Morgunblaðið - 18.12.1993, Blaðsíða 1
mnjtmtlrlfiMfe
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 18 DESEMBER 1993 BLAÐn
UPPSETNING HELGA TÓMASSONAR Á ÞYRNIRÓS í KAUPMANNAHÖFN
Ævintýrið
í ævintýralegri
umgjörð
Þetta er ein íburðarmesta og
fjölmennasta ballettsýning í
sögu Konunglega leikhússins.
Gert er ráð ffyrir að hún verði
á f jölunum f ram yf ir næstu
aldamót.
SJALDAN hefur Konunglegi danski ball-
ettinn fengist við annað eins verkefni og
ballettinn Þyrnirós, sem frumsýndur var
í gær. Danskir fjölmiðlar hafa verið ólatir
við að kynna sýninguna, enda stendur
mikið til. Ballettinn er viðamesta verkefn-
ið, sem flokkurinn hefur tekist á við lengi.
Nú á að sýna hvers hann er megnugur. I
raun hefur verið stefnt að þessu marki í
átta ár. Mörg hundruð manns eru viðriðn-
ir sýninguna. Utan um þetta allt heldur
Helgi Tómasson, liststjórnandi San Frans-
isco ballettsins, en hans útgáfa af ballettin-
um var valin, eftir að Frank Andersen
ballettmeistari við Konunglega leikhúsið
hafði ferðast um allan heim í leit að réttri
Þyrnirós handa flokknum. Frank Anders-
en segir frá því með gleðilegu stolti að
það hafi veri flokknum mikill ávinningur
að fá Helga til að dveljast um hríð í Kaup-
mannahöfn og vinna með flokknum að
uppsetningunni.