Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
21
Ólafur Ragnar Grímsson í stefnuræðu á landsfundi Alþýðubandalagsins
Morgunblaðið/Þorkell
Formaður flytur stefnuræðu sína
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, flytur
ræðu við setningu landsfundar Alþýðubandalagsins á Hótel Sögu
síðdegis í gær.
Hlítt á ræðuhöld
LANDSFUNDARGESTIR hlíða á setningarræðu formanns Alþýðu-
bandalagsins i gær. Fremst á myndinni er Guðrún Þorbergsdóttir
eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar.
Bjálkar flokkakerfis-
ins eru óðum að hverfa
„VIÐ erum vissulega mótuð af hinu liðna en prófsteinninn er dugur
okkar og þor til að skapa hið nýja,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins, í setningarræðu sinni við upphaf
landsfundar flokksins í gær. Ólafur vék að breyttri heimsmynd sein-
ustu ára og sagði m.a.: „Og auðvitað mun þetta umrót bylta sljórn-
málunum hér. Þeir bjálkar sem löngum héldu flokkakerfinu í skorð-
um eru óðum að hverfa. Ekkert er öruggt. Það sem sumir töldu
eilíft gufar nú upp á skömmum tíma.“
„Sambandið, já SÍS, annað af
tveimur fósturforeldrum Framsókn-
arflokksins er nú að leggjast til
grafar í kirkjugarði gjaldþrotanna.
Og Mikligaður og KRON farin sömu
braut. Ungmennafélögin sem fyrr
á öldinni ólu upp foringja Fram-
sóknar, Jónas og Tryggva, Her-
mann og Eystein og aðra þá sem
færðu flokknum völd, UMFÍ hefur
nú helgað sig íþróttunum einum,“
sagði ðlafur Ragnar:
„Verkalýðshreyfingin sem áður
var vettvangur harðra átaka um
kjör og lífsskoðun teflir nú fram
skrifstofusveit úr sérfræðiskólum.
í þverpólitísku bandalagi foringja
úr öllum flokkum er hún hætt að
gera stóran greinarmun á hægri
og vinstri í landsstjórninni.
Ávarp í tilefni af bind-
indisdegi fjölskyld-
unnar sem er í dag
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ávarp i tilefni af
bindindisdegi fjölskyldunnar:
„Á erfiðum samdráttartímum
leitar sú spurning á hugann hvað
heimili og fjölskyldur geta gert til
að ráða bót á málum. Hvernig get-
ur íslenska þjóðin með skjótum
hætti gert líf sitt betra?
Þessu má svara með ýmsum
hætti því margs er að gæta þegar
horft er fram á veginn. Fljótvirk-
asta úrræði til bóta væri að minnka
neyslu áfengis. Það hafa menn í
hendi sér ef þeir vilja og það þarf
ekki neitt að kosta.
Það mundi þegar í stað bæta fjár-
hagsstöðu margra heimila.
Það myndi þegar í stað draga
mjög úr slysum og óhöppum í um-
ferð og samkvæmum.
Það myndi fljótlega bæta heilsu-
far og mjög verulega þegar fram í
sækti. Gætum þess líka að áfengi
er undanfari neyslu annarra vímu-
efna.
Það eru alltaf og alls staðar til-
tæk mörg rök fyrir hófsemi og að-
gæslu en í árferði eins og nú verð-
ur ennþá biýnni ástæða til að þau
rök séu viðurkennd og í heiðri höfð.“
Benedikt Davíðsson, Alþýðusam-
band íslands, Gunnar Eyjólfsson,
Bandalag íslenskra skáta, Ög-
mundur Jónasson, Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja, Páll
Halldórsson, BHMR, Unnur Hall-
dórsdóttir, Heimili og skóli,
landssamtök foreldra nemenda í
grunnskólum, Jónas Þórisson,
Hjálparstofnun kirkjunnar, Ingi-
bergur Jóhannsson, lslenskir
ungtemplarar, Ellert Schram,
íþróttasamband íslands, Svan-
hildur Kaaber, Kennarasamband
íslands, Einar Siguijónsson,
Slysavarnarfélag íslands, Björn
Jónsson, Stórstúka íslands IOGT,
Þórir Jónsson, Ungmennafélag
Islands, Magnús Gunnarsson,
Vinnuveitendasamband Islands.
Kvennalistinn sem fyrir áratug
gerði tilkall til að verða sterkasta
tækið til að bæta hag kvenna verð-
ur nú að mæla sig við árangur þing-
kvenna okkar og hinna. Þegar verk-
in eru skoðuð er það þá ekki stað-
reynd að Guðrún Helga og Margrét
Frímanns, Jóhanna og Rannveig,
Ingibjörg Pálma og Valgerður
Sverris hafa í reynd verið áhrifarík-
ari í réttindamálum og hagsmuna-
baráttu kvenna á Alþingi en sá
þingflokkur sem kennir sig við kon-
ur,“ sagði Ólafur Ragnar í ræðu
sinni.
Miðstöð heimsviðskipta í
sjávarútvegi
Óiafur varði stórum hluta ræðu
sinnar í umfjöllun um útflutnings-
leiðina, tillögugerð flokksins í efna-
hags- og atvinnumálum, sem hann
sagði flétta saman sókn í atvinnu-
lífi, ábyrga hagstjórn og félagslegar
umbætur, þar sem samstarf at-
vinnulífs, launafólks og stjórnvalda
væri mikilvæg forsenda þess að
árangur næðist.
„Við eigum jafnframt að tileinka
okkur það besta úr hagstjórn þeirra
ríkja sem skarað hafa fram úr,
tengja það við aðalsmerki jafnaðar-
stefnunnar og velferðarhyggjunnar
sem fært hafa löndin í norðan-
verðri Evrópu í fremstu röð hvað
snertir samfélagslegt réttlæti og
manneskjulega þjóðfélagshætti,"
sagði hann.
„Alþjóðavæðing sjávarútvegsins
gæti gert ísland að miðstöð heim-
sviðskipta með sjávarafurðir, vélar
og tæki í útgerð og vinnslu. Það
sem Hollendingar gerðu með blómin
getum við vissulega einnig gert með
fiskinn," sagði Ólafur Ragnar einn-
ig í umfjöllun sinni um útflutnings-
leiðina.
Þá gagnrýndi hann ríkisstjórnina
í ræðunni og sagði að hennar tími
væri liðinn þótt formlegri kveðjuat-
höfn hefði kannski verið frestað um
sinn.
Ekki vettvangur átaka
Ólafur Ragnar sagði ennfremur
að Alþýðubandalagið væri ekki
lengur vettvangur átaka eða flokk-
ur sem skiptist í arma. „Það kunna
að vera fréttir sem verka á fjand-
menn okkar sem alvarlegt áfall en
engu að síður er það skýr staðreynd
að Alþýðubandalagið býr nú að
meiri samhug og meiri samstöðu
en aðrir flokkar á íslandi," sagði
Ólafur Ragnar.
Að lokinni setningu landsfundar
í gærkvöldi fór fram kynning á
útflutningsleiðinni á landsfundin-
um. I dag verður tillaga að stjórn-
málaályktun lögð fram og verður
tekið til við að ræða hana. Er búist
við að þar verði sjávarútvegsmálin
ofarlega á baugi. Eftir hádegi verða
kjördæmamál til umræðu og fjallað
verður um útflutningsleiðina í
starfshópum til kvölds. Þá ætlar
áhugahópur um stofnun kvenna-
hreyfingar innan flokksins að halda
stofnfund sinn annað kvöld.
HER og NU
sterkir, lipi
krómaðir I
stólar með bólstruðu baki
og setu - ótrúlega ódýrir...
HERoc NU
-------
Sterk, falle
töh'uborð.
Verð með prentaraplöHT
kr. 10.950.- Tréplata og
hvitmálað stál - ótrúlega ódýr..
HER og NU
-
Hvítir
klæðaskápar
með 4 hillum, hattahillu og síá,
breidd: 100 cm, hæð: 205 cm,
dýpt 56 cm, skuggalega ódýrt...
iÐ Gásar
Borgartúni 29, Reykjavík
S: 627666 og 627667 • Fax: 627668
Trygging-
arauki í
desember
LÍFEYRISÞEGAR með tekju-
tryggingu fá uppbót þegar
bætur almannatrygginga
vegna desembermánaðar
verða greiddar út 3. desem-
ber. Uppbótin er í samræmi
við kjarasamninga á vinnu-
markaði um greiðslu lág-
launabóta og desemberupp-
bótar.
Fulla uppbót, 20.705 kr. hjá
ellilífeyrisþegum og 21.074 kr.
hjá öryrkjum, fá þeir sem hafa
óskerta tekjutryggingu, heimil-
isuppbót og sérstaka heimilis-
uppbót. Tekjutryggingaraukinn
skerðist í sama hlutfalli og þess-
ir bótaflokkar lífeyrisþega, og
þeir sem ekki njóta tekjutrygg-
ingar fá enga uppbót. Á
greiðsluseðli verður uppbótin
lögð við upphæð hvers bóta-
flokkanna*þriggj a.
Biblía sem
börnin geta
lesið sjálf.
Fæst í næstu bókaverslun.