Morgunblaðið - 29.10.1993, Qupperneq 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
sióváR^almennar
MORGUNBLAÐlfí, KRINGLAN 1 109 IŒYKJA VÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 091181, PÓSTHÚLF 9010 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Nafnvextir
á útlánum
lækka um
2% 1. nóv.
VIÐSKIPTABANKARNIR munu í
dag taka ákvarðanir um vaxta-
lækkanir, sem taka munu gildi nú
á mánudag, 1. nóvember. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins munu allir bankarnir
lækka nafnvexti sína á óverð-
tryggðum útlánum.
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um að Landsbanki og Búnaðarbanki
muni að meðaltali lækka vexti á
óverðtryggðum útlánum um allt að
2% og var í gær búist við að íslands-
banki lækkaði vexti á óverðtryggðum
útlánum svipað, eða heldur minna.
Eitthvað verður mismunandi eftir
flokkum hve mikið nafnvextir útlána
lækka og í einstaka tilfellum verður
einungis um 1,5% lækkun, en að
meðaltali verður nafnvaxtalækkunin
um 2% á óverðtryggðum útlánum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins verða óverulegar vaxta-
breytingar á innlánsvöxtum við-
. skiptabankanna.
-----» ♦ ♦----
Vsk. á ferðaþjónustu
Verðlag í er-
lendri mynt
hækkar ekki
ERLENDIR ferðamenn munu
greiða sama verð fyrir ferðaþjón-
ustu hér á næsta ári og í ár, þó
að vsk. verði lagður á ferðaþjón-
ustu um áramót. Þetta á við um
flesta sem þegar hafa gefið út
verðlista fyrir næsta ár, til dæmis
hótel.
Magnús Oddsson ferðamálastjóri-
segir ferðaþjónustuaðila hafa ákveð-
ið að halda óbreyttu verði í erlendri
mynt þar sem markaðir þyldu ekki
hærra verð en óljóst er hvort verð
breytist innanlands í krónum.
Magnús segist hafa áhyggjur af
því að ferðaþjónustuaðilar dragi úr
landkynningu til að mæta kostnaði
vegna virðisaukaskatts.
Sjá: „Mun virðisaukaskatt-
ur. . .“ bls. C-8.
FJÓRBURARNIR i Mosfellsbæ verða fímm ára á mánudaginn. Þær eru
hálfan daginn á leikskólanum Hlaðhömrum þar sem myndin var tekin af þeim
í gær. Alexandra var þegar farin að undirbúa afmælið sitt en hún bar af-
mæliskórónu sem bömin á Hlaðhömrum gáfu henni á fjögurra ára afmælis-
Fjórburarnir fimm ára
Morgunblaðið/RAX
deginum í fyrra. Systumar voru ekki búnar að ákveða hvað þær langaði
mest að fá í afmælisgjöf enda nógur tími til að hugsa um það fram á mánu-
dag. Þær sungu hins vegar hárri raustu. Systumar em frá vinstri: Alex-
andra, Diljá, Bi-ynhildur og Elín. Og fyrir aftan má sjá börn á leikskólanum.
LÍÚ kamiar kostnað við að
byggja olíiibirgðastöðvar
STJORN LIU hefur ráðið verk-
fræðiskrifstofu til þess að
kanna kostnað við að reisa fjór-
ar olíubirgðarstöðvar þar sem
Viðræður íslenskra og bandarískra
stjórnvalda um Keflavíkurstöðina
Líklega fundar-
höld í næstu viku
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að hann telji að Bandaríkja-
menn séu komnir það vel á veg með að undirbúa tillögur sínar
fyrir næsta viðræðufund íslenskra og bandarískra stjórnvalda um
framtíð varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, að næsti viðræðu-
fundur aðila ætti að verða á næstunni. Gunnar Pálsson skrifstofu-
stjóri alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að góðar líkur væru á að viðræðufundur yrði
ákveðinn í Washington í næstu viku.
„Viðbrögð Bandaríkjamanna við
athugasemdum okkar voru á þann
veg, að þeir lýstu því yfir að þeir
vildu flýta viðræðum íslenskra og
bandarískra stjórnvalda, en það er
ekki komin nein ákveðin dagsetning
í þeim efnum,“ sagði forsætisráð-
herra í samtali við Morgunblaðið,
er hann var spurður hver viðbrögð
Bandaríkjastjórnar hefðu verið, eft-
ir að Þorsteinn Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytisins,
kom óánægju íslenskra stjómvalda
með seinagang viðræðnanna á
framfæri við starfandi sendiherra
Bandaríkjanna.
Davíð sagði jafnframt: „Þetta
hefur nú gengið um nokkra hríð á
milli þeirra ráðuneyta í Bandaríkj-
unum sem fjalla um málið-
(Pentagon, sem er vamarmálaráðu-
neytið, og State Department, sem
er utanríkisráðunejdið - innsk.
Mbl.), og ég hygg að það sé mjög
stutt í að þeir ijúki starfí sínu, þann-
ig að við búumst við því að fyrir
10. nóvember nk. ætti málið að
vera komið í viðræðufarveg."
olía væri afgreidd frá leiðslu.
„Það er ekki ætlun okkar að
reisa fjórða dreifingarkerfið,
nema í ljós komi augljós hagn-
aður af þeirri starfsemi," sagði
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, á aðalfundi samtakanna í
gær.
Kristján sagði olíu einn kostnað-
armesta þátt útgerðarrekstursins.
„Okkur hefur lengi verið ljóst að
olía er hér 50 til 60% dýrari en
sambærileg olía sem við fáum í
erlendum fiskihöfnum. Olíuvið-
skipti eru hér bundin í úreltri laga-
setningu sem segir að olía skuli
alls staðar vera seld á sama verði
án tillits til magns. Þetta fyrir-
komulag kemur í veg fyrir alla
samkeppni og eru það hagsmunir
útgerðar að þetta kerfí verði af-
numið,“ sagði Kristján.
Þróunarsjóður léttir byrðai’
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra ávarpaði fundarmenn og
ræddi meðal annars um breytingar
á fiskveiðistjórnuninni og Þróunar-
sjóð sjávarútvegsins. Hann sagði
að fiskveiðistjórnun væri nauðsyn-
leg vegna skorts á fiski og hvað
veiðileyfagjald varðaði væri eðli-
legt að skattleggja tekjur og gróða
útgerðarmanna, en hitt væri full-
komlega óeðlilegt að skattleggja
skortinn. Um Þróunarsjóðinn sagði
Þorsteinn að stofnun hans virtist
létta byrðar sjávarútvegsins frekar
en hitt.
Kristján Ragnarsson, formaður
stjórnar LÍÚ, var á móti tillögum
sjávarútvegsráðherra um breyt-
ingar á lögum um stjórn fiskveiða
og í ræðu sinni kallaði hann þær
atlögu að núverandi skipulagi við
veiðistjórnun og sagði svo: „Að
mati stjórnar LJÚ eru svo miklir
annmarkar á efni þeirra tillagna,
að þær væru betur ófluttar í frum-
varpi til laga.“
Sjá nánari fréttir af aðalfundi
LÍÚ á bls. 16.
Togarinn Framnes ÍS
seldur til Isafjarðar
ísafirði.
FÁFNIR hf. á Þingeyri og Ishúsfélag Isfirðinga, Isafirði, undirrituðu
sl. miðvikudag, 27. október, samning um kaup Ishúsfélags ísfirðinga
á hlutabréfum^ Fáfnis í Arnarnúpi hf., en það félag gerir út togar-
ann Framnes IS 708 og áttu íshúsfélagsmenn helming hlutabréfa í
félaginu fyrir. Samningurinn var undirritaður með fyrirvara og
samþykki stjórna félaganna.
Að sögn forsvarsmanna Fáfnis
hf. á Þingeyri mun ástæða fyrir
sölunni vera fjárhagsleg og rekstr-
arleg endurskipulagning félagsins.
Togara Fáfnis hf., Sléttanesi ÍS
808, var sem kunnugt er nýverið
breytt í frystiskip en þar sem ekki
hefur fengist fullvinnsluleyfi fyrir
skipið hefur ekki reynst mögulegt
að ná út úr því hámarksframlegð.
Búist er við að skipið fái fullvinnslu-
leyfi á allra næstu dögum og er þá
gert ráð fyrir að áætlanir um rekst-
ur þess muni standast.
Línubátar í staðinn
Fáfnismenn á Þingeyri eru að
athuga með kaup eða leigu á línu-
báti og gerður hefur verið löndunar-
samningur við Auðun ÍS frá
ísafírði. Einnig er unnið að gerð
sölusamninga um framleiðslu úr
sjófrystum afurðum af Sléttanesinu
og er hér um að ræða framleiðslu
sem gæti skipt hundruðum tonna á
ársgrundvelli, þannig að fyrirtækið
hyggst halda uppi fullri atvinnu í
frystihúsi staðarins þrátt fyrir sölu
togarans.
Á Framnesi hafa að jafnaði starf-
að 7-8 menn frá Þingeyri og er
ekki gert ráð fyrir breytingum á
mannahaldi vegna sölunnar.