Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
Hugheilar þakkir fœri ég ykkur öllum, sem
sýnduö mér vinsemd með heimsóknum, gjöfum
og kveðjum og á annan hátt veittuð með gleði
á 70 ára afmœli mínu 13. þessa mánaðar.
Ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsœldar á
komandi ári.
Kristján Fr. Guðmundsson,
Álfaskeiði 95,
Hafnarfirði.
Frá æfíngu á óperunni Evgení Ónegín
Islenska óperan frumsýnir
óperuna Evgení Onegín
í ÍSLENSKU óperunni standa nú yfír æfingar á óperunni Evgení
Ónegín, eftir Tsjajkovskij, sem frumsýnd verður 30. desember næst-
komandi. Átta íslenskir einsöngvarar taka þátt í sýningunni, auk
Kórs íslensku óperunnar og hljómsveit. mjómsveitarsijóri er Robin
Stapleton, leiksljóri er Bretinn John Copley, leikmyndahönnuður
er Robin Don og búningahönnuður Michael Stennett. Konsertmeist-
ari er Zbigniew Dubik.
Óperan gerist í Rússlandi upp
úr 1820 og hefst á óðalssetri Frú
Larina. Hún er ekkja en auður
hennar hefur farið rýmandi. Hún á
tvær dætur, Tatjönu og Olgu. Þær
systur eru æði ólíkar; Tatjana
dreymin og rómantísk á meðan
Olga er jarðbundin og skynsöm.
Þegar svo unnustu Olgu, hið nítján
ára gamla skáld Lenskíj, kemur
með nýjan vin sinn, Ónegín, í heim-
sókn fara hjólin að snúast. Ónegín
nýtur vinsælda í samkvæmislíf
Sánkti Pétursborgar, en hefur ný-
lega erft sveitasetur frá auðugum
frænda. Það er ekki að sökum að
spyija, Ónegín og Tatjana fella
hugi sama. En þar er leikurinn rétt
að byija, því fylgikvillar ástarinnar
láta ekki á sér standa; afbrýðisemi
og öfund, samkeppni, misskilningur
og svo er það vináttan, trúnaður-
inn, heiður og æra.
Með einsöngshlutverkin í upp-
færslu íslensku óperunnar á Evgení
Ónegín fara: Bergþór Pálsson, sem
syngur hlutverk Onegíns, Ólöf Kol-
brún Harðardóttir sem er Tatjana,
Gunnar Guðbjömsson syngur hlut-
verk Lenskíjs og Ingveldur Ýr Jóns-
dóttir er Olga. Auk þess syngur
Guðjón Óskarsson hlutverk Greníns
fursta, með hlutverk Larínu fer
Sieglinde Kahmann, Hrönn Hafliða-
dóttir syngur Filipévnu og Sigurður
Bjömsson er Monsieur Triquet.
4 ÍSLENSKAR JÓLAGJAFIR
Smiðjuvegi2- sími 672110
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettíorð
íslensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjafaöskju
á aðeins kr. 3.990.-
Gagnleg og glæsileg jólagjöf,
sem nýtist vel I nútíð og framtíð
Fæst hjá öllum bóksölum
Oröabókaútgáfan
Tónleik-
arhaldnir
í Djúpinu
LJÓÐSKÁLDIÐ og lagahöfund-
urinn Jón Hallur Stefánsson
heldur tónleika í Djúpinu í
Hafnarstræti í kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 21.
Þar mun hann syngja eigin lög
við gítarundirleik. Jón Hallur hef-
ur sent frá sér tvær snældur og
eina hljómplötu ásamt hljómsveit-
inni Lestir frá Reykjavík. Hann
hefur m.a. lagt stund á þýðingar
og bókmenntagagnrýni.
■
Jón Hallur Stefánsson
MOSCHINO
Töskur, belti o. fl.
frá M0SCHIN0. !||I
Mikið úrval. H Y G E A
dnyrtivöruverdtun
KrLnglunni