Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýningar spennumyndina Rísandi sól,
Rising Sun, með Sean Connery, Wesley Snipes og Harvey Keitel í aðalhlutverkum. Leikstjóri
er Philip Kaufman en myndin er gerð eftir bók metsöluhöfundarins Michaels Crichtons
*
Atök menningarheima
FULLTRÚUM ólíkra menningarheima lýstur saman í yfirfærðri og bókstaflegri
merkingu í myndinni Rísandi sól.
Morð og menn-
ingarárekstrar
ÞRÁTT fyrir að Rísandi sól hafi vakið upp umræð-
ur um samskipti Bandaríkjamanna og Japana og
ýmsir hafi lagt söguna út á þann veg að hún lýsi
fordómafullri afstöðu til Japana leggja aðstandend-
ur myndarinnar áherslu á að hér sé fyrst og fremst
á ferðinni spennandi og athyglisverð spennu- og
lögreglumynd þar sem menningu og siðum þjóð-
anna tveggja sé teflt saman, bæði vegna þess að
þessar andstæður séu fróðlegt umfjöllunarefni og
vegna þess að togstreitan milli hinna ólíku heima
kyndi undir spennu jafnt og léttleika og sé þannig
verkfæri til þess að láta söguna höfða til áhorfenda.
eir lögreglumenn í Los
Angeles eru látnir
rannsaka morð. Ung kona
hefur fundist myrt í stjórnar-
herbergi japansks stórfyrir-
tækis í miðri Los Angeles.
Rannsóknin leiðir þá á
ókunnar slóðir þar sem bæði
koma við sögu leyndarmál
tækniþjóðfélags framtíðar-
innar og fornir og rótgrónir
siðir framandi menningar.
í myndinni er víðar að
finna andstæður og spennu
en milli japanskrar og
bandarískrar menningar.
Lögreglumennirnir tveir eru
gjörólíkir. Hinn svarti Web
Smith (Wesley Snipes) er
ungur lögregluforingi á upp-
leið sem náð hefur góðum
árangri með því að fara hefð-
bundnar leiðir. Hann vill
ekki taka það gott og gilt
að siðir einhverrar framandi
þjóðar séu eitthvað sem hann
þurfi að hafa áhyggjur af til
að ná árangri í sínu starfi.
Samstarfsmaður hans við
þessa rannsókn er rannsókn-
arlögreglumaðurinn John
Connor (Sean Connery) sem
hefur það orð á sér meðal
félaganna að vera hallur
undir Japani, en yfírmaður
þeirra, lögregluforinginn
Tom Graham, sem Harvey
Keitel leikur, er boðberi Jap-
ansóvildarinnar í myndinni.
Connor notfærir sér hins
vegar óspart þekkingu sína
og skilning á Japönum með-
an hinn ungi og yfirlætis-
fulli Smith gengur í fyrstu í
hvem pyttinn á fætur öðr-
um. Þessir vinnufélagar eru
fullir tortryggni hvor í ann-
ars garð í byijun en smám
saman lærir hvor að meta
hinn og þeir stilla saman
svartur í myndinni. Sagt er
að það hafí verið m.a. gert
til þess í senn að auðvelda
að ná fram spennu í sam-
band þessara söguhetja og
einnig til þess að slá á radd-
ir um að sagan bæri vott um
illkvittna kynþáttafordóma í
garð Japana.
Leikstjóri myndarinnar,
Philip Kaufman, hefur getið
sér orð fyrir að leggja rækt
við smáatriði og Rísandi sól
ber þess meðal annars merki
í því að hann réð sér stóran
hóp ráðgjafa og leiðbeinenda
sem var falið að tryggja að
Connery, Snipes og aðrir
Ieikarar myndarinnar túlk-
uðu með trúverðugum hætti
hinar ýmsu senur þar sem
Myrkviði stjórnarherbergjanna
MORÐRANNSÓKNIN leiðir lögreglumennina inn
myrkviði sljórnarherbergja japansks stórfyrirtækis.
strengina. Þá mega hin
raunverulegu illmenni í
myndinni fara að vara sig.
Eins og fram kom í við-
tali Morgunblaðsins sl.
sunnudag við Sean Connery
er hann sjálfur fyrirmynd
Michales Crichtons að lög-
reglumanninum John Con-
nor. Crichton ætlaði Connery
hlutverkið frá upphafí en á
hinn bóginn var sú breyting
gerð frá bókinni, að lög-
reglumaðurinn Web Smith,
sem var hvítur í bókinni er
fram koma blæbrigði japan-
skrar menningar i siðum og
umgengni. Ekki skipti minna
máli í því sambandi að ljá
myndinni trúverðugan jap-
anskan blæ þegar við á, að
Kaufman fékk til liðs við sig
þekktasta kvikmyndatón-
skáld Japana, Toru Takem-
itsu, margreyndan sam-
starfsmann Kurosawa og
Kobayashi, til að semja tón-
listina og stjórna flutningi
japanskrar hljómsveitar á
henni.
Svarta hasarhetjan
WESLEY Snipes byrjaði leikferil sinn sem sviðsleik-
ari á Broadway en varð kvikmyndastjarna í kjölfar
þess að hann lék í mynd Spike Lee, Jungle Fever.
Þar lék hann svartan mann sem heldur við hvíta
konu. Vegna óveiyulegrar nálgunar Spike Lee á
þessu viðfangsefni vakti myndin mikla athygli og
komst Wesley Snipes m.a. á forsíðu Newsweek og
er nú eftirsóttasti og launahæsti svarti kvikmynda-
leikarinn vestra. Ferill Snipes er til marks um mikla
fjölhæfni en síðustu misseri hefur hann leikið has-
ar- og byssumyndum á borð við Passanger 57 og
hinni nýju Demolition Man með Sylvester Stallone
ásamt hinni óvenjulegu spennumynd Rísandi sól. Það
er kannski nálægðin við byssurnar í vinnunni sem
skýrir það að Wesley var nýlega handtekinn í Los
Angeles fyrir að ganga með slíkt verkfæri á al-
mannafæri.
Kannski er skýringin ein-
hver allt önnur og
ógeðfelldari en í þessu sam-
bandi ber á það að iíta að
Wesley Snipes er fæddur og
uppalinn á Flórída. Óvíða
vestanhafs munu byssur
vera jafnómissandi hluti af
klæðaburði manna og í
Flórída.
Wesley Snipes flutti á tán-
ingsaldri frá Orlando til að
stunda nám við listmennta-
skóla í New York og eftir
framhaldsskólanám lauk
hann leiklistarnámi frá há-
skóla þar í borg. Það var
snemma á síðasta áratug.
Wesley naut strax þeirrar
velgengni að fá hlutverk í
hveiju leikritinu á fætur
öðru, m.a. á Broadway.
Hann hlaut árið 1989
Wesley Snipes
verðlaun fyrir leik í sjón-
varpsmyndinni Vietnam War
Stories og um svipað leyti
lék hann í hafnabolta-kvik-
myndinni Major League.
Hún sló í gegn og Wesley
fékk hlutverk í mynd Spike
Lee, Mo’ Better Blues, þar
sem hann lék saxófónleikar-
ann sem gerði Denzel Wash-
ington lífíð leitt. Það var þó
fyrst eftir að hann fór með
hlutverk krakk-kóngsins
miskunnarlausa í kvikmynd-
inni New Jack City að Wes-
ley vakti verulega athygli og
fyrrgreint hlutverk á móti
Annabella Sciorra í mynd
Spike Lee, Jungle Fever,
tryggði svo stöðu hans.
Vorið 1992 var frumsýnd
við miklar vinsældir áhorf-
enda og gagnrýnenda vest-
anhafs kvikmyndin White
Men Can’t Jump þar sem
Wesley og Woody Harrelson
léku atvinnumenn í götu-
körfubolta en í næstu mynd
sinni, Waterdance fór Wes-
ley Snipes með hlutverk fatl-
aðs manns í hjólastól. í júní
1992 hófust tökur á Rísandi
sól eri áður hafði Wesley
Snipes lokið vinnu við hasar-
myndina Passanger 57 sem
um þessar mundir er að
koma á myndbandi hér. Inn-
an skamms mun Wesley
Snipes svo birtast á skjánum
í myndinni Demolition Man
þar sem hann Ieikur and-
stæðing Sylvesters Stallo-
nes.
í faðmi fjölskyldunnar
LEIKSTJIÓRINN Philip Kaufman, sem einnig skrif-
ar handrit að Risandi sól ásamt höfundi bókarinnar
Michael Crichton og Michael Backes, hefur átt afar
mikilli velgengni að fagna sem kvikmyndahöfundur
en ekki er hann í hópi hinna afkastamestu í þeirri
stétt. Sonur hans Peter er gjarnan framleiðandi
mynda hans og eiginkonan Rose oftar en ekki við-
riðin handritsgerð hin siðari ár þótt ekki eigi það
við um Ríasndi sól.
Mestrar velgengni hefur
mynd Kaufmans,
„The Right Stuff“, frá 1983
notið en hún hlaut fern Ósk-
arsverðlaun. Kaufman var
ekki sjálfur tilnefndur í það
skiptið; en úr því var bætt
árið 1988 þegar hann hlaut
tilnefningu fyrir Hinn óbæri-
lega léttleika tilverunnar;
kvikmyndagerð sögu Milans
Kunderas, þar sem Daniel
Day-Lewis, Lena Olin og
Juliette Binoche voru í aðal-
hlutverkum. Sú mynd hlaut
einnig ýmis önnur verðlaun
þótt ekki hafi hún kannski
bætt miklu við sögu Kunde-
ras og Kaufman sjálfur hef-
ur haldið fram að við gerð
myndarinnar hafi hann ekki
síður búið að tímanum sem
hann bjó og ferðaðist um
Evrópu í upphafí sjöunda
áratugarins en fyrri reynslu
af kvikmyndaleikstjórn.
Það var einmitt um það
leyti sem hann sneri heim
til Chicago eftir Evrópudvö-
lina árið 1962, þá 26 ára
gömul listaspíra, að Kauf-
man hitti rithöfundinn Anáis
Nin og tók áskorun hennar
um að snúa sér að kvik-
myndagerð. Aftur lágu leiðir
Nins og Kaufmans saman
Leikstjóri
PHILIP Kaufman
árið 1990 þegar hann gerði
kvikmyndina „Henry and
June“ eftir frásögn Anais
Nin af hjónalífí Henrys Mill-
ers og konu hans June. Auk
þess að leikstýra skrifaði
Philip handriti ásamt eigin-
konu sinni Rose, en sonurinn
Peter framleiddi myndina.
(Hann framleiddi einnig
Rísandi sól, næstu Kauf-
man-mynd á eftir „Henry
and June“).
Eftir brýningu Anáis Nin
árið 1962 tók Philip Kauf-
man sögu sem hann var að
skrifa og gerði úr henni fyr-
ir lítið fé kvikmyndina Gold-
stein með hjálp góðra gam-
anleikara í Second City-
hópnum í Chicago. Sú mynd
hlaut viðurkenningu fyrir
nýliðaverk í Cannes árið
1964. Árið eftir leikstýrði
hann fyrstu kvikmyndinni
sem Jon Voight lék í en hún
hét „Fearless Frank“ og var
gerð eftir sögu leikstjórans
sem þessu næst fékk samn-
ing hjá Universal-kvik-
myndaverinu og flutti til
Hollywood.
Þar gerði hann árið 1971
eftir eigin handriti myndina
„The Great Northfíeld Min-
nesota Raid“ með Robert
Duvall og Cliff Robertson í
aðalhlutverkum og myndina
„White Dawn“ árið 1973 en
sneri sér síðan ásamt George
Lucas að úrvinnslu upphaf-
legu sögunnar að Indiana
Jones-myndinni „Raiders of
the Lost Ark“. Að því loknu
skrifaði hann handritið að
mynd Clints Eastwoods,
„Óutlaw Josey Wales". Árið
1977 endurgerði Kaufman
mynd Don Siegels, „Invasion
of the Body Snatchers" sem
hlaut frábærar viðtökur vís-
indaskáldsöguaðdáenda og
margra annarra. 1979 gerði
Kaufman eftirminnilega
kvikmynd um glæpaklíku
sem kallast „The Wander-
ers“ og ferð hennar milli
borgarhluta á klíkufund. Þar
naut Philip — eins og einatt
síðar — aðstoðar frú Rose
við handritsgerðina.