Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
31
Sonja M. Renfer, forseti alþjóðasamtaka Zonta heimsækir Island
Hjálpa konum
tíl sjálfshjálpar
SONJA M. Renfer, forseti Alþjóðasamtaka Zonta, er á íslandi og heim-
sækir íslensku klúbbana í samtökunum. Þessi alþjóðlegu samtök leið-
andi kvenna í ýmsum starfsgreinum verða 75 ára á næsta ári, voru
stofnuð 1919 í þeim tilgangi að bæta stöðu kvenna. í þeim eru 36
þúsund konur í 1100 klúbbum í 65 löndum um allan heim.
Morgunblaðið/Kristinn
Alþjóðaforseti Zontakvenna
SONJA M. Renfer, alþjóðaforseti Zonta, og Sigrún Karlsdóttir félags-
ráðgjafi, sem er fulltrúi klúbbanna á þessu svæði.
Á íslandi eru fimm Zontaklúbbar.
Sonja M. Renfer hitti konur í Zonta-
klúbbi Reykjavíkur, sem er 52ja ára
gamall, Emblu í Reykjavík og Zonta-
klúbbi Selfoss og flaug svo til Akur-
eyrar til að hitta konur í Zonta-
klúbbi Akureyrar og Þórunni hyrnu.
Er það í fyrsta skipti sem alþjóðafor-
seti Zonta heimsækir Akureyrar-
klúbbana. í stuttu samtali sagði hún
blaðamanni Mbl. frá því sem efst er
á baugi hjá samtökunum.
Sonja M. Renfer var að koma frá
aðalstöðvunum, sem eru í Chicago,
og fór héðan heim til Zurich í Sviss.
Hún hefur langa reynslu í alþjóð-
legri þjónustu og félagsstarfsemi,
þar sem hæfileikar hennar í stjórnun
og almennum samskiptum hafa notið
sín. Hún hefur verið félagi í Zonta
frá 1964 og gengt fjölda trúnaðar-
starfa fyrir samtökin og í þágu
kvenna heims. Var kjörin forseti
Zonta í Hong Kong 1992. 19. októ-
ber síðastliðinn veitti hún viðtöku
fyrir hönd Alþjóðasamtaka Zonta
verðlaununum Áward of Exellence
frá UNIFEM, þróunarsjóði Samein-
uðu þjóðanna í þágu kvenna, sem
með þessu vildi þakka þeim samtök-
um sem mest hefðu lagt þeim til.
Finnsku klúbbarnir riðu á vaðið og
síðan þeir bandarísku og hafa til
þess ríkisstyrk. Voru verðlaunin veitt
við hátíðlega athöfn í móttökusal í
utanríkisráðuneytinu í Washington
að viðstöddum 50 fulltrúum Zonta
og 150 fulltrúum frá Hinum óháðu
samtökum Sameinuðu þjóðanna.
Síðan 1986 hefur Zonta staðið
fyrir þróunarhjálp í 18 mismunandi
löndum, síðast Ghana, Bangladesh,
Indlandi, Sri Lanka og nú er átakið
mest í Chile, þar sem Mapuchi-indj-
ánakonur voru alveg bjargarlausar
og tekjulausar. Beitir Zonta sér fyrir
átaki til að kenna þeim að búa til
og framleiða söluvarning. En með
UNIFEM einbeita alþjóðasamtök
Zonta sér að því að hjálpa konum í
13 löndum til sjálfshjálpar.
Samband við A-Evrópukonur
Zontaklúbbar starfa um allan
heim. Sagði Sonja M. Renfer að fyr-
ir þremur vikum hefði hún verið í
Lettlandi til að stofna með konum
nýjasta klúbbinn. Það kom raunar í
hennar hlut að setja af stað flesta
Zontaklúbbana í Austur-Evrópu eftir
fall Berlínasrmúrsins, í Prag, Warsjá
og Moskvu. Forseti alþjóðasamtak-
anna var þá búsettur í Ástralíu og
Flóastríðið í gangi, en hún var nær-
tæk í Sviss. „Þetta hefur verið ein-
staklega áhugavert,11 segir hún.
„Konurnar í þessum löndum þrá svo
og eru svo ákafar í að ná sambandi
til Vesturlanda og Zonta er mögu-
leiki til þess. Fyrir þær er það himna-
sending. Sumir segja að þær séu að
bara að leita eftir fjárhagslegum
stuðningi, en það er alls ekki rétt.
Þær vilja skiptast á skoðunum og
samskipti við þá sem þær geta treyst.
Hafa aldrei fyrr getað treyst neinum,
ekki einu sinni innan sinnar fjöl-
skyldu. Þegar ég fór til Weimar, sem
var fyrsti staðurinn sem stofnaði
klúbb fyrir austan, þá var ég þar
eina helgi í júlílok. Ég hefí aldrei
upplifað annað eins, frá því ég kom
og þar til ég fór var hver einasta
félagskona með mér og ekki aðeins
þær heldur komu mennimir þeirra
líka og börnin. Og allir vildu tala og
tjá sig. Þau sögðust vera svo þakklát
fyrir að ég skyldi leggja á mig að
koma og að ég talaði við þær og það
sem meira væri vildi hlusta á þær,“
sagði hún.
Alþjóðasamtök Zonta eru og hafa
verið í fleiri hjálparstörfum, ein eða
í samvinnu við alþjóðastofnanir, og
leggja klúbbamir þar til. En að auki
er hver klúbbur með eitthvert þarft
verkefni heima. Af sameiginlegum
verkefnum má nefna Amelíu Earhart
sjóðinni, sem veitir styrki til kvenna
í verkfræði- og geimvísindanámi,
Michael J. Freemans sjóðinn sem
veitir írskum komum kennslustyrki
og sjóð sem styrkir ungar konur til
menntunartil opinberra starfa. Sonja
M. Renfer sagði að á forsetaárum
sínum fyrir alþjóðasamtökin yrði
mikil áhersla lögð á umhverfismál
og væri það að fara af stað í ýmum
bandaríkjaklúbbanna, sem eru að
kynnast umhverfismálum í Evrópu,
sem eru á undan. Einnig er nú byrj-
að að undirbúa Kvennráðstefnu Sam-
einuð þjóðanna í Peking á árinu
1995, en Zonta var með í að móta
stefnuna á sínum tíma í Mexico og
í Nairobi. Ár ijölskyldunnar er á
næsta ári, þar sem Zonta mun beita
sér. Vekur Sonja sérstaka athygli á
fjölda kvenna sem eru neyddar til
að ala einar önn fyrir fjölskyldum
sínum. Hún segir það sameiginlegt
Zontakonum að hafa forréttindi
menntunar og góðrar þjóðfélags-
stöðu og því hafi þær gott tækifæri
til að beita áhrifum sínum til að
breyta hefðbundnum viðhorfum í
þjóðfélaginu gagnvart konum.
Það kostar minna j
en þig grunar að í
hringja til útlanda
PÓSTUR OG SÍMI
*86 kr.: Verð á 1 mínútu
símtali (sjálfvirkt val) til Dublinar
á dagtaxta m.vsk.
Skipun hæstaréttardómara gagnrýnd á þingi
Ráðherra segir mál-
efnaleg rök skorta
TIL SNARPRA orðaskipta kom á Alþingi í vikunni er Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, gaf í skyn í
umræðum að Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra hefði látið
pólitísk sjónarmið ráða við skipun dómara í Hæstarétt. Þor-
steinn Pálsson sagði gagnrýnina ómálefnalega enda virtist hún
beinast að því að gengið hefði verið framhjá mágkonu Ólafs
Ragnars Grímssonar við embættisveitinguna.
Þorsteinn Pálsson sagði í umræð-
um um frumvarp um Hæstarétt
íslands á Alþingi að Ólafur Ragnar
Grímsson hefði hvað eftir annað
vegið að hæstaréttardómaranum
Pétri Hafstein, dregið í efa hæfni
hans til að sitja í réttinum og gefið
í skyn að um pólitíska embættisveit-
ingu hefði verið að ræða. Óskaði
hann eftir að Ólafur Ragnar til-
greindi hvern umsækjenda hefði átt
að skipa.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
að spurningin væri ekki sú hvort
Pétur Hafstein hafi verið hæfur til
að setjast í réttinn heldur hvort
hann hafi verið hæfastur af þeim
sem sóttu um. Hvað starfsreynslu
við dómstörf snerti hefði hann verið
neðarlega á lista. Þetta kæmi skýrt
í ljós þegar dómaraferill Péturs
væri borinn saman við dómaraferil
tveggja umsækjenda, borgardóm-
aranna Garðars Gíslasonar og Auð-
ar Þórbergsdóttur, sem bæði hefðu
tvímælalaust haft meiri reynslu og
víðtækari embættisferil að baki.
Einnig væri ljóst að Pétur Hafstein
hefði nokkrum mánuðum fyrir veit-
inguna blandað sér í átök þáver-
andi formanns Sjálfstæðisflokksins
og þáverandi borgarstjóra í Reykja-
vík. Hefði hann skrifað stuðnings-
grein við þáverandi formann, Þor-
stein Pálsson, í Morgunblaðið en
óvenjulegt væri að starfandi sýslu-
maður blandaði sér með slíkum
hætti í flokkspólitísk átök.
Gagnrýnin ekki málefnaleg
Þorsteinn Pálsson sagði athyglis-
vert að Ólafur Ragnar Grímsson
hefði áður gagnrýnt sig fyrir að
skipa Garðar Gíslason út frá póli-
tískum sjónarmiðum. Eftir stæði
að átt hefði að skipa mágkonu Ólafs
Ragnars í embættið. Hlyti öllum
þingmönnum að vera ljóst að hér
væri ekki um málefnalega gagnrýni
að ræða.
Þorsteinn sagði að mörg önnur
sjónarmið kæmu til greina við mál-
efnalegt mat á hæfi til setu í Hæsta-
rétti en langur dómaraferill, enda
hefðu verið skipaðir menn sem
aldrei hafa verið dómarar. Nauð-
synlegt væri að tryggja ákveðna
fjölbreytni í réttinum.
Stofnfundur
íslenska fótboltaklúbbsins Spark í rassinn, skammstafað
I.F.K. Spark f rassinn, eða á ensku lcelandic Football Club
Kick ln The Ass, verður haldinn í hornsófanum á Rauða
Ijóninu laugardaginn 27. nóvember og hefst hann ki. 20.
Undirbúningsnefndin
Veist þú aö með tilkomu bjórsins hefur
heildarneysla unglinga á aldrinum 13-15 ára á
áfengum drykkjum tvöfaldast?*
Veist þú að með tilkomu bjórsins hefur
upphafsaldur áfengisneyslu lækkað með
ógnvænlegum hraða?
Veist þú að þriðja hver fjölskylda á um sárt að
binda af völdum áfengisneyslu einhvers eða
einhverra í fjölskyldunni?
Veist þú að afleiðingar vaxandi drykkju eru aukið
ofbeldi og félagsleg vandamál?
Veist þú að fullorðnir eru fyrirmynd unglinga?
Könnun unnln af rannsóknarstofu Geðdelldar Landspítalans "92
Opið hús í Templarahöllinni frá 20.°°
Kaffi og meðlæti.
Samstarfsnefndin Fulltrúar samstarfsnefndar bindindisdagsins mæta.
lofan hf.