Morgunblaðið - 31.10.1993, Síða 38

Morgunblaðið - 31.10.1993, Síða 38
38 , + MORGUNELAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 KORFUKNATTLEIKUR / NBA Nær Barkley loks titlinum? Nýtt keppnistímabil í NBA-deildinni hefst um næstu helgi. Mörg lið eiga nú tækifæri á meistaratitlinum stjórninni. Chicago gæti sett strik í reikninginn ef liðinu tekst að ná sér einhvers staðar í góðan bak- vörð, en án Jordans verður fróðlegt að sjá hvað hinir leikmenn liðsins gera. Engar stórbreytingar hafa átt sér stað hjá liðum í austurdeildinni, en Charlotte Hersey Hawkings frá Philadelphia 76ers og skormaskín- úna Eddie Johnson frá Seattle. Þessir tveir leikmenn munu eflaust styrkja liðið mikið. Detroit losaði EFTIR þriggja ára óslitna sigurgöngu Chicago Bulls í NBA deildinni er nú loks von fyrir að önnur lið hampi meistaratitlinum eftir að Michael Jordan lagði skóna á hilluna. Nýtt keppnistímabil hófst um helgina í NBA deild- inni. Mörg lið eru nú á fullu í að spila æfingaleiki fyrirtíma- bilið, m.a. f London. 27 liðum í NBA er skipt f Austurdeild með tvö sjö liða riðla, en í Vesturdeild eru 13 lið, sex f miðvesturriðli og sjö í Kyrra- hafsriðli. Átta bestu liðin úr hvorri deild komast í úrslita- keppnina, en úrslitakeppni austur- og vesturdeildar er aðskilin þartil í lokaúrslitum. Liðin leika 82 leiki áður en úrslitakeppnin hefst. ^^jaldan í 47 ára sögu NBA hef- ur fráhvarf eins leikmanns haft jafn mikil áhrif á möguleika margra liða eins og Gunnar þegar Michael Jord- Valgeirsson an hjá Chicago Bulls skrifar tilkynnti nýlega að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna fyrir fullt og allt. Lengst af í sumar spáðu flestir körfuknattleiksspekúlantar og veð- bankar hér vestra að fátt gæti stað- ið í vegi fyrir fjórða meistaratitli Chicago Bulls í röð. Þetta hefur nú alft breyst eftir tilkynningu Jord- ans, þannig að nú hafa „sérfræðing- ar“ jafnt sem aðdáendur orðið að stokka upp spádóma sína fyrir keppnistímabilið. A vellinum mun fjarvera Jordans hafa mest áhrif á liðin í Austurdeild. Austurdeild New York Knicks undir stjóm Pat Riley, fyrrum þjálfara Los Ang- eles Lakers, er nú talið sigurstrang- legast í austurdeildinni. Chicago hefur slegið New York út undanfar- in tvö ár, svo leikmenn Knicks eru sjálfsagt fegnir að sjá á eftir Jordan út á golfvöllinn! Lið New York hef- ur. haldið í sama mannskapinn frá síðasta keppnistímabili og ætti því að hafa betri möguleika á sigri en flest önnur lið. Vörn New York verður aðal liðsins sem fyrr og mik- ið mun reyna á hinn sterka mið- heija Patrick Ewing. Þau lið sem virðast munu veita Knicks mesta keppni eru Charlotte Hornets með þá Larry Johnson og Alonzo Mourning í fararbroddi, Orlando Magic með tröllið Shaquille O’Neil í miðjunni og Cleveland Cav- aliers, en þar hefur fyrrum þjálfari Atlanta, Mike Fratello, tekið við Reuter Stjarna Orlando Magic, Shaquilie O’Neal, lék í gær (laugardag) sýning- arfcik í London með liði sínu gegn Atlanta Hawks í þeim tilgangi að kynna NBA-deildina sem hefst um næstu helgi. Hér er hann fyrir framan Big Ben tuminn skömmu eftir að hann kom til London á fímmtudag. Erfitt sumar fyrirNBA MICHAEL. Jordan hefði varla getað kosið verrri, tíma til að leggja skóna áhillunaen nú, sérstak- lega fyrir NBA-deild- ina. Deildin erenn að ná sér eftir mjög erfitt sumar og fráhvarf Jordans er nú einungis enn e'rtt áfallið, þar sem dauði og ósigrar í réttar- sölum hafa sett svartan blett á hina góðu ímynd deildarinn- ar. NBA-deildin hefur byggt upp ímynd sína sem hin full- komna atvinnudeild um nokkurn tíma, en strax í miðri úrslitakeppn- inni í júní varð deildin fyrir fyrsta áfallinu er Króatinn Drazen Petrovic iést í bílslysi í Þýskalandi. I júlí lést síðan fyrirliði og besti leikmaður Boston Celtics, Reggie Lewis, úr hjartaslagi, eftir að hafa verið mikið í sviðsljósinu út af veik- indum sínum. Seinna í sama pián- uði var faðir Michaels Jordans, James Jordan, myrtur af tveimur ungiingum. Duntars í keppnisbann í september, rétt eftir að liðin hófu æfingar fyrir keppnistímabil- ið, lenti hinn skemmtilegi fram- herji Phoenix Suns, Richard Dum- as, í fíkniefnaneyslu á ný og var settur í bann út þetta keppnistíma- bil af deildinni. Skömmu síðar tap- aði deildin málaferlum við lið sem hafa fundið leiðir til að losna undan „launaþaks-greiðslum“, sem gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fjárhag deildariniíar. Loks hrjá al- varleg meiðsli tvo af bestu leik- mönnum Golden State, Sarunas Marciulionis og Tim Hardaway, og munu þeir vera frá keppni allt "keppnistímabil ið. „Þetta hefur verið erfíðasta sum- ar sem ég man eftir fyrir deild- ina,“ sagði framkvæmdastjóri Or- sig loks við Dennis Rodman og fékk í staðinn Sean Elliott frá San Ant- onio. Elliott gæti reynst liðinu mik- ill styrkur. Vesturdeild Langur draumur Charles Barkley um það að verða meistari gæti loks orðið að veruleika næsta sumar með Phoenix Suns. Barkley sagði nýlega að 99% líkur væru á því að þetta yrði hans síðasta keppnistímabil í deildinni, þannig að nú er að duga eða drepast fýrir kappann. Phoenix lenti í miklum erfiðleik- um í úrslitakeppni vesturdeildar í vor, mun meiri erfiðleikum en flest- ir áttu von á eftir glæsilega fram- göngu liðsins lengst af. Forráða- menn liðsins gerðu því nokkrar breytingar á liðinu. Þeir losuðu sig við Tom Chambers til Utah, en fengu A.C. Green frá Los Angeles Lakers og Joe Kleine frá Boston, báðir leikmenn með mikla keppnis- reynslu. Suns var þó fyrir áfalli nýlega þegar einn besti leikmaður liðsins frá því fyrra, framheijinn skemmtilegi Richard Dumas, var settur í bann allt þetta keppnistíma- bil eftir að Dumas féll á lyíjaprófi í annað sinn. Phoenix verður þó að teljast sigurstranglegast af liðunum í vesturdeild. Lið Seattle Supersonics, Portland Trail Blaizers, Utah Jazz, Houston Rockets, og San Antonio Spurs munu þó eflaust veita liðinu harða keppni í úrslitakeppninni. Utah styrkist við tilkomu Chambers frá Phoenix og vörn San Antonio mun verða erfið með þá Dennis Rodman og David Robinson í fararbroddi. Nýliðar Sú staöreynd að Jordan er ekki lengur með Chicago hefur umturnað' samkeppninni í deildinni. Draumur Charles Barkley um það að verða meistari gæti loks orðið að veruleika næsta sumar með Phoenix Suns. Hann sagði nýlega að 99% líkur væru á því að þetta yrði hans síðasta keppnistímabil og því síðasti séns. Hér er hann í leik gegn Seattle Supersonics, sem mun veita Suns verðuga keppni í vesturdeildinni. Miklir peningar eru í húfi þegar liðin í NBA þurfa að ljárfesta í samningum við bestu nýliðana. Þannig gerði Chris Webber, sem var fyrstur í háskólavalinu í sumar, 15 ára samning við Golden State upp á 74 milljónir dala og „Penny“ Hardaway, nýliði Orlando, gertði samning upp á 65 milljónir dala. Nokkrir aðrir hafa gert samninga frá 15-42 milljónir dala, mismun- andi eftir því hve framarlega í há- I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.