Morgunblaðið - 26.11.1993, Síða 14

Morgunblaðið - 26.11.1993, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2G. NÓVEMBER 1993 Að hönnun hafi þjóðhagslegt gildi ætti Ted-stóll- inn að vera til vitnis um, en hann hefur selst í 10 milljón eintökum frá 1976! (Hönnun Niels Gammelgaard.) Litla handhæga farangurskerran á Kastrup er hrein guðsgjöf þreyttum ferðalangi. (Hönnun Lars Mathiesen.) PELIKAN HÖNNUN List og hönnun; Bragi Ásgeirsson Verzlunin Epal í Faxafeni 7 hefur verið iðin við að kynna hús- gagna- og textílhönnun, jafnt inn- lenda sem skandinavíska og þá einkum danska. Laugardaginn 6. október opnaði þar sýning á svonefndri Pelikan hönnun, sem nær yfir vítt svið, allt frá iðnhönnun til húsgagna- hönnunar og standa tveir listhönn- uðir að baki, þeir Lars Mathiesen og Niels Gammelgaard. Framleið- endumir eru hins vegar allnokkrir enda eru umsvifm mikil. Þótt þeir félagar séu ennþá á besta aldri, fæddir 1950 og 1944, er hér um velþekktar stærðir í danskri hönnun að ræða og það segir að sjálfsögðu allmikið, því dönsk hönnun stendur mjög fram- arlega. Að því viðbættu eru þeir hver fyrir sig margverðlaunaðir, og hafa haslað sér völl á alþjóðleg- um markaði. Lars Mathiesen var yfír starfs- hópnum sem hannaði handhægu farangurskerruna, sem allir kann- ast við sem fara um Kastrup-flug- höfnina, og er hreinasta guðsgjöf þreyttum ferðalöngum. Það er ekki ýkja langt síðan hún var tek- in í notkun, og hver man ekki eft- ir stóru kerrunum, sem voru þung- ar og óþjálar og sjaldan var hægt að krækja í inni í flugstöðinni, og lengstum þurfti að borga gjald fyrir við komu. Og fyrir utan það að vera handhæg er kerran hreint augnayndi, og hefur einnig verið tekin í notkun á flughöfnunum í Róm og Búdapest. Albert Gammelgaard hannaði klapstolen Ted (kjaftastóll, sam- brotsstóll), sem er ekki einungis handhægur heldur ákaflega við- kunnanlegur, sem er sjaldgæft við slíka stóla. Hann hefur sem sagt hjarta, og það segir sitt að 10 milljónir eintaka hafa selst af hon- um frá 1976. Stóllinn samanstend- ur af stálrörum og polypropylen, og Ted-serían samanstendur af stól og borði, sem hægt er að bijóta saman og hengja upp á vegg, og er hugsuð sem aukahús- gögn sem auðvelt er að fjarlægja. Einungis af þessu tvennu má ráða, að hér eru engir aukvisar á ferð, en ýmislegt fleira er á sýning- unni, t.d. Napoleonsstóll og „Café serien", sem eru þrír stólar og borð, sem einkum er hentugt að staðsetja utandyra, og þá ekki síst vegna þyngdarinnar, sem forðar því m.a. að gestir taki stólana með sér! Um leið eru þeir mjögþægileg- ir og traustir til síns brúks. Svo má geta Luna-stólsins, handhægs skerms og þríhjóls fyrir yngstu kynslóðina, sem allt eru einfaldir og vel hannaðir hlutir. Geta má þess að Luna-stóllin er hér um bil, og þríhjólið alveg í dönsku fánalitunum, en danskir hönnuðir eru einmitt snillingar í að sameina gott handverk og fánalitina. Það er einmitt eftirtektarvert hve Dönum hefur tekist að koma upp einkennandi stíl í hvers konar hönnun, og það virðist hafa komið alveg ósjálfrátt og fyrirhafnar- laust, eins og öll mikil list en er þó þveröfugt, því að á bak við slíkt fyrirhafnarleysi er einmitt blóð tár og sviti. En ekki má þó gleyma hve þeir eiga af ríkri erfðavenju að ausa og þá einnig í húsagerðarl- ist og það langt aftur í aldir. Þetta er ekki stór sýning en ákaflega lærdómsrík, m.a. fýrir það, að hún á að geta sannfært ýmsa vantrúaða um gildi og þýð- ingu hönnunar, og að því fé er vel varið sem fer í uppbyggingu henn- ar og á að skila sér margfalt. Að því viðbættu að hönnun hefur menningarlegt gildi og er andlit þjóðarinnar út á við. Komnar aftur Kuldahúfur í miklu úrvali TC07 Verð kr. 1.090 Halldóra Björnsdóttir sem Þóra. Ljósmynd: Grímur/Þjóðleikhúsið. Ferðalok — sýn- ingum fer fækkandi LEIKRIT Steinunnar Jóhannes- dóttur, Ferðalok, hefur nú verið sýnt á Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins sl. tvo mánuði og fer sýningum nú fækkandi. í frétia- tilkynningu segir: „Aðalpersóna leiksins er Þóra sem Ies bókmenntafræði við Há- skóla íslands. Hún fer ti! Kaup- mannahafnar til þess að skrifa loka- ritgerð um Jónas Hallgrímsson og seinasta veturinn í lífí hans. Þar hittir hún fyrir æskuást sína, Jón- as, sem dvalið hefur langdvölum í borginni. Þau taka upp fyrra sam- band sitt og að lokum dregur til uppgjörs milli þeirra. í verkinu seg- ir þannig frá viðureign ungrar konu við skáldið Jóans og manninn Jón- as. Þar er fjallað um ástina sem yrkisefni annars vegar og hins veg- ar ástina í lífínu sjálfu og þau átök kynjanna sem óhjákvæmilega eru. Með helstu hlutverk fara Hall- dóra Björnsdóttir, Sigurður Sigur- jónsson og Arnar Jónsson. Leik- stjóri er Þórhallur Sigurðsson. 'S Y TC04 Verð kr. 780 Opið laugardag kl. 10-14. 5% staðgreiðsluafsláttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. ÚTILÍFf GLÆSIBÆ • SÍMI 812922 SKEMMTILEG SKÓLASAGA Bókmenntir Sigrún Klara Hannesdóttir Iðunn Steinsdóttir: Er allt að verða vitlaust? Iðunn 1993. Iðunn Steinsdóttir er einn af okk- ar hugmyndaríkustu og fijóustu barnabókahöfundum og bækur hennar geisla af sagnagleði. Þar er engin lognmolla og hver atburð- urinn rekur annan jafnvel í hvers- dagslegasta umhverfi. Sagan sem Iðunn sendir íslensk- um börnum fyrir þessi jól gerist í nútímanum og sögusviðið er dæ- migerður íslenskur skóli. í kjarna sögunnar er einn sjöundi bekkur, kennarinn þeirra, Hansína, og gam- alt fólk í þjónustuíbúðum fyrir aldr- aða. Þótt sögupersónumar séu margar, tekst Iðunni að greina hveija og eina fyrir sig svo auðvelt er að sjá þær fyrir sér. Flóki Drafn- arson er sú persóna sem höfundur leggur mesta rækt við. Hann býr hjá drykkfelldri móður sinni og elur önn fyrir Unni Sif, litlu systur sinni. Hann á í baráttu við sjálfan sig, er illa læs en góður í stærðfræði. í sögulok rætist úr fyrir honum á óvæntan hátt. Það sem tengir söguna saman í heild er hópvinna nemenda við verk- efni um börn fyrr á tímum. Með þennan streng í miðju sögunnar tekst höfundi að draga inn alls kyns hluti án þess að sagan verði ofhlað- in. Hópverkefnið er notað sem tæki til að sýna samspil nemenda inn- byrðis, sýna heimilishald þeirra og tengsl við gamla fólkið þegar Flóki fer að leita sér upplýsinga. Fundur bréfanna gömlu gefur tækifæri til að draga inn í söguna misjafnar aðstæður barna á ýmsum tímum. Fjallað er um nokkra vandasama þætti í samskiptum fólks svo sem einelti og hversu hjálparvana börn og fullorðnir eru gagnvart því. Að- eins er tæpt á samkynhneigð og krakkamir stinga saman nefjum þegar þau sjá tvo menn haldast í hendur. Bakkus er einnig umfjöll- unarefni. Það sem einkennir sögur Iðunnar er hversu létt hún á að skapa per- sónur og segja skemmtilega sögu, sama hvert viðfangsefnið er eða hvar hún staðsetur sögur sínar. -Annað sem mér fínnst mjög ják- vætt við sögur hennar er hversu fordómalausar þær em. Höfundur vill útskýra, velta fyrir sér vanda- Iðunn Steinsdóttir málum og leiða lesendur til þroska. Hún lætur sögupersónurnar spyija spurninga án þess að gefa svörin sjálf. Hún skirrist ekki við að íjalla um erfið mál, en gerir það af mik- illi nærfærni og án þess að prédika. En umfram allt er Iðunn alltaf skemmtileg og mjög stutt í kímnina. Kápumyndin er vel gerð ljósmynd af íslenskum krökkum sem gæti alveg verið af þeim hópi sem hér er íjallað um. ------» ♦ -*---- Nýjar bækur ■ Alagaeldur nefnist ný bók eft- ir Aðalstein Asberg Sigurðsson. í kynningu útgefanda segir: „Það er bannað að hrófla við Skiphóln- um því þá brennur bærinn í Litlu- vík. Óðinn og Logi heillast af sögu Kobba gamla um fjársjóð og skip víkingsins sem grafið var í Skiphól- inn. En voru álögin ennþá virk? Refsar hinn forni víkingur með eldi þeim sem grafa í hólinn?“ Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson er vel þekktur tónlistarmaður, texta- höfundur og ljóðskáld og barna- bækur hans hafa hlotið góðár við- tökur. Útgefandi er Almenna bók- afélagið. Bókin er um 140 síður og er prentuð hjá G. Ben. Hún kostar 1.490 krónur. Nýjar bækur Skáldsaga eftir Illuga Jökulsson ÚT ER komin skáldsagan Barn- ið mitt barnið eftir Illuga Jök- ulsson. I kynningu útgefanda segir: „Heimurinn í hnotskurn, að vísu ekki allur, heldur einkum sá hluti hans sem býr við ófrið, fátækt, hungur, mengun, grimmd, andleg- an fáránleik. Öllu þessu þjappar höfundurinn saman á íslandi — á svæði frá Reykjavík austur að Vík í Mýrdal. Og á þetta horfa skiln- ingsvana og í vandræðalegu úr- ræðaleysi þeir sem vilja leggja eitt- hvað af mörkum til að draga úr þessu hryggilega ástandi. Efnið er risavaxið og með ólík- indum að höfundi skuli takast að koma því fyrir í þessari stuttu en mjög áhrifamiklu skáldsögu.“ Útgefandi er Almenna bókafé- lagið. Barnið mitt barnið er prentuð hjá prentsmiðju Árna Illugi Jökulsson Valdemarssonar og kostar 2.680 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.