Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Léttari flugvélar "minnka tekjumar ALLS varð 15 milljóna króna tap á rekstri Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli á siðasta ári og var það í fyrsta skipti um ára- tuga skeið sem tap var á rekstrin- um. Lækkuðu tekjur stofnunar- innar um 26,2 millj. kr. á seinasta ári frá árinu á undan vegna stöð- ugt minnkandi tekna af lending- argjöldum frá árinu 1989. Lend- jngargjöld reiknast af þunga loftfars og hafa minnkað þrátt fyrir að lendingum flugvéla hafi fjölgað um 9% á sama tímabili. Stafar það af því að meðalþyngd flugvéla hefur lækkað úr 83 tonn- um árið 1989 í 65 tonn 1992. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu yfirskoðunarmanna ríkis- reiknings og ríkisendurskoðunar fyr- ir árið 1992. Þar er bent á að þótt tekjur Flugmálastjórnar hafi dregist saman um tæp 12% á seinasta ári -^þafi rekstrargjöld aftur á móti hald- ist óbreytt á milli ára og voru 210,8 millj. kr. árið 1992. Telur ríkisendur- skoðun nauðsynlegt að endurskoða gjaldskrá flugvallarins enda sé ekki útlit fyrir að lendingum fjölgi nægi- lega til að vega upp tekjutapið en gjaldskrá Keflavíkurfiugvallar hefur verið óbreytt frá árinu 1989. ♦ ♦ ♦ Sumarblíða á Dalatanga MIKIL hlýindi hafa verið víða um norðan- og austanvert landið undanfarna daga og komst hitinn hæst í 15 stig á Dalatanga. „Það er oft hlýtt hér fram eftir hausti," sagði Marsibil Erlendsdótt- ir sem sá um að taka veðrið í fjar- veru föðurs síns. „Þetta er að vísu óvenju seint en sumarið kom líka seint, ekki fyrr en í lok ágúst. Hér var spretta fram eftir öllu og er enn grænt á túni en aðeins farið að sölna. í dag er sjö stiga hiti, heið- skírt og um tvö vindstig." Morgunblaðið/RAX Buslað í Bláa lóninu HUNDRAÐ þúsundasti gesturinn í ár heimsótti Bláa lónið á föstudag þangað sem innlendir og erlendir ferðamenn fjölmenna sér til hressingar og heilsubótar og einnig til skemmtunar eins og mæðginin á myndinni. Grímuklæddur maður með hníf nauðgaði stúlku LOGREGLA leitar að manni sem grímuklæddur ógnaði stúlku á 16. ári með hnífi og nauðgaði henni við hús Landvéla við Skemmu- veg í Kópavogi um miðnætti í fyrrinótt. Maðurinn var ófundinn um hádegi í gær. Hann er talinn 17-18 ára gamall. Stúlkan var á leið úr Breiðholti heim til sín í Kópavogi og fór um undirgöng undir Reykjanesbraut og þar var setið fyrir henni. Eftir að maðurinn hafði komið fram vilja sínum komst stúlkan heim til sín og þar var hringt á lögreglu sem flutti hana á neyðarmóttöku Borgarspítalans fyrir fórnarlömb kynferðisafbrota. Rannsókn málsins var að hefj- ast hjá RLR í gær. Sú lýsing lá fyrir á manninum sem leitað var að hann væri 17 til 18 ára, um 175 sm á hæð, grannur og með ljóst stutt hár. Hann var talinn klæddur í svartar snjáðar galla- buxur, í svartan taujakka og brúna skó. Landsbankinn tapar 300 millj. á Miklagarði Heildartap bankans á viðskiptum við Sam- bandið metið á um 600 milljónir króna LANDSBANKI íslands áætlar að heildartap bankans á viðskiptum hans við Miklagarð, vegna gjaldþrots fyrirtækisins, nemi tæpum 300 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins innan úr Landsbanka meta endurskoðendur bankans stöðuna á þann veg að tap vegna Miklagarðs reynist vera 295 milljónir króna, en stjórnendur Landsbankans munu telja að sú tala eigi eftir að hækka óverulega, þannig að niðurstöðutala tapsins losi 300 milljón- ir króna. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að endurskoðendur Landsbank- ans meti heildartap bankans á við- skiptum við Samband íslenskra samvinnufélaga nálægt 600 millj- ónum króna, þegar öli kurl verði komin til grafar, en það er umtals- vert lægri fjárhæð, en reiknað hafði verið með. Skýringar þess að tap Lands- bankans á viðskiptum hans við SÍS verður ekki meira en þetta munu m.a. fólgnar í því að eignasala hafi gengið mun betur fyrir sig en áætl- að hafði verið. Auk þess hefur Morgunblaðið upplýsingar um að duldar eignir í fyrirtækjum Sam- bandsins, m.a. í Regin hf., hafí reynst umtalsvert meiri en menn höfðu ætlað. Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra um vaxtalækkanir Viðskiptíibankar verða að bregðast skjótt við SIGHVATUR Björgvinsson, viðskiptaráðherra, segir að viðskipta- bankarnir hafi ekki langan tíma til stefnu að ákveða vaxtalækkan- Úr í kjölfar aðgerða ríkisstjórnarinnar. Akvörðun þeirra verði að liggja fyrir fyrir 10. nóvember næstkomandi. „Ég héf ástæðu til þess að ætla að bankarnir muni bregðast mjög skjótt við, sem þeir líka verða að gera,“ sagði Sighvatur þegar hann í gær var spurður álits á viðbrögð- um banka, lífeyrissjóða og aðila •Tinnumarkaðarins við vaxtaaðgerð- um ríkisstjórnarinnar. Sighvatur sagði að það kynni að vísu að valda einhverjum áhyggjum að haft væri eftir forráðamönnum tveggja bank- anna í Morgunblaðinu í gær að þeir ætluðu sér að bíða og sjá hver þróunin yrði. „Ég held að þeir megi ekki bíða í marga daga, því ein forsenda þess að þetta gangi upp og aðgerðirnar skili því sem til er ætlast, er sú að enginn skerist úr leik. Þetta verður að hafa gengið fram fyrir 10. nóvember, enda finnst mér engin ástæða fyrir bankana til þess að bíða fram á síðasta dag,“ sagði Sighvatur er hann var spurður hvað hann gæfi bönkunum marga daga til þess að fylgja vaxtaákvörðunum ríkisstjórnarinnar og Seðlabanka. „Fyrir þann tíma verður ákvörðunin að liggja fyrir um vaxtalækkun og sú lækkun verður að vera umtals- verð.“ Sighvatur benti á að það yrði athyglisvert að fylgjast með því hver viðbrögð lífeyrissjóðanna yrðu við næsta ríkisverðbréfaútboði. „Munu þeir þá tjá sig reiðubúna til að kaupa ríkisskuldabréf með 5% ávöxtun, eða munu þeir halda að sér höndum, sem þýðir að farið verður á erlendan markað? Þá mun koma í ljós hvort lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir til þess að styðja við þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til lækkunar vaxta.“ Þorlákshöfn Þjófur tek- ínnáflótta 23 ÁRA maður sem braust inn í grunnskólann og íþróttahúsið í Þorlákshöfn og talinn er hafa brotist inn í bílaverkstæði í Hveragerði var handtekinn á flótta í Þrengslunum í gærmorgun. Maðurinn olli miklum skemmdum en hafði litlu stolið. Fólk í Þorlakshöfn sá til ferða mannsins og þóttu þær grunsamlegar. Lögreglu var tilkynnt um bíl mannsins og stúlku sem var með honum og veitti fólk á ómerktum bíl þeim eftirför út úr þorpinu. Lögregla náði bílnum í Þrengslunum og stöðvaði flótta mannsins sem var ökuréttindalaus og undir áhrifum að sögn lögreglu. Talið er að maðurinn hafi stolið 3 þúsund krónum úr íþróttahúsinu og grunnskólan- um en tjónið sem hann olli nemur tugum eða hundruðum þúsunda. M.a. hafði hann skemmt tvær tölvur í skólanum og rafmagnstöflu íþróttahúss- ins. Maðurinn, sem áður hefur komið við sögu lögreglu, var fluttur á lögreglustöðina á Sel- fossi. í gærmorgun var einnig tilkynnt um innbrot í bílaverk- stæði i Hveragerði og lék grun- ur á að hann bæri einnig ábyrgð á því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.