Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 26

Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 Ársæll Kr. Einars- son lögregluvarð- síjóri — Minning Fæddur 10. ágúst 1919 Dáinn 19. október 1993 Mánudaginn fyrsta nóvember verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju hjartkær bróðir minn, Ársæil Kristinn Einarsson, sem lést í Borg- arspítalanum 19. þessa mánaðar. Hann hafði um alilangt skeið háð baráttu við illskeyttan sjúkdóm, þar sem endaiokin verða ætíð á einn veg. En Ársæll æðraðist ekki þótt hann gerði sér grein fyrir hvert stefndi. Með aðdáunarverðri hugarró og karlmennsku, jafnvel með bros á vör_ barðist hann til hinstu stundar. Ársæll var fæddur 10. ágúst 1919 í Neðradal í Biskupstungum. For- eldrar hans voru Einar Grímsson bóndi og kona hans, Kristjana Kristj- ánsdóttir. Einar var sonur hjónanna Gríms bónda á Þórarinsstöðum í Hruna- mannahreppi, Einarssonar bónda og hreppstjóra í Galtafelli, Jónssonar bónda og dannebrogsmanns á Kóps- vatni. Móðir Einars í Galtafelli var Katrín Jónsdóttir bónda í Reykjadal í sömu sveit. Kristjana var dóttir Kristjáns bónda í Heysholti í Landsveit, Guð- mundssonar bónda í Skógarkoti í sömu sveit. Móðir Kristjönu var Kristín Jónsdóttir bónda á Heiði í Holtum. Þessi stutta ættfærsla sýnir að traustir stofnar bændasamfélagsins stóðu að Ársæli. Ljúfar minningar leita fram í hug- *—&nn allt frá bemskudögum er við systkinin lékum okkur saman glöð og áhuggjulaus meðal guliinna blóma í hlaðvarpa og bæjarbrekku. Systkinin í Neðradal voru níu, sex bræður og þrjár systur. Nú eru fimm þeirra eftir á lífi. Eins og að líkindum lætur hafði þessi stóri systkinahópur nóg fyrir stafni í leik og starfi. Eldri systkinin pössuðu þau yngri og svo koll af kolli. Á vorin og sumrin var hlaupið um tún og grundir og ríslað við bæjarlækinn. Á haustin prílað upp í fjall í beijatínslu eða smala- mennsku. Á vetrum byggð snjóhús og rennt sér á skautum eða skíðum. Hjá eldri krökkunum var mikil tilhlökkun þegar pósturinn birtist __ hálfsmánaðarlega með eitthvert les- efni. Enginn tími var til að láta sér leiðast, þótt hvorki væri til útvarp, sjónvarp, myndbönd né geisladiskar. Er systkinin höfðu aldur til tóku þau að sjálfsögðu þátt í daglegum störfum með fullorðna fólkinu. Það hefur jafnan þótt notadijúgur skóli síðar í lífinu. Ársæll var góðum gáfum gæddur og fróðleiksfús. Að loknu skyldu- námi var hann einn vetur í íþrótta- skólanum í Haukadal. Það var góður undirbúningur fyrir lífsstarfið, sem Ársæll kaus sér. Það kom sér líka ágætlega í starfí lögreglumanns, að hann var vel á sig kominn, í hærra meðallagi og sterkbyggður. Btónmsíofa Fríðfinns Suöurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiö öllkvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. m Á unglingsárum hleypti Ársæll heimdraganum og leitaði sér að vinnu. Hann sótti sjóróðra frá Stafn- nesi þar sem hann reri í nokkur ár. Þá vann hann hjá Einari í Garðhús- um í Grindavík og loks var hann vinnumaður á Hraðastöðum í Mos- fellssveit. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur. Þar gekk Ársæll í götulögregluna 1942, aðeins 23 ára gamall. Frá þeim tíma starfar hann óslitið hjá lögreglunni í Reykjavík uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1989, eftir hart nær hálfrar aldar starf. Ársæll gegndi á sínum langa starfsferli allflestum löggæslustörf- um, almennu eftirliti á götum úti, umferðarstjórn, unglingaeftirliti, símavörslu, fangageymslu, flokk- stjóm og varðstjórastarfi. Ársæll var dagfarsprúður maður og átti létt með að blanda geði við fólk, en gat verið mjög röggsamur og ákveðinn ef því var að skipta. Sérstaka athygli vakti hve Ársæll var iaginn að tala um fyrir ungling- um, sem voru ölvaðir eða höfðu ver- ið teknir fyrir óknytti og ólæti. Hann leiddi skjólstæðingum sínum fyrir sjónir að öllum gæti yfírsést í hugs- unarleysi eða augnabliksæsingi. Það væri ekki nema mannlegt. En vítin væru til þess að varast þau. Látið aldrei sjá ykkur hér framar. Hann Iagði þunga áherslu á orðin og horfði djúpt í augu viðmælandans. Þá eruð þið menn að meiri. Síðan hringdi hann í foreldrana og lét þá sækja afkvæmi sín. Lang oftast sá Ársæll þessa krakka aldrei oftar. Lögreglumannsstarfíð er mjög vandasamt og viðkvæmt ef svo má að orði komast. Þar gildir að taka réttar ákvarðanir á réttum augna- blikum. Hið sama skiptir höfuðmáli við sérstakar erfíðar aðstæður. Á barmi hyldýpis örvæntingar gildir oft að fínna réttu orðin á réttum tíma. Það getur skipt sköpum þegar um líf eða dauða er að tefla. Ársæll var fær og vinsæll í starfí. Hann hafði góða eiginleika lögreglu- mannsins til að bera. Þá starfaði Ársæll lengi sem dyra- vörður í Oddfellowhúsinu og Hótel Borg. Það vandasama og oft van- þakkláta starf leysti hann vel af hendi og eignaðist marga góða kunningja og vini. í einkalífi sínu var Ársæll einnig farsæll og lánsamur. Árið 1947 steig hann mesta gæfuspor sitt er hann kynntist bráðmyndarlegri bónda- dóttur, Guðmundu Guðmundsdóttur frá Níp í Skarðshreppi í Dalasýslu. Þau felldu hugi sama og hófu bú- skap sama ár. Ársæll hafði þá nýlega lokið við að byggja- stórt tvílyft steinhús í Sigtúni 33, ásamt tveimur bræðrum sínum og föður. Nú hafði hann að mestu eignast húsið einn. I Sigtún- inu hafa þau hjón búið allan sinn búskap eað rúman hálfan fímmta áratug. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið, sem eru Kristjana, fædd 1948, og Einar Guðmundur, fæddur 1958. Einar er rafvirki að mennt. Kristjana stundaði verslunarstörf fyrr á árum, en hefur átt við vanheilsu að stríða um árabil. í veikindum hennar hefur samheldni og fórnfýsi foreldranna komið skýrast í Ijós. Guðmunda eða Stelia, eins og hún var alltaf kölluð, rakti ekki einungis skyldur sínar sem fyrirmyndar hús- móðir, heldur vann hún um ^ratuga skeið utan heimilis. Hún var í hluta- starfí hjá Hólmfríði mágkonu sinni í versluninni Kjalfelli. Ársæll var einstaklega góður heimilisfaðir, reglusamur og úr- ræðagóður. Stella er myndarleg hús- móðir og bjó manni sínum og börn- um fallegt og notalegt heimili. Afar gestrisin voru þau hjónin og góð heim að sækja. Miklar og góðar veitingar voru fram bornar og ánægjulegt var að spjalla við fjöl- skylduna um landsins gagn og nauð- synjar. Húsbóndinn fylgdist vei með fréttum bæði af inniendum og er- lendum vettvangi. Hann hafði fast- mótaðar skoðanir á mönnum og málefnum. Hvers konar lausung og óráðsía var honum fjarri skapi. Skuldasöfnun þjóðarinnar var hon- um þyrnir í augum. Ef ekki væri snúið af þessari óheillabraut væri sjálfstæði landsins í bráðri hættu. Þótt Ársæll væri alvörumaður var hann hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann átti létt með að tjá hugsanir sínar og segja nokkur vel valin orð á ýmsum hátíðis- og tylli- dögum í lífi vina og venslamanna. Einnig hefur Ársæll borið við að festa hugsanir sínar á blað og munu nokkrar greinar eftir hann hafa birst í Lögreglublaðinu. Þótt Ársæll helgaði lögreglu- mannsstarfinu krafta sína og byggi allan sinn búskap í Reykjavík var hann sveitamaður í eðli sínu. Sjálf- sagt hefði hann vel getað hugsað sér að verða bóndi þótt atvikin hög- uðu því á annan veg. Oft heimsótti Ársæll æskustöðv- arnar í Biskupstungum. Meira að segja átti hann í nokkur ár fáeinar kindur hjá Jóni bróður sínum, sem býr í Neðradal. Á fögrum sumardegi hafði Ársæll yndi af að renna fyrir silung og njóta kyrrðar og fegurðar íslenskrar náttúru. Ættjarðarljóð skáldsins frá Arnarvatni var honum ætíð ofarlega í huga. Blessuð sértu sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín, yndislega sveitin mín, heilla mig og heim til sín huga minn úr ijarlægð draga. Blessuð sértu sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. Eftir að Ársæll komst á eftirlaun hafði hann betri tíma til að sinna ýmsu smávegis heima fyrir. Hann var lagtækur og dyttaði að húsi sínu utan dyra og innan. Þá var hann natinn við að hirða um garðinn, ræktaði kartöflur og fleira græn- meti. Ársæll var eins og margir af eldri kynslóðinni að honum féll aldrei verk úr hendi. Kannske er líka í vinnunni að leita notadrýgstu og varanlegustu ánægjunnar í lífínu. Víst er um það að okkar litla samfélag væri betur á vegi statt ef sem flestir þegnar þess ættu þessa eiginleika í ríkum mæli. Ársæll vanrækti ekki uppáhalds- íþrótt sína, sundið. Nær daglega fór hann í sund meðan heilsan leyfði. Er heilsan tók að bila naut Ár- sæll framúrskarandi umönnunar og umhyggju konu sinnar. Hún gerði allt, sem í hennar valdi stóð til að létta honum veikindastríðið. Síðustu þijá mánuðina lá Ársæll í Borgarspítalanum. Hjúkrunarfólki og læknum skulu færðar alúðar- þakkir fyrir góða umönnun og hjúkr- un. Nú er skarð fyrir skildi er Ársæll er horfinn sjónum. Það er huggun hai-rni gegn að minningin um góðan dreng lifír í hjörtum aðstandenda og vina. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við Aðalheiður sendum að leiðar- lokum eiginkonu, börnum, systkin- um, öðru venslafólki og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þín, kæri bróðir. Ármann Kr. Einarsson. Á morgun er til moldar borinn vinur minn og starfsfélagi til fjölda ára, Ársæll Kr. Einarsson, lögreglu- varðstjóri í Reykjavík. Kynni okkar hófust er ég fékk ráðningu sem lögregluþjónn hér í Reykjavík 1958, þá rúmlega tvítug- ur, og var settur til starfa á svokall- aðri Matthíasarvakt. Á þeim árum var hver vakt heimur út af fyrir sig með sín einkenni. Heldur þótti mér stráknum verðandi starfsfélagar drungalegir og hijúfír, sem breyttist þegar tímar liðu og ég fann hjá þeim hlýju og gott hjartalag. Skynjaði að starfið bjó þeim grímu og mér tók að líða vel hjá þessum mönnum. Þeir báru virðingu fyrir starfi sínu og sér sjálfum. Voru hámenntaðir þótt skólagönguna og prófin skorti, því að lögreglustarfíð er endalaus uppspretta lærdóms. Agi var mikill og við þeir yngstu vorum aldir upp af þeim sem reynsluna höfðu, en ekki öfugt. Einn þessara mætu manna var Ársæll, sem mér þótti þá vera með óþarfa tuð og afskiptasemi. En árin urðu mörg og ég tók að meta og sjá Ársæl í öðru ljósi og finna og virða hans miklu mannkosti og hæfni sem lögreglumanns. Náið samstarf í níu ár á einhveijum þeim viðkvæmasta stað hjá lögreglu- stjóraembættinu, fangageymslunum við Hverfísgötu, varð okkar aðal starfssvið. Staður sem er andlit lög- reglunnar hvað varðar mannleg samskipti út á við og í fjölmiðlum. Staður þar sem tekið er á móti sam- borgurunum oft og tíðum í sínu hörmulegasta ástandi. Við þær að- stæður kom í ljós hæfni Ársæls að vega og meta og taka réttar ákvarð- anir sjálfstætt og bera á þeim ábyrgð. Hann hafði skynjun og inn- sæi í, ef mál var að þróast á verri veg og gat beint því í þann farveg að viðunandi niðurstaða fékkst. Hann var mjög vel greindur og hafði ákveðnar skoðanir sem hann var óhræddur við að láta í ljós, þótt þær féllu ekki að skoðunum fjöldans. Marga vökunóttina áttum við tal saman um hin ýmsu mál líðandi stundar og önnur er náðu út yfir tíma og rúm. Á þeim nóttum gaf hann mér mikið. Hann var mikill starfskraftur og gekk í hvaða starf sem var af dugnaði og áhuga fram á seinasta dag er hann lét af störfum sjötugur. Var stöðugt vaxandi í aug- um starfsfélaga sinna. Ég kveð merkan mann og eftir- minnilegan, sem farinn er til staðar sem hann var viss um hvar væri, með þökk fyrir uppeldið. Aðstandendum votta ég samúð mína. Blessuð sé minning Ársæls Kr. Ein- arssonar. Jón Pétursson. Með þessum fáu orðum langar mig til þess að minnast föðurbróður míns, Sæla frænda, eins og við frændsystkinin kölluðum hann. Ár- sæll byggði húsið í Sigtúni 33, ásamt bræðrum sínum tveimur, Oddgeiri og Valdimari föður mínum, sem nú er látinn. í Sigtúninu slitum við frændsystkinin því barnsskónum. I þessu húsi var barnmargt og þröngt, en sambúð íjöldskyldnanna þriggja gekk snurðulaust fyrir sig og ekki sþillti að Kristjana amma var ætíð til reiðu til að taka í spil og lauma að okkur góðgæti. Það var stórfjöl- skyldubragur á lífínu í Sigtúninu á þessum árum og fyrir okkur krakk- ana var þetta góður tími. Það hlýtur oft að hafa reynt á þolrifin að hafa allan krakkaskarann inni á gafli því engin landamæri voru virt í Sigtún- inu og ekki til þess ætlast. Ef ein- hvers þurfti við var allt eins hægt að spyija Sæla frænda eins og pabba. I amstri dagsins áttum við frændsystkinin því í raun þrjá pabba og þijá mömmur. Og ef um allt þraut mátti leita til ömmu Kristjönu sem allt skildi og allt fyrirgaf. Ársæll naut mikillar virðingar hjá okkur krökkunum, ekki síst þegar hann birtist í fullum lögregluskrúða, var ekki laust við að sum okkar notfærðu sér það á ófriðarvettvangi að eiga löggu fyrir frænda. En Sæli var okkur krökkunum einnig sér- staklega innanhandar vegna þess að hann var stundum í fríi á miðjum dögum þegar aðrir voru að vinna og krakkar þurfa oft og tíðum á góðum ráðum að halda með litlum fyrirvara. Hann hafði tíma til að hjálpa okkur til að sinna mikilvæg- um málefnum eins og að útvega efni í kerrubíla og dúfnakofa eða einfaldlega til að spjalla. Sérstaklega eru þó minnisstæðar fjölskylduferðirnar austur í Neðra- dal, sem voru ófáar. Þar var Sæli í essinu sínu, enda fór ekki á milli mála að heimahagarnir áttu sterk ítök í honum. Eftir að við fluttumst úr Sigtúninu hélst gott samband á milli fjölskyldnanna. Og þótt heim- sóknirnar á síðari árum hafi orðið færri en skyidi kvaddi hann mig ósjaldan með þeim orðum að hafa sig í huga ef ég þyrfti einhvers við. Fékk ég að reyna að sú ósk var fölskvalaus. Að leiðarlokum er margs að minnast og margt að þakka. Ég sendi Stellu, Kristjönu og Einari hugheilar samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur og blessa. Minningin lifir um góðan dreng. Grímur Valdimarsson. Ég vil með nokkrum línum minn- ast samstarfsmanns og góðs kunn- ingja í meir en 50 ár. Hann þynnist óðum hópurinn, sem byijaði lögreglustörf á því umskipt- anna heimsstyijaldarári 1942. Flest- ir vorum við sveitapiltar, búnir að vera misjafnlega stuttan tíma i höf- uðborginni. Þetta voru erfiðir tímar en þrátt fyrir allt skemmtilegir fyrir unga menn, í atvinnuleit, en þegar frá leið var starfið ekki eins eftirsókn- arvert, vegna slæmra launakjara og ýmissa ástæðna. Margir vel hæfir menn leituðu burt og fengu sér bet- ur launuð störf. Það var erfítt að manna lögregluna í Reykjavík um árabil. Smám saman fór þó að þok- ast í rétta átt varðandi vinnutíma, laun og aðbúnað. Nú er þetta marg breytt og komið í allgott ástand sem kunnugt er og fyrnist yfír forna daga. Ársæll Kr. eða Sæli eins og við löggurnar kölluðum hann var einna yngstur í þessum föngulega hópi, sem gekk í „lýðveldisherinn“ í jan- úar 1942 og hann var jafnframt sá síðasti úr flokknum, sem hætti eftir 47 ára samfellt farsælt starf, þá sem varðstjóri. Það hittist þannig á að við vorum í byijun og í áratugi á sömu vakt, Matthíasarvaktinni svo- nefndu. Frá þeim tíma er margs að minnast. Það var gott að hafa Sæla að samstarfsmanni í útköllum. Mað- urinn var traustvekjandi og stóð fyrir sínu eins og nú er oft sagt. Hann var manna reglusamastur og afgreiddi vandamál náungans á fum- lausan og yfírvegaðan hátt án vols eða víls. Ársæll var maður margfróð- ur og fylgdist vel með félagsmálum lögreglunnar þó ekki væri hann þar kvaddur til forystu. Það var oft bráðskemmtilegt að spjalla við Sæla þegar tími gafst til að ræða þjóðfélagsmál eða málefni líðandi stundar, þar kom enginn að tómum kofunum. Ársæll var sonur hjónanna Einars Grímssonar og Kristjönu Kristjáns- dóttur, sem bjuggu lengst í Neðrad- al í Biskupstungum og þar ólst hann upp í fjölmennum hópi tápmikilla systkina. Hann kvæntist ungur mik- illi ágætiskonu, Guðmundu Guð- mundsdóttur, ættaðri úr Dalasýslu. Þau eignuðust tvö börn. Ársæll gerð- ist landnemi við Sigtún í Lauganes- hverfi ásamt bræðrum sínum 1947. Saman hafa þau hjón byggt þar sitt framtíðarheimili í fjörutíu og fimm ár. Nú hefur hann skipt um bústað eftir 14 mánaða harða en æðrulausa baráttu við krabbann. Hvíli hann í friði. Við Elín kona mín sendum Guð- mundu og börnunum innilegar sam- úðarkveðjur. Þórður Kárason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.