Morgunblaðið - 29.10.1993, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
43
HANDKNATTLEIKUR
Létt hjá
Haukum
Leikmenn Hauka, efsta liðsins í
1. deildarkeppninni, léku sér í
keiluspili þegar aðrir leikmenn
deildarinnar voru á fullri ferð í bar-
áttunni á miðvikudagskvöldið. Þeir
komust þá ekki til Eyja og heldur
ekki í gærkvöldij en ekki var flogið
þangað. Leikur IBV og Hauka hef-
ur verið settur á um aðra helgi.
Þegar ljóst var að Haukar komust
ekki til Eyja, notuðu þeir tækifærið
og léku keilu — og sýndu ótrúlega
takta, eins og einn sjónarvottur
sagði. Þrátt fyrir að hafa eingöngu
leikið keilu á miðvikudagskvöldið,
halda Haukar toppsæti sínu. Hér á
myndinni eru þrír leikmenn liðsins
— Siguijón Sigurðsson, Petr
Baumruk og Bjarni Frostason.
Lyn vill lá Andra
„Sendum samning til íslands á morgun," sagði Arne Dokken, framkvæmdastjóri Lyn
ÓSLÓARFÉLAGIÐ Lyn, sem
féll f 2. deild á dögunum,
hefur mikinn áhuga á að fá
landsliðsmanninn Andra
Marteinsson, miðvallarspil-
ara hjá FH, til liðs við sig.
Félagið bauð Andra til Osló-
ar til viðræðna og kanna
aðstæður hjá félaginu — og
fór hann þangað sl. mánu-
dag.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvatdsson
Arne Dokken, framkvæmda-
stjóri Lyn, sem tók við starf-
inu fyrir stuttu, eftir að hafa verið
hjá Rosenborg, sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að
Andri hafi verið hjá félaginu í tvo
daga. „Okkur líst vel á Andra í
þá tvo daga sem við ræddum við
hann, en Andri gat lítið æft með
okkur. Við ræddum málin fram
og aftur og buðum honum óbeinan
samning. Við munum senda samn-
ing til Island á morgun [í dag],
en hvort að Andri komi til okkar,
fer allt eftir því hvaða kröfur koma
frá honum og félagi hans. Ef það
eru háar kröfur, verður ekkert um
samning,“ sagði Dokken.
Það getur farið svo að þrír
landsliðsmenn leiki í Noregi næsta
keppnistímabil, því að Antony
Karl Gregory, Val, og Kristján
Jónsson, Fram, eru með tilboð frá
1. deildarfélaginu Bodö. Forráða-
menn Bödö sögðu í viðtali við
Morgunblaðið á dögunum, eins og
Dokken sagði í gærkvöldi, að það
fari allt eftir því hvað leikmennirn-
ir væru dýrir — hvort að samning-
ar yrðu gerðir. Þeir yrðu að vera
ódýrari en sambærilegir leikmenn
í Noregi.
Beckenbauer með
þáttfrá HMí
Bandaríkjunum
FRANZ „keisari" Beckenbauer verður með
eigin sjónvarpsþátt meðan á heimsmeistara-
mótinu í knattspymu stendur í Bandarílq'un-
um stendur næsta sumar. Beckenbauer, sem
varð heimsmeistari sem leikmaður og síðan
sem þjálfari 1990, hefur oft komið fram í
sjónvarpi við lýsingar á leikjum, en nú hefur
þýska sjónvarpstöðin Premiere fengið hann
til að vera með daglegan viðtalsþátt um HM,
sem sendur verður út frá höfuðstöðvum Þjóð-
veija í Chicago.
Auk þess að fylgjast með og segja frá
heimsmeisturum Þjóðverja, vonast Becken-
bauer til að bjóða upp á viðtöl við ýmsa að
fyrrum andstæðingum sínum á vellinum, eins
og Pele hin brasilíska og Englendinginn
Bobby Charlton.
Heysel tekinn í
notkunáný
Hafíst verður handa við breytingar á Heys-
el-leikvanginum í Briissel á næsta ári, en þar
létu 39 manns lífið í óeirðum fyrir úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu
1985. Eftir breytingamar verður einvörð-
ungu boðið upp á sæti fyrir áhorfendur; fyr-
ir alls 40.000 manns. Belgíska ríkisstjómin
samþykkti í síðustu viku að leggja andvirði
rúmlega eins milljarðs króna í verkið. Vinna
hefst eftir alþjóðlegt frjálsíþróttamót sem
fram fer á vellinum 19. ágúst á næsta ári og
á að vera lokið fyrir vináttulandsleik Belga
og Þjóðverja í ágúst 1995, í tilefni 100 ára
afmælis belgíska knattspyrnusambandsins.
Jordi Cruyff með
Barcelona
JORDI Cruyff, sonur Johans, þjálfara
Barcelona sem á árum áður var einn besti
knattspyrnumaður heims, skrifaði í gær und-
ir fjögurra ára atvinnumannssamning við
spænska stórliðið, nákvæmlega 20 ámm eft-
ir að faðir hans lék í fyrsta skipti með lið-
inu. Það gerði Johan 28. október 1973 er í
4:0 sigri gegn Granada, og skoraði Johan
þá tvívegis. Jordi, sem er 19 ára, hefur undan-
farið leikið með áhugamannaliði félagsins.
Hann sagðist í gær helst vilja fá frið til að
þróast sem leikmaður, en ekki lenda í því
að vera sífellt borinn saman við föðurinn.
En viðurkenndi þó: „Ég hefði gjarnan viljað
hafa fæðst örlítið fyrr til að geta séð föður
minn leika með Barcelona. Jordi var með í
70 mínútur í æfingaleik gegn FC Kaup-
mannahöfn í Danmörku á þriðjudaginn og
þótti standa sig mjög vel I 3:2 sigri.
Sækir Lahti um
vetrarleika?
LAHTI i Finnlandi hefur í hyggju að sækja
um að halda Vetrarólympíuleikana árið 2006
þó svo að engin fjöll séu nálægt bænum.
Peter Tallberg, stjómamaður í finnsku
ólympíunefndinni, sagði að ef Lahti myndi
sækja um færu alpagreinarnar fram annað
hvort í Svíþjóð eða Noregi. Tallberg sagði
að þeir myndu heldur ekki byggja sleðabraut
í Lahli og yrði sleðakeppnin að fara fram
annarstaðar, líklega í Lillehammer þar sem
leikamir fara fram í febrúar.
Andrl Martelnsson, landsliðsmaður, í lelk með FH-liðinu.
Hácken vill fá
Sigurð og Rúnar
Þeir myndu sóma sérvel á miðjunni, segir Arnór Guðjohnsen
SÆNSKA félagið Hácken, sem Arnór Guðjo-
hnsen leikur með, hefur mikinn áhuga á að
fá miðvallarleikmennina Rúnar Kristinsson
úr KR og Sigurð Jónsson frá Akranesi í raðir
sínar fyrir næsta keppnistímabil. Rúnar æfði
með félaginu fyrir skömmu og Sigurður fer
hugsanlega til Gautaborgar í næstu viku til
að ræða við forráðamenn félagsins.
Arnór sagði við Morgunblaðið í gær að þjálfari
Hácken hefði beðið sig að tala við Sigurð
Jónsson. „Þjálfarinn þekkir til Sigurðar og vill fá
hann hingað til viðræðna. Ég veit að þjálfarinn var
mjög ánægður með það sem hann sá til Rúnars
er hann var hjá okkur í síðustu viku. Það er ljóst
að ef liðið ætlar sér að ná Evrópusæti verður það
að fá tvo góða miðjumenn og ég tel Rúnar og Sig-
urð góðan kost. Þeir myndu sóma sér vel á miðj-
unni,“ sagði Arnór. Þess má geta að sænsk lið
mega hafa þijá útlendinga á samningi. Arnór sagð-
ist reikna með því að Gunnar Gíslason, sem hefur
einnig verið hjá félaginu, yrði ekki áfram næsta
tímabil.
Hácken endaði í sjötta sæti deildarinnar sem er
besti árangur liðsins. Amór sagði að síðasta æfing-
in hjá liðinu yrði á þriðjudaginn og þá væru leik-
menn lausir. Þjálfarinn og forráðamenn félagsins
ásamt nokkrum leikmönnum fóru í skemmtiferð
til London og koma til Gautaborgar aftur á mánu-
dag. „Ég reikna með að koma heim til íslands í
næstu viku í langt jólafrí framyfir áramót," sagði
Amór.
„Amór langbestur“
Sigurður Jónsson sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær að hann færi ef til vill til viðræðna við
forráðamenn Hácken í næstu viku, þó ekki væri
það öruggt. „Ég sá liðið leika á heimavelli gegn
Helsingborg um daginn, þannig að ég veit alveg
hvernig það er. Þetta var nú enginn stórleikur sem
ég sá, en Amór var langbestur. Yfirburðamaður á
vellinum, og sá eini sem virtist þess virði að borga
fyrir að sjá spila. Fólkið í stúkunni þar sem ég sat
var mjög ánægt með Arnór, enda gerði hann virki-
lega laglega hluti,“ sagði Sigurður Jónsson.
Því má bæta við að Arnór varð stigahæstur í
einkunnagjöf stórblaðsins Svenska Dagbladet þegar
upp var staðið í lok nýliðins keppnistímabils, og
því leikmaður ársins í sænsku úrvalsdeildinni að
mati blaðsins.
Valdimar í
Stjömuna
Valdimar Kristófersson, sókn-
arleikmaður í Fram, ákvað
í gær að snúa á ný til Stjörnunn-
ar, eins og félagi hans Ingólfur
Ingólfssoii. Valdimar hefur átt við
meiðsli að stríða í nára að undan-
förnu.
„Ekki sáttur viö...“
í frétt blaðsins í gær um að
Ingólfur Ingólfsson hafi ákveðið
að skipta úr Fram yfir í Stjömuna
féll út ein lína við vinnslu blaðs-
ins. Það sem haft var eftir honum
átti að vera þannig: „Ástæðan
fyrir því að ég skipti er að ég hef
ekki verið sáttur við eigin
frammistöðu hjá Fram,“ sagði
Ingólfur Ingólfsson. Það sem er
feitletrað féll út í gær og er beð-
ist velvirðingar á því.
KNATTSPYRNA
Manojlovic
til Eyja
Serbinn Dragan Manojlovic, 28
ára vamarleikmaður, sem hef-
ur leikið með Þrótti Reykjavík sl.
þijú á mun skrifa undir samning
við ÍBV um helgina.
ÚRSLIT
Handknattleikur
2. DEILD KARLA:
Fjölnir - UBK...........27:20
Ármann - Grótta.........20:17
Knattspyrna
FRAKKLAND - 1. DEILD:
Auxerre - Cannes..........0:0
ÍTALfA - BIKARKEPPNIN:
Torinó - Ascoli...........0:0
■Torínó vann samanlagt 3:1