Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993 UM HELGINA Myndlist Form Island II Á sýningunni Form ísland II í Nor- ræna húsinu eru verk eftir 28 höfunda. Sýningin spannar svið listhönnunar sem mest kveður að á íslandi um þess- ar mundir, enda hefur henni verið ætl- að að kynna hver staða hönnunar á Islandi er. Sýningin tekur til leirlistar, veíjar- og textíllistar, gull- og silf- ursmíði, glerlistar, húsgagnahönnunar og augiýsingahönnunar. Sýning er opin daglega kl. 14-19 og stendur til 19. desember. Jón Garðar í Borgar- kringlu Dagana 12. nóvember til 24. desember sýnir Jón Garðar Henr- ýsson á Götugrill- inu í Borgar- kringlunni upp- stillingar sem innihalda „sæ- kalda blómanna angan“. Hann segir um þrjár sýningar að ræða; frá 12. til 25. nóv- ember, frá 26. nóvember tii 9. desem- ber og frá 10. desember fram á að- fangadag. Mynd eftir Jón Garðar Henrýsson í Götugrillinu. Listmunahúsið Sýning Ingvars Þorvaldssonar í List- munahúsinu, Tryggvagötu 17, lýkur sunnudaginn 28. nóvember. List- mannahúsið er opið virka daga frá 10-18 og um helgar frá kl. 14-18. Aðgangur er ókeypis. Listmunahús Ófeigs Sýningu finnsks hönnuðar og málm- listarmanns Jouni Jappinen í Listmuna- húsi Ófeigs að Skóiavörðustíg 5, lýkur í dag. Jouni Jappinen er af ungri kyn- slóð finnskra myndlistarmanna. Á sýn- ingunni eru verk frá tveimur síðustu árum. Þau eru úr margskonar efnivið. Smámyndasýning í Hafnarfirði Myndlistarkonumar Erla Sigurðar- dóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Katrfn Pálsdóttir, Sigrún Sveinsdóttir og Steindóra Bergþórsdóttir opna sýningu á smámyndum í Gellerí Kletti, Hellu- hrauni 16, Hafnarfirði (efri hæð Húsa- smiðjunnar) laugardaginn 27. nóvem- ber kl. 10. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 5. desember og verður opin um helgar kl. 10-16 og virka daga kl. 16-19. Gallerí II Björg Sveinsdóttir opnar málverka- sýningu í Gallerí II, Skólavörðustíg 4a á laugardag 27. nóvember kl. 15. Björg nam í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Myndlista- og handíðaskóla íslands og útskrifaðist þaðan frá málunardeild 1987. Hún hefur tekið þátt í einni sam- sýningu og haldið einkasýningu í Ás- mundarsal 1989. Sýningin verður opin daglega frá 14-18 til 9. desember. Við opnun mun Ólöf Ingólfsdóttir dansa fyrir framan galleríið kl. 15. Kringlan. Listiðnaðar- sýning ’93 Þann 2. desember nk. veðrur opnuð Listiðnaðarsýning ’93 í verslunarmið- stöð Kringlunnar. 18 listamenn munu sýna listiðn sína og vera á staðnum. Hér má nefna sem dæmi: glerlist, rennda trémuni, leirlist, vatnmslitamál- un, postulín, skartgripi og skúlptúra. Þetta er annað árið í röð sem listiðnað- arsýning af þessu tagi er haldin í Kringlunni. Sýningin sem er sölusýning verður opin daglega sýningardagana frá fimmtudegi 2. desember til sunnu- dagsins 5. desember. Norræna húsið Stig Tomehed, heldur tvo fyrirlestra í Norræna húsinu um helgina. Á laug- ardag 27. nóvember kl. 16 heldur hann fyrirlestur með litskyggnum í fundarsal Norræna hússins um málaða veggdúka sem gerðir voru í Suður-Svíþjóð fyrr á öldum og tenjast jólum. Á sunnudag 28. nóvember kl. 16 ætlar hann að fjalla um sænsku óperusöngkonuna Christinu Nilsson, en á þessu ári eru 150 ár liðin frá fæðingu hennar. Með fyrirlestrinum verða sýndar af myndbandi kaflar úr sjónvarpsmynd sem Stig Tomehed gerði um Christinu Nilsson fyrir nokkr- um árum síðan. Stig Tomehed hefur í fórum sínum sýningu á máluðum veggdúkum frá Suður-Svíþjóð og verð- ur sýningin opnuð á laugardag kl. 15 á undan fyrirlestri hans. Veggdúkamir munu prýða anddyri Norræna hússins fram til jóla á sama hátt og veggdúk- arnir prýddu stofur bændabýla víðs Jólateppi verða til sýnis í Nor- ræna húsinu. vegar í Svíþjóð á 18. og 19. öld og var myndefnið sótt til biblíunnar. Sópransöngkonan Christina Nilsson fæddist 1843 í Smálöndum. Hún söng í helstu ópemm söngbókmenntanna f stærstu óperuhúsum Evrópu og í Bandaríkjunum allt til 1891. Frægð hennar náði um allan heim og var hún ein af dáðustu söngkonum nítjándu aldar. Dönsk kvikmynd Sunnudaginn 28. nóvember verður sýnd danska kvikmyndin Otto er et næsehorn eftir sögu Ole Lund Kirke- gaard. Vinimir Topper og Viggo búa í dæ- migerðum dönskum hafnarbæ. Dag einn fínna þeir töfrablýant sem getur töfrað fram hina ólíklegustu hluti, m.a. stóran gulan nashyming og með til- komu hans fara að gerast ýmsir kynleg- ir hlutir í bænum. Myndin er ætluð börnum á öllum aldri. Hún er með dönsku tali. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Kóramót á aðventu „Hátíð fer að höndum ein“ — Út- gáfutónleikar. Laugardagínn 27. nóvember kl. 16 vgrða tónleikar í Langholtskirkju. Þar syngja Skólakór Kársness og kór Kór- skóla Langholtskirkju undir stjórn Þór- unnar Björnsdóttur og Jóns Stefáns- sonar aðventu- og jólaiög úr nýútkom- inni söngvabók „Hátíð fer að höndum ein“, sem Skálholtsútgáfan hefur gefið út. Aðgangseyri verður mjög stillt í hóf og aðeins innheimtur af fullorðnum. í fréttatilkynningu segir að söngelsk börn séu hvött til að koma og að sjálf- sögðu fullorðnir einnig. Söngbókin verði til sölu og auk kórsöngsins muni allir syngja saman og fagna komu að- ventu og jólahátíðar. Garðar Cortes á ljóða- tónleikum Á „Ljóðatónleikum Gerðubergs" laugardaginn 27. nóvember syngur Garðar Cortes, tenórsöngvari með Jón- asi Ingimundarsyni, píanóleikara. Garðar Cortes hefur verið mikilvirkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár, sem söngvari, kór- og hljómsveitar- stjóri og kennari. Hann hefur á undan- fömum árum sungið mörg tenórhlut- verk óperubókmenntanna og í kirkju- legum verkum en ekki á ljóðatónleikum í áratug. Efnisskráin á laugardaginn sem er fjölþætt, hefst á fimm gömlum ítölskum lögum og lýkur á safni laga eft.ir Harold Fraser-Simsdn við texta úr sögunum af „Winnie-the-Pooh and Christopher Robin“ sem er eins og margir vita sagan af hinum eina og sanna „Bangsimon". Þessi .lög og ljóð eru fyrir löngu orðin þekkt víða, en hafa aldrei verið flutt á ljóðatónleikum hér á landi fyrr. Einnig verða fiutt átta lög eftir fjögur íslensk tónskáld, Jón Ásgeirsson, Þórarin Jónsson, Pál ísólfs- son og Jórunni Viðar. Tónleikarnir hefj- ast í Gerðubergi á laugardaginn kl. 17 og verða ekki endurjeknir. Miðasala er í bókaverslunum Eymundssonar og á skrifstofu Gerðubergs. Tónleikar gítarnema Tónskóla Sigursveins Gítarnemendur í framhaldsdeild Tónskóla Sigursveins halda tónleika í sal skólans Hraunbergi 2 sunnudaginn 28. nóvember kl. 15. Á efnisskránni verða verk eftir Luis de Narváez, Alon- son Mudarra, Femdando Sor, Daniel Fortea, Leo Brower o.fl. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Tónleikar Hamrahlíð- arkórsins Hamrahlíðarkórinn heldur tónleika í Listasafni Islands laugardaginn 27. nóvember kl. 20.30. Á efnisskrá tón- leikanna er tónlist frá 16. og 17. öld, madrigalar og dansar endurreisnar- tímans. Fluttir verða madrigalar eftir Byrd, Morley, Bennet, Marenzio, Or- lando di Lasso o.fl. Öll ljóðin era sung- in á frummálunum. Gítarleikarinn Arn- geir Heiðar Hauksson ieikur dansa eft- ir Dowiand og Mudarra. 56 kórfélagar skipa nú Hamrahlíðarkórinn. Á tónleik- unum í Listasafninu munu kórfélagar koma fram í búningum sem minna á endurreisnartímann og syngja við ker- taljós. Aðgöngumiðar verða seldir við inn- ganginn. Tónleikar í Breið- holtskirkju Svanhildur Sveinbjörasdóttir, mezzósópransöngkona og Steinunn Bima Ragnarsdóttir, píanóleikari halda tónleika í Breiðholtskirkju í Mjóddinni þriðjudagskvöldið 30. nóvember og hefjast þei kl. 20.30. Á efnisskrá tón- leikanna er ljóðasöngur, m.a. úr Sí- gaunaljóðum eftir Antonín Dvorák, auk þess sem flutt verða verk eftir Richard Wagner, Johannes Brahms og Antonio Vivaldi. Þá eru á efnisskránni áslensk sönglög, m.a. eftir Björgvin Þ. Valdi- marsson, Jón Þórarinsson og Eyþór Stefánsson. Svanhildur Sveinbjöms- dóttir stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík og var aðalkennari hennar þar Guðmunda Elíasdóttir. Einnig hef- ur Svanhildur stundað nám við Nýja tóniistarskólann og í Vínarborg. Að undanförnu hefur Svanhildur einkum komið fram með Skagfírsku söngsveit- inni, bæði sem kórfélagi og einsöngv- ari með kórnum. Steinunn Birna Ragn- arsdóttir stundaði nám í píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og fram- haldsnám við „New England Conser- vatoiy" í Boston. Aðalkennarar Stein- unar voru Ámi Kristjánsson hér hcima og Leonard Shure í Bandaríkjunum. Steinunn starfaði um tíma á Spáni, þar sem hún hlaut „Gran Podium" verð- launin, sem veitt eru af „Juventus del Musicals" í Barcelona. Tónleikarnir í Breiðholtskirkju eru fyrstu sameigin- legu tónleikar þeirra Svanhildar og Steinunnar Bimu. Sinf óníuhlj óms veit áhugamanna Næstkomandi sunnudag, 28. nóvem- ber kl. 17 heldur Sinfóníuhljómsveit áhugamanna tónleika í Háteigskirkju. Stjórnandi á tónleikunum er Ingvar Jónasson en einleikari á selló er Bryn- dís Halla Gylfadóttir. Á efnisskránni eru forleikurinn að Skepnum Promet- eusar eftir Beethoven, sellókonsert í C dúr eftir Haydn og Ófullgerða sinfónían eftir Schubert. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna var stofnuð 1990 og held- ur nú tónleika í 7. sinn. Hún er skipuð fóiki sem stundar hljóðfæraleik í frí- stundum, auk nokkurra tónlistarkenn- ara og nemenda. Félagar em um 30 talsins. Astarbréf til Lúxemborgar síðasta sýning fyrir jól Mögrileikhúsið gefur út geisladisk og snældu með jólaævintýrum fyrir börn. Geisladiskur og snælda með jólaævintýrum UM þessar mundir er leikhópurinn Möguleikhúsið að gefa út á geisla- diski og snældu barnaleikritið Smið jólasveinanna, sem er íslenskt jóla- ævintýri með söngvum. Höfundar eru Pétur Eggerz, sem hefur samið handrit og söngtexta, og Ingvi Þór Kormáksson, sem samdi tónlistina. 1 kjölfar útgáfunnar mun Möguleikhúsið sýná leikritið í Tjarnarbíói og Leikritið Ástarbréf eftir A.R. Gurney, sem sýnt hefur verið á Litla sviði Þjóðleikhússins undan- famar vikur, hefur ennfremur ver- ið sýnt á nokkrum stöðum utan leikhússins. Nú um mánaðamótin bætist ein slík sýning í þann hóp þegar þau Herdís Þorvaldsdóttir og Gunnar Eyjólfsson halda til Lúxemborgar. Ástarbréf er óvenjulegt sviðsverk í einfaldleika sínum einkum vegna þess að per- sónur leiksins lesa bréf hvor til annarrar allan tímann. Sýningin hefur hlotið mjög góðar undirtekt- ir áhorfenda og hafa þau Herdís og Gunnar fengið mikið lof fyrir túlkun sína. Persónur leiksins Melissa og Andy byija að skrifast á sem börn — að því er virðist að undirlagi foreldra sinna. Sambandið þróast með árunum gegnum bréfin, verð- ur sífellt nánara og innilegra, en það er svo margt sem kemur í veg fyrir að þau nái almennilega sam- an. Þegar upp er staðið hafa áhorf- endur fengið að skyggnast inn í samtvinnuð líf tveggja afar ólíkra einstaklinga. Leikstjóri sýningar- innar er Andrés Sigurvinsson en hann stjórnar einnig leikritinu Seiður skugganna sem er næsta verkefni Litla"sviðsins. Síðasta sýning á Ástarbréfum, sem verður á Litla sviðinu fyrir jól, verður á laugardaginn kemur. Félagasamtökum og öðrum utan Reykjavíkur, sem hafa hug á að fá sýninguna til sín, er bent á að hafa samband við Þjóðleikhúsið hið fyrsta. * a leikskolum. Smiður jólasveinanna segir frá Völundi gamla, smiðnum sem smíðar leikföngin fyrir jólasveinana. Þegar síðustu jólasveinarnir fara til byggða situr hann einn eftir í kofanum sínum og hefur engan til að halda jólin með. Þá ber að garði tröllabömin Þusu og Þrasa. Þau era raunar óvenju lítil og góðleg af tröllum að vera, en þurfa sífellt að vera að ríf- ast. Þusa og Þrasi hafa ekki hug- mynd um að það eru að koma jól. Völundur fer að segja þeim frá jólun- um, en í sama mund ber að garði sjálfan jólaköttinn. Hann reynistekki grimmur og vondur eins og álitið hefur verið til þessa, heldur mesta meinleysisgrey. Völundur segir nú þessum óvæntu gestum frá boðskap jólanna og saman leika þau sína út- gáfu af jólaguðspjallinu. Síðan býr Völundur til lítið jólatré og þau dansa kringum það og syngja. Að lokum fer hver til síns heima með jólaboð- skapinn í hjartanu. Flytjendur á geisladisknum eru Alda Arnardóttir, Bjarni Ingvarsson, Felix Bergsson, Jóhann Sigurðarson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pétur Eg- gerz, Ragnheiður Steindórsdóttir og Stefán Sturla Siguijónsson. Stjórn upptöku og hljóðfæraleikur var í höndum Vilhjálms Guðjónssonar og Pétur Eggerz annaðist leikstjórn. Ljósmynd/Grímur Herdís Þorvaldsdóttir og Gunnar Eyjólfsson í hlutverkum sínum. MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT. <£Tír HJÁLMRSTOFNUN Vlf) KIRKJUNNAR - mef) þinni hjálp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.