Morgunblaðið - 31.10.1993, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C
248. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuðlaberg
AUSTUR í Hreppum er stuðlabergsnáma sem nýtt hefur verið
í nærri 20 ár. Þegar efnistakan hófst var hóllinn ekki jafn
glæsilegur og á að líta og nú þegar tignarlegt bergstálið blas-
ir við. Ur þessari námu kemur megnið af því stuðlabergi sem
notað er í legsteina, en æ fleiri velja það efni fremur en inn-
fluttar steintegundir á leiði. Einnig hafa verið unnar steinflísar
á gólf Útvarpshússins, flugstöðvarinnar og fleiri stórbygginga,
úr námunni. Þá er ótalið listaverk það sem myndhöggvarinn
Serra setti upp í Viðey, en efniviðurinn í það var sóttur í þessa
námu. Sjá B-blað, bls. 1: „Saga steins..."
Liðsmenn Gamsakhurdia gera árás á georgíska og rússneska hermenn
Stj órnarherinn hrekkur
fyrir uppreisnarmönnum
Moskvu, Tblisi. Reuter.
GEORGÍSKIR stjórnarhermenn hörf-
uðu í gær frá Khobi og Senaki í
vesturhluta landsins undan árásum
liðsmanna Zviads Gamsakhurdia, að
sögn georgíska útvarpsins. Uppreisn-
armenn réðust einnig á rússneska
hermenn, er gæta mikilvægrar járn-
brautarlínu, en heimildarmenn
greindi á um hvort Rússar hefðu hörf-
að eða varist.
Sagði útvarpið að óbreyttir borgarar
hefðu farist í árásum á Senaki þar sem
uppreisnarmenn hefðu skotið eldflaugum á
borgina og síðar leitað skjóls í íbúðarhverf-
um. Hefðu stjórnarhermenn hörfað frá
borginni til að koma í veg fyrir frekara
mannfall. Hart hefur einnig verið barist
um Khobi, sem stjórnarherinn náði úr hönd-
um uppreisnarmanna á föstudag en þeir I Ekki er vitað hvar Edúard Shevardnadze
höfðu þá haft borgina á valdi sínu í sólar- forseti heldur sig en hann fiaug í gær til
hring. I Kutaisi í vesturhluta landsins.
Vonir um að skógareldar í S-Kaliforníu séu í rénun
Hættan ekki liðin hjá
Los Angeles. Reuter.
SLÖKKVILIÐSMENN í Suður-Kaliforníu voru vongóðir í gær um að þeim tækist að
ráða niðurlögum skógarelda sem geisað hafa síðan á miðvikudag. Yfir 700 hús hafa
brunmð til osku í eldunum en talið er
Yfirvöld leggja þó áherslu á að hættan sé
Logn og kólnandi veður hefur komið
slökkviliðsmönnum til góða en spáð var
hvassviðri að nýju á laugardagsmorgun að
staðartíma.
brennuvargar hafi kveikt hluta þeirra.
engan veginn liðin hjá.
Fundist hafa merki þess að brennuvargar
hafi kveikt nokkra elda og hafa yfirvöld
heitið 50.000 dala verðlaunum fyrir upplýs-
ingar er leitt geta til handtöku sökudólganna.
Myndskreytt
biblía munks
NÝSTÁRLEG myndskreytt útgáfa af
biblíunni er væntanleg í bókaverslanir í
Bretlandi á næstunni. Hún er skreytt
ljósmyndum sem voru teknar í ísrael og
var allt kapp lagt á að þær væru sem
raunverulegastar. Meðal þess sem sett
var á svið er dráp Kains á Abel. Það er
breskur munkur, Henry Wansbrough úr
Abbelforth-klaustri, sem hefur umsjón
með útgáfunni. Pyrirsæturnar eru Isra-
elar og var tökuliðið vopnað vélbyssum
til öryggis meðan á myndatökunum stóð.
Reyndist full þörf á öryggisráðstöfunum
þar sem gerð var árás á einn tökustað-
inn. Þá reyndi arabi að stöðva fyrirsæt-
urnar er verið var að taka mynd þar sem
heilagur Stefán er grýttur. Taldi arabinn
um raunverulegan atburð að ræða.
Metsala sjálfs-
morðsbókar
ÓHÆTT er að segja að nýjasta metsölu-
bók Japana hafi vakið forvitni langt út
fyrir landssteinana. „Sjálfsmorðshand-
bókin“ hefur selst í yfir 150.000 eintök-
um á síðustu þremur mánuðum og virð-
ist ekkert lát á vinsældum hennar. Bók-
in skiptist í tíu kafla sem fjalla um jafn-
margar aðferðir til að stytta sér aldur.
Gefur höfundurinn hverri aðferð ein-
kunn eftir því hversu árangursrík og
sársaukafull hún er og hvort fram-
kvæmdin sé flókin.
Gátan leyst?
GÁTAN um það hvernig fósturvísir vérð-
ur að manni, kann að vera leyst. Vísinda-
menn við Kaliforniuháskóla, Berkeley,
sögðu frá því í nýjasta hefti Science að
þeim hefði tekist að greina prótin sem
stýrir því að fósturvísir myndar vef sem
þróast í heila og mænu. Þeir binda von-
ir við að í framtíðinni muni uppgötvun
þeirra jafnvel leiða til þess að hægt verði
að endurnýja heilafrumur sjúklinga með
sjúkdóma á borð við Alzheimer og Park-
insonsveiki. Það sé þó enn fjarlægur
draumur. Vonast þeir til að skemmri tími
líði þar til koma megi í veg fyrir frek-
ari heilaskaða hjá þessum sjúklingum.
Ekki eru þó allir vísindamenn sannfærð-
ir um gildi uppgötvunar vísindamann-
anna við Berkeley. Segja þeir mögulegt
að prótínið nýfundna sijórni ekki mynd-
un heila og mænu, heldur líkist einungis
því prótíni mjög.
Bónorð í bíó
KEVIN Beale í breska bænum Bath, var
svo hrifinn af kvikmyndinni „Svefnvana
í Seattle" að hann bað unnustu sinnar í
lok sýningarinnar að viðstöddum 150
kvikmyndahússgestum. Hún játaðist
honum.
Réttindi almennings 18
- skyldur fjölmióla 1ú KENNARI GEGN KERFINU
KALLII KALLABÆ