Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
ERLENT
INNLENT
Lækkun
matarskatts
bundlní
kjara-
samninga
VARAFORMAÐUR efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis,
Vilhjálmur Egilsson, segir að
fulltrúar stjómarmeirihlutans
séu bundnir af samþykkt ríkis-
stjómarinnar sem gefín var í
tengslum við núgildandi kjara-
samninga um lækkun virðis-
aukaskatts á matvælum þótt
aðrar leiðir í skattamálum séu
heppilegri til að ná fram tilætl-
aðri tekjujöfnun. Fprmaður
nefndarinnar, Halldór Ásgríms-
son, segir að með þessari breyt-
ingu sé í uppsiglingu stórkost-
legt slys í skattamálum og legg-
ur fram nýjar tillögur.
Á geðdeild eftir
sveppaneyslu
LÖGREGLA telur sig hafa
áreiðanlegar upplýsingar um að
16 ára piltur sem á þriðjudag
hafði verið í annarlegu ástandi
og til meðferðar á geðdeild á
sjúkrahúsi í rúma viku hafí
komist í það ástand við að neyta
ofskynjunarefna úr sveppi sem
hann og félagar hans höfðu lát-
ið liggja í áfengi.
Skuldbreytingar
Húsnæðisstofnunar
SAMRÆMT átak félagsmála-
ráðuneytis, Húsnæðisstofnunar
og viðskiptabanka og sparisjóða
um skuldbreytingar hjá lánþeg-
um, sem era komnir í mikinn
greiðsluvanda og vanskil vegna
tekjulækkunar, sem stafar af
atvinnuleysi eða veikindum, er
nú komið af stað.
ERLENT
Styrkur öfga-
afla vekur ugg
ÚRSLIT þingkosninganna í
Rússlandi um síðustu helgi
komu mjög á óvart og einkum
mikið fylgi’ þjóðemisöfga-
manna, flokks Vladímírs Zhír-
ínovskíjs.
Fékk hann
næstum
fjórðung at-
kvæða í
landslista-
kosningun-
um. I öðru
sæti varð
Valkostur
Rús^lands, helsti flokkur um-
bótasinna, með tæp 15% og
kommúnistar með tæp 14%. I
einmenningskjördæmunum
snerist dæmið hins vegar að því
leyti, að þar fengu stuðnings-
menn Zhírínovskíjs lítið fylgi og
bendir flest til, að Valkosturinn
verði eftir allt saman stærstur
flokka á nýja þinginu, dú-
munni. Zhírínovskíj segist
stefna að forsetaembættinu í
Rússlandi en yfírlýsingar hans
fyrir og eftir kosningar hafa
vakið ugg og ótta í nágranna-
ríkjunum og víðar um heim.
Umbótasinnar hafa hvatt til
breiðfylkingar gegn fasistum og
Borís Jeltsín forseti ætlar að
halda umbótasteftiunni áfram
en gera einhverjar breytingar á
stjóm. Bandaríkjastjóm hefur
ítrekað stuðning sinn við Jeltsín
og segir, að fylgið við Zhír-
ínovskíj verði að skoða í ljósi
þrenginga Rússa nú um stundir.
Hæstu miskabætur
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi á þriðjudag bónda á
Suðurlandi og Vátryggingafé-
lag íslands til að greiða 19 ára
stúlku 8,7 miiljónir króna með
vöxtum frá 1. september 1988
í skaða- og miskabætur vegna
vinnuslyss sem stúlkan varð
fyrir í júlí 1987. í dóminum er
örorkutjón stúlkunnar metið á
6.250 þúsund krónur en miska-
bætur 2,5 milljónir sem era
hæstu miskabætur sem dæmdar
hafa verið fyrir líkamstjón í ís-
lensku dómsmáli. VÍS hefur
ákveðið að áfrýja til Hæstarétt-
ar.
Foreldragreiðslur
BORGARSTJÓRN hefur sam-
þykkt greiðslur til foreldra
bama á aldrinum tveggja og
hálfs árs til fjögurra og hálfs
árs. Greiðslur miðast við 1. jan-
úar 1994 og ná eingöngu til
þeirra foreldra sem sannanlega
nýta ekki leikskólaþjónustu á
vegum borgarinnar eða aðra
dagvistarþjónustu styrkta af
borginni. Minnihlutinn í borgar-
stjóm telur að með þessu sé
Sjálfstæðisflokkurinn að svíkja
kosningaloforð, greiðslumar
hafí átt að vera mun hærri þeg-
ar þeim var lofað fyrir síðustu
kosningar.
Ríkið tapar prófmáli
FÉLAG vatnsvirkja hf. var á
miðvikudag í Héraðsdómi
Reykjaness sýknað af öllum
kröfum íslenska ríkisins í próf-
máli sem varðar það hvort ríkis-
sjóður hafí rétt til að kreíjast
skattgreiðslna af 900 milljóna
króna útborgun hlutaijár til
hluthafa í Sameinuðum verk-
tökum í janúar 1992. Ríkið mun
áfrýja dómi Héraðsdóms
Reykjaness til Hæstaréttar.
GATT-samningi fagnað
SAMNINGAR tókust um nýjan
GATT-samning í síðustu viku
eftir að Bandaríkjastjóm og
Evrópubandalagið settu niður
deilur sínar og settu til hliðar
sum ágreiningsmál. Hefur þess-
um tíðindum verið fagnað um
víða veröld enda er búist við,
að þegar fram í sækir muni hið
aukna frelsi og um 30% almenn
tollalækkun, sem leiðir af samn-
ingnum, auka heimsviðskiptin
um allt að 300 milljarða dollara
á ári. Mun það hleypa nýju lífí
í efnahagslíf heimsbyggðarinn-
ar og binda enda á samdrátt
síðustu ára. Það era einkum
bændur víða, sem era mótfalln-
ir samningunum, en samkvæmt
þeim verða lokaðir innanlands-
markaðir margra ríkja opnaðir
í fyrsta sinn.
Von um frið á N-íriandi
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Albert Reynolds,
forsætisráðherra írlands, hafa
lagt fram áætlun um frið á Norð-
ur-írlandi og eru bundnar miklar
vonir við, að hún nái fram að
ganga. Ér þar hvatt til, að
hryðjuverkamenn IRA, írska lýð-
veldishersins, leggi niður vopn
og gangi til viðræðna um frið
og einnig er lýst yfír, að Bretar
muni fallast á, að Norður-írland
sameinist írlandi, verði það sam-
þykkt meðal meirihluta mótmæl-
enda. IRA hefur enn ekki svarað
tilboðinu en hermt er, að mikill
ágreiningur sé um það innan
Sinn Fein, stjómmálaarms IRA.
Þá er afstaða öfgamanna í röðum
mótmælenda einnig óljós ennþá.
Zhírínovskij
Reuter
Jólasögur í Hvíta húsinu
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, bauð fjölda bama
til sín í Hvíta húsið sl. föstudag þar sem hann las
fyrir þau ljóð og sögur, sem tengjast jólunum, mestu
hátíð kristinna manna. Kom hann sér fyrir í raggustól
fyrir framan arininn en að lestrinum loknum var böm-
unum boðið upp á ýmsar góðgerðir. Vora bömin um
140 talsins og sum frá ijölskyldum, sem ekki eiga sér
neinn samastað vísan.
Vafasöm víðskipti þýskra sjúkrahúsa og lyfjaframleiðenda
Líffæri úr látnum sjúkling-
um fjarlægð við krufningu og
seld án vitundar aðstandenda
Stuttgart. Frá Bergljótu Friðriksdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
FREGNIN um leynilega sölu þýskra sjúkrahúsa á líffærum
og líkamshlutum látinna sjúklinga til lyfjaframleiðenda hefur
valdið miklu umtali hér í Þýskalandi og vakið áleitnar spurn-
ingar um siðferði innan læknastéttarinnar. Komið hefur í ljós
að á síðustu 25 árum hefur farið fram umfangsmikil sala á
líffærum á sjúkrahúsum landsins og þykir með ólíkindum að
takast skyldi að halda viðskiptunum leyndum svo lengi. Heil-
brigðisráðherra Þýskalands, Horst Seehofer, hefur gagnrýnt
athæfið harðlega og hyggst grípa til slqótra aðgerða, sVo
unnt verði að koma í veg fyrir frekari verslun af svo vafa-
sömu tagi.
Líkast til hefðu líffæraviðskipt-
in haldið áfram að blómstra um
ókomin ár, ef starfsmanni einum
við krafningardeild ríkisspítalans
í Kassel hefði ekki verið nóg boðið
og hann ákveðið að leysa frá skjóð-
unni. Honum hefur nú verið vikið
frá störfum fyrir að „gaspra við
blaðamenn" í stað þess að skýra
yfirmanni sínum frá „vitneskju
sinni". Samkvæmt heimildum
fréttablaðsins Spiegel, hefur téð-
um yfirlækni krafningardeildar
sjúkrahússins í Kassel, sem og
starfsbræðram hans við hinar
ýmsu sjúkrastofnanir landsins sem
einnig eiga hlut að máli, þó frá
upphafí verið fullkunnugt um það
sem farið hefur fram innan veggja
spítalanna.
Leynileg viðskipti
Um árabil hafa líffæri látinna
sjúklinga verið fjariægð við lík-
skoðun og þau seld í stóram stíl
til lyfjafyrirtækja víðs vegar um
Þýskaland, sem hafa notað þau til
framleiðslu á lyíjum. Jafnframt
hafa líffæri verið send til rann-
sóknarstofnana og sömuleiðis hafa
þau verið notuð við kennslu í lækn-
isfræði við háskóla landsins. Mikil
leynd hefur hvílt yfír viðskiptunum
og í langflestum tilfellum hafa þau
farið fram án samþykkis eða vitn-
eskju aðstandenda.
Lyfjaframleiðendur hafa greitt
misjaftilega mikið fyrir líffærin og
hefur verðlagið ráðist af notagildi
þeirra. Þannig var mannsheili seld-
ur á 170 íslenskrar krónur á með-
an verðið á heilahimnu fór upp í
1.300 krónur. Önnur líffæri og lík-
amshlutar sem mikil ásókn hefur
verið í era bein, einkum útlima,
og húð. Þá mun það hafa færst
mjög í vðxt hin síðari ár að fjar-
læga augu við krafningu og koma
fyrir gerviaugum í staðinn. Ágóð-
inn af líffærasölunni hefur verið
umtalsverður og virðist hann
ýmist hafa rannið til sjúkrastofn-
ana eða lent beint í vasa starfs-
manna.
Hér í Þýskalandi ná engin lög
yfír athæfí af slíku tagi og á með-
an er erfítt að draga viðkomandi
aðila fyrir dómstóla. Enda þótt
ríkissaksóknaraembættið í Kassel
hafí nú hrandið af stað rannsókn
á því sem átt hefur sér stað innan
krafningardeildar sjúkrahússins
þar í borg, er talið harla ólíklegt
að til ákæra komi gegn starfs-
mönnum. Á þessu hyggst heil-
brigðisráðherra, Horst Seehofer,
ráða bót og sjá til þess að komið
verði á lögum eins fljótt og auðið
er, sem banna afdráttarlaust leyni-
legt viðskiptabrask með líffæri úr
látnu fólki.
Aukin innsýn
í krabbamein
London. Reuter.
VÍSINDAMENN í Bandaríkjunum hafa skýrt frá rannsóknum,
sem geta aukið verulega skilning manna á krabbameini og á
ástæðum þess, að heilbrigðar frumur breytast í krabbameinsfrum-
ur.
Krabbamein myndast þegar
framuvöxturinn verður stjórnlaus
en við rannsóknir kom í ljós, að
ákveðið eggjahvítuefni eða prótein,
sem ekki var vitað, að kæmi neitt
við sögu, gegnir miklu hlutverki
við að stjóma frumuvextinum.
David. Beach og samstarfsmenn
hans við Howard Hughes-lækna-
stofnunina segja, að próteinið, sem
kallast p21, haldi aftur af frumu-
vexti nema þegar hann eigi við.
Það eru annars efni, sem kallast
CDK, sem stuðla að vextinum.
„Ef p21 vantar, fara CDK-efnin
sínu fram stjómlaust og afleiðingin
er krabbamein," segir í grein, sem
vísindamennimir skrifuðu fyrir
tímaritið Nature. „Of mikið af p21
kemur á hinn bóginn í veg fyrir,
að frumunum íjölgi."
Nokkrir kunnir vísindamenn
láta í ljós það álit á uppgötvun-
inni, að hún kunni að skipta miklu
máli fyrir frekari rannsóknir og
krabbameinsmeðferð í framtíðinni.