Morgunblaðið - 31.10.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993
31
Gunnar Gissurar-
son - Minning
Fæddur 16. ágúst 1924
Dáinn 11. október 1993
Mér er einkar ljúft að skrifa um
vin minn Gunnar Gissurarson.
Hann var jarðsunginn í kyrrþey að
eigin ósk. Það var hans lífsmunstur
að láta ekki bera mikið á sér eða
trana sér mikið fram og vera í
sviðsljósinu þó að hann ynni mikið
að allskonar félags- og góðgerðar-
málum. Hann var mjög virkur inn-
an AA-samtakanna í marga ára-
tugi og er hægt að telja að hann
hafi verið einn af þeim sem ruddu
veginn og héldu saman samtökun-
um þegar þau áttu erfitt uppdrátt-
ar. Hann trúði á samtökin og mátt
þeirra. í gegnum þau eignaðist
hann mikið af vinum og flestir
höfðu þeir orðið illa úti í viðureign-
inni við Bakkus. Þessum mönnum
reyndi hann að hjálpa og greiða
götu þeirra með öllum mögulegum
ráðum. Ég veit að stór hópur af
mönnum sem umgengust hann
hlaut bót á vandamáli sínu og gat
fótað sig aftur á lífsbrautinni.
Gunnar var svo lánsamur að honum
tókst strax að sigrast á sínu áfeng-
isvandamáli sem hann þakkaði
samtökunum og því góða fólki sem
þar var fyrir.
Gunnar fæddist í Reykjavík 16.
ágúst 1924. Foreldrar hans voru
Sigrún Jónsdóttir og Gissur Gríms-
son. Hann missti ungur föður sinn
og þurfti því snemma að takast á
við lífið og sjá fyrir heimili. Hann
vann framan af við ýmis verslunar-
störf, en síðustu þt'já áratugi vann
hann við Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar þar til hann neyddist til að
hætta vegna veikinda. Hann gat
sér þar gott orð fyrir trúmennsku
og góða frammistöðu í starfi.
Við höfðum kynnst lítillega í
samtökunum en svo urðu nánari
kynni þar sem hann gekk að eiga
mágkonu mína Guðrúnu Guðjóns-
dóttur 31. maí 1969 og hafa þau
búið saman í mjög samrýndu og
góðu hjónabandi. Guðrún var þá
með yngsta son sinn Eggert Þór
Bernharðsson hjá sér og gekk hann
honum í föðurstað og reyndist hon-
um sem besti faðir. Á hann nú son
sem ber nafn Gunnars og voru
þeir mjög nánir vinir. Honum var
annt um öll börnin en Eggert var
yngstur og urðu þeirra kynni nán-
ust. Eggert er kvæntur Þórunni
Valdimarsdóttur og eiga þau tvo
syni og hefur verið einstaklega ljúft
á milli Gunnars og fjölskyldu Egg-
erts. •
Mér finnst ég standa í mikilli
þakkarskuld við Gunnar því að
hann studdi mig með ráðum og dáð
meðan ég var að ná valdi á áfengis-
vandamáli mínu. Hann var mjög
hreinskilinn og ófeiminn að segja
Dögg Björnsdótt-
ir - Minning
Fædd 18. september 1973
Dáin 16. október 1993
Ég er ekki enn farin að skilja
að Dögg sé dáin. Ég kynntist henni
fyrir u.þ.b. fimm árum þegar ég
og foreldrar mínir fluttumst út til
Lúxemborgar. Enda þótt við hitt-
umst ekki oft, þá vorum við ágætis
vinkonur og náðum vel saman. Þá
hittumst við á jólaböllum, 17. júní
og öðrum hátíðisdögum. Þá gat
maður spjallað í óratíma við hana.
Mér fannst æðislegt að tala við
hana um heima og geima. Því mið-
ur er þetta í annað sinn á stuttum
tíma sem ung stúlka hefur látist í
bílslysi í Lúxemborg. Maður hugs-
ar: Éf ég hefði verið þarna þá ...
Mér þykir æðislega vænt um að
hafa fengið að kynnast Dögg, hún
var svo falleg manneskja. Þó að lík-
aminn og sálin séu farin, þá eigum
við dýrmætar minningar um hana
elskuna okkar. Hún er því og verð-
ur alltaf hjá okkur í hjartanu. Lífið
gengur furðulega fyrir sig, allt hef-
ur sinn tilgang, þó að maður skilji
það alls ekki. Því trúi ég allavega.
Elsku fjölskylda og ástvinir, megi
guð styrkja ykkur í gegnum þetta.
■ BÆJARMALARAÐ Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði hefur sam-
þykkt ályktun þar sem brýnt er
talið að forysta flokksins, þing-
flokkur og ráðherrar standi vörð
um grundvallarsjónarmið jafnaðar-
stefnunar og velferðarkerfið, og
lýsir jafnframt trausti á störf Guð-
mundar Árna Stefánssonar á
Alþingi ,og sem heilbrigðis-og
tryggingamálaráðherra.
I ályktuninni segir m.a.: „Guð-
mundur Árni hefur sýnt það og
sannað í störfum sínum á vegum
flokksins að hann er ötull talsmaður
jafnaðarstefnunnar sem veigrar sér
ekki við að axla ábyrgð og takast
á við erfið viðfangsefni. Það er og
hefur verið ljóst að innan Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði, eins og víð-
ar, eru skiptar skoðanir um ágæti
þess stjórnarsamstarf sem flokkur-
inn á nú aðild að, sem og einstaka
aðgerða í ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar.“
Ég var lítið bam
og ég spurði móður mína
hver munur væri á gleði og sorg.
Móðir mín strauk yfir hár mitt og svaraði.
Sá maður sem aldrei kennir sorgar í hjarta
sínu
getur ekki glaðst
því hann þekkir ekki sorgina.
(Þórunn Magnea)
Elsku Dögg mín, sofðu rótt og
dreymi þig ljúfa drauma. Þín vin-
kona,
Tinna Kristjánsdóttir.
manni til syndanna. Hann hélt því
ávallt fram að þetta væri vandamál
sem yrði að taka á í fullri alvöru
og hreinskilni ef sigur ætti að vinn-
ast á því. Hann trúði á æðri mátt
og oft fór hann með þessa hend-
ingu úr 12 sporum AA-samtak-
anna: „Við fórum að trúa að æðri
kraftur, máttugri vorum eigin vilja,
mundi gera oss heilbrigð að nýju.“
Og hann undirstrikaði að við yrðum
að trúa á það sem við værum að
gera til að árangur næðist.
Gunnar var mjög trúaður og
vann sem meðhjálpari við Dóm-
kirkjuna um nokkurra ára skeið.
Hann hafði unun af fallegum söng
og tónlist og kunni mikið af sálmum
og sálmalögum og söng þau óspart
með sinni ágætu rödd þegar við
átti. Gunnar söng í mörg ár með
Karlakór Reykjavíkur. Hann hafði
gaman af því að skreppa á bingó
öðru hveiju og stjórnaði hann því
af og til í nokkur ár og eignaðist
hann mikið af góðum vinum því
að honum fórst vel úr hendi að
stjórna.
Síðustu árin átti hann við mikla
vanheilsu að stríða og andaðist á
hjartadeild Landspítalans 11. októ-
ber sl.
Að síðustu vil ég kveðja hann
með AA bæninni:
Guð gefTmér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt,
og vit til þess að greina þar á milli.
Eiginkonu hans, fóstursyni og
fjölskyldu hans sendi ég samúðar-
kveðjur.
Guðmundur J. Clausen.
RAI=VÖRUR Hl=
flytja
í nýtt og betra húsnæði í
Ármúla 5.
Opnum mánudag 1. nóvember.
Opið hús í Garðabæ
Draumahæð 8 og 12
j M»t«W .. 111
ii I tssa&32 g gggg 'v g
Þessi glæsilegu raðhús
eru á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr. Alls
151 fm. Húsin eru til af-
hendingar strax fokheld
að innan og fullbúin að
utan. Opið hús í dag,
sunnudag, frá kl. 13-18.
Allir velkomnir.
Verð 8,3 millj.
hÓLl
FASTEIGNASALA
BORGARTÚNI 18 3 H. (Húbí SpirltjMt vélstjóra)
'S' 10090
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞURÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR,
Álfheimum 46,
sem lést 25. október verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
3. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu,
er bent á Krabbameinsfélagið.
Hulda Yngvadóttir,
Sigurjón Svavar Yngvason,
Margrét Yngvadóttir,
Inga Þuríður Þorláksdóttir.
Arnar Laxdal Snorrason,
Margrét Valdimarsdóttir,
Páll Pálsson,
t
Þökkum auösýnda samúð og hlýju við
andlát og útför móður minnar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR VIGFÚSDÓTTUR,
fyrrverandi Ijósmóður
frá Stykkishólmi.
Guðrún Guðmundsdóttir, Gunnar Jóhannesson,
Gunnar Gunnarsson, Steinar Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson, Kristm A. Emilsdóttir,
Steinar Gunnarsson, Anna Rósa Kristinsdóttir,
og langömmubörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför
JÓNASAR GÚSTAVSSONAR
héraðsdómara.
Kristín Gyða Jónsdóttir,
Guðrún Helga Jónasdóttir,
Steinunn Jónasdóttir.
Vantar - vantar
★ 2ja-3io herbergjo i lyftuhúsi við Sólheima.
★ 3jo-4ra herb. íbúð í nógrenni Vesturbæjarskóla. Verð ca 7,0 millj.
★ 4ro herb. ibúð í Hóaleitishverfi. Verð co 8,5 millj.
★ Sérhæð ó Seltjarnarnesi í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð með bílskúr ó
Seltjarnarnesi.
Fasteignasalan Framtíöin,
Austurstræti 18,
sími 622424.
FASTEIGNA
MIÐSTÖÐIN
SKIPHOLTI50B -105 REYKJAVÍK
SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290
[62 20 30
Kögunarhæð - Gb.
Glæsil. rúmlega 202 fm einb. á þessum vinsæla stað.
Húsið er til afh. strax fokhelt. Teikningar og myndir á
skrifstofu. Áhv. húsbréf 6,0 millj.
Rekagrandi
1486
Nýkomin í einkasölu glæsileg 2ja herb. íbúð 65,3 fm á
jarðh. í fallegu fjölbýii. íbúðinni fylgir sérlóð í suður með
hellulagðri verönd. Stutt í leiksvæði og verslun. Áhv.
1850 þús. byggsj. Verð 6,2 millj.
Meðalbraut - Kóp. 5275
Mjög falleg 203 fm húseign á tveimur hæðum. Á neðri
hæð er inngangur, þvottahús, snyrting og bílskúr. Á
efri hæð eru svefnherbergi, stofur, snyrting og eldhús.
Stórar suðursv. Glæsil. útsýni.