Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
Dauf bók um
merkan mann
Bókmenntir
Jón Stefánsson
Gils Guðmundsson: Þegar hug-
sjónir rætast. Ævisaga Odds
Olafssonar. ísafold, 1993.
Ég veit ekki hversu margar
ævisögur og sjálfsævisögur hafa
komið ót á síðustu árum. Veit
bara að þær eru ansi margar og
undir hælinn lagt, hvort ævi við-
komandi einstaklings sé það mark-
verð að hún standi undir heilli
bók. En það er hins vegar morgun-
ljóst að ævi Odds Ólafssonar
(1909-1990) fyrrverandi fram-
kvæmdistjóra og yfírlæknis á Rey-
kjalundi fer létt með að gera það.
Fáir hafa unnið merkara og meira
starf í þágu berklaveikra og ör-
yrkja en Oddur. Svo er reyndar
annað mál hvort það teljist hyggi-
legt að skrifa ævisöguna rúmum
þremur árum eftir lát hans. Kost-
urinn er auðvitað sá að ennþá lifa
margir sem muna hann vel og
kunna sögur af honum. En um
leið veigrar fólk sér við að rifja
upp bresti þess sem nýlega er
horfínn af sjónarsviðinu.
Með hæfílegri einföldun má
segja að Gils Guðmundsson hafí
aðgang að þrennskonar heimild-
um; almennum upplýsingum um
ævi Odds; nokkrum persónulegum
og lifandi svipmyndum úr viðtölum
við ættingja, samstarfsmenn og
Odd sjálfan; og loks afmælisritið
sem Gils tók saman vegna 50 ára
afmæli SÍBS. Eðlilegt hefði talist
að flétta þessa þætti saman í eina
samfellda sögu; ævisögu Odds
Ólafssonar. En Gils fer þá leið að
halda heimildum aðskildum og
lætur þær renna sem minnst sam-
an. Það er auðveld leið, en heldur
bragðdauf þykir mér hún vera.
Gils byijar bókina á hefðbund-
inn og traustan hátt: rekur ættir
Odds og segir sögur af forfeðrum.
Það er líka ágætis kafli, þó hann
gæti talist fulllangur; nálægt þijá-
tíu blaðsíður. En svo tekur hin
eiginlega ævisaga við, sem er þó
ekki ævisaga heldur sundurlaus
blanda af viðtölum, almennum
upplýsingum um ævi Odds og
mislíflegum frásögnum af stofnun
og uppbyggingu SÍBS og Reykja-
lundar. Hlutverk Gils sem ævi-
sagnaritara hefði auðvitað verið
það að steypa heimildum saman í
sögu sem í senn segði frá lífs-
hlaupi og lífsstarfi Odds. En ekki
að segja frá fjölskyldulífi hans
annars vegar og ævistarfí hins
vegar eins og um tvo alls óskylda
hluti væri að ræða.
Gils hefur fengið Guðrúnu Guð-
laugsdóttur til að taka viðtöl við
ættingja og samstarfsmenn Odds.
Það fínnast mér svolítið skrýtin
vinnubrögð, því maður hefði hald-
ið að ævisagnaritari myndi kapp-
kosta að taka viðtölin sjálfur og
kynnast þar með manninum betur.
Viðtölin eru auðvitað misjöfn, en
best þótti mér Þengill, sonur Odds,
segja frá. Hann dregur upp mynd
af kátum manni sem „var mikill
tilfinningamaður og hafði gaman
af að skemmta sér“. Eða manni
sem hafði barnslega gaman af
saklausri spennu:
Það var eitt af einkennum hans
við akstur að honum þótti ein-
Jólagjöf námsmannsins íár!
DÚXINN
NÁMSTÆKNINÁMSKEIÐ SEM HITTIR í MARK!
Dúxinn byggir á námskeiði
bandaríska fyrirtækisins
Fast Learning Inc., sem
hefur langa reynslu í náms-
tæknikennslu í bandarískum
framhalds- og háskólum.
Námskeiðið er staðfært af
kennurum Hraðlestrar-
skólans, sem hafa kennt
hraðlestur og námstækni
í 15 ár með góðum árangri.
„Dúxinn er mjög þörfviðbót við
kennslu í námstœkni. Ég mœli sérstaklega með Dúxinum. “ Ólafur
Jónsson, námsráðgjafi í FB.
„Ætti að vera skylda í öllum skólum. Afköstin margfaldast og námið
verður miklu skemmtilegra. “ Nemi í MR.
„Þó ég hafi tekið námstœkni íframhaldsskóla, lœrði ég margt á nám-
skeiði Hraðlestrarskólans. Ég hefumbylt vinnubrögðum mínum og
árangur er miklu betri en áður. “ Nemi í læknisfræði í HÍ.
Inniheldur: Bók, 2 snældur o.fl. Hentar nemum 15 ára og eldri.
Dúxinn fæst í flestum bókaverslunum, en einnig má
panta hann beint hjá okkur. Verð aðeins kr. 2.900.
Sendum frítt í póstkröfu hvert á iand sem er.
Pantið Dúxinn strax í símum 91-642100 og 91-641091.
HRAÐLJESTRARSKÓLINN
Oddur Ólafsson
kennilega gaman að taka hina og
þessa áhættu. Honum fannst
spennandi að keyra án þess að
hafa varadekk. Hann hafði nautn
af því að reyna að komast á milli
staða án þess að taka bensín.
Mikið er um að viðmælendur
minnast á sömu atburði eða ein-
kenni á Oddi. Gils víkur að endur-
tekningunum í eftirmála sínum:
„Þar sem bókin er öðrum þræði
byggð á samtölum við nokkuð
marga einstaklinga, fer naumast
hjá því að stundum gæti endur-
tekninga. Sannast sagna er það
oftar en ekki með ráðnum huga
gert. Það skýrir myndina af Oddi
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Höfundur: Sólveig Traustadótt-
ir.
Myndir: Freydís Kristjánsdóttir.
Hönnun kápu: Næst hf.
Setning og umbrot: ST. Mál og
menning.
Prentverk: G. Ben. prentstofa
hf.
Útgefandi: Mál og menning.
Mig undrar meir og meir, hve
marga snjalla penna við eigum.
Einn af öðrum koma þeir fram og
á mitt borð kannski aldrei fleiri
en nú, fyrir þessi jól. Því er úr
vöndu að ráða, þegar fólk velur
bami ljúfa bók og vonandi lætur
það ekki aðeins „sölulista" leiða
sig til valsins.Til dæmis væri það
sárt, ef þessi bók kæmist ekki í
hendur margra bama. Kemur þar
margt til. Fyrst það, að hún er
frábærlega skrifuð, — af slíkri
leikni að ljóðsins tónn ómar í huga
lesandans, hraði og kímni frásagn-
ar slík, að síða kallar á síðu, þar
til lestri bókar er lokið, — og við
stöndum upp með höfundi með
Gils Guðmundsson
þegar fleiri en einn lýsa því sem
auðkenndi hann.“ En ég spyr;
skýrir það myndina af Oddi þó við
fáum að vita í tvígang að honum
hafí þótt stropuð egg góð, þrígang
að hann hafí axlarbrotnað, ijórum
sinnum að hann hafí ásamt öðmm
stofnað steypistöðina B.M. Vallá
og fímm sinnum að hann hafi þrátt
fýrir miklar annir, sinnt læknis-
verkum fyrir héraðslækni Mosfels-
sveitar sem sat í Reykjavík? Auð-
vitað hljóta ævisögur nýlátins
fólks að vera byggðar öðram þræði
á viðtölum. í þeim segja viðmæl-
endur smásögur af manneskjunni,
lýsa persónu hennar og svo fram-
Ijúfsárar minningar úr Ljúfuvík.
í annan stað það, að efnið höfð-
ar til allra, sem einelti bama hafa
kynnst. Og í þriðja stað er bent á
kærleikann sem allt bætir, breytir
myrkri vetrar í sólstaf sumars.
Sögusviðið er Ljúfavík. Þar er
Magga í umsjá ömmu. Sjö ára
telpa með bögufót. Bömin í þorp-
inu vekja henni tár með bamslegu
tali sínu og Magga á því fáa vini.
Ömmu jú, góða og ljúfa, sem elsk-
ar allt og alla, meira að segja hina
fyrirlitnu Hansínu hinum megin.
Já, hvar sem amma líðandi leit,
þráði hún að vefja það kærleikans
örmum.
Nú svo á telpan guð að, en
hann á annríkt, og amma segir
hnátunni sinni, að hann ætlist til
æði margs af manninum sjálfum.
Keli er leiddur inná sviðið og ger-
ist einn af kærleiksgeislunum sem
umveíja Möggu. Ekki skal stáss-
hænunni hennar gleymt eða kett-
inum Antoni. En svo kemur Edda,
ljúflingur sumars, og þær verða
meir en stöllur — sannar vinkon-
ur. Um sviðið fara líka tildrið og
hégómaskapurinn, meistaralega
vegis. Síðan er það hlutur ævi-
sagnaritarans að vinna úr við-
tölunum, vinsa það merkilegasta
úr, en ekki skjóta þeim niður hér
og þar um bókina, án þess að velta
fyrir sér hvort þau bæti við mynd-
ina eða endurtaka hluti sem þarf-
laust er að endurtaka. Eitt að lok-
um varða.ndi viðtölin; sáu hvorki
Gils né Guðrún stílleysið í eftirf-
amdi setningum?: „Þeir sem vora
lengi á hælinu mynduðu líka sum-
ir vinabönd þar.“ (Bls. 147.) „Oft
báðu þeir sem gáfu út bækur hann
að kaupa og hann gerði það oft-
ast.“ (Bls 235.) „Talsvert áður en
ég kynntist honum hafði ég Ient
í dálitlum vandræðum út af hon-
um.“ (Bls. 259.)
Þó að Oddur hafí kannski ekki
lifað viðburaríkara hversdagslífi
en gengur og gerist var hann einn
af þessum ósérhlífnu hugsjóna-
og athafnamönnum sem sjálfsagt
og eðlilegt er að skrifa bækur um.
Það er því synd að Þegar hugsjón-
ir rætast skuli ekki vera sá að-
gengilegi minnisvarði um Odd
Ölafsson sem hún hefði átt að
vera. Bókin geymir að vísu mikið
af heimildum um ævi hans og
uppbyggingu Reykjalundar og
SIBS. En í stað þess að steypa
heimildum saman í samfellda
sögu, velur Gils þá átakalausu og
auðveldu leið að dreifa þeim um
bókina án þess að reyna að tengja
þær veralega saman. Útkoman er
því sundurlaus og brokkgeng bók.
Sólveig Traustadóttir
lýst í persónu frú Amalíu. Já, henni
er flest til ama, byrðin þó mest
lífíð sjálft, sem hún hefír ekki náð
takti við. Margir fleiri era til sögu
nefndir, en leyfum lesanda að
kynnast þeim.
Myndir era mjög góðar, bókar-
prýði, og kápan nær vel að lýsa
innihaldi bókar: Einmana stúlku
með dýrin sér við hlið á tali við
vininn sinn upptekna, guð. Prent-
verk allt mjög vel unnið. Athyglis-
verð, frábærlega vel skrifuð bók.
Hafí allir er að unnu kæra þökk
fyrir.
Himinninn
er alls staðar
Jólagjöfin í ár!
■ ■ m m u m — m
REYKJ AVÍKUR
Laugavegi 9ó - Sími: 600935
PÖNTUNARSÍMI: 991880
Hin sívinsælu
KAWAI
hljómborð
rá kr. 7.900,-
KAWAI
i
i
<
«
«
«
«
«
«
«