Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
17
Hvað er að útvarpsráði?
eftir Magnús
Oskarsson
í Morgunblaðinu sl. þriðjudag
er greint frá „einróma" bókunum
í útvarpsráði sem vefst fyrir mér
að skilja.
Tilgreindar eru í frétt blaðsins
tvær bókanir og var önnur gerð
15. október og hin „í síðustu
viku“ eins og það er orðað. í síð-
ari bókuninni segir útvarpsráð:
„Á liðnum vikum og mánuðum
hefur Sjónvarpið sent út viðræðu-
þætti, bæði í svokallaðri þriðju-
dagsumræðu og nú síðast í síð-
degisumræðu á sunnudögum þar
sem þátttakendur hafa nær ein-
vörðungu verið karlkyns með
áþekk stjómmálaviðhorf.“
Ég tók þátt í einum þriðju-
dagsþætti og deildi þar nokkuð
við Steingrím Sigfússon, varafor-
mann Alþýðubandalagsins. Fáa
aðra þætti hef ég séð en man þó
í svipinn, auk Steingríms, eftir
Benedikt Davíðssyni og Ögmundi
Jónassyni. Ég frábið mér allar
dylgjur útvarpsráðs um að ég
hafi „áþekk stjórnmálaviðhorf"
og Steingrímur og Benedikt svo
ekki sé talað um Ogmund. Alveg
makalaust er að álykta í útvarps-
ráði um skoðanir manna en út
yfír tekur, fyrst það er gert, að
fara einróma rangt með alkunna
vitneskju um viðhorf þeirra sem
í hlut eiga.
Ég sé enga ástæðu til að taka
meira mark á öðrum ályktunum
útvarpsráðs en þessari, sem mun
hafa verið borin fram af Sjálf-
stæðismönnum í útvarpsráði und-
ir forystu formannsins Halldóru
Rafnar. Ég velti því hins vegar
fyrir mér hvað hefur komið yfír
þetta fólk.
Höfundur er borgarlögmaður
Reykja víkurborgar.
80 ára
Bergþóra Jóelsdóttir
Heiðurskonan Bergþóra Jóels-
dóttir húsmóðir og kaupkona
Grettisgötu 2A, Reykjavík, er
áttatíu ára í dag, 29. október 1993.
Eiginmaður hennar Amgrímur
Ingimundarson kaupmaður er
fæddur 23. nóvember 1912. Hann
er því nýlega orðinn áttræður.
Foreldrar Bergþóru voru hjónin
Sigríður Kristjánsdóttir húsfreyja
frá Gjábakka í Þingvallasveit og
Jóel Sumarliði Þorleifsson bóndi
frá Efstadal í Laugardal. Bergþóra
fæddist á Skólavörðustíg 15 í
Reykjavík og ólst þar upp.
Snemma kom í ljós, að hún var
hin röskasta til allrar vinnu, og
var hún ung að ámm farin að
vinna fyrir sér að barnaskólanámi
loknu. Síðar lá leið hennar í Bók-
bandsdeild ísafoldarprentsmiðju
og þar var hún við störf, er hún
kynntist eiginmanni sínum, Arn-
grími Ingimundarsyni. Þau giftu
sig 4. júlí 1945. Arngrímur er son-
ur hjónanna Jóhönnu Arngríms-
dóttur húsfreyju og Ingimundar
Sigurðssonar bónda á Höfn í Aust-
urfljótum í Skagafirði.
Bergþóra og Arngrímur hafa
búið í ástríku hjónabandi í 48 ár
og varð þeim fjögurra dætra auð-
ið. Þeir heita Ingileif, fædd 4.
september 1946, gift Sigmari Ægi
Björgvinssyni; Jóhanna, fædd 6.
nóvember 1948, gift Snorra Björg-
vin Ingasyni; Sigríður, fædd 30.
ágúst 1950, gift Gretti Kristni
Jóhannessyni; og Gíslunn, fædd
13. nóvember 1951, gift Gunn-
laugi Sigurðssyni.
Bergþóra og Amgrímur eiga
nú 14 barnabörn og sex bama-
barnabörn. Bergþóra var heima-
vinnandi húsmóðir á meðan börnin
voru að vaxa úr grasi. En árið
1958 keyptu þau hjónin litla vefn-
aðarvöruverslun á Laugavegi 60 í
Reykjavík. Ári síðar komu þau á
fót prjónastofu í sama húsi í
tengslum við verslunina og ráku
fyrirtækið á þessum stað til ársins
1968. Þá festu þau kaup á hús-
eigninni Grettisgötu 2A, Reykja-
vík, og fluttu þangað búsetu sína
sem og fyrirtækið. Þar hófu þau
verslun með barnavörur, og er
verslunin í dag 35 árum eftir að
hún hófst hið traustasta fyrirtæki.
Bergþóra er listfeng og á mikið
safn ljósmynda, sem. hún hefur
tekið við alls konar tækifæri. Þau
hjónin hafa ávallt látið sér afar
annt um heimili sitt og reynst fjöl-
skyldu sinni mikil stoð. Ættmenn-
um þeirra hefur ávallt verið ljúft
að endurgjalda alla þeirra um-
hyggju. Þau vita ekkert skemmti-
legra en að njóta nærvem barna
sinna og barnabarna. Þá er alltaf
glatt á hjalla hjá þeim. Ég óska
Bergþóru og Árngrími og fjöl-
skyldu þeirra hjartanlega til ham-
ingju á þessum merkisdegi.
Guðrún Þóra Magnúsdóttir.
^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Norskir framleíðendur verða
ÍB-salá2. hæð
(inngangur að norðanverðu).
Sýningin er opin
föstudaginn 29. okt. kl. 15-18 og
laugardaginn 30. okt. kl. 10-16.
Alfirvelkomnir.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Prime London
Ný sending
Pantanir
óskast
sóttar
Verð: 4.995,-
Stærðir: 36-41
Litir: Svart, brúnt
Tökum við
notuðum skóm
til handa
bágstöddum.
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
Toppskórinn,
Veltusundi,
sími 21212.
KRINGLUNNI SÍMi: 600930 - STÓRVERSLUN LAUGAVEGI26 SÍMI: 600927 - LAUGAVEGI96 SÍMI: 100934 - E1ÐIST0RGI SÍMI: 612160