Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 Búið að velja fjóra særða Bosníumenn til viðbótar j . Ekki enn tekin ákvörðun um landvistarleyfi þeirra sem eru komnir til landsins BOSNIUMENNIRNIR tveir, sem komu til lækninga á Land- spítalanum 7. október, hafa verið færðir af spítaianum á sjúkrahótel. Halldór Jónsson, yfirlæknir á bæklunarskurð- deild, segist búast við að hægt verði að selja ný bein þar sem áður voru beinasýkingar eftir tvær vikur. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur val- ið fjóra særða Bosníumenn til viðbótar til að koma til Islands. Halldór sagði að búið væri að spengja bein, grafa út sýkingar og setja sýklalyf í sýkt sár mann- anna. Nú væri beðið eftir að lyfin þjónuðu sínum tilgangi og hægt væri að opna sárin og setja ný bein í staðinn. Áætlað væri að sú aðgerð færi fram eftir um tvær vikur en þangað til dvelst fólkið á sjúkrahóteli í nágrenni spítal- ans. Aðspurður kvaðst Halldór gera ráð fyrir að lækning yngri manns- ins, Davors Purusic, tæki um hálft ár en eldri maðurinn, Zlatan Mra- vinac, þyrfti um eitt ár til að jafna sig enda þyrfti hann að læra að ganga með gervifót. Árs landvistarleyfi Hvað andlega líðan fólksins varðaði sagði Halldór að sú til- hugsun að íslensk stjórnvöld hefðu enn ekki tekið ákvörðun um hvað yrði um fólkið eftir lækn- ingu mannanna íþyngdi þeim. Hann sagði í þessu sambandi að beðið hefði verið um greinargerð frá honum sjálfum og Hólmfríði Gísladóttur, starfsmanni Rauða krossins, um hversu mikla félags- og læknisfræðilega hjálp menn- irnir þyrftu á að halda ásamt kostnaðaráætlun þar að lútandi til að hægt væri að taka ákvörðun um áframhaldandi landvistarleyfi. Hefði því þá verið velt upp að fólkið fengi landvistarleyfi til eins árs en að þeim tíma liðnum gæti Morgunblaðið/Kristinn Vildi gjarnan eiga heima hér „EF okkur yrðu skapaðar aðstæður til að vera hér vildi ég gjarn- an eiga heima á íslandi. íslendingar eru ágætir en mér finnst þeir eiga erfitt með að gera sér grein fyrir því hvernig ástandið raunverulega er í Sarajevo. Hvernig fólk getur t.d. átt von á leyni- skyttu aðeins 50 metra frá heimili sínu,“ segir Zlatan (t.h.). Þeir Davor eru með stálramma á sköflungi og handlegg til að halda beinapípum í réttum skorðum þar til nýjum beinum hefur verið komið fyrir í stað sýktu beinanna. Davor, Zlatan og Nasiha, eigin- kona Zlatans, búa nú á sjúkrahóteli, fá frítt húsnæði og fæði, og 10 þúsund krónur á mánuði í vasapening. það sótt um landvistarleyfi á sömu forsendum og aðrir flóttamenn. Halldór sagði að það væri m.a. af þessum sökum sem hann hefði beðið um að flutningi fjögurra Bosníumanna til viðbótar við þessa tvo yrði frestað um sinn enda hefði ákvörðun stjórnvalda varðandi landvistarleyfí til handa þeim fordæmisgildi fyrir þá sem á eftir kæmu. Aðra ástæðu kvað hann vera þá að ráða þyrfti niður- lögum sýkinga í sárum mannanna tveggja áður en tekið yrði á móti fleirum. Um er að ræða 4 einstakl- inga, þrjá karla og eina konu, auk 8 fylgdarmanna. Fólkið er allt undir fertugu. Aðspurður kvaðst Halldór hafa tryggt að traustar upplýsingar um líðan þeirra væru í sjúkraskýrslum. Hann sagði að fjórmenningamir hefðu orðið fyrir svipuðum áverkum og þeir Davor og Zlatan. Ekki boðnir formlega velkomnir Bosníumennirnir þrír létu vel af sér þegar blaðamaður hitti þá að máli í vikunni. Þeir sögðu þó að ýmislegt hefði kornið þeim á óvart við komuna hingað. „Okkur finnst t.d. skrítið að enginn full- trúi stjórnvalda skuli hafa boðið okkur formlega veikomin. Eigin- lega var eins og engin bæri form- lega ábyrð á okkur í upphafi. Samt hafa allir verið okkur mjög góðir. Hjúkrunarfólkið stjanaði t.d. við okkur og gerði ailt sem það mögulega gat til að uppfylla óskir okkar á spítalanum,“ sagði Davor og Zlatan segist halda að þremeningarnir hafi komið ís- lenskum stjórnvöldum í vanda með því að óska eftir að fá að dveljast á íslandi eftir að lækn- ingu þeirra Davor yrði lokið. „Okkur finnst eins og stjórnvöld liafi aðeins hugsað sem svo:„Við fáum fólkið hingað bjóðum því lækningu og sendum það síðan aftur til síns heima,“ segir hann og bætir við að hvert svo sem framhaldið verði í Sarajevo sé þar engin framtíð fyrir þau næstu 10-15 árin. Ríkisendurskoðun um 300 millj. lán til reksturs fiskeldisstöðva 70-80% þessara lána eru tapað fé Lagt til að rekstri ábyrgðardeildar fiskeldislána verði hætt RÍKISENDURSKOÐUN telur að um 70-80% þeirra lána að upphæð 300 millj. kr. sem ríkisstjórnin ákvað í júní 1991 að veita til reksturs fiskeldisstöðva á árunum 1991 og 1992 til að viðhalda verkþekkingu og þróa nýjar aðferðir í fisk- eldi séu töpuð. Þetta kemur fram í skýrslu ríkisendurskoðun- ar og yfirskoðunarmanna ríkisreiknings um endurskoðun ríkisreiknings 1992. Telur stofnunin ljóst að markmiðið með lánunum, sem úthlutað var af sérstakri þriggja manna nefnd, hafi ekki náðst nema að mjög takmörkuðu leyti og bendir á að lánin hafi verið mjög áhættusöm, þar sem tryggingar fyrir lánunum voru aðallega í fiskinum sjálfum. Ríkisendurskoðun gagnrýnir sérstaklega ákvarðanir um ábyrgðir og lán vegna fiskeldis í skýrslu sinni. Bendir hún á að Ábyrgðardeild fiskeldislána hafi greitt alls 342 millj. vegna ábyrgða sem fallið hafa á deildina á árunum 1990 til 1992. Telur hún einnig að um 150 millj. kr. tapist vegna þeirra 188 millj. kr. ábyrgða sem deildin átti útistandandi í lok síð- asta árs. „Einsýnt er að ákvæði laga um tryggingar deildarinnar eru gagnslaus með öllu. Þá námu iðgjaldatekjur deildarinnar á um- ræddu tímabili samtals um 13 milljónum króna og hrökkva því engan veginn til að mæta tapinu vegna innleystra ábyrgða þrátt fyrir að lögin geri ráð fyrir að svo sé. Með hliðsjón af þessu telur Ríkisendurskoðun _ að forsendur fyrir starfrækslu Ábyrgðardeildar fískeldislána séu brostnar og að rétt sé að fmna stuðningi ríkisins við fískeldi annan farveg sé á ann- að borð vilji til að halda honum áfram,“ segir í skýrslunni. Rekstrartap Framkvæmdasjóðs 834 millj. Þá bendir Ríkisendurskoðun á að rekstrartap Framkvæmdasjóðs nam 834 millj. kr. á síðasta ári og í árslok var eigið fé sjóðsins nei- kvætt um 830 millj. „og mun ríkis- sjóður fyrr eða síðar verða að veita framlag til sjóðsins vegna þess,“ segir í skýrslunni. Ríkisendurskoð- un bendir á að árlegur rekstrar- kostnaður framkvæmdasjóðs vegna reksturs fiskeldisstöðva sem hann hefur yfírtekið nemi tugum milljóna kr. og nauðsynlegt sé að ákveða frekari samdrátt í starfsemi hans með sölu eða úreld- ingu eigna. Laxinn þreyttur VEIÐIMAÐUR glímir við lax á Skerjunum neðan Laxfoss í Norðurá, sem gaf mestu veiðina á liðnu sumri. Laxveiðin 1994 Ovissa um veiðihorfur ÖRÐUGT er að segja til um horfur fyrir laxveiðisumarið 1994. Spár fiskifræðinga fyrir nýliðið sumar brugðust að nokkru leyti. Höfðu þeir spáð mjög góðum göngum af báðum árgöngum sem von var á í árn- ar. Var spáin byggð á almennu árferði og styrkleika árganga sjógönguseiða 1991 og 1992. Að þessu sinni geta fiskifræðingar ekki spáð í styrkleika árganga gönguseiða þar eð mælingar fóru að miklu leyti út um þúfur í vor og sumar vegna vatna- vaxta. Guðni Guðbergsson, fiskifræð- ingur hjá Veiðimálastofnun, sagði í samtali við Morgunblaðið að mæl- anlegt hefði verið í Elliðaánum og þar hefði ástandið verið eðlilegt og seiðabúskapur greinilega í góðu ásigkomulagi. Annars staðar hefði ótíð gert rannsóknarmönnum erfitt fyrir, t.d. í Miðfjarðará, en þar hef- ur um árabil verið litið eftir ástandi gönguseiða. Einnig í Vopnafirði, en Garðar H. Svavarsson, stangaveiði- maður á Vakursstöðum 1 í Vopna- fírði, sagði í sumar að fiskifræðing- ar hefðu komið að minnsta kosti tvívegis til að mæla gönguseiðin í Vesturdalsá, en orðið frá að hverfa í bæði skiptin vegna vatnavaxta. Fiskifræðingar hafa meðal annars stuðst við mælingar þessar í spám sínum og Guðni sagði að þar sem þennan þátt vantaði nú í púslið hefðu fæst orð minnsta ábyrgð. Auk þess hefði spá og útkoma hennar fyrir nýliðið sumar verið þess eðlis að taka verði til endurskoðunar for- sendur slíkra spáa. Forstjóri Stálsmiðjunnar um 12,5% launalækkun starfsmanna Starfsfólk enn yfirborgað STARFSMENN Stálsmiðjunnar hf., en ákveðið hefur verið að lækka Iaun þeirra um 12,5% um næstu áramót, eru eftir sem áður yfirborg- aðir, að sögn Skúla Jónssonar forstjóra fyrirtækisins. Hann segir að launalækkunin sé liður í að skera niður kostnað í fyrirtækinu og með henni sé hlúð að starfsöryggi á vinnustaðnum. Skúli segir að launalækkunin vegi þungt í heildarniðurskurðinum en með honum sé reynt að komast hjá því að hækka verð á þeirri þjónustu sem Stálsmiðjan innir af hendi. Skúli sagði að ákvörðun um launalækkun hefði verið tekin í ljósi þeirra rekstrarforsendna sem menn þykjast sjá fyrir næsta ári. Staða útgerðarinnar sé það erfið að menn haldi að sér höndum, með allt við- hald. Hann sagði að sér væri kunn- ugt um að ákvarðanir af sama toga hefðu verið teknar í öðrum fyrir- tækjum og sér þætti leitt að svo virtist sem menn vildu færa átaka- punkt í verkalýðsmálum yfir á fyrir- tæki sitt. „Mér er einnig kunnugt um það að við greiðum hærri laun en samkeppnisaðilar okkar,“ segir Skúli. Mæta minnkandi tekjum Skúli kvaðst hafa kynnt það ítar- lega fyrir starfsmönnum, trúnaðar- mönnum og félögunum hvaða for- sendur liggja að baki launalækkun- inni. „Við verðum einfaldlega að mæta minnkandi tekjum á næsta ári með því að lækka okkar kostn- að. Launakostnaðurinn í þessu fyr-. irtæki er á bilinu 50-60% og það er útilokað að spara án þess að líta á þann kostnaðarlið, sem er stærst- ur,“ sagði Skúli. Skúli segir að verið sé að ná nið- ur kostnaði í öllu fyrirtækinu en hlutur launalækkunarinnar í niður- skurðinum er stærstur. í raun sé vandamálið það að þjónustan hafi verið seld of lágu verði miðað við þann kostnað sem fyrirtækið hefur þurft að bera. „Með þessum aðgerð- um ættum við kannski að geta kom- ið í veg fyrir að það þurfi að hækka verð á þjónustunni,“ sagði Skúli. Skúli sagði að ekki væru fyrir- hugaðar frekari uppsagnir og þess- ar aðgerðir núna væru m.a. til að tryggja það að hægt væri að halda núverandi starfsmannafjölda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.