Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 11
mörgíínbláðið FÖ'sTiiöÁtitíR'áe; fiÖVÉAÍBÉR Má ÍY Háskólatónleikar _______Tónlist__________ Ragnar Björnsson Á Háskólatónleikum sl. miðviku- dag fluttu þeir Sigurður og Dav- íð svo til eingöngu verk eftir franska höfunda, Arthur Honeg- ger verður þó að teljast sviss- neskur þótt fæddur sé í Frakk- landi, starfsvettvangur hans væri í Frakklandi og tilheyrði „Six“-menningunum frægu í París. Eftir þennan snjalla tón- höfund fluttu þeir skemmtilega og vel samda Sónatínu fyrir klarinett og píanó þar sem tölu- vert reyndi á ýmsar hliðar hljóð- færaleiksins í þrem ólíkum þátt- um sónatínunnar. Tókst þeim félögum vel að sýna þessar ýmsu hliðar Honeggers, allt „upp í“ jassinn í síðasta þættinum. Þeir byijuðu 30 mínúturnar með ör- stuttum þætti eftir Debussy og slógu þanig upptaktinn að þess- um frönsku mínútum. Það er ekkert auðvelt að eiga að sýna sig og sanna á aðeins 30 mínút- um, þá má upphafið helst ekki mistakast og það gerðist heldur ekki hér, Debussy var mættur á staðinn. Kennari Ármanns er auðheyrður í leik hans, en sá var Einar Jóhannesson. Tónninn er þéttur og stöðugur, fallegur og lítið sem ekkert „vibrato“ á tón- inum. Ármann hefur mjög góða tækni og túlkun hans á verkefn- unum minnir töluvert á læri- meistara hans, Einar. í þessu tilfelli má segja að það sé já- kvætt, en koma verður þó að því að maður losi sig að mestu við kennarana. Fantasía eftir Philippe Caubert er síður en svo auðveld fyrir hljóðfærin bæði tvö, kannske voru styrkleika- breytingar á mörkunum að vera of miklar í litlum sai Norræna hússins, að öðru leyti skiluðu þeir verkefninu vel. Tema con variasioni eftir Jean Francaih kannske ekki djúphugsuð tón- smíð, enda höfundurinn fyrst og fremst þekktur fyrir léttlyndi og húmor í verkum sínum og þess- um eiginleikum skiluðu þeir fé- lagar. Samleikur þeirra Ár- manns og Davíðs var mjög sam- rýndur og mjúkur ásláttur Dav- íðs á píanóið hentaði klarinettinu og sal hússins vel. Jökull Jakobsson Jóhanna Kristjónsdóttir Bók Jóhönnu um árin með Jökli BÓKIN Perlur og steinar - árin með Jökli, eftir Jóhönnu Kristjóns- dóttur er komin út. 17 ára giftist Jóhanna Kristjónsdóttir Jökli Jak- obssyni rithöfundi. Framundan reyndist vera 11 ára stormasamt hjónaband þar sem skiptust á sorgir og gleði. í kyhningu útgefanda segir: „í Perlum og steinum ieitast Jó- hanna við að gefa sem sannasta mynd af árum sínum með Jökli og þeim persónum sem þar koma við sögu. Á þessum árum skrifaði Jök- ull flest af sínum bestu verkum og þau Jóhanna eignuðust þijú börn. En háskalegt líferni hans og marg- flókinn persónuleiki kastaði líka skugga yfir líf íjölskyldunnar. í bókinni er dregin upp margþætt mynd af Jökli, listamanninum, eig- inmanninum, syninum og föðurn- um. Bókin inniheldur fjölda ljós- mynda af þeim persónum og at- burðum sem fjallað er um.“ Útgefandi er Almenna bókafé- lagið. Bókin er prentuð hjá Prentbæ og er um 300 blaðsíður. Hún kostar 3.290 krónur. Edda Erlendsdótt- ir leikur Grieg Hljómdiskar Oddur Björnsson Hljómdiskurinn inniheldur 17 smáverk fyrir píanó úr „Lyriske Stykker", sem Grieg samdi á tíma- bilinu 1867-1901 og gaf út jafn- harðan í tíu hlutum (op. 12, 38, 43, 47, 54, 57, 62, 65, 68 og 71), og Holbergsvítuna op. 40, sem bet- ur er þekkt í umskrift fyrir strengi. Þetta er allt saman ákaflega hug- þekk og yndisleg músík, eins og vænta má úr smiðju þessa „gen- iala“ tónskálds og stundum beinlín- is mjög skemmtileg, sbr. Holbergs- vítuna. Áhrifa náttúrunnar gætir víða í fyrrgreindum smáverkum, fuglar og fiðrildi boða komu vorsins — en vorið sjálft er ljúfsárt og svo- lítið tragikómískt (Til vorsins op. 43 nr. 6); við heyrum hjarðstúlku í fjarska kalla kýrnar heim til mjalta með „geitarhorni“ sínu (Kvöld í fjallasal op. 68 nr. 4) meðan Holbergsvítan skírskotar til 18. aldarinnar með sínum dans- sporum, bukti og frukti, en einnig andríki, hæglátri melankólíu, við- kvæmni og fjöri. Píanóleikur Eddu Erlendsdóttur er vandaður, það’ á einnig við um túlkun einstakra verka — hlutirnir teknir bæði mildum og föstum tök- um, eftir efni og tónlistarlegum Eitt verka Sigurðar Þóris. Listasafn ASÍ Sýningu Sigurð- ar Þóris að ljúka SIGURÐUR Þórir listmálari opnaði myndlistarsýningu í Listasafni ASI, Grensásvegi 16a, laugardaginn 13. nóvember sl. Á sýningunni eru myndir frá síðustu þremur árum, olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar. Sýninguna kallar iistamaðurinn „Úr handraðanum." Sigurður Þórir er fæddur og upp- alinn í Reykjavík og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands 1968-1970. Eftir það fór hann til náms við Konunglegu Listaaka- demíuna í Kaupmannahöfn 1974- 1978 hjá prófessor Dan Sterup- Hansen. Sigurður hefur haldið fjölda einkasýninga hér heima og erlendis og tekið þátt í hinum ýmsu samsýn- ingum. Hann hefur einnig fengist við kennslustörf og starfað að fé- lagsmálum myndlistarmanna. Hluti verkanna er unnin í Eng- landi þar sem hann starfaði um eins árs skeið. Á sýningunni er fjöldi vatnslitamynda, en þær hafa ekki sést áður frá hendi listamannsins. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-19, en henni lýkur sunnudag- inn 28. nóvember. Tímarit ■ Almanak hins Islenzka þjóðvinafélags er nýkomið út í 120. sinn. Það kom fyrst út í Kaup- mannahöfn árið 1874. Alla tíð síðan hefur Almanakið komið út á vegum Þjóðvinafélags og nú um langa hríð í samvinnu við Háskóla Is- þands. A_uk almanaksins sjálfs hefur Árbók íslands alltaf verið fastur liður í ritinu og má þannig finna í Almanökunum samfelldan annál síðustu 120 ára. Almanak Þjóðvinafélagsins fyrir árið 1994 er 200 bls. að stærð, og er efni þess skipt í þrennt. Alman- akið sjálft hefur Þorsteinn Sæ- mundsson stjörmifræðingur reikn- að og búið til prentunar. Auk hefð- bundins efnis í því fjallar Þorsteinn sérstaklega um dagsetningu páska og brandajól. Árbók íslands fyrir árið 1992 ritar Heimir Þorleifsson og er þetta í 12. sinn, sem hann sér um árbókina. Þá er í Almanak- inu greinin Tíminn og hafið, upp- Hið íslenzka Þjóðvinafélag gefur Almanakið út, en forseti þess og umsjónarmaður Alman- aksins er Jóhannes Halldórsson. Prentsmiðjan Oddi prentaði ritið og það er Sögufélag, Fischer- sundi 3, sem sér um dreifingu. Almanakið fæst í flestum bóka- verslunum og kostar 1.254 kr. ----------» » ♦---- Nýjar bækur ■ Mömmusögur er barnabók með 366 sögum og 468 litmyndum. Stuttar sögur, barnavísur eða þekkt ævintýri fyrir hvern dag ársins. í kynningu útgefanda segir: „Hvorki afi né amma eða pabbi og mamma verða lengur í vandræðum með söguefni allan ársins hring og auð- vitað geta börnin sjálf skoðað og lesið.“ Setberg gefur út. Þórir S. Guðbergsson og Hlynur Örn Þór- isson þýddu og endursögðu. Bók- in kostar 1.685 krónur. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. _ J Kopavogi, simi 571800 Opið sunnudaga kl. 13-18. BÍLAR Á TILBOÐSVERÐI: Mercedes Benz 250 T station ’80, grænn, 4 g., ek. 170 þ. V. 550 þús. Tilboðsverð: 320 þús. stgr. Lada 1500 station ’92, 5 g., ek. 32 þ., 2 dekkjag. V. 490 þús. Tilboðsverð: 390 þús. stgr. MMC Colt GL ’90, 5 g., ek. 69 þ. V. 690 þús. Tilboðsverð: 600 þús. stgr. Toyota Corolla Liftback ’88, sjálfsk., ek 98 þ. V. 630 þús. Tilboðsverð: 520 þús. stgr. Renault 9 ’87, 4ra dyra, vínrauður, 5 g., ek. 91 þ. V. 370 þús. Tilboðsverð: 250 þús. Chevrolet S-10 Thao ’83, 5 g., ek. 120 þ. mílur, sóllúga, álfelgur o.fl. V. 630 þús. Tilboðsverð: 480 þús. Honda Prelude ’85, 5 g., ek. 125 þ., sóllýga, spoiler. V. 480 þús. Tilboðsverð: 330 þús. stgr. Daihatsu Feroza EL-II ’89, grár/tvílitur, 5 g., ek. 62 þ., álfelgur, cent. o.fl. V. 890 þús. Subaru Justy J-12 4x4 ’89, grásans, 5 dyra, 5 g., ek. 61 þ. V. 590 þús. Toppeintak. Daihatsu Charade Sedan SG ’91, rauður, sjálfsk., ke. 48 þ. V. 820 þús. Ford Orion CLX Sedan ’92, 5 g., ek. 34 þ. V. .850 þús., sk. á ód. Toyota Corolla 1300 DX ’87, blár, 5 dyra, 4 g., ek. 102 þ. V. 370 þús., sk. á ód. Subaru station 1800 GL ’88, sjálfsk., ek. 70 þ. V. 780 þús., sk. á ód. Subaru Justy J-10 4x4 '86, hvítur, 3ja dyra, 5 g., ek. 78 þ. V. 290 þús. Mazda 626 2000 GLX '91, sjálfsk., ek. 51 þ., rafm. í rúðum, cent., álfelgur o.fl. V. 1190 þús., sk. á ód. Suzuki Swift GL ’90, sjálfsk., ek. 16 þ., 5 dyra. V. 650 þús. MMC Lancer GLXi '90, silfurgrár, sjálfsk., ek. 39 þ. V. 890 þús., sk. á ód. Hyundai Pony XL 1.3 Sedan '92, hvítur, 5 g., ek. 37 þ. Tilboðsverð 670 þús. stgr. haf nútíma siglingafræði eftir Orn- ólf Thorlacius. forsendum. Leikurinn íhugull og líflegur eftir atvikum og án sér- viskulegra tilburða. Hljóðritunin vekur spurningar um nútíma upptökutækni (stað- setningu hljóðnema?). tónninn stundum svolítið „málmkenndur" á miðsviði, að öðru leyti góður. Vandað og kærkomið „pró- gram“, yndislegar tónsmíðar. NGAR ostaboði Velkomin í kjúklingakræsingar okkar Fjöskyldupakki fyrir 5 10 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat Verð 1990 kr. Athugið aðeins 398 kr á mann Fjölskyldupakki fyrir 3 6 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat Verð 1290 kr. Pakki fyrir 1 2 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat Verð 490 kr. KJúkHntfastaótirtnn SOUTHERH1WED CHICKEM Sími 29117 Þú getur bæði tekið matinn með þér heim eða borðað hann á staðnum Hraðrétta veitingastaóur i hjarta bofgarinnar Sími 16480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.