Morgunblaðið - 31.10.1993, Page 10

Morgunblaðið - 31.10.1993, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 eftir Pál Þórhallsson ALMENNINGUR á rétt á upplýsingum í formi sannferðugra frétta og heiðarlegra skoðana. En gæta verður þess að skýr greinarmunur sé gerður á fréttum og skoðunum blaða- eða fréttamanns. Fjölmiðlar hafa skyldum að gegna við almenning en þeir mega ekki taka sér opinbert vald, til þess hafa þeir ekki lýðræðislegt umboð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun þings Evrópuráðsins um siðferði í blaðamennsku. skoðanafrelsi. í greinargerð með ályktun þings Evrópuráðsins segir að tjáningarfrelsi blaðamanna hljóti að temprast af rétti almennings til sannferðugra frétta og heiðarlegra skoðana en þetta hafi oft viljað Eins og kunnugt er íjallar Evr- ópuráðið, þar sem við íslend- ingar erum aðilar, um ýmis málefni þar á meðal mann- réttindi, menntamál, félags- legar umbætur og fjöimiðla. í sumar samþykkti þing Evrópurá'ðsins at- hyglisverða ályktun um siðferði í blaðamennsku. Aðalfulltrúar Is- lands á þinginu eru alþingismennirn- ir Björn Bjarnason, Guðmundur Bjarnason og Sigbjörn Gunnarsson. Þessi ályktun verður þó ekki að al- þjóðasamningi nema ráðherranefnd Evrópuráðsins samþykki hana. En í henni birtast sjónarmið sem talin eru æskilegur grundvöllur lagasetn- ingar í aðildarríkjunum sem eru nú rúmlega þijátíu taisins. Ályktunin hefur því á þessu stigi fyrst og fremst gildi sem hvati og viðmið í umræðu um hlutverk flölmiðla og hún er vísbending um hvert Evrópu- ríki stefna í þessu efni. Á dögunum var í Ríkissjónvarpinu umræðuþátt- ur um siðferði í fjölmiðlun og þar var einmitt vikið að efni ályktunar- innar. Lítum nánar á það. Ef eitthvað éinkennir nútímaþjóð- félag fremur en.annað þá er það upplýsingastreymið og samskipta- byltingin. Upplýsingar eru forsenda þess að almenningur geti tekið þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Og þá er átt við að borgararnir leggi meira af mörkum og taki virkari þátt heldur en þann einan að velja fulltrúa á fjögurra ára fresti. Samkvæmt ályktun þings Evrópuráðsins eru það því grundvallarréttindi borgaranna að fá upplýsingar. Hlutverk fjölmiðla Upplýsingamiðlunin kemur fyrst og fremst í hlut fjölmiðla. Fjölmiðlar ættu ekki að líta á upplýsingar sem tilgang í sjálfu sér, segir í greinar- gerð með ályktuninni, heldur sem leið til að stuðla að þroska einstakl- inganna og þjóðfélagsins í heiid. Þótt ijölmiðlar gegni mikilvægu hlutverki má hvorki halda að fjöl- miðlar séu fulltrúar almenningsálits- ins né að þeir eigi að koma að ein- hveiju leyti í stað opinberra vald- hafa eins og dómstóla eða stofnana sem gegna menningar- og mennta- hlutverki eins og skóla. Það gengur ekki upp því ijölmiðlar eru hvorki fulltrúar fólksins, en frá því er vald- ið komið, né lúta þeir sama iýðræðis- lega eftirlitinu og opinberar stofnan- Upplýsingar eru ekki vara í hefð- bundnum skilningi og þess vegna eru fjölmiðlar ekki eins og hvert annað fyrirtæki sem verslar með vöru á markaði: Þeir eru öðrum þræði stofnun sem gegnir þjóðfé- lagslegu hlutverki, segir í ályktun- inni. Fjölmiðlar ættu ekki að líta svo á að þeir eigi fréttir því tilkallið er í höndum borgaranna. Pjölmiðlar ættu heldur ekki að misnota efni til að auka lestur eða áhorf í því skyni að fá fleiri auglýsingar. Þegar talað er um siðferði í blaða- mennsku verður að huga að fjölm iðlinum í heild en ekki blaða- mönnunum einvörðungu. Fjöl- miðlar verða að láta í té upp- lýsingar um eignarhald og hveijir stýra þeim, segir þing Evrópuráðsins, þannig að borgararnir geti gert sér þjálfun og í greinargerð með álykt- uninni segir að blaðamenn verði að hafa háskólapróf. ALMENNINGUR A RETT A TRAUSTUM FRETTUM OG HEIÐARLEGUM SKOÐUNUM - ÞAÐ ER MUNUR Á FJÖLMIÐLUM OG ALMENNINGSÁLITI - ÁLYKTUN ÞINGS EVRÓPURÁÐSINS UM SIÐFERÐI í FJÖLMIÐLUN Friðhelgi einkalífsins í ályktun þings Evrópuráðsins segir að virða beri rétt einstaklinga til einkalífs. Fólk í op- inberum stöðum eigi rétt til verndunar einkalífs nema þeg- ar einkalífið hefur áhrif á opinbera lífið. Áður- nefndur um- ræðuþáttur í Ríkissjón- varpinu snerist nokkru leyti j þessa ! spurningu. Um þetta efni hefur verið fjallað ítarlega í Bretlandi að undanförnu að um en eins og kunnugt er hafa fjöi- miðlar þar oft gerst æði nær- göngulir í umfjöllun um þekkt fólk. í skýrslu for- seta bresku lávarðadeild- arinnar sem út kom í sumar um grein fyrir hveijir eiga fjölmiðil og hveijir eru fjárhagslegir hagsmunir þeirra tengdir fjölmiðlinum. Frelsi innan fjölmiðils Tryggja verður frelsi innan fjöl- miðla segir í ályktuninni. Útgefend- ur og blaðamenn starfa þar saman hlið við hlið. Setja verður starfsregl- ur um samskipti blaðamanna, útgef- enda og eigenda innan fjölmiðils, óháð kjarasamningum. Réttmætt er að efni fjölmiðils helgist að nokkru leyti af lífsskoðun útgefenda og eig- enda en það takmarkast þó af ófrá- víkjanlegri kröfu um traustan fréttaflutning og heiðarlegar skoð- anir. Gera verður skýran greinar- mun á lögmætri rannsóknarblaða- mennsku og herferðum blaðamanna á grundvelli fyrirframákveðinnar afstöðu eða sérhagsmúna. Starfshættir blaðamanna Borgarar í lýðræðisríki og þarmeð blaðamenn búa við tjáningar- og gleymast. Sett er fram sú krafa að í fjölmiðl- um sé greint með óyggjandi hætti á milli skoðana og frétta. Fréttir eiga samkvæmt greinargerðinni að vera traustar. Það þýðir að blaða- maðurinn á að byggja á viðeigandi rannsókn og áreiðanlegum gögnum, hann á að reyna að sannprófa að fréttirnar séu í sem bestu samræmi við veruieikann og hann á að setja þær fram á óhlutdrægan hátt. Ekki er gerð krafa um fullkominn sann- leika og því er játað að fréttir eru aldrei með öllu hlutlausar. Skoðanir eiga að vera heiðarleg- ar. Ekki er útskýrt í greinargerðinni hvað átt er við með því nema hvað þar segir að skoðanir eigi að vera innan siðlegs ramma til varnar lýð- ræðislegum gildum. í ljósi þess hve blaðamannsstarfið er vandasamt og mikilvægt telur þing Evrópuráðsins rétt að gera þá kröfu að blaðamenn búi við sóma- samleg kjör og hafi tilhlýðilega rof friðhelgi er ijall- að rækilega um þetta efni og hugað að Ieiðum til úrbóta. Að sjálfsögðu eru það ekki einvörð- ungu fjölmiðlar sem eru ógnun við friðhelgi einkalífsins heldur kemur aukin tölvutækni, hnýsni einkarann- sóknara (leynilögreglu) og þjónusta stofnana sem ákveða lánstraust ein- staklinga þar einnig við sögu. Það er einkum þrennt sem getur rétt- lætt það að fjölmiðlar greini frá einkalífi fólks. Samþykki viðkom- andi, sú staðreynd að upplýsingarn- ar eru þegar opinberar og Ioks al- mannahagsmunir. Hið síðastnefnda er erfiðast viðureignar og lýtur að því hvar eigi að draga mörkin milli réttar einstaklinganna til að fá að lifa sínu lífi án þess að fjölmiðlarnir skýri frá því og réttar fjöimiðla til að upplýsa almenning um líf ein- staklinga. Ef mörkin eru dregin á röngum stað er hætta á að annar rétturinn kæfi hinn. í sumum banda- rískum ríkjum hefur lausnin oltið á því hvort viðkomandi staðreynd er talin fréttnæm. Höfundar bresku skýrslunnar telja að þar sé um of hallað á friðhelgi einkalífsins. Þeir vilja miða við að ijúfa megi frið- helgi einkalífsins þegar almanna- hagur krefst þess, þ.e. þegar um uppljóstrun glæpa eða annarrar verulega andfélagslegrar háttsemi er að ræða, þegar heilbrigði eða öryggi almennings er í húfi, þegar um rækslu opinbers starfa er að ræða eða þegar verið er að leiðrétta misvísandi yfirlýsingu, venjulega af hálfu þess sem verður fyrir „innrás- inni“ í einkalífið. Til nánari útskýr- ingar er tekið fram að skýra megi á sanngjarnan hátt frá einkalífi þeirra sem gegna opinberu starfi ef þarmeð er varpað ljósi á hæfni við- komandi til að gegna skyldum sín- um. Ekki er fallist á að sama eigi við um íþróttamenn, kvikmynda- stjörnur og aðra sem eru mikið í sviðsljósinu en vandasamara sé að skera úr um hver sé réttur fjölmiðla gagnvart þeim sem sækjast eftir opinberum stöðum eða hafa látið af störfum. Sjálfseftirlit fjölmiðla Því er slegið föstu í ályktun Evr- ópuráðsins að fjölmiðlar verði að setja sér siðareglur í ofangreindum anda þar sem tryggt er tjáningar- frelsi og réttur almennings til sann- ferðugra frétta og heiðarlegra skoð- ana. Til þess að fylgjast með því að þessum grundvallarreglum sé fylgt ber að koma á fót sjálfseftirliti fjöl- miðla. Þar myndu eiga sæti útgef- endur, blaðamenn, fjölmiðlanotend- ur, sérfræðingar frá háskólum og dómarar. Þessi stofnun myndi gefa álit á því hvernig siðareglurnar eru virtar í blaða- og fréttamennsku. Þetta myndi að sögn auðvelda al- menningi að dæma verk og trúverð- ugleika blaðamanna. Stungið er upp á því að stofnun af þessu tagi gefi árlega út rann- sóknir sínar þar sem bera mætti saman staðreyndir og fréttir. Þarna gæti verið um að ræða mælikvarða á trúverðugleika sem borgararnir gætu notað til að meta fjölmiðla, einstaka hluta innan fjölmiðils eða jafnvel einstaka blaðamenn. Umboðsmaður fj ölmiðlanotenda í Bretlandi hefur á undanförnum árum verið rætt nokkuð um umboðs- mann fjölmiðlanotenda. Er það talið mæla með slíku embætti að þeir sem telja sig órétti beittir eins og t.d. ef friðhelgi einkalífsins hefur verið rofin geta þá fengið skjótari og ódýr- ari úrlausn mála en dómstólaleiðin býður upp á. Stjórnvöld í Bretlandi telja þó ekki æskilegt að skipa slík- an embættismann með lögum. Mun heppilegra sé að fjöimiðlar komi sér sjálfir saman um að koma siíku embætti eða nefnd á fót sem þe'ir bera sjálfir traust til.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.