Morgunblaðið - 31.10.1993, Page 4

Morgunblaðið - 31.10.1993, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 ERLEIMT INNLENT Raunvextir lækki á næstunni MEÐ samræmdum aðgerðum stefnir ríkisstjórnin að því að raun- vextir lækki hér hratt og örugg- lega, þannig að vextir af verð- tryggðum ríkisskuldabréfum verði á bilinu 5% til 5,5% þegar líða tek- ur að áramótum. Helsta tæki sem stjórnvöld munu beita á fjár- magnsmarkaðinum til þess að ná þessum árangri er sú ákvörðun að selja ekki ríkisskuldabréf á inn- lendum markaði, nema fjárfestar sætti sig við 5% vexti á verðtryggð- um bréfum. Að öðrum kosti mun ríkissjóður leita í auknum mæli á erlendan lánamarkað. Auk þess mun Seðlabankinn beita sér með öflugum hætti á eftirmarkaði fyrir spariskírteini. Ríkið sýknað í skinkumálinu HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað ríkissjóð af öllum kröfum Hagkaupa í máli sem fyr- irtækið höfðaði til að fá ógilta synj- un fjármálaráðherra og landbún- aðarráðherra um tollafgreiðslu á rúmu tonni af soðinni svínaskinku og tæplega 1,5 tonnum af soðnum hamborgarhrygg. Hagkaup kröfð- ust 1,3 milljóna króna skaðabóta. Fyrirtækið hyggst áfrýja niður- stöðunni til Hæstaréttar. Óbreytt forysta DAVÍÐ Oddsson og Friðrik Soph- usson voru endurkjörnir til for- mennsku og varaformennsku á 31. landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem lauk á sunnudag. Davíð hlaut 78,87% atkvæða í formannskjöri, Friðrik 74,9% í varaformannskjöri. Tæplega 1.300 manns sóttu fund- inn af um 1.800 sem áttu rétt til fundarsetu. Andstaða við fiskveiðifrumvarp SAMKVÆMT frumvarpi um breytingar á stjóm fískveiða er m.a. gert ráð fyrir að krókabátar fái 5,5% af heildarafla þorsks, ýsu og ufsa. Eigendur smábáta eru mjög óánægðir með þessar tillögur og í ríkisstjórn hefur Ossur Skarp- héðinsson lýst andstöðu sinni við þær. Misjöfn afkoma bankanna HAGNAÐUR Landsbanka íslands eftir fyrstu níu mánuði þessa árs, var 260,5 milljónir króna eftir áætláða skatta, samkvæmt níu mánaða bráðabirðgauppgjöri bankans. Rekstursafkoma Lands- bankans er þannig um 270 millj- ónum króna betri þessa.fyrstu níu mánuði ársins, borið saman við sama tímabil á liðnu ári. Tap Is- landsbanka nam 221 milljón króna fyrstu átta mánuði ársins saman- borið við 79 milljónir á sama tíma í fyrra. Milljarður úr Smugunni AFLAVERÐMÆTI íslensku skip- anna sem í haust hafa verið að veiðum í Smugunni nálgast nú einn milljarð króna og aflinn er hátt í 7.000 tonn. Mikil aflahrota var á þessum slóðum fyrir um 10 dögum. Kröfur í Miklagarð 1.778 milljónir LÝSTAR kröfur í þrotabú Mikla- garðs hf. námu samtals 1.778 milljónum króna en skiptastjórar hafa samþykkt kröfur að fjárhæð 1.221 milljón króna. Stærsti kröfu- hafi er Landsbanki íslands sem lýsti 528 milljóná króna kröfum og fékk samþykktar 475 milljóna króna almennar kröfur: ERLENT Jean Chretien Kanadíski íhaldsflokk- urinn geld- ur afhroð FRJÁLSLYNDI flokkurinn í Kanada vann yfirburðasigur í kosningunum á mánudag og talið er að óánægja kjósenda með kreppu og mik- ið atvinnuleysi hafi ráðið úr- slitum. íhalds- flokkurinn, sem verið hefur við völd í níu ár, fékk hins vegar einhveija verstu útreið sem sögur fara af hjá stjórnarflokki á Vestur- löndum, fékk aðeins tvö sæti af 295 en hafði áður 170. Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn er nú aðskilnaðarflokkur Quebec-búa sem vill sjálfstæði fylkisins. Umbó- taflokkurinn, nýr hægriflokkur sem einkum sækir fylgi til íbúa í vesturfylkjunum, er þriðji í röðinni en hann er andvígur frekari tilslök- unum gagnvart sérkröfum Quebec. Jean Chretien, leiðtogi Fijáls- lynda flokksins, hvatti landa sína ákaft til að ijúfa ekki einingu landsins. Hindra könnun á stríðsglæpum TALSMENN Sameinuðu þjóðanna segja að króatískir hermenn hafi margsinnis haft í frammi hótanir og hindrað störf sænskra friðar- gæsluliða sem kanna meint fjölda- morð Króata á múslimum í smá- þorpi í Mið-Bosníu. Fulltrúar Sam- einuðu þjóðanna segja að friðar- gæsluliðarnir hafi fundið gögn sem sanni að Bosníu-Króatar hafi myrt fjölda óbreyttra borgara úr röðum múslima í árás sem gerð var um síðustu helgi. Stríðshörmungar í Angóla VERIÐ getur að allt að hálf millj- ón manna, fimm prósent íbúanna, hafi látið lífið síðasta árið vegna borgarastyijaldarinnar í Angóla. Um 1.000 manns deyja daglega vegna stríðsins, hungurs og sjúk- dóma. íbúar landsins eru 10 millj- ónir og talið er að þriðjungur þeirra hafi flosnað upp. Flóttafólk frá borginni Cuito, sem uppreisn- armenri Unita-hreyfingarinnar hafa setið um í níu mánuði, segir að fólk þar hafi lagst á náina frem- ur en að verða hungurdauðanum að bráð. Lægsta álverð frá árinu 1985 ÁLVERÐ lækkaði á þriðjudag á heimsmarkaði um 3% og hefur aldrei verið jafn lágt frá árinu 1985, eða í átta ár. Búist er við að ál gigi eftir að lækka enn meira í verði vegna efnahagslægðar í heiminum, mikils útflutnings á ódýru áli frá Rússlandi og tregðu álframleiðenda til að draga úr framleiðslunni. Óöld í Belfast mótmælt UM SEX þúsund manns gengu um götur Belfast á mánudag til að mótmæla tilræði írska lýðveld- ishersins (IRA) um síðustu helgi og votta fórnarlömbunum tíu virð- ingu sína. í hópnum voru kaþólsk- ir menn og við tilræðisstaðinn voru Iögð blóm með samúðarkveðjum frá kaþólskum borgurum. Stytt vinnuvika í stað uppsagna ÞÝSKU bílaverksmiðjurnar Volkswagen birtu á mánudag áform um að stytta vinnuvikuna niður í fjóra daga til þess að draga úr launakostnaði vegna dökks út- lits í rekstri fyrirtækisins. Laun- þegasamtök styðja aðgerðirnar, telja styttingu vinnuvikunnar æskilegri en uppsagnir, jafnvel þó það þýði kauplækkun. Keuter Heiðursvörður með úreltan búnað HERMENN litháísku stjórnarinnar halda fast um nýfengin reiðhjólin er þeir standa heiðursvörð við komu sænska utanríkisráðherrans til Litháens á föstudag. Herinn fékk nýlega þijú hundruð tonn af úreltum herbúnaði til afnota. Þar á meðal voru 3.000 reiðhjól, 14 vörubflar og 10.000 hermannabúningar. Bognar gúrkur ekki bannvara í EB o g sjómenn þurfa ekki hárnet Hurd gerir atlögu að furðusögum um EB London. Frá Ólafi Þ. Stephcnsen, fréttaritara Morgunblaðsins. BRETAR eru manna duglegastir að segja hryllingssögur af Evrópu- bandalaginu. Á öldurhúsum og í lestarvögnum fjargviðrast menn yfir heimskulegum reglugerðum skriffinna í Brussel, sem oftar en ekki virðast í augum Breta miða að því að svipta þá þjóðareinkennum sín- um. Það flýgur fjöllunum hærra að EB ætli að leggja niður mjólkur- pósta eða skera hæð ofan af strætisvögnunum í London. Brezka utan- ríkisráðuneytið, með Douglas Hurd utanríkisráðherra í broddi fylking- ar, hefur nú skorið upp herör gegn furðusögunum um EB og gefið út bækling, sem ér til þess ætlaður að hrekja „evró-goðsagnir“ og „evró-grýlur“ og gera almenningi ljósan vi(ja stjórnvalda til að leiðrétta „evró-vitleysurnar“. Samkvæmt EB-reglugerð frá 1979 má nefnilega bara nota ávexti í marmelað'Í! En bráðum kemur betri tíð, segir Hurd í formála sínum. Ut- anríkisráðherrann segir að gulróta- reglugerðin og ýmsar aðrar verði vonandi afnumdar á næstu árum og nú þegar hafi náðst mikilsverður árangur til fækkunar EB-reglna. Helmingi færri reglugerðir hafi verið gefnar út á seinasta ári en árið 1990. I bæklingnum, sem Hurd ritar sjálfur formála að, eru fjörutíu vin- sælustu evró-sögurnar raktar og staðreyndirnar að baki þeim tíund- aðar. Ef trúa má ráðuneytismönnum er ekki flugfótur fyrir því að bognar gúrkur séu bannaðar í EB. Þær eru hins vegar í öðrum flokki en beinu gúrkumar vegna þess að það er erfið- ara að pakka þeim og „þess vegna geta þeir, sem taka bognar gúrkur fram yfir beinar, fengið þær á lægra verði,“ segir ráðuneytið. Það er líka hreinasta vitleysa að EB hyggist banna heimatilbúna sultu eða loka kjötbúðum þar sem notað er sag á gólfið. Einhvern veginn hefur það líka komizt á kreik að bandalagið vilji ekki nota brezka eik til hús- gangasmíða, af því að hún sé of kvistótt. Kjaftæði, segir utanríkis- ráðuneytið. Vangi Elísabetar, ekki Delors Það er heldur ekki hætta á þvl að vangasvipur Elísabetar drottning- ar víki fyrir mynd Jacques Delors á brezkum peningum. „Jafnvel þótt Bretland yrði aðili að sameiginlegum gjaldmiðli eftir mörg ár yrði mynd drottningarinnar áfram á myntinni okkar og seðlunum," fullvissar ráðu- neytið konungholla Breta. Og það er heldur ekki satt að sjómenn verði að vera með hárnet og séu skyldaðir til að hafa smokka í sjúkrakassanum um borð. Starfsmenn Hurds segja að þetta með hámetin sé misskilning- ur, sem hafi komið upp vegna heil- brigðisreglna f fiskvinnslustöðvum, sem eigi fullan rétt á sér. „Hver vilí annarra manna hár í fiskifingrunum sínum?“ spyr ráðuneytið. Það neitar jafnframt sögusögnum um að múl- asnar á brezkum baðströndum verði að vera með bleyjur, samkvæmt fyr- irskipun frá Brussel. Mjólkurpóstar áfram við lýði og slökkviliðið þarf ekki að hafa buxnaskipti Ofangreindar sögur falla í flokk evró-goðsagna hjá ráðuneytinu, þ.e. það er ekki flugufótur fyrir þeim. Evró-grýlurnar em hins vegar skil- greindar sem sögur, sem hafi orðið til vegna þess að reglur bandalagsins hafí verið mistúlkaðar. Þannig varð prentvilla til þess að margir Bretar halda að vinsælt sjónvarpsnasl með rækjubragði verði bannað innan tíð- ar. Ráðuneytið vísar því á bug að mjúkir ostar verði bannaðir — „sjáið þið Frakkana samþykkja það?“ — staðreyndin sé sú að ný heilbrigðis- reglugerð hafí misskilizt. Það verður heldur ekki bannað að láta kalkún hanga áður en tekið er innan úr honum og brezkt hakkabuff er und- anþegið ströngum reglum um megin- landshakkabuff. Fyrir misskilning hefur það líka komizt á kreik að mjólkurpóstar verði bannaðir — reyndar viðurkennir ráðuneytið að Bretar hafí þurft að beita sér sérstaklega til að tryggja tilveru þeirra. Sömuleiðis er það úr lausu lofti gripið að slökkviliðsmenn verði að klæðast ríáum evrógúmmí- buxum í framtíðinni í stað brezkra hlífðarbuxna, sem eru gular á litinn. Helmingsfækkun reglugerða Seinasti flokkurinn er svo evró-vit- Ieysurnar. Þar kveður heldur við annan tón hjá ráðuneytinu, því að þetta eru sögur, sem eiga sér stoð í raunveruleikanum og brezka ríkis- stjómin heldur sjálf á lofti. Þannig segir í bæklingnum, að það sé því miður rétt að landbúnaðarstefna EB kosti vísitölufjölskylduna rúmlega 100.000 krónur á ári. Bretar séu nú ekki verst staddir í þessum efnum, því að Norðurlandabúar þurfi að borga enn meira fyrir sitt vitlausa landbúnaðarkerfi. En engu að síður er breytinga þörf, segja Hurd og félagar. Þeir játa aukin heldur að gulrætur séu flokkaðar sem ávextir í Brussel, en það sé vegna þess að Portúgalir hafi heimtað það til að geta haldið áfram að búa til gulrótarmarmelaði. Lottóþjónusta Nóg að hringja inntölur Washington. Reuter. FYRIRTÆKIÐ LottoFone Inc í Virginíu hyggst nú bjóða bandarískum lottó- spilurum nýja þjónustu. Hægt verður að grípa sím- ann hvenær sem er sólar- hringsins, kaupa tölur og kostnaðurinn verður færður á reikning notandans. Með sérstakri tækni mun kerfið bera kennsl á rödd notand- ans til að koma í veg fyrir svindl. Notandinn mun lesa inn eig- ið lykilorð og stimpla inn tölu- stafakóða. Kerfið mun hringja í þá sem vinna og þátttakend- ur þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af því að vinning- smiðinn hafí týnst, það verður enginn slíkur fyrir hendi. Gert er ráð fyrir eins konar debet- kortagreiðslum sé um þátttöku í lottóspili heimaríkisins að ræða en ekki verður leyft að kaupa þjónustuna upp á krít. Fyrirhugað var að undirrita samning um þessa þjónustu við AT&T-símafyrirtækið í gær og er gert ráð fyrir að hann komi til framkvæmda eftir hálft ár. Hugmyndin er ekki ný, að sögn LottoFone, en nauðsynleg tækni var ekki til. reiðu fyrr en nýlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.