Morgunblaðið - 29.10.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
Suður-Kalifornía eins og eldhaf yfir að líta vegna óviðráðanlegra skógarelda
„Eins og himimiimi log-
aði hvert sem litíð var“
- segir Þorgeir Þorgeirsson arkitekt í Laguna Beach þar sem hundruð húsa hafa brunnið
Reuter
MAÐUR hleypur frá brennandi húsbílahverfi í bænum Lag-una Beach í Suður-Kaliforníu í gær.
Rúrnlega 500 íbúðarhús höfðu orðið skógareldum að bráð í ríkinu í gær.
„VIÐ ERUM örugg eins og
er en ijúki vindur aftur upp
er voðinn vís. Það var mjög
óhugnanlegt að líta út um
glugga í gærkvöldi. Eins
og himinninn logaði hvert
sem litið var,“ sagði Þor-
geir Þorgeirsson arkitekt í
samtali við Morgunblaðið í
gær en skógareldar geisa
skammt frá heimili hans í
Kaliforníu. Rúmlega 500
íbúðarhús höfðu brunnið í
gær og eignatjón nemur
hundruðum milljóna.
Skógareldar kviknuðu á
nokkrum stöðum í sunnanverðri
Kalifomíu á þriðjudag en fyrir
tilstuðlan svokallaðra Santa Ana
vinda mögnuðust þeir í fyrradag
og breiddust ört út. í gær log-
uðu eldar á a.m.k. 15 stöðum
og fékk fjölmennt her- og
slökkvilið lítt við ráðið. Var belti
frá landamærum Mexíkós til
norðurhverfa Los Angeles eins
og eldhaf yfir að líta. Yfirvöld
fullyrtu að nokkrir eldanna
hefðu kviknað af mannavöldum,
m.a. af völdum útigangsmanna
sem kveikt hefðu eld til að oma
sér við en síðan hefði allt farið
úr böndum. í gær höfðu rúmlega
500 íbúðarhús orðið eldinum að
bráð og rúmlega 30.000 manns
flúið heimili sín á hættusvæðum.
Neyðarástandi hefur verið
lýst yfir á stórum svæðum í
Suður-Kaliforníu og hét Bill
Clinton forseti því að ríkisstjórn-
in myndi aðstoða við uppbygg-
ingu á brunasvæðunum.
Stríðsástand
„Við erum búin að pakka öllu
persónulegu ofan í töskur og
kassa og tilbúin að fleygja því
út í bíl og flýja ef eldurinn berst
hingað," sagði Homeira
Gharawi, eiginkona Þorgeirs.
Heimili þeirra er miðja vegu
milli San Diego og Los Angeles.
Þorgeir og Homeira búa í
hverfí sem heitir Foot Hill Ranch
í hæðunum fyrir ofan bæinn
Laguna Beach sem orðið hefur
einna verst úti. Þar höfðu 330
hús brunnið í gærmorgun. „Ég
fór heim úr vinnu þegar reykur
og sót tók að byrgja útsýni úr
gluggum skrifstofunnar. Gekk
ég út úr húsinu, sem er alveg
niður við strönd, og leit upp í
hæðirnar. Þar stóðu öll hús í
björtu báli en þau kosta eina til
tvær milljónir dollara, 70-140
milljónir króna, hvert. Það var
óhugnanleg sjón og alls staðar
var fólk að reyna að bjarga ein-
hveijum eigum og koma sér í
burtu,“ sagði Þorgeir.
Til marks um ringulreiðina
sagðist Þorgeir venjulega vera
aðeins fímm mínútur að aka
heim úr vinnu en í þetta sinn
tók það hálfa aðra klukkustund.
„Fólk var út um allt að reyna
að fara eitthvað, greinilega mjög
hrætt. Þetta var eins og í stríði,“
sagði Þorgeir.
„Það lýsir vel hættuástandinu
að samstarfsmaður minn hringdi
heim til sín klukkan tvö og var
þá allt í stakasta lagi, eldurinn
talsvert undan. Þremur stundum
seinna hafði eldurinn gleypt hús-
ið hans. Svo hratt æddi hann
áfram að honum tókst einungis
að bjarga út sjónvarpinu og
heimilishundinum áður en hann
varð að flýja,“ sagði Þorgeir.
íslendinga hefur ekki sakað
„Núna er logn og hægt að
halda eldunum í skefjum en það
segja þeir sem vinna að slökkvi-
starfí að þeir fengju ekkert við
ráðið ef hann blési upp aftur.
Það er ótrúlegt að upplifa þetta,
virkilega óhugnanlegt," sagði
Þorgeir Þorgeirsson. „Ástandið
hér er hrikalegt og eyðileggingin
skelfileg. Hér í giljunum eru ein-
hver fallegustu svæði í Kalifor-
níu en sum þeirra eru nú aðeins
ijúkandi rústir,“ sagði Homeira
kona hans.
„Hér í nágrenninu búa um
80 íslenskar fjölskyldur og er
samheldnin mikil. Við höfum
verið í símasambandi og hefur
enginn bruni orðið hjá þessu
fólki enn sem komið er. Við hitt-
umst einu sinni í mánuði, alls
um 350 manns. Hópurinn var
hér hjá okkur síðast og á sunnu-
dag er ætlunin að hittast í Ana-
heim Hills,“ bætti Homeira við.
Starfsmenn Kögunar óhultir
Kolbrún Kjerúlf, eiginkona
Þorvaldar Egils Sigurðssonar,
verkfræðings hjá hugbúnaðar-
fyrirtækinu Kögun, sagði við
Morgunblaðið að 18 starfsmenn
fyrirtækisins og fjölskyldur
þeirra væru óhult. Eldarnir væru
í um 100 km fjarlægð frá heimil-
um þeirra í Anaheim Hills.
Mynduð
samtök
gegnEB
í Noregi
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ANDSTÆÐINGAR aðildar Nor-
egs að Evrópubandalaginu (EB)
innan norska Verkamannaflokks-
ins hafa myndað með sér samtök
er ncfnast „Jafnaðarinenn gegn
EB“. Sagan hefur því endurtekið
sig. Upplýsingaskrifstofa Alþýðu-
sambandsins (AIK) hafði árið 1972
gríðarlega mikil áhrif er Norð-
menn felldu í þjóðaratkvæða-
greiðslu tillögu um aðild að Evr-
ópubandalaginu.
Þessi þróun er áfall fyrir Gro Harl-
em Brundtland forætisráðherra ekki
síst í ljósi þess að andstæðingar
EB-aðildar styrktu mjög stöðu sína
á norska Stórþinginu í síðustu þing-
kosningum. Fullvíst þykir að þeir
sem andvígir eru þvi að Noregur
taki þátt í samrunaferlinu suður í
álfu geti komið í veg fyrir staðfest-
ingu aðildar á þingi.
„Jafnaðarmenn gegn EB“ hyggj-
ast ná til allra þeirra stuðningsmanna
Verkamannaflokksins í Noregi sem
andvígir eru aðild að Evrópubanda-
laginu. Líkt og AIK forðum hyggjast
samtökin halda uppi skipulögðum
áróðri gegn aðild Noregs.
Dagbladet segir í frétt að þekktir
leiðtogar jafnaðarmanna hyggist
taka átt í þessu starfi en í hlutverki
leiðtoga verði Hallvard Bakke, þing-
maður og fyrrum viðskiptaráðherra.
Þessi tíðindi vöktu ánægju í röðum
Miðflokksmanna, sem unnu sigur í
síðustu kosningum á grundvelli and-
stöðu sinnar við EB. I Hægriflokkn-
um kváðu menn þessa þróun á hinn
bóginn áhyggjuefni. Framkvæmda-
stjóri Verkamannaflokksins sagðist
ekki fá séð á hvem hátt flokkurinn
sem slíkur gæti beitt sér gegn mynd-
un samtakanna en Gro Harlem
Brundtland kaus að tjá sig ekki um
málið.
•»-■■■» 4
Noregur
Sex farast
í flugslysi
Óuló. Reuter.
SEX manns fórust í flugslysi í
Noregi í fyrrakvöld og eins
manns til viðbótar er saknað.
Alls voru 19 manns í flugvélinni,
sem var tveggja hreyfla og af Otter-
gerð. Slæmt veður, var þegar hún
hrapaði skömmu áður en hún átti
að lenda á Namsos-flugvelli í mið-
hluta landsins. Ekki var vitað um
orsakir slyssins í gær.
Gouda 26% kg/stk.
R U M L E G A
15%
LÆKKUN!
VERÐ NU:
599 kr.
kílóið.
VERÐ AÐUR:
ÞU SPARAR.
■ kílóið.
110 kr.
á hvert kíló.
OSTA- OG
SMJÖRSAtANSE