Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 24

Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 FERNAND ÞRYKKJARI MEISTARANNA eftir Broga Ásgeirsson Fyrir tíu árum var ég beðinn um að skrifa pistil um franska meist- araþrykkjarann í litografíu (stein- þrykki) Fernand Mourlot (1895- 1982), en verkstæði hans var og er heimsþekkt. Var þetta í sam- bandi við sýningu á nýjum stein- þrykkjum, ásamt yfirliti af mörgu því sem ég hafði gert í grafík um dagana, sem Listmunahúsið við Lækjargötu stóð að. Ófyrirsjánleg atvik höguðu því svo að ekkert varð úr góðum ásetn- ingi, en ég hef allan tímann verið með greinina á heilanum og er ekki seinna vænna að ég komi henni frá mér í tilefni sýningar Listasafns íslands á grafíkverkum mínum, sem senn fer að ljúka, en hún byggist einmitt að stórum hluta til á stein- þrykkjum. Ég hafði rekist á endurminningar meistarans (Opera Mundi, París 1979) í sænskri þýðingu í bókasölu Lousiana-safnsins apríldag nokk- urn 1983, sem ég auðvitað keypti á stundinni. í bókina sæki ég aðal- lega heimildir mínar, en einnig í grein er birtist í nóvemberhefti þýska listtímaritsins „art“ 1979 og svo í bók eiginkonu Picassos, Francoise Gilot, sem Charlton Lake færði í letur og út kom í þýskri þýðingu hjá Kindler 1965. Hið fræga verkstæði Mourlots var upprunalega í þröngum húsa- kynnum í Rue de Chabrol í næsta nágrenni við Austurbrautarstöðina og hina frægu og alræmdu götu Faubourg St. Denis, þarnæst í rue Barrault, Butte-aux-Cailles, skammt frá torgi með afgirtum garði, sem kennt er við skáldið Verlaine, og loks í rue du Montparn- asse, „þar sem sem handverkið þjónaði meistaraverkinu" upp á dag hvern, eins og skáldið Jaques Prév- ert orðaði það í skrifum sínum. Salurinn þar sem þrykkpressurn- ar stóðu hlið við hlið var í bókstaf- legri merkingu veggfóðraður litó- grafískum kalksteinum frá Solnhof- en í Bæjaralandi. Komið fyrir í hill- um í snyrtilegum röðum, eins og dýrmætum bókum á safni, og stein- arnir voru vandlega merktir lista- mönnunum, sem voru að nota þá. Hið litla verkstæði var samkomu- staður fjölda listamanna svo sem hin fræga gestabók þess ber með sér, en í hana höfðu m.a. ritað nöfn sín: Picasso, Chagall, Cocteau, Miró, Matisse, Vlaminck, Utrillo, Braque, Van Dongen, Villon, Dera- in, Dufy, Léger, Masson, Giaeo- metti, Delvaux, Calder, Le CorbuSi- er, Dali, Siqueiros, Estéve, Lidner, Dubuffet, Manessier, Shuterland, Soulages, Ben Sahn, Matta, Henry Moore, Bacon, Buffet, Lanskoy, Jenkins, Bellmer, Wunderlich, App- el ... Allt saman heimsþekktir bógar myndlistarinnar, sem hver einasti vel menntaður listamaður á að þekkja eða í öllu falli kannast við og maður getur gert því skóna að þeir flestir, ef ekki allir, hafí unnið á stein eða málmplötu á verkstæð- inu. Auk þess komu þangað safnarar, listhöndlarar, gagnrýnendur, safn- stjórar og iistsögufræðingar, að ógleymdum rithöfundum af mörg- um gerðum allt frá Collette til Rev- erdy, frá Pulham til Prévert, frá Aragon til Malraux og Camus ... Ferdnand Mourlot var innfæddur Parísarbúi, en forfaðir hans kom til borgarinnar og settist þar að árið 1780. Afi hans var veggfóðr- ari og sjálfur sagði hann að það væri ýmislegt er lýtur að þrykki í þeirri starfsgrein. Faðir hans setti á stofn lítið verkstæði og þrykkti skjöl, bókhaldsgögn, bréfhausa og ýmislegt smálegt fyrir fyrirtæki, en slíkt var dijúgur iðnaður í gamla daga, en er naumast til í því formi lengur. Hann var metnaðarfullur og eftir að hann gifti sig og konan fór að hlaða niður börnum keypti hann nýja þrykkpressu í hvert skipti sem drengur eða stúlka kom i heim- inn og pressurnar urðu samtals níu eins og bömin. Það var tvennt merkilegt sem skeði skömmu áður en fyrri heim- styijöldin skall á og er líkast sem örlagadísirnar hafi verið þar að verki. Fyrir hið fyrsta, þá bytjaði Ferdnand að vinna á verkstæði föð- ur síns að rue Saint - Maur 75, sem liggur milli breiðgatnanna Rue Faubourg du Temple og Avenue de la Republique og í átt til Boule- vard Voltaire, og svo á átti faðir hans leið um rue de Chabrol á svip- uðum tíma og sá þar á húsvegg auglýsingu um að þrykkverkstæði væri til sölu á staðnum. Hann leit þar inn og náði tali af eigandanum, monsieur Bataille, og þeir komust að samkomulagi. Til að fjármagna kaupin seldi Jules Mourlot rúss- nesku ríkisskuldabréfin sín og þar fór hann skynsamlega að ráði sínu, því að nokkrum mánuðum seinna skall stríðið á og verðbréfin voru ekki lengur pappírsins virði! Það var einmitt á þessum stað, sem ævintýrið byijaði, er stein- þrykkið var endurreist sem gildur listmiðill, en fáir höfðu unnið í því frá hinu mikla blómaskeiði fyrir aldamótin. Röð frábærra lista- manna vann í steinþrykkinu alla 19. öldina og má segja að þróunin hafi náð hámarki með Toulouse -Lautrec, sem á milli 1892-1900 gerði 400 litógrafíur og þar af 50 í lit, en á þeim tíma þróaðist tækn- in í gerð veggspjalda, þar sem Lautrec var óumdeilanlega meistar- inn, svo og auglýsinga. Litógrafían varð á þeim tíma svo mjög undir- lögð auglýsingaiðnaðinum, að framsæknir núlistamenn misstu flestir áhuga á henni. Endurreisnin hófst um 1930 og þá hafði Ferndnand þegar aflað sér dijúgrar reynslu í faginu, faðir hans hafði látist 1921 og þá var nafni fyrirtækisins breytt í „Mourlot Fréres" (Bræðurnir Mourlot). Fram að seinni heimsstyijöldinni var steinþrykkið einungis list fáeinna útvaldra. Það var svo fyrst eftir að styijöldinni lauk að listamenn fóru að hópast á verkstæðið og hér var Picasso í fararbroddi, en fljótlega komu þeir Matisse, Derain, Miró, Braque, Chagall, svo örfáir þeir frægustu séu nefndir. í æviminn- ingum Mourlots er fyrirferðarmikill kafli um samskipti hans við Picasso og þar kemur vel fram hve marg- brotinn persónuleiki meistarinn var. Mourlot var gæddur ágætri frá- sagnargáfu og hafði gaman af að segja sögur og dró lítið undan, gaf þeim frekar lit. Picasso ákvað að vinna við steinþrykk haustið 1945 og lét ritara sinn Sabartés hringja í Mourlot og boðaði hann til sín á vinnustofuna í Rue des Grands Augustins. Að sjálfsögðu lét Mour- lot ekki segja sér það tvisvar að heimsækja meistarann, sem hann hafði aldrei hitt og þekkti bara af ljósmyndum. Sabartés tók á móti honum og leiddi hann m.a. í gegnum stóra biðstofu þar sem nálægt 20 manns, konur og karlar, sátu og biðu og beint inn á vinnustofu Picassos. Þeir áttu ánægjulegar samræður um allt milli himins og jarðar, en þó einkum grafík og málverk í hálfa aðra klukkustund. Er Mourlot hélt svo á braut sat allt fólkið ennþá hið þolinmóðasta á biðstofunni og beið eftir að röðin kæmi að því. Mourlot hermir annars staðar sérstaklega frá því, hve áhugi Pic- asso á steinþrykkinu hafi verið mik- ill og þannig fékk hann ætíð vafn- ingalaust að ganga beint inn til meistarans og alltaf þegar hann kom var hópur af fólki á biðstof- unni sem beið og var ekki laust við að það Iiti upp til hans fyrir að hafa forgang! í ljós kom, að Braque hafði mælt með Mourlot sem traustum þrykkjara, en Picasso var farið að langa til að vinna aftur við stein- þrykkið eftir 15 ára hlé. En hann lét í það skína, að hann hefði ekki beinlínis ýkja mikið álit á tækn- inni,_ en vildi þó reyna fyrir sér aft- ur. í stuttu máli var þetta upphaf af ævilangri samvinnu þeirra og verkstæði Mourlots þrykkti upp frá því allt sem Picasso lét sér detta í hug að útfæra í steinþrykki og málmplötur. Fyrsta lotan reyndist dijúg, því hér var brimbijótur að glíma við hin svart-hvítu blæbrigði. Törnin varaði í fjóra mánuði og Picasso var á staðnum frá 9-6 alla daga nema sunnudaga, en þá gerði hann stór uppköst að litógrafíum heima hjá sér og var mættur með þær stundvíslega kl. 9 á mánudags- morgnana. Allt í allt mun hann hafa þrykkt milli 4-500 myndir á tímabilinu! Mourlot lét gamaldags og gróin þrykkjara Gaston Tutin að nafni, er jafnan var nefndur annaðhvort monsieur Tutin eða Pére Tutin, vinna með Picasso, en sá bjó yfir mikilli þekkingu á hinu sígilda handverki og var sérstaklega fær í að yfirfæra myndir á stein og zink- plötur og aðra vinnslu þeirra, svo sem innbrennslu með sýrum og loks þrykkingu. Einnig voru fyrir á verk- stæðinu afbragðs þrykkjarar eins og Henri Deschamps og Charles Sorlier, sem einnig unnu með Pic- asso. Fram má koma að ferlið frá teikningu í fullgilt þrykk getur ver- ið flókið mál í mörgum tilvikum og Picasso, sem var á móti öllum venju- bundnum aðferðum, var stöðugt að leggja fyrir vesalings Tutin nær óframkvæmanleg verkefni, sem

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.