Morgunblaðið - 31.10.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993
21
Bókaflóðið að hefjast
*
Utgáfubækur hjá
Bjarti o g Isafold
Bjartur leggur einkum áherslu á erlendar samtímabókmenntir og það
gerir ísafold líka þótt útgáfan sé mun hefðbuudnari hjá því gam-
algróna forlagi. s
Erna Guðmundsdóttir sópran og Anna Margrét Magnúsdóttir sembal-
leikari.
Tónleikar í Kirkjuhvoli í dag
vNótnakver handa
Onnu Magdalenu Bach“
Á FJÖLSKYLDUSTUND í Kirkjuhvoli í Garðabæ í dag, sunnudag, kl.
15 verður flutt dagskrá undir heitinu „Nótnakver handa Önnu Magda-
lenu Bach“. Flytjendur eru Anna Margrét Magnúsdóttir semballeikari,
Erna Guðmundsdóttir sópran og Reynir Axelsson lesari.
Bjartur
Eldhús eftir Banana Yohismoto er
fyrsta skáldsaga ungrar japanskrar
stúlku. Bókin vakti mikla athygli í
Japan og víðar og hefur verið þýdd
á fjölda mála. Eh'sa Björg Þorsteins-
dóttir þýðir Eldhús.
Glerborgin er fyrsta bókin í þríleik
Bandaríkjamannsins Paul Austers
um New York, segir í æsilegum og
nýstárlegum stíl frá ungum rithöf-
undi þar í borg. Paul Auster er með-
al helstu stjarna í bókmenntum
heimsins nú. Bragi Ólafsson þýddi
Glerborgina.
Argentínumaðurinn Julio Cortázar
telst meðal helstu höfunda Suður-
Ameríku. Jón Hallur Stefánsson hef-
ur valið og þýtt smásögur eftir
Cortázar og kallast safnið Endilöng
nóttin.
Eftir Nóbelsverðlauna,skáldið
Octavio Paz frá Mexíkó, eitt af höfuð-
skáldum samtímans, kemur út úrval
ljóða í þýðingu Sigfúsar Bjartmars-
sonar og Jóns Thoroddsen. Bókin
nefnist Allra átta.
ísafold
íslensk frímerki 1994 eftir Sigurð
H. Þorsteinsson eru nýkomin út og
er þetta 38. útgáfa verðlistans sem
líka er að hluta upplýsingarit um
póstþjónustu.
Stangaveiðin 1993 eftir Guðmund
Guðjónsson og Gunnar Bender er í
flokki árlegra bóka um stangaveiðina.
Isafold gefur út tvö hefti með söng-
lögum eftir Jón Ásgeirsson, í öðru
heftinu eru ýmis einsöngslög, hinu
lög við ljóð eftir Stefán Hörð Gríms-
son.
Trausti Jónsson er höfundur bókar
um veður á íslandi í hundrað ár.
Gils Guðmundsson hefur skráð
ævisögu Odds Ólafssonar læknis á
Reykjalundi og nefnist hún Þegar
hugsjónir rætast.
Lesið í snjóinn er þýðing Eyglóar
Guðmundsdóttur á skáldsögunni Fro-
ken Smillas fomemmelse for sne eft-
ir Danann Peter Hoeg. Þessi skáld-
saga sem sameinar spennu og ádeilu
er meðal þeirra dönsku skáldsagna
sem vakið hafa hvað mesta athygli
og hefur náð meiri útbreiðslu en flest-
ar aðrar norrænar samtímaskáldsög-
ur.
Harún og Sagnahafið er ævintýri
eftir hinn rómaða og umdeilda Sal-
man Rushdie sem telst meðal breskra
höfunda þótt hann sé af öðrum upp-
runa. Hannes Sigurðsson þýðir.
Komdu að kyssa eftir Gunnhildi
Hrólfsdóttur er sjálfstætt framhald
bókar hennar frá í fyrra, Óttinn læð-
ist.
Leiðrétting
í frétt um fyrirhugaðar út-
gáfubækur Almenna bókafélagsins
láðist að geta einnar._ Það er Vá! sem
hefur undirtitilinn Ástir og átök í
unglingaheimi og er eftir Þorstein
Eggertsson og Ingibjörgu Einarsdótt-
ur, 15 ára stúlku sem lagði til efnið
í bókina.
Árið 1725 gaf Johann Sebastian
Bach konu sinni Önnu Magdalenu
nótnakver. Næstu 20 árin safnaði
hún saman uppáhaldstónlist sinni og
skrifaði hana í kverið. Þegar bömin
uxu úr grasi var kverið notað til að
kenna þeim nótnalestur og hljóð-
færaleik og stundum fengu þau að
færa inn í það fyrstu tilraunir sínar
til að semja smálög.
Dagskráin er fyrirlestur um nótna-
kverið ásamt mörgum sýnishornum
af þeim semballögum og sönglögum
sem í því em. Mörg þessara laga eru
litlar perlur og sum eru ennþá leikin
og lærð af svo til öllum píanónemend-
um um allan heim. í fyrirlestrinum
verður rejmt að sýna hvernig nótna-
kver Önnu Magdalenu gefur okkur
innsýn í daglegt líf Bach-fjölskyld-
unnar.
Tónleikagestir hlýða á dagskrána
meðan þeir neyta kaffiveitinga. það
eru Tónlistarskóli Garðabæjar og
Garðasókn sem standa í sameiningu
að Fjölskyldustundum í Kirkjuhvoli
til að efla tónlistar- og menningarlíf
í bænum.
Tríó Björns
Thoroddsens
á geisladiski
KOMINN er geisladiskur með
tríói Björns Thoroddsens, Við
göngum svo léttir, sem á eru
íslensk og erlend þjóðlög, öll
þjóðkunn, og lög eftir Björn
Thoroddsen. Flest laganna eru
með íslenskum textum. Fimm
söngvarar syngja með tríóinu á
plötunni, sem Skífan gefur út.
Tríó Björns Thoroddsens er
skipað Birni, sem leikur á gítar,
Guðmundi Steingrímssyni slag-
verksleikara og Þórði Högnasyni
bassaleikara. Með tríóinu á plöt-
unni syngja James Olsen, Linda
Walker, íris Guðmundsdóttir,
Kristjana Stefánsdóttir og Andrea
Gylfadóttir. Öll lögin eru með ís-
lenskum textum, utan eitt laga
Björns sem Linda Walker syngur
og samdi við texta á ensku. Einn-
ig er Sofðu unga ástin mín með
enskum texta í þýðingu Helga
Ágústssonar sendiherra í Lundún-
um.
-----» » «---
Grafíkverkstæði í
Listasafni Islands
GRAFÍKVERKSTÆÐI hefur
verið sett upp í kjallara Lista-
safns íslands í tengslum við
grafíksýningu Braga Ásgeirs-
sonar.
Sunnudaginn 31. október mun
Valgerður Hauksdóttur grafík-
listamaður kynna ætingu og ein-
þrykk kl. 15.-17.
mmu wmtw.™ Bb/úu
( Kilpperahusch )
mmm
’mmm
★ Þvottavél
★ 800 sn./mín.
★ 4,5 kg.
★ 16 þvottakerfi.
★ Sparnaðarhnappur.
★ Þriggja ára ábyrgð.
★ Þurrkari
★ 4,5 kg.
★ Yfirhitunaröryggi.
★ Góð gufulosun.
★ Barnaöryggi.
★ Valkerfi eftir efnum.
★ Eyðsla 2,1 kwh.
9
★ Kæliskápur
★ Kælir 190 I.
★ Frystir 40 I.
★ Stjörnur 4.
★ Hraðfrysting.
★ Sjálfv. afhr.
* Innbyggingarofn
* Grillelement.
* Snúningsmótor.
Hæð 59,5 cm.
* Breidd 59,5 cm.
★ Gufugleypir
★ Þriggja hraða.
★ Fyrir kol og útbl.
★ Hæð 15 cm.
★ Breidd 60 cm.
★ Dýpt 48 cm.
★ Eldavél
★ Tvær
hraðsuðuhellur.
★ Grillelement.
★ Geymsluhólf.
★ Hlífðarlok.
★ Árs ábyrgð.
★ 50 cm breið.
Á hausttilboðinu er mikið úrval heimilistækja með 10-50% afslætti.
Opið á laugardögum
Frí heimsending og tenging á
höfuðborgarsvæðinu.
Við losum þig við gömlu tækin.
h/f
V!5A
Verslun Rafha, Lækjargötu 22, Hafnarfirði, sími 50022.
Borgartúni 26, Reykjavík, sími 620100.
Visa, Euro eða Munalán.
Greiðslukjör við allra hæfi.