Morgunblaðið - 31.10.1993, Síða 15

Morgunblaðið - 31.10.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 15 örðugu lífsbaráttu. „Það er kannski eins gott að hann veit ekkert um þessa peninga, hann myndi örugg- lega bara gefa þá eða tapa þeim,“ segi Bragi. „Manstu þegar hann var gjaldkeri í banka og gaf einhverjum bófa alla peningana, þá var hann auðvitað rekinn, svona er hann mik- ill einfeldningur," segir Vésteinn og hlær. „Segið þið mér eitthvað frá ykkur sjáfum,“ segi ég. „Frá okkur sjálfum," þeir verða mjög vandræðalegir. Bragi reynist vera ellefu ára og í Melaskóla en Vésteinn nær þrettán ára og í Haga- skóla. „Við kynntumst í ísaksskóla, foreldrar okkar skiptust á að sækja okkur, það leiddi til þessarar sam- vinnu,“ segir Vésteinn. „Hvað heldur þú að við höfum gert margar sögur saman,“ spyr Bragi. „Svona tvö eða þrjú hundruð," svarar Vésteinn. Þeir félagar hafa ekki látið neitt trufla samvinnu sína. Bragi var í eitt ár í Svíþjóð með foreldrum sín- um, Kristínu Bragadóttur og Sveini Magnússyni lækni. „Þá sendum við bara Kallasögur milli landanna,“ seg- ir Bragi. „Hvemig hagið þið annars sam- vinnunni," spyr ég. “Við ákváðum einu sinni að Vé- steinn skyldi teikna, af því hann er óskaplega góður teiknari, en ég skyldi búa til handritin, því ég fæ oft góðar hugmyndir, en okkur fannst svo mikið basl að gera hand- ritin og fara eftir þeim svo við bara sleppum því og teiknum báðir," seg- ir Bragi. „Við teiknum bara af frngr- um fram, gerum sögur og hreinskrif- um þær síðan,“ segir Vésteinn og otar að mér bunka af blöðum. „Sjáðu, þetta er allt óhreinskrifaðar sögur, hugmyndir og skissur. Fyrsta sagan sem við lituðum var lituð árið 1992, það var saga um Kalla þegar hann fór að vinna í sirkus og hélt að sirkus- stjórinn væri trúður og var sparkað út.“ „Sögurnar verða eiginlega betri því lengri sem þær eru, lengsta sag- an er 16 síður, mér finnst hún nokk- uð góð,“ segir Bragi. „Það er erfiðara að gera suttar sögur, troða langri atburðarás í fáar myndir,“ segir Vésteinn. „Hafíð þið ekki mjög mikið að gera þegar öll þessi teiknivinna bæt- ist við skólavinnuna," spyr ég. „Jú, við teiknum náttúrlega heima og stundum í skólanum þegar við erum búnir að vinna það sem við eigum að vinna. Eg er kannski ekki alltaf búinn að vinna það sem ég á að vinna, stundum ekki einu sinni byrjaður," segir Vésteinn. „Hérna er mynd af Kalla í ofur- náttfötunum sínum. Þau breyta hon- um í Supermann. Það mætti halda að sú hugmynd væri stolin úr Andr- ési önd, en það er hún ekki, hún lík- ist henni bara rosalega mikið,“ segir Bragi. „Við höfum fundið uppá mjög mörgum búningum persónanna sem margir halda að við höfum stolið úr blöðum, en það er ekki þannig," bætir Bragi við. „Er búið að fastmóta heim Kalla," spyr ég „Já þar allt komið í fastar skorð- ur, í hvert skipti sem ég fæ hug- mynd reyni ég að koma henni á blað til þess að týna henni ekki, þannig hefur þetta komið smátt og smátt,“ segir Vésteinn. „Ég gæti trúað því að það ætti eftir að verða eitthvað mikið úr Kalla. Einu sinni hitti ég skyggna konu á Norðurlandi og hún sagði að það ætti eftir að verða eitt- hvað mikið úr mér. Ég gæti vel trú- að að það væri eitthvað í sambandi við Kalla, ég vona það minnsta kosti.“ Ég yfirgef þá vinina Véstein og Braga þar sem þeir sitja saman f rauðbrúna sófanum, umkringdir blöðum þar sem Kalli og íbúar Kalla- bæjar lifa sínu lífi. Hinir ungu skap- arar þeirra eru fyrr en varir orðnir niðursokknir í ný ævintýri söguper- sónu sinnar og taka ekki eftir að Pamína hin ósvífna laumast inn um leið og ég geng út. Meðan ég bíð eftir leigubíl verða þeir hennar þó greinilega varir og Ijóst er að hún hefur ekki látið sér segjast þótt hún hafi verið í tímabundinni útlegð úr stofunni. „Pamína, er ég ekki búinn að marg segja þér að hætta að klóra í úlfaldamottuna, það endar með þú eyðileggur hana,“ heyri ég Véstein segja um leið og ég opna útidyrnar. NYJAR SENDINGAR FAXAFENIVIÐ SUÐURLANDSBRAUT • SÍMI 686999 ___.._'i'i„ KEFnv AFMÆ 20% AF t & GJAFA Gf LIST cLLERÍ ^ ILBOÐ ^TTIIR í TILEFNI AF 2 1 !ja ÁRA AFMÆLI OKKAR . - 6. NÓV. . r IAEA n Af 1 CDÍIJCN VJMLLLIMIV REYKJAVÍKURVEGI 62 HAFNARFIRÐI SÍMI650675 %,3 BESTU SJONVARPS- TÆKIN FRÁ PHILIPS Þau allra bestu frá PHILIPS eru nýju 100 riða MATCHLINE tækin. • Hljómgæði eins og þau eru best í hágæða geislaspilara! • Að sjálfsögðu er textavarp með íslenskum stöfum! • Línuflökt heyrir sögunni til. Skipting á milli ramma í mynd er jafnari! • Mattur, svartur myndlampi sem gefur 30% meiri skerpu á mynd! • Þið fylgist betur með: Tvær stöðvar á skjánum í einu! Komið og sjáið með eigin augum. Gerið samanburð og veljið það besta! matchÍ PHILIPS þegar skerpan skiptir málil PHILIÞS Heimilistæki SÆTÚNI 8 • SÍMI: 69 15 15 • KRINGLUNNI • SÍMI: 69 15 20 ÖRKIN 10ZCM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.