Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 29

Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 + MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í iausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Hvers konar stjorn- arhættir eru þetta? Aundanfömum vikum hafa hrannast upp efnislegar röksemdir fyrir því, að lækkun hins svonefnda matarskatts nái ekki þeim markmiðum, sem að var stefnt með gerð kjarasamn- inganna sl. vor. Þótt staðreynd- imar blasi við virðist sem ríkis- stjómin og Alþýðusambandið hafi tekið höndum saman um að hlusta ekki á þau augljósu rök, sem færð hafa verið fram fyrir því, að skynsamlegra sé að nota þessa peninga með öðram hætti. Hvað veldur? Þegar kjarasamningamir vora gerðir sl. vor með því að lofa nokkram milljörðum úr ríkissjóði, sem ekki vora til og ekki era til, lýsti Morgunblaðið andstöðu við þá samningsgerð. En þar fyrir utan hefur verið sýnt fram á með rökum, sem ekki hafa verið hrak- in, að sú aðferð að nota þessa fjármuni, sem einfaldlega auka ríkissjóðshallann og skapa hættu á vaxtahækkun, til þess að lækka hinn svonefnda matarskatt, er ekki bezta aðferðin til þess að bæta hag þeirra, sem verst era staddir. Innan Stjómarráðsins hafa verið teknar saman greinar- gerðir um þetta mál, sem ráðherr- ar hafa væntanlega undir hönd- um. í þeim kemur m.a. fram, að lækkun virðisaukaskatts á mat- vælum skilar tekjuhærri fjöl- skyldum meira í krónum talið en tekjulægri íjölskyldum. Er það sérstakt markmið Alþýðusam- bands íslands? Er ASÍ að verða málsvari hinna tekjuhærri í þjóð- félaginu eftir að hafa áratugum saman verið helzti málsvari hinna tekjulægri? í þeim útreikningum, sem hér er vísað til og forystu- mönnum ASÍ er áreiðanlega full- kunnugt um, kemur fram, að ein- ungis fjórðungur eða þriðjungur af þeim ijármunum, sem varið verður til þess að lækka matar- skattinn, gengur til fjölskyldna með minna en meðaltekjur en tveir þriðju eða jafnvel þrír fjórðu til tekjuhærri íjölskyldna, fram- leiðenda matvöra, milliliða og jafnvel skattsvikara. Ríkisstjómin sjálf bauð verka- lýðshreyfingunni upp á valkost fyrir nokkram vikum, sem m.a. fólst í því að hækka skattleysis- mörk og lækka tekjuskatt. í fyrr- nefndum greinargerðum er sýnt fram á, að beinar ij'ölskyldubætur eða almenn lækkun virðisauka- rg I FALLEGRI Oö»kveðju til Matthíasar Jochums- sonar á áttatíu ára afmæli hans, 11. nóv. 1915, nefnir Jó- hann Siguijónsson sérstaklega Skugga-Svein og kvæðið Sorg frá 1873, en það Ijallar um konumissi sr. Matthías- ar. í kveðjunni segir Jóhann að kvæðið sé ógleymanlegt, einsog hann kemst að orði. I lok kvæðis- ins er myndmál sem gæti minnt á Völuspá eða niðurlagið í Sorg Jóhanns um hrynjandi sólir, er stóð ég eftir með blóðuga und og sólin var sigin að straumi! Kvæðin era aðvísu gjöróh'k enda er sr. Matthías að fjalla um dauða konu sinnar en Jóhann Sig- uijónsson yrkir útúr opinberan Jóhannesar og sér inní óræða framtíð einsog völvan forðum daga en þó má vera að Sorg sr. Matthíasar sé einskonar kveikja að kvæði Jóhanns; án þess þó að neitt í kvæði sr. Matthíasar bendi sérstaklega til þess. Hitt er vlst að sr. Matthías upplifír andlát konu sinnar í kvæðinu sem eins- konar endalok, svo harmþrangin sem þau era. En kvæðið er sprott- ið úr reynslu hans sjálfs, án skír- skotunar í önnur verk, og er því ekki eins „bókmenntalegt" og Sorg Jóhanns Siguijónssonar sem er einskonar útlegging á biblíuleg- um spádómi og viðbrögð við til- vistarkreppu í skáldskap þessara rq JÓHANN SIGURJÓNS- Oí/*son sætti sig ekki við HELGI spjall dauðann. Honum stóð raunar ógn af honum, að því er Gunnar Gunnarsson segir í ritgerð sinni um skáldið, Einn sit ég yfir drykkju. „Jó- hann Siguijónsson gat í raun og vera ekki hugsað sér að deyja. Dauðinn samrýmdist á engan hátt lífinu, eins og hann skynjaði það og þráði...“ Og hann lagði til at- lögu við dauðann í verkum sínum. Einsog að sínu leyti í Sorg. Þar er reynt að koma beizli á myrkr- ið; yfirvinna dauðann einsog í Galdra-Lofti. í svartnætti eilífðar- innar höngum við í faxi myrkurs- ins eða sofnum einsogtunglsgeisl- ar á bylgjum hafsins. Þangaðtil nýtt líf fæðist af sólum sem hníga einsog regndropar í myrkrinu. Og ný sorg — því annars væri kvæð- ið ekki eftir Jóhann Siguijónsson. En „í innsta eðli sínu afneitaði hann (J.S.) dauðanum og öllum hans verkum," segir Gunnar Gunnarsson ennfremur. Hann vill þvertámóti fljúga einsog hunangs- gjöm fiðrildi, ekki milli blómanna eingöngu, heldur stjömu af stjömu og sjúga eitt andartak líf hverrar einstakrar einsog hann kemst sjálfur að orði f Gröf mín og vagga sem er eðlisskylt Sorg ef að er gætt. Þessi líking er teng- ing við myndlíkingarmál Sorgar og þá ekkisíður þegar Jóhann tal- ar um hvassar og blóðugar rán- dýrstennur jarðlífsins. Sorg er þannig engin tilviljun. Kvæðið er viðbrögð við umhverfi, vaxið úr viðkvæmri kviku og ofnæmi fyrir dauðanum. Það eru eðlileg við- skatts mundi skila sér betur til tekjujöfnunar og jafnframt vera ódýrari fyrir ríkissjóð. Þrátt fyrir þessar röksemdir, sem hvorki for- seti Alþýðusambandsins né ráð- herrar hafa hrakið, hirða þeir, sem ferðinni ráða, ekkert um þær en halda fast við þá leið, sem er bæði óhagkvæmust fyrir ríkissjóð og kemur verst út fyrir lægstlaun- aða fólkið! Hvernig á að skilja svona málsmeðferð? Til viðbótar þessum röksemd- um hafa tveir fulltrúar kaup- manna.tekið höndum saman um að leiða bæði verkalýðsforystu, ráðherram og þingmönnum fyrir sjónir, að lækkun matarskattsins mundi leiða til stórfelldra skatt- svika og valda því, að þeir kaup- menn, sem telja rétt fram, eiga erfiðara um vik í samkeppni við aðra. Að auki er ljóst, að breyting- in krefst veralegra íjárfestinga fyrir þá kaupmenn, sem vilja hafa allt á hreinu en hafa ekki frekar en aðrir í þessu þjóðfélagi um þessar mundir mikið svigrúm til slíkra fjárfestinga. Það er alveg ljóst, að innan stjómarflokkanna er engin raun- veraleg samstaða um að fara þessa vitlausu leið. í samtali við Morgunblaðið fyrir nokkram dög- um sagði Vilhjálmur Egilsson, varaformaður efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis, að hann teldi aðrar leiðir betri en væri bundinn af samþykkt ríkisstjóm- arinnar. í grein í Morgunblaðinu í gær sagði Sighvatur Björgvins- son, viðskipta- og iðnaðarráð- herra m.a.; „Nær væri að allir tækju höndum saman um frekari vaxtalækkanir en að krefjast lækkunar virðisaukaskatts á mat- væli, sem bæði skilar lægri ijár- hæð í vasa lágtekjufólks en lækk- un vaxta auk þess sem tveggja þrepa virðisaukaskattur er nánast ávísun á aukin skattsvik." Þótt hér hafi einungis verið vitnað til eins þingmanns Sjálf- stæðisflokks og eins ráðherra Alþýðuflokks er alveg ljóst, að innan stjómarflokkanna er víð- tæk andstaða við þessa leið. Samt verður hún farin. Þótt öll efnisleg rök hnígi í aðra átt skal hún far- in. Hvers konar stjómarhættir era þetta? brögð skálds sem er „ástfanginn af hverri líðandi stund“ einsog Gunnar Gunnarsson segir. En í andblæ dauðans er ilmur af nýrri jörð, svoað skírskotað sé í niðurlag Landsins með fiöllin hvítu. Og guð á næstu grösum, þráttfyrir allt: „Ég sá halastjöm- una loga á myrkum himninum - var það guð, sem sveiflaði voldugu blysi sínu í máttvana reiði yfir gröf ástvinu sinnar, og þeytti því úr hendi sér út í kaldan, auðan geiminn?" Og annars staðar segir Jóhann sem svar við spuming- unni, Hversvegna skrifa rithöf- undamin „Þegar ég var bam lof- aði ég drottni því ef hann vildi gefa mér náðargáfu skáldsins, skyldi ég nota hana til að vegsama hann og verk hans. Þá var himinn hans svo undarlega nærri, og ekki að efa, að allt sem hann gerði, væri gott. Seinna varð himingeim- urinn stærri og kaldari og viðburð- ir lífsins torskildir.En hvað sem þessu líður, - dýpsta þráin í öllum skáldskap mínum er hin sama enn og þegar ég var bam - að móta í syngjandi málm tungunnar eitt- hvað af streymandi eilífð lífsins, í einfaldri og ef hægt er fegurri myndum.“ Þetta er skrifað 1919 og birt í Morgunblaðinu. Og í brot- inu Ég elska lífíð kemst skáldið svo að orði, Hví hrópa ég á ljós í myrkri næturinnar, eins og stjömumar hefði heym? M SIGUR ÖFGAFULLRA þjóðemissinna í þingkosn- ingunum sem fram fóra f Rússlandi á sunnudag hefur kallað fram sterk viðbrögð jafnt á Vestur- löndum sem og meðal nágranna Rússa. Að vísu hefur staðan batnað eftir því, sem liðið hefur á vikuna og staða umbótasinna er sterkari á þingi en útlit var fyrir í fyrstu. Engu að síður má ætla að einn áhrifamesti maðurinn á hinu nýja þingi landsins verði Vladímír V. Zhírínovskíj, sem í krafti lýðskrams og öfgafullra ummæla leiddi flokk rúss- neskra þjóðemissinna, Fijálslynda lýð- ræðisflokkinn, til sigurs þegar tekið er tillit til fylgis á landsvísu. Zhírínovskíj hefur látið frá sér fara herskáar yfirlýs- ingar í þá vera að hann vilji treysta rúss- nesk yfírráð yfir fyrram lýðveldum Sovét- ríkjanna og hefur í því viðfangi meðal annars haft í hótunum við Eystrasaltsrík- in þijú. Margir óttast að nú kunni stjóm- málaþróunin í Rússlandi að breytast sem spillt geti þíðunni sem ríkt hefur í sam- skiptum austurs og vesturs frá því að Berlínarmúrinn féll og Sovétríkin liðu undir lok. Slík breyting hefði augljóslega ekki einungis neikvæð áhrif í Evrópu; áhrifa slíkra umskipta myndi gæta um heim allan. Mikilvægt er því að þess sé freistað að greina ástæður þess að rúss- neskir þjóðemisöfgamenn fengu svo mik- ið fylgi í þingkosningunum. Það sem þyngst vegur og hér skal gert fyrst að umtalsefni er hið hrikalega ástand sem ríkir í rússneskum efnahags- málum. Líkt og margoft hefur verið bent á í forystugreinum og í fréttaskýringum í Morgunblaðinu á undanfömum misser- um er algjört neyðarástand viðvarandi á þessu sviði í Rússlandi og flestum þeim ríkjum sem áður heyrðu Sovétríkjunum til. Rússneskur almenningur hefur orðið að þola mikla lífskjaraskerðingu, fram- leiðsluhran hefur orðið í landinu, óðaverð- bólga geisar, alþýða manna stendur vam- arlaus hjá og horfir á skipulagða glæpa- hópa vaða uppi, gríðarleg tilfærsla á fjár- magni hefur átt sér stað, afkomuöryggið er ekkert, upp hefur sprottið ný stétt rússneskra fjárglæframanna á sama tíma og gamla forréttindastéttin hefur nýtt sér sambönd sín og aðstöðu í auðgunar- skyni. Almenningur hefur orðið að bera byrðar efnahagsþrenginga en algjör upp- lausn hefur ríkt á flestum sviðum samfé- lagsins. í öðra lagi hefur einnig ríkt upplausnar- ástand í rússneskum stjómmálum sem orðið hefur til þess að þeir era margir sem enga trú hafa á stjómmálamönnum og misbýður eilíf valdabarátta þeirra. Tæpur helmingur þeirra sem var á kjör- skrá ákvað að sitja heima í kosningunum og þessi andúð á sljómmálum og mönnum þeim sem við þau fást skýrir trúlega þá staðreynd að ungir Igósendur ákváðu að hundsa kosningamar. Þetta atriði er út af fyrir sig mikið áhyggjuefni og gefur ekki tilefni til bjartsýni um framtíð lýð- ræðis í Rússlandi. í þriðja lagi má benda á að þeir sem almennt hafa stutt þær breytingar sem Borís N. Jeltsín forseti hefúr barist fyrir í rússnesku samfélagi báru ekki gæfu til að standa saman f kosningunum. Hið sama gerðist í Póllandi fyrr á þessu ári en Pólveijar vora í fararbroddi þjóða Mið- og Austur-Evrópu er þær hrundu af sér oki kommúnismans. Afleiðingin varð sú að vinstri flokkar unnu sigur í þingkosn- ingunum þar í landi. „Umbótaflokkamir“ svonefndu, þ.e. þeir flokkar sem innleiða vilja raunverulegt lýðræði og frjálst mark- aðshagkerfi í Rússlandi eyddu dýrmætri orku í karp um smærri ágreiningsefni. Valdasýki margra áhrifamanna í flokkum þessum reyndist vega þyngra en viljinn til framfara og viljinn til að standa saman gegn öfgaöflunum, sem reynst geta raun- veruleg ógnun við friðinn í landinu. Tengt þessum atriðum er síðan hið fjórða sem lýtur að málflutningi forystu- manna flokkanna í kosningabaráttunni. Vladímír Zhírínovskíj lagði ekki fram heildstæða stefnuskrá í kosningunum. Málflutningur hans einkenndist af innan- tómum slagorðum og loforðum sem beint var að öllum helstu hagsmunahópum í landinu. Margir Rússar vora í örvæntingu sinni og allsleysi tilbúnir til að greiða þessum herskáa þjóðemissinna atkvæði sitt. Helsta slagorð hans um Rússland sameinað og ódeilanlegt, sem rekja má til keisaratímans, höfðaði til margra, sem ekki þekkja annað og fá ekki annað skil- ið en meinta yfirburði rússneskrar tungu og menningar. Þeir stjómmálaleiðtogar sem stutt hafa Jéltsín forseta náðu ekki til almennings með sama hætti og er það raunar ekki að undra. Um flesta þeirra gildir að þeir hafa aldrei deilt kjöram með alþýðu manna í Rússlandi. Zhír- ínovskíj gat á hinn bóginn haldið því fram að lausnir þær sem menn þessir hefðu fram að færa væra rannar undan riljum útlendinga og „árangurinn“ blasti við og væri öllum kunnur. Efnahags- þrengingar ogpólitískt minnisleysi FYLGI KOMMUN- ista í þingkosning- unum hefur vakið athygli og fullyrt hefur verið að flokkurinn hafí ásamt þjóðemis- öfgamönnum unn- ið sigur í þingkosningunum. Þetta er of- túlkun. Flokkurinn er að sönnu þriðji stærsti flokkur landsins með um 14% fylgi en mikilvægt er að höfð sé í huga sjálf formgerð sovét-samfélagsins. Þegar litið er til þess að flokkurinn hafði alræðis- vald í sovésku samfélagi í rúm 70 ár og upp reis fjölmenn stétt smákónga, forrétt- indaaðals og ríkisskriffinna kemur þetta fylgi ekki á óvart. Nærtækt er að álykta sem svo að fiokkur Zhírínovskíjs hafí fengið hluta þess fylgis sem ella hefði fallið kommúnistum í skaut. Það er alkunna að efnahagsástand og hagsmunamat ræður mestu um hvernig almenningur ákveður að veija atkvæði sínu í kosningum. Það sem einkennir á hinn bóginn stjómmálaþróunina í mörg- um ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og Sovétríkjunum sálugu er pólitískt minnis- leysi, sem eingöngu er unnt að rekja til þess hrikalega efnahagsástands sem víða ríkir og skilningsskorts á grandvallarhug- myndum lýðræðisins. Áður var vikið að þróuninni í Póllandi þó svo efnahags- og stjómmálaástandinu þar verði ekki jafnað við það sem ríkir í Rússlandi. í nóvember 1992 vann flokkur fyrram kommúnista- leiðtoga sigur f kosningum í Litháen og í Rúmeníu halda fyrram samstarfsmenn Nicolae Ceausescu enn um valdataumana. í fyrstu frjálsu kosningunum sem fram fóra þar í landi í maímánuði 1990 unnu skoðanabræður einræðisherrans fyrrver- andi yfirburðasigur á landsbyggðinni. Þar líkt og víðar kom í ljós að stuðningur við vestrænar hugmjmdir um lýðræði og markaðsbúskap var eingöngu bundinn við borgir og stærri bæi. Víða hefur hræðsluáróðurinn einn dugað. Þegar Berlínarmúrinn féll haustið 1989 reis bylgja bjartsýni jafnt í Vestur- sem Austur-Evrópu. Margir, stjómmálamenn jaftit sem almenningur, fylltust bemskri hrifningu, sem oft lýsti sér í draumóra- kenndum áætlunum um hvemig færa mætti kommúnistaríkin fyrrverandi í hóg þróaðra ríkja á undraskömmum tíma. í vestri var lítt hugað að misjöfnum aðstæð- um í ríkjum þeim sem jafnan voru spyrt saman og nefnd „leppríki Sovétmanna“. Þegar síðan Sovétríkin leystust upp komu fram á sjónarsviðið milljónaþjóðir. Stór og fjölmenn ríki, sem samanstóðu af hin- um ólikustu þjóðum og þjóðarbrotum sem ógnarstjómin hafði barið til hlýðni, litu dagsins ljós. Hatrið og þjóðremban lét REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 18. desember fljótt á sér kræla. Með sigri þjóðernisöfga- manna í Rússlandi nú er þessi bylgja bjartsýni hnigin og vænta má þess að meira raunsæi einkenni framvegis mat manna á ástandinu í ríkjum þessum. Hrun eða fjöldaat- vinnuleysi FRAMTÍÐ RÚSS- lands veltur nú á því að takist að skapa samstöðu á þingi landsins þannig að unnt verði að grípa til neyðarráðstafana til að afstýra algjöru hrani efnahagslífsins. Ráðamenn þar eystra standa frammi fyr- ir tveimur valkostum og þeir era báðir slæmir. Mikilvægasta verkefnið er að stöðva seðlaprentunina til að vinna bug á óðaverðbólgu. Náist samstaða um svo róttækar neyðaraðgerðir mun það hafa í för með sér flöldaatvinnuleysi og vaxandi ólgu. Verði hins vegar ekkert að gert mun efnahagur landsins hrynja, erlendir fjárfestar yfirgefa landið og Vestur- landabúar hætta efnahagsaðstoð við Rússa. Reynist þingið, samsetningar sinn- ar vegna, óstarfhæft er hætta á ferðum. Einungis með víðtækri samvinnu forseta Rússlands og umbótaaflanna sem fulltrúa eiga á þingi verður unnt að koma í veg fyrir algjöran glundroða í Rússlandi. Beri þeir menn sem ríkinu stjóma ekki gæfu til þessa verður innanlandsfriðnum ógnað, fylgi manna á borð við Vladímír Zhír- ínovskíj mun vaxa enn frekar og gild ástæða verður þá til þess að hafa áhyggj- ur af nánast óskoruðu tilskipanavaldi sem forseta Rússlands er tryggt samkvæmt stjómarskránni nýju. í þessu samhengi skal á það minnt að Zhírínovskíj studdi stjómarskrá þá sem samþykkt var í þjóð- aratkvæðagreiðslunni um síðustu helgi. Greinilegt er að hann leggur nú áherslu á að koma fram sem það afl sem tryggt getur stöðugleika f Rússlandi. Styrkur helsta stuðningsflokks Jeltsíns á þingi vekur vonir en þróunin getur orðið sú áð Zhírínovskíj komist í oddaaðstöðu. Sú óvissa sem ríkir um framvindu mála í Rússlandi hefur vitanlega áhrif utan landamæra þessa víðfeðma ríkis. Sigur Zhírínovskíjs og þær glórulausu yfírlýsingar sem hann lét frá sér fara í kosningabaráttunni hafa þegar orðið til þess að skjóta ráðamönnum í nágranna- ríkjunum skelk í bringu. Óvissa og óstöð- ugleiki í Rússlandi getur orðið til þess að raska þeim viðkvæma stöðugleika sem þó hefur verið ríkjandi í Austur-Evrópu. Búast má við að Mið-Evrópuríkin þijú, Tékkneska lýðveldið, Pólland og Öng- veijaland, sem hvað ákafast hafa þrýst á um aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO), muni í vaxandi mæli vísa til óstöðugleika og óvissu í austri. Kröfur Úkraínumanna, rúmlega 50 milljóna manna ríkis sem gleymst hefur á Vestur- löndum, um öryggistryggingar munu að öllum líkindum gerast háværari. Eystra- saltsríkin munu gera kröfu um að lýðræð- isríkin í vestri hviki í engu frá siðferðileg- um skuldbindingum sínum. Mikilvægt er að aðildarríki Atlants- hafsbandalagsins bregðist við þeirri óvissu sem nú ríkir austur í Rússlandi með samræmdum og trúverðugum hætti. Samstaða ríkjanna hefur á undanfomum árum reynst það afl sem tryggt hefur stöðugleika í Evrópu. Nú þegar óvissa hefúr á ný skapast í álfunni austanverðri blasir enn og aftur við hve mikilvægt er að viðhalda þessu öryggissamstarfi lýð- ræðisríkjanna. Yfirvegun og raunsæi þarf að móta allar áætlanir um niðurskurð á sviði vamarmála. Gildir það jafnt um Evrópuríkin sem vamarskuldbindingar Bandaríkjamanna í álfunni. Ástæða er til að vona að framrás Zhír- ínovskíjs og hinna óþekktu undirsáta hans verði til þess að aukið raunsæi einkenni mat og viðbrögð manna á Vesturlöndum við þróun mála í Austur-Evrópu og fyrram lýðveldum Sovétríkjanna. Þótt hátimbruð HHmHH Morgunblaðið/RAX hagfræðilíkön kunni að liggja fyrir er það nánast skelfilegur misskilningur að ætla að stöðuleiki og þokkaleg hagsæld muni ríkja í Rússlandi og fyrrum sovétlýðveld- um innan fárra ára. Má í því sambandi minna á ummæli Helmut Schmidts, fyrr- um kanslara Vestur-Þýzkalands, er sagði á fundi hér í haust, að það mundi taka fimmtíu ár að byggja Rússland upp. Það lýsir litlum skilningi á rússneskri þjóðar- sál að ætla að ráðamenn í Rússlandi, hvar í flokki sem þeir kunna að standa, leiði hjá sér hagsmuni rússneskra minni- hlutahópa í fyrram sovétlýðveldum. Af- skiptin munu á hinn bóginn mótast af tvennu: efnahags- og öryggishagsmun- um, sem sagan hefur mótað, og pólitísk- um hagsmunum valdhafa í Rússlandi á hveijum tíma. Þótt mikilvæg og lofsverð skref hafi að sönnu verið stigin blasir við að því fer ijarri að lýðræðið hafi náð að festa sig í sessi í Rússlandi. Á hinn bóginn ber ríkjum Vesturlanda að bila hvergi í stuðningi sínum við lýð- ræðisþróunina og við þau öfl sem leiða vilja rússnesku þjóðina út úr myrkviði alláleysis og öfga. Þjóðhetja úr þorskastríði í APRÍLMÁNUÐI síðastliðnum vora 45 ár liðin frá setn- ingu laga um vís- indalega vemdun fiskimiða landgrunnsins. Útfærslur fisk- veiðilandhelginnar voru byggðar á þess- um lögum: 4 mflur 1952, 12 mflur 1958, 50 mílur 1972 og 200 mflur 1975. Land- grunnslögin og það sam vannst á grund- velli þeirra hafði og áhrif á þróun hafrétt- armála í umheiminum. Útfærslur fiskveiðilandhelginnar leiddu til þorskastríða við Breta, sem era merki- legur kapítuli í íslands sögu. Sá kapítuli geymir ýmsar afrekssögur. Eitt nafn er þó öðram eftirminnilegra af þessum vett- vangi. Það er nafn Eiríks Kristóferssonar skipherra, sem enn lifir í hárri elli, 101 árs gamall, fæddur að Brekkuvelli á Barðaströnd 5. ágúst árið 1892. Um Eirík skipherra hafa verið skrifað- ar þijár bækur. Sú fyrsta af Ingólfi Krist- jánssyni, önnur af Gunnari M. Magnúss og sú þriðja, sem er nýkomin út, Eldhress í heila öld, af Gylfa Gröndal. Hún hefur að geyma frásagnir Eiríks skipherra af „ævintýram sínum og atburðum þessa heims og annars", eins og segir á bók- arkápu. I eftirmála segir Gylfí Gröndal; „Eiríkur Kristófersson er tvímælalaust í hópi merkustu sægarpa á þessari öld. Fjórtán vetra gerðist hann skútukarl, nam í Stýrimannaskólanum, var farmaður um skeið, en starfaði síðan hjá Landhelg- isgæzlunni frá upphafi. í þorskastríðinu fyrsta varð hann þjóðhetja vegna vask- legrar framgöngu sinnar og hygginda í viðureign við brezka sjóherinn. Fyrir ævistarf sitt hefur honum að verðleikum hlotnast margvíslegur heiður." Þessi nýja bók um Eirík skipherra Kristófersson sker sig að því leyti frá öðram bókum sem um hann fjalla, að hún geymir persónulegan frásagnarhátt hans sjálfs, „einstæða frásagnargáfu sem senn heyrir fortíðinni til“. Það eykur og á gildi bókarinnar að sá, sem frá segir, er fædd- ur meðan enn lifa tæp átta ár af 19. öld- inni. Sögumaður hefur lifað meir en hundrað ár af íslands sögu; lifað byltingu í atvinnu-, búsetu- ogþjóðlífsháttum; lifað breytingar frá framstæðu bændasamfé- lagi, sem mótaði þjóðlífið frá landnámstíð fram yfír síðustu aldamót, til þess flókna og ljölþætta tæknisamfélags, er við búum við í dag. Og hann sér þessar breytingar af allt öðram sjónarhóli en fólk sem fætt er á síðari helmingi aldarinnar. Bókin Eldhress íheOa öld er ekki nema að hluta til frásögn úr þorskastríðum. Hún rekur í svipmyndum, forvitnilegum þjóðlífsmyndum, atburðaríka ævi sæ- garps, sem varð þjóðhetja á átakatímum. Frásagnir Eiríks skipherra, sem era af fiölbreytilegum toga og spanna bæði and- leg og veraldleg efni, era í senn forvitni- legar, skemmtilegar og þjóðlegar. í bókar- lok segir þessi meir en hundrað ára þjóð- hetja: „Ég óttast ekki dauðann; þvert á móti hlakka ég til að fá að fara. Fyrr eða síðar kemur röðin að mér. Þá lýkur hérvistardögum mínum. Og annað líf tekur við.“ „Einungis með víðtækri sam- vinnu forseta Rússlands og um- bótaaflanna sem fulltrúa eiga á þingi verður unnt að koma í veg fyr- ir algjöran glund- roða í Rússlandi.“ jt\

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.