberandi í þeirri grósku sem átt hefur
sér stað í Noregi á liðnum árum. Eitt
merkasta verk þeirra er bókasafni í
Alexandríu í Egyptalandi sem ráðgert
er að reisa á næstu árum, en það er
árangur alþjóðlegrar samkeppni sem
hópurinn vann.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum
Arkitektafélags íslands og er öllum
opinn.___________________________
Ljóðlist
Enskt Ijóðakvöld
í Hafnarborg
Óliver Kentish, tónskáld og tónlist-
arkennari, mun lesa úr úrvali enskrar
ljóðlistar á frummálinu, auk þess sem
hann mun leika á píanó og selló nokkr-
ar stemmningar, sunnudagskvöldið 31.
október kl. 20.30.
Flutt verða ljóð eftir eldri skáld og
samtímaskáld. Skemmst er að minnast
Sonnettukvölds í Hafnarborg þegar
Oliver og Arnar Jónsson leikari fluttu
nokkrar sonnettur Shakespeares bæði
á ensku og í íslenskri þýðingu Daníels
Daníelssonar.
ÓJiver Kentish er þekktastur fyrir
fréttir á ensku sem hann hefur skrifað
og flutt í Ríkisútvarpið undanfarin tvö
sumur.
Nemendur framhaldsskólanna ásamt
kennurum eru boðnir sérstaklega vel-
komnir. Aðgangur er ókeypis.
Tilkynning til borgarbúa
vegna fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar 1994
Uppboð í New York
Ólympíudraumar
eftir Helga Þorgils
og Sigurð Orlygsson
Ncw York, frá Einari Fali Ingólfssyni.
„Vetrarsýnir - ólympíudraumar".
Helgi Þorgils og Sigurður Örlygs-
son voru fulltrúar Islendinga, en
meðal annarra listamanna voru Bjorn
Wiinblad frá Danmörku, Kimmo
Kaivanto og Mari Rantanen frá Finn-
landi, Kjell Erik Killi Olsen frá Nor-
egi, Philip vob Schaiitz frá Svíþjóð
og kunnur bandarískur íþróttamál-
ari, Leroy Neiman.
Myndimar vora seldar á þöglu upp-
boði í New York á dögunum, til styrkt-
ar menningarsjóði The American-
Scandinavian Foundation, en munu
líklega hanga uppi í Lillehammer á
meðan á Ólympíuleikunum stendur.
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 1994.
Athygli borgarbúa, svo og hagsmunasamtaka (t.d. íbúasamtaka), er vakin á
að óskir, tiliögur og ábendingar varðandi gerð fjárhagsáætlunarinnar þurfa
að hafa borist borgarráði fyrír 23. nóvember nk.
26. október 1993.
Borgarstjórinn í Reykjavík
TVEIR íslenskir listmálarar,
Helgi Þorgils Friðjónsson og Sig-
urður Örlygsson, voru í hópi nor-
rænna og bandarískra listamanna
sem fengnir voru til að gera mynd-
verk í tilefni af vetrarólympíuleik-
unum í Noregi á næsta ári. Mynd-
irnar voru boðnar upp á samkomu
The American-Scandinavian Fo-
undation í Ncw York í liðinni viku.
1 tilefni af vetrarólympíuleikunum
í Lillehammer var tuttugu og einum
listamanni frá Norðurlöndunum og
Bandaríkjunum boðið að vinna
myndverk á fána, undir yfirskriftinni
»
b
i
6
i
.
«
I