Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
Ottast um
Sophiu
Hansen
ÓTTAST var um Sophiu Hansen
í gær þegar hún fór ásamt systk-
inum sínum frá íslandi um Stokk-
hólm til Istanbúl í Tyrklandi, en
þau komu ekki fram í Istanbúl á
áætluðum tíma.
Samkvæmt áætlun áttu systkinin
að fara með flugvél Turkish Airwa-
ys sem lenda átti í Istanbúl kl. 16
að íslenskum tíma. Þegar þau komu
ekki fram var farið að kanna hveiju
það sætti, en að sögn Sigurðar
Péturs Harðarsonar stuðnings-
manns Sophiu staðfesti SAS í
Stokkhólmi að þau hefðu farið með
umræddri vél. Lögreglan í Istanbúl
kannaði málið að beiðni Sigurðar
Péturs, en um kl. 23 í gærkvöldi
kom í ljós að systkinin höfðu farið
með annarri flugvél sem millilenti
í Amsterdam og tafðist þar vegna
vélarbilunar. Sátu þau föst í vélinni
og liðu sjö klukkustundir frá áætl-
aðri lendingu þar til ljóst varð um
afdrif þeirra.
Morgunblaðið/Þorkell
Teresa Berganza með Sinfóníuhljómsveitinni
Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveitar íslands í gærkvöldi var flutt spönsk tónlist undir stjóm Enrique
Garcia-Asensio. Aðalstjarna kvöldsins var hin heimsfræga mezzosópransöngkona Teresa Berganza og söng
hún eingöngu spönsk lög og heillaði áhorfendur með glæsilegum söng. A myndinni tekur hún við þakk-
læti Szymonar Kurans annars konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitarinnar að söng loknum.
Grétar Mar Jónsson, skipstjóri á 36. þingi Farmanna og fiskimannasambandsins
Frjálst kvótaframsa! neyð-
ir okkur í harðar aðgerðir
15 mánaða
fangelsi
fyrir lík-
amsárásir
SAUTJÁN ára piltur hefur verið
dæmdur í fimmtán mánaða fang-
elsi fyrir að stinga mann í kviðar-
holið með vasahníf í miðbæ
Reykjavíkur í september síðast-
liðnum og fyrir að slá vagnstjóra
hjá Almenningsvögnum í andlitið
í janúar. Gæsluvarðhald frá 11.
september kemur til frádráttar.
Pilturinn var ákærður fyrir að
hafa stungið 27 ára gamlan mann í
Austurstræti aðfaranótt 11. septem-
ber síðastliðinn. Voru að hefjast
ryskingar í hópi þegar Qórir lögreglu-
menn komu á staðinn og gripu inn
í um það leyti sem pilturinn stakk
manninn með vasahníf neðarlega í
kviðarhol. Maðurinn sem fyrir
hnífsstungunni varð var fluttur á
slysadeild Borgarspítalans og síðan
á Landsbankann. Hann gat byijað
að vinna aftur á miðvikudegi.
Pilturinn viðurkenndi verknaðinn
í fyrstu en bar síðar við minnisleysi,
sagðist hafa verið ölvaður og hafa
neytt sveppa. Dóminum þótti, með
hliðsjón af framburði vitna, þar á
meðal lögreglumannanna, að piltur-
inn hafi stungið manninn. Atlagan
hafi verið hættuleg og tilefnislítil eða
tilefnislaus og tilviljun að meiðsl
hafi ekki orði meiri en raun bar vitni.
Pilturinn var einnig dæmdur fyrir
að hafa slegið vagnstjóra hjá Al-
menningsvögnum þar sem hann sat
í vagninum við Lækjargötu laust eft-
ir miðnætti aðfaranótt laugardagsins
30. janúar síðastliðinn.
MIKIL óánægja með stjóm fiskveiða kom fram á 36. þingi
Farmanna- og fiskimannasambands íslands við framsögn um
kjaramál og stjórn fiskveiða í gær. Síðasta þing FFSI hafn-
aði kvótakerfinu og virtist sami tónninn í mönnum við fram-
lagningu tillagna, sem síðan var visað til nefnda til frekari
útfærslu. Tiilögumar verða síðan samræmdar I nefnd og lagð-
ar fram til endanlegrar afgreiðslu í dag. Meðal annars er
nú lagt til að þingið mótmæli núverandi framkvæmd kvóta-
kerfisins, sem ýtir undir brask með aflaheimildir.
Grétar Mar Jónsson, skipstjóri,
sagði við þessar umræður að fleiri
leiðir væru færar við stjórn físk-
veiða en kvótakerfíð og hefði FFSÍ
meðal annars bent á aðrar. „Frelsi
til athafna og gjörða er ekki fyrir
hendi í núverandi fískveiðikerfí.
Frekar er það líkara rússnesku
miðstýringarkerfi, “ sagði Grétar.
„Stjómvöld hafa sett okkur úr-
slitakosti í fiskveiðistjómun.
Fijálst framsal á kvóta er að neyða
okkur til að fara í harðar aðgerð-
ir, enda getum við ekki unað því
hlutskipti að vera leiguliðar.
„Það er algjörlega óviðunandi
fyrir okkur að sjá fyrir okkur þá
framtíð að kvótinn verði verzlun-
arvara og hann skuli dreginn frá
skiptum og sífellt fleiri sjómenn
verði leiguliðar þeirra, sem kvóta-
réttinn hafa,“ sagði Guðjón A.
Kristjánsson, forseti FFSÍ, meðal
annars er hann hóf umræður um
kjaramál og stjórn fískveiða.
Ólöglegar færslur
Guðjón sagði ennfremur að sú
framkvæmd kvótatilfærslna sem
viðgengist í dag og áhrif hennar
á kjarasamninga sjómanna væri
algjörlega ólögleg, en væri engu
síður beitt gagnvart sívaxandi
fjölda sjómanna. Yrði þetta kerfi
áfram við lýði endaði það með því
að flestallir sjómenn á íslandi
væru famir að greiða útgerðar-
mönnum auðlindaskatt fyrir fisk-
inn í sjónum.
Meðal tillagna á þinginu má
nefna að lagt er til að fijáls sókn
verði leyfð í þær fiskitegundir, sem
ekki er útlit fyrir að veiðist í leyfi-
legan heildarkvóta, til dæmis af
ýsu, ufsa, skarkola og úthafs-
rækju.
Því er beint til Alþingis að sett
verði lög um að allur ferskur fisk-
ur fari um fiskmarkaði.
Lagt er til að að heimild til að
framselja leigukvóta verði afnum-
in, nema þegar um er að ræða
jöfn skipti á kvótum milli skipa.
Frumskógarlögmál
Lagt er til að þingið mótmæli
núverandi framkvæmd kvótakerf-
isins, sem ýtir undir brask með
aflaheimildir. í greinargerð með
þeirri tillögu segir meðal annars
svo: „Ljóst er að mikil óánægja
er meðal sjómanna með kaup og
sölu á aflaheimildum og þá sér-
staklega hvernig sjómenn eru látn-
ir taka þátt í slíkum kaupum. Þá
er einnig talið óeðlilegt að einstak-
ar útgerðir geti hagnazt verulega
á sölu aflaheimilda. í núverandi
framkvæmd ríkir nánast frum-
skógarlögmálið eitt í þessum við-
skiptum." Þessi tillaga var sam-
þykkt orðrétt á nýafstöðnu þingi.
Þingi Farmanna- og físki-
mannasambands lýkur í dag með
afgreiðslu ályktana og stjórnar-
kjöri.
í dag
Hundur skotinn_______________
Hæstiréttur fellir niður refs-
ingv 4
Morðingjar James Bugler
Deilt um áhrif ofbeldismynda 24
Magnús Gunnarsson SÍF
Fyrirtækið eykur umsvif
ytra 26-27
Leiöari
Raunsætt stöðumat á Flateyri 26
Fasteignir
► Hjúkrunaríbúðir - Markaður-
inn - Lækkun bygingarkostnaðar
- Hringstigar - Hús við Laugaveg
gert upp
Daglegt líf
Þ Vottar Jehóva og blóðgjafir -
Beirút á batavegi - Dagur í Vy-
borg - Gagnsemi rafsteins -
Hverfa Japanir - Hitt húsið -
Gallerí Ingu - Sálfræðimiðstöðin
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Nokkuð rígaðir
HOSKULDUR Ástmundsson t.v. og Sveinbjörn Jónsson voru komnir
á fullt í viðgerðir en sögðust nokkuð rígaðir eftir 5 tima austur.
Leki kom að Sæstjornunni SH 35
Stóðu við aust-
ur í fimm tíma
Suðureyri.
TVEIR sjómenn á Sæstjörnunni SH 35 frá Súgandafirði lentu í hrakn-
ingum í fyrradag eftir að leki kom að bátinum úti fyrir Vestfjörð-
um. Stóðu þeir við austur í fímm tíma eftir að sjór hafði flætt upp
á vélina svo að ekki var hægt að lensa bátinn.
tíma, en þá var sjór nokkuð farinn
Sæstjaman sem er sex tonna
frambyggður plastbátur lagði upp í
línuróður frá Suðureyri að morgni
til í fyrradag og lagði línuna 12 sjó-
mílur út af Súgandafírði. Skömmu
seinna varð skipstjórinn, Sveinbjöm
Jónsson, var við torkennileg hljóð frá
vélinni, og við nánari athugun kom
í ljós að sjór var kominn í vélarrým-
ið og náði upp á miðja vél svo að
hún jós sjónum um allt vélarhúsið.
Eftir að drepið hafði verið á vélinni
fór hásetinn, Höskuldur Ástmunds-
son, niður í vél og náði að þreifa
eftir öllum inntakslokum og loka
fyrir þá. Sjór var þá nokkur í lestinni.
Ausið með fötum
Að sögn Sveinbjöms var ekki um
annað að ræða en að byija að ausa
upp úr lest og vélarrými bátsins með
fötum þar sem ekki var hægt að
gangsetja vélina til lensingar. Eftir
að hafa kallað á aðstoð nærstaddra
báta var tekið til við að ausa í þijá
að minnka í bátnum. Ssestjaman var
síðan tekin í tog til Súgandafjarðar
af m/b Alla Vill, en á landstíminu
varð að grípa tvisvar til fótunnar og
ausa. Þar sem engin skýring fannst
á lekanum þótti ekki rétt að opna
fyrir botnloka bátsins svo að hægt
væri að gangsetja vélina.
Þegar komið var til hafnar kom í
ljós að bolti sem hafði verið settur í
gat aftur a skut bátsins hafði ryðgað
í sundur og streymdi sjórinn ,þar
óhindrað inn í bátinn. Að sögn Svein-
bjöms virkaði ekki aðvörunarkerfi
sem átti að gefa til kynna ef sjór
kæmist í bátinn. Ef það hefði virkað
hefði mátt bregðast miklu fljótar við
og afstýra þeirri hættu sem hjá þeim
félögum hefði skapast. Vinna við
viðgerðir á bátnum er þegar hafin
en ljóst er að nokkurt tjón hefur
orðið á rafkerfi og öðrum búnaði.
- Sturla Páll.