Morgunblaðið - 31.10.1993, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993
Kirkjuþing' fjallaði uppbyggingu í Skálholti fyrir um 300-450 milljóna króna
Ríkið leggitil 10 millj. árlega
KIRKJUÞINGI lauk í á fimmtudag, en þar voru m.a. ræddar tillögur
um framtíðaruppbyggingu í Skálholti. Framkvæmdakostnaður gæti
orðið á bilinu 300 til 450 milljónir króna. Þingið samþykkti fjölmargar
ályktanir þar á meðal um nauðsyn þess að styrkja tengsl þingsins og
safnaðanna í landinu, um aukna húsnæðisþörf biskupsembættisins og
ráðningu prests til að þjóna íslendingum í Gautaborg og Osló.
Skálholt í framtíð
Á síðasta degi kirkjuþings voru
ræddar tillögur fjárhagsnefndar um
framtíðaruppbyggingu Skálholts en
miðað er við framkvæmdakostnað á
bilinu 300 til 450 milljónir króna.
Kirkjuþing lýsti yfir samþykki við
íjáröflunarleiðir, þ.á.m. að andvirði
sölu iands Garðakirkju renni að öllu
leyti til Skálholts, Kirkjuráð láti 11%
af tekjum jöfnunarsjóðs sókna ganga
til Skálholts meðan uppbygging fer
fram og óskað verði eftir því að ríkis-
sjóður leggi Skálholti til 10 milljónir
króna árlega vegna uppbyggingar
og framkvæmda.
Um forgangsröð framkvæmda tel-
ur kirkjuþing brýnt að malbikun bíla-
stæða, heimkeyrslu og hlaðs við
kirkju og skóla hafi forgang og verði
unnin svo fljótt sem verða má. Hvað
byggingar varðar bendir kirkjuþing
á eftirfarandi forgangsröðun: íbúðar-
hús fyrir rektor skóla, viðbyggingu
við skóla, þjónustumiðstöð og safna-
hús, starfsmannaíbúðir, viðbyggingu
við Skálholtsbúðir og uppbyggingu
Þorláksbúðar.
Tengsl þingsins og safnaðanna
Kirkjuþing ályktaði um nauðsyn
þess að styrkja tengsl þingsins og
safnaðanna í landinu og tók undir
ósk biskups um að prófastar boði
kirkjuþingsmenn og ætli þeim tíma
á héraðsfundi til að gera grein fyrir
störfum kirkjuþings og taka við til-
lögum héraðsfunda um málefni sem
þeir óska að flutt verði á kirkju-
þingi. Fái þeir ferðakostnað greidd-
ann úr héraðssjóði.
Kirkjuþing ályktaði að heimila
biskupi og kirkjuráði að ráða upplýs-
ingafulltrúa. Samþykkt var álytun
um að kanna skuli alla möguleika
varðandi fyrirsjáanlega húsnæðis-
þörf fyrir starfsemi biskupsembætt-
isins og aðra starfsemi kirkjunnar.
Varðandi kristnitökuminningu vís-
ar kirkjuþing eftirfarandi hugmynd-
um til kirkjuráðs: í tilefni kristni-
tökuminningar aflar þjóðkirkjan fjár-
muna til efnurreisnar biskupsstól-
anna foru og til Guðs þakka. Söfnuð-
ir þjóðkirkjunnar setji sér það mark-
mið að afla á tíu árum ij'ár sem nemi
50 til 100 krónum á mannsbarn í
sókninni á ári.
Kirkjuþing beinir því tii kirkjuráðs
að ráða prest í hlutastarf eða fullt
starf til að þjóna íslendingum í
Gautaborg og Osió.
Stj órnlagaþing
í ræðu sinni við lok kirkjuþingsins
þakkaði Ólafur Skúlasson biskup
gott samstarf á þinginu. Sagði hann
að ef gefa ætti þessu þingi sérstaka
yfirskrift væri ekki fjarri lagi að
nefna það stjórnlagaþing, svo veiga-
miklar ákvarðanir hefðu verið teknar
og fengnar ráðherra í hendur tii að
vinna þeim brautargengi á Alþingi.
Þó hæst hefði risið afgreiðsla á mál-
um varðandi kirkjumálasjóð og prest-
setur hefðu mörg önnur veigamikil
mál verið til umræðu. Mætti þar
minna á skipulagsmál kirkjunnar,
meðferð kirkjueigna og samskipti
sóknarnefnda og sóknarpresta.
Biskup vék að launakjörum preSta
og sagði m.a.: En því hreyfi ég þessu
nú við þingslit, að ég tel þarna eitt-
hvert mesta hættuefnið fyrir kirkj-
una á næstu árum. Kirkjan á ekki
allt undir prestum sínum. Við eigum
allt undir Kristi og forsjá hans. En
geti presturinn ekki sinnt starfi sínu,
án þess þjónustan bíði tjón af vegna
ytri aðstæðna, þá erum við að svíkja
hann, sem er í hverri signingu við
skírn og styrkir hendi í krossins tákni
yfir hinstu hvílu látins og er sá, sem
heyrir bænir. Og sú er hvatning
mín til kirkjuþingsmanna, sem eru í
fararbroddi í leiðtogasveit þjóðkirkj-
unnar, að þeir skoði þessi mál út frá
þeirri þrengingu, sem þjónustan er
hneppt í, verði ekki ráðin bót á vanda
presta".
RAÐAUGÍ YSINGAR
Fiskiskip til sölu
75 rúmlesta stálskip, sem útbúið er fyrir
neta-, rækju- og humarveiðar.
Varanlegar aflaheimildir fylgja um 200t.
þorskig. auk humar- og rækjuleyfa.
Skattsýslan sf.
Brekkustíg 39,
sími 92-14500,
fax 92-15266.
Tilboð
Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla virka
mánudaga frá kl. 9.00-18.00. Ljósmyndir af
bifreiðunum liggja frammi hjá umboðsmönn-
um SJÓVÁR-ALMENNRA víða um land.
Upplýsingar í símsvara 91-671285.
Ijónashqðunaislin
* ■ * Draxhátsi H-t6, t!0 Rr fkja vik. jími 671120. lelrfax 672620
WTJÓNASKODUNARSTÖD
Smiðjuvegi 2 - 200 Kópavogur
Sími 683400 (simsvari utan opnunartfma) - Telefax 670477
Tilboð
óskast í bifreiðar, sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum. Bifreiðarnar verða til
sýnis á Smiðjuvegi 2, Kópavogi, mánudaginn
1. nóvember 1993, kl. 8-16.
Tilboðum sé skilað samdægurs.
Vátryggingafélag íslands hf.
- Tjónaskoðunarstöð -
WA Útboð
Hita- og vatnsveita Akureyrar óskar eftir til-
boðum í einangruð stálrör (hitaveiturör). Um
er að ræða u.þ.b. 10.800 m (900x 12 m)
175 mm stálrör einangrað í plastkápu, ásamt
tilheyrandi samsetningum.
Útboðsgögn fást hjá V.S.T., Glerárgötu 30,
Akureyri.
Tilboðsfrestur er til 23. nóvember nk.
Hita- og vatnsveitustjóri.
B 0 Ð »>
Eftirfarandi útboð eru til sölu á skrifstofu
Ríkiskaupa, Borgartúni 7, Reykjavík.
1. Útboð nr. 4011 prentun eyðublaða.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 11.11. 1993 kl. 11.00.
2. Útboð nr. 4015 fellihurðir.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 3.11. 1993 kl. 11.00.
3. Útboð nr. 4016 ómskoðunartæki.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 16.11. 1993 kl. 11.00.
4. Útboð nr. 4018 búnaður fyrir eldhús,
þvottahús, skol og bað hjúkrunar-
heimilis.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 23.11 1993 kl. 11.00.
BORGARTÚNI 7. I 05 REYKJAVÍK SÍMI 9 1-26844,
BRÉFASÍMI 91-626739
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélagið Óðinn á Selfossi heldur aðalfund i Óðinsvéum
fimmtudaginn 11. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Sveitarstjórnarkosningar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu. Hentugt fyrir fasteignasölu eða bók-
haldsstofu. Húsnæðið er tilbúið með fundar-
herbergi, kaffistofu o.fl.
Upplýsingar í síma 53466 og 51574.
Iðnaðarhúsnæði óskast
Fjársterkur aðili óskar að kaupa 5-800 fm
iðnaðarhúsnæði á jarðhæð í Reykjavík eða
nágrenni. Húsnæðið þarf að vera með stór-
um innkeyrsludyrum og rúmu útisvæði.
Upplýsingar eru veittar í síma 624252.
Sundaborg
Mjög gott atvinnuhúsnæði í Sundaborg er
til leigu.
Um er að ræða 150 m2lager með góðri að-
keyrslu og 75 m2 skrifstofuhúsnæði.
Húsnæðið er laust strax.
Upplýsingar í síma 686677.
Prentsmiðja - húsnæði
Sérhæfð prentsmiðja óskar eftir langtíma-
leiguhúsnæði á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Húsnæðið þarf að vera á jarðhæð, bjart,
hafa innkeyrsludyr og góða aðkomu fyrir við-
skiptavini. Stærð 180-200 fm.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Prentsmiðja - húsnæði - 8831“ fyrir
10. nóvember.
Hagstætt leiguverð
á Viðarhöfða, 351 fm óinnréttað skrifstofu-
húsnæði. Húsnæðið er súlulaust, bjart, býð-
ur uppá frábært útsýni og því fylgja 174 fm
suðursvalir. Lyklar á skrifstofu LL.
Opinbera stofnun vantar
húsnæði >
Við leitum að 130-180 fm atvinnuhúsnæði
fyrir opinbera stofnun. Húsnæðið þarf að
skiptast til helminga í skrifstofur og aðstöðu
fyrir háa sendiferðabíla með innkeyrsludyr-
um og niðurfalli. Góð aðkoma nauðsynleg.
Höfum leigjendur að:
- Vöruskemmum með góðri lofthæð á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
- Einbýlishúsum, eða öðrum sérbýlum -
allt fjársterkir aðilar.
LLeigumiölun, Borgartúni 18,
* 3 hæö, 105 Reykjavík,
EIGULISTINN Síml 622344 - Fax 629091
Félagsfundur
Verkakvennafélagið Framsókn heldur félags-
fund í Hreyfilshúsinu fimmtudaginn 4. nóv-
ember 1993 kl. 20.30.
Sýnum samstöðu og fjölmennum á fundinn.
Stjórnin.
Haustfundur Ráðstefnu-
skrifstofu íslands
Haustfundur aðildarfélaga Ráðstefnuskrif-
stofu íslands verður haldinn miðvikudaginn
10. nóvember 1993.
Fundurinn verður haldinn á hótel Holiday Inn
kl. 14.00.
Dagskrá skv. samþykktum félagsins.
Stjórn.