Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 16

Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 LEIÐTOGAR TIL ÞINGVALLA ARIÐ 2000? Hugsýn Geralds 0. Barneys, ritstjóra Global 2000 skýrslunnar gera grein fyrir sínum boðskap og fyrirheitum. Þessar heitstreng- ingar yrðu bundar inn í sérstaka bók og Alþingi síðan falið að varð- veita frumeintakið en „Jarðarbók- in“ yrði gefin út í öllum Iöndum, bæði í hátíðarútgáfu og einnig í pappírskilju. Bamey sagðist enn ekki hafa haft samband við veraldlega þjóð- arleiðtoga til að kynna þeim hug- myndina. Áður en lengra væri haldið hefði verið eðlilegt að kanna viðhorf og áhuga Islend- inga á fundinum. Hann hefði m.a. rætt við Vigdísi Finnbogadóttur forseta, Davíð Oddsson forsætis- ráðherra og Steingrím Hermanns- son fyrrum forsætisráðherra, herra Olaf Skúlason biskup og herra Alfred Jolson biskup kaþól- skra. Barney hefur ennfremur rætt við Hönnu Maríu Pétursdótt- ur prest og þjóðgarðsvörð á Þing- völlum og við Bjöm Bjarnason formann Þingvallanefndar. Bamey sagðist hafa íhuguð ýmsa fundarstaði, t.d. Jerúsalem og Aþenu en Þingvellir væru best- ir í flestu tilliti. ísland væri eitt fárra landa sem allir þjóðarleið- togar ættu að geta sæst á. For- maður Millennium-stofnunarinnar taldi það mikilvægast að hefðir og venja gerðu ráð fyrir að á Þing- völlum nytu jafnvel svörnustu óvinir gagnkvæmra girða. Formaður Millennium-stofnun- arinnar greindi frá því að hinir islensku viðmælendur hefðu tekið vel í hugmyndina um Þingvalla- fund en þeir væru eðlilega varkár- ir og hefðu óskað eftir ítarlegri hagnýtum upplýsingum, s.s. um fjölda þingfulltrúa, fýlgdarlið og kröfur um gistirými og ráðstefnu- aðstöðu. Barney benti á að ekki væri ólíklegt að vegna hugsan- legrar hátíðar til að minnast kristnitökunnar vildi Þingvalla- nefnd breyta og bæta aðstöðuna á Þingvöllum sem þá væri einnig hægt að nota á þessum leiðtoga- fundi. Bamey sagði að beinir þátt- takendur í fundinum yrðu e.t.v. um 350 en þeim til viðbótar yrði að gera ráð fyrir eiginkonum, aðstoðarmönnum og fulltrúum ljölmiðlanna o.s.frv. 5.000 gestir væri kannski ekki íjarri lagi. Hann benti á að á leiðtogafundi Gorbatsjovs og Reagans árið 1986 hefðu skemmtiferðaskip verið not- uð sem hótel. Reynslan af leið- togafundinum sannaði og getu íslendinga til að ráða við slík verk- efni. MorgunblaOið/íáverrír Gerald O. Barney vill fund á Þingvöllum árið 2000. hliðsjón af því að umburðarlyndi virtist fara þverrandi og trúar- bragðastyrjöldum ijölga. Þingvellir Á fyrrgreindu þingi trúar- bragðanna kynnti Barney trúar- leiðtogunum þá hugmynd að leið- togar ríkja og þjóða og trúar- bragða kæmu saman á Þingvöll- um árið 2000. Hann sagði menn af öllum trúarbrögðum hafa tekið vel í þessa hugmynd. Gerald O. Barney sagði það vera í eðli mannsins að fagna af- mælum og tímamótum og ný öld og nýtt árþúsund yrði engin und- antekning. Það væri forn siður að fagna slíku með gjöfum. Og hver verðskuldaði betur gjafir heldur en jörðin sjálf? Hann benti á að þegar hefðu verið gerðar framtíðarkannanir í fimmtungi þjóðlanda veraldarinnar og í hvetju landi hefðu þessar kannan- ir kveikt umræður og bent á mis- munandi staðbundin vandamál; eiturmengun, þverrandi náttúru- auðlindir, áníðslu á landi, upp- blástur o.s.frv. Hugmynd eða hugsýn Geralds O. Bameys er sú að sérhvert þjóð- þing velji þá gjöf besta sem sú þjóð getur geflð jörðinni. Árið 2000 komi leiðtogar þjóða og trú- arbragða saman á Þingvöllum. Þar verði reist stórt tjald og sér- hver leiðtogi greini þar frá sinni þjóðargjöf til jarðarinnar. Trúar- bragðaleiðtogar myndu einnig eftir Pél Lúðvík Einarsson GERALD O. Barney ritstjóri Global 2000 skýrslunnar og núver- andi framkvæmdastjóri Millennium-stofnunarinnar í Bandaríkj- unum vill bjóða leiðtogum ríkja og leiðtogum trúarbragða til fundar á Þingvöllum árið 2000. Þar verði skrásett í sérstaka bók fyrirheit um gjafir til jarðarinnar á næsta árþúsundi. Þessi „Jarðarbók“ verði svo falin Alþingi til varðveislu. Barney var hér á ferð fyrir nokkru til að kynna íslenskum ráðamönnum ríkis og kirkju hugmyndir sínar. Istjórnartíð sinni, 1976-80, lét Jimmy Carter Banda- ríkjaforseti gera skýrslu um framtíðarhorfur jarð- ar og manrikyns. Sér- staklega var hugað að efnahag, mannfjölda, náttúmauð- lindum og umhverfi. Skýrslan Global 2000. Report to the presi- dent kom út árið 1980 og reynd- ist með vinsælla stjómarprenti sem gefið hefur verið út. Ritið seldist í 1,5 milljónum eintaka á alis 8 tungumálum. Skýrsla þessi dró upp heldur dökka framtíðar- sýn ef mannkynið héldi áfram á braut offjölgunar, misnotkunar og ofnýtingar náttúmauðlinda o.s.frv. Ritstjóri skýrslunnar var Ger- ald O. Bamey, doktor í eðlis- fræði. Eftir að Carter-stjómin lét af völdum hélt Bamey áfram að gera þróunarspár eða úttektir fyr- ir ýmis lönd. Árið 1983 stofnaði hann Millennium-stofnunina. Við stofnunina starfa nú 8 sér- fræðingar, auk þeirra leggja um 100 samverkamenn víðsvegar um veröldina stofnuninni lið. Gerald O. Barney, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, sagði að þeir vildu ekki að stofnunin yrði beint kenni- vald, sérfræðingaráð og hug- myndabanki. Þeir vildu fremur þjálfa menn til að meta ástand og framtíðarhorfur sjálfstætt. Framkvæmdastjórinn greindi Morgunblaðinu frá því að núna næmi fjárhagsáætlun stofnunar- innar 700.000 bandaríkjadölum. U.þ.b. 2/3 af tekjum stofnunar- innar kæmu fyrir þjónustu við stjómvöld og ýmsar stofnanir og samtök, en um 1/3 væru framlög einstaklinga, ýmissa sjóða og fé- lagasamtaka. Þing trúarbragða Bamey sagði Morgunblaðinu að þótt hin upprunalega Global- skýrsla hafi staðist þokkalega tímans tönn hafí þörfin á end- urnýjun og endurskoðun aukist eftir því sem nýjar upplýsingar kæmu fram og síðast en ekki síst vegná þess að næstu aldamót og árþúsundaskipti væru ekki langt undan. Nú í haust kynnti Gerald O. Barney skýrsluna Global 2000, revisited á þingi í Chicago sem 7.000 fulltrúar eða leiðtogar flestra megintrúarbragða sóttu (Parlament of World Religion). Skýrsla Barneys þótti hin ískyggi- legasta. í skýrslunni eru ýmsar umhverfissyndir manna framtald- ar og tölfræðilega vegnar og metnar. Mannfólkinu fjölgaði en takmörk væru fyrir því hve mikið iand væri hægt að bijóta til rækt- unar. Að öllu óbreyttu væri fyrir- sjáanlegt að þegar kæmi fram á næstu öld gengi dæmið ekki upp. Neyð; hungur og ofbeldi blasir við. I skýrslunni er kallað eftir nýrri hugsýn, hugsjón um framtíð mannkyns. Að maðurinn skynji tengsl við náttúruna en ekki yfir- ráð. Að maðurinn lifí sem hluti jarðarinnar en ekki sem herra. Bamey sagðist hafa kynnt trú- arbragðaleiðtogunum skýrsluna því trúin kæmi víða við í mann- legri tilveru. í trúnni leituðu menn svara við því, hvaðan þeir kæmu, hvert þeir væru að fara og hvers þeir ættu að leita. Hann benti á að trúarbrögðin hefðu gífurlegt vægi, t.d. á hugmyndir manna um æskilegan bamafjölda, hugmynd- ir okkar um náttúmna og ábyrgð manna. Bamey var því eindregið þeirr- ar skoðunar að við yrðum að líta á vandamál jarðarinnar frá sið- ferðilegum, andlegum og trúar- legum sjónarhóli. Hvað ættum við með orðum eins og framfarir og þróun? Hvað væmm við að meina þegar við töluðum um réttlæti og misskiptingu? Þetta væm andleg og siðferðileg vandamál. Trúin mótaði hugmyndir okkar, góðar og illar. Það væri eðlilegt að æskja svara frá trúarleiðtogum. Það væri því mun frekar knýjandi með r 9<^ma AfmœlismcimiöuT í tilefni þess bjóöum við 20% afslátt af öllum vörum verslunarinnar - NotiÖ tœkifœriÖ í nóvember 'JejjHKl Hafnarstræti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.