Morgunblaðið - 29.10.1993, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
35
KVENNAÞING
Mikill áhugi á
Nordisk Forum
l^Tikill kvennaskari tók þátt í
opnum undirbúningsfundi
fyrir kvennaþingið Nordisk Forum
á Hótel Borg á sunnudaginn. Opn-
aði húsið formlega kl. 13, en síðan
tók við fjölbreytt dagskrá og kynn-
ing á kvennaþinginu sem haldið
verður í Finnlandi 1.-6 ágúst nk.
Ekki er að efa að fjöldi íslenskra
kvenna á eftir að taka þátt í þing-
inu, a.m.k. var mikill áhugi meðal
þeirra sem komu saman á Hótel
Borg. Á myndinni eru (f.v.) Mál-
fríður Guðný Gísladóttir, Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir, Margrét
Jónsdóttir, Ásdís Þórðardóttir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Ragn-
hildur Helgadóttir, Anna Svein-
bjarnardóttir, Eyja M._ Brynjars-
dóttir og Steinunn V. Óskarsdótt-
ir.
frábærar móttökur
NOREGUR
Odvar
Nordli
stjórnar á ný
Odvar Nordli, fyiTverandi for-
sætisráðherra Noregs, tók við
stjórnartaumunum á ný fýrir
skömmu. Reyndar ekki á sínu
gamla sviði sem forsætisráðherra
heldur reyndi hann fyrir sér sem
stjórnandi hljómsveitar nokkurrar í
Hamar. „Ég neita því ekki að það
var erfitt að vera í hlutverk stjóm-
andans," sagði hann eftir á. Ekki
gaf hann í skyn hvort væri erfiðara
að stjórna ríkisstjórn eða hljómsveit!
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
Áskell Másson og Gunnar Kristinsson á tónleikunum í Zurich.
Frumhljóð framkölluð
á tónleikum Islendinga
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Það heyrir til undantekninga að hvert framhaldið yrði á samvinnu
Áskell Mássnn tónsmiðiir þeirra. Nokkur hljóðfæranna eru
jað heyrir til undantekninga að
Áskell Másson, tónsmiður,
komi fram opinberlega og flytji
tónverk eftir sig sjálfur. Hann brá
þó út af venjunni fyrri hluta októ-
ber ásamt Gunnari Kristinssyni og
fluttu þeir frumsamið verk fyrir
slagverk. „Þetta er gamall draum-
ur sem við höfðum lengi rætt
um,“ sagði Gunnar í samtali við
fréttaritara Morgunblaðsins, þar
sem þeir félagar voru önnum kafn-
ir að hengja upp og koma fyrir
slagverkum af öllum stærðum og
gerðum í Helferei-salnum í Zúrich.
„Það væri óhugsandi að einhver
tæki þátt í flutningi þessa verks í
staðinn fyrir mig,“ bætti Áskell við.
Höfundarnir fluttu tónverkið á
leikrænan hátt. Þeir voru báðir
klæddir í svart, kertaljós lýstu upp
sviðið og þeir hreyfðu sig hægt á
milli slagverka á meðan tónamir
drundu.
Verkið er í sex þáttum og tæpur
klukkutími að lengd. Það hefst á
hljóðslætti úr steinum en uppistaða
þess er leikið á darabuka, tam-tam
og gong, auk þess sem önnur
asláttarhljóðfæri koma við sögu.
Það túlkar frumöfl náttúrunnar og
höfundarnir framkölluðu meðal
annars hljóð sem smugu í gegnum
merg og bein á fámennum tónleik-
um í Zúrich. Einn áheyrandi sagði
eftir sýninguna að honum hefði
þótt hann hlýða á hljóð eigin lik-
ama í einum kafla verksins.
Verkið varð til á æfingum
Þeir Áskell og Gunnar sögðu að
verkið hefði orðið til á æfingum og
í samtölum. Þeir léku það í fyrsta
sinn í heild á tónleikum í Flúelen
í Sviss. Gunnar sem er búsettur í
Sviss var með málverkasýningu
þar á sama tíma.
Listamennirnir kváðust ekki vita
þung í vöfum og mikið fyrirtæki
að koma saman til hljómleikahalds.
Odvar
Nordli
reynir
sér sem
hljóm-
sveitarstjóri.
Vegna góðrar aðsóknar
munum við fjölga tímum
frá ogmeð 1. nóvember
Ny stundaskrá
verður birt i nœsta
sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Komdu eöa hringdu
til aö fá nánari upplýsingar.
J.L. húsinu, Hringbraut 121, sími: 16670.
3 DAGA TILBOÐ
HALLOWEEN PARTY Á HARD ROCK
FÖSTUDAG - LAUGARDAG OG SUNNUDAG
TILBOÐ
Hard Rock hamborgari m/frönskum kartöflum, salati
og Halloweendjöflaterta í desert. kr. 590.-
u Elskum alla - þjónum öllum
sími689888