Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
37
Með reynsl-
una á herðum
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Jónína Michaelsdóttir: MILLI
STERKRA STAFNA. Fólkið hjá
Eimskip. 288 bls. Almenna bóka-
félagið. 1993.
»Milli sterkra stafna,« hvað skyldi
þess háttar heiti nú gefa til kynna?
Undirtitillinn skýrir það að nokkru:
»Fólkið hjá Eimskip.« Hvorugt veitir
þó ótvíræða heimild um innihald.
Bókin ijallar aðeins lítillega um sjó-
menn og siglingar. Ekki heldur um
fólkið hjá Eimskip almennt, aðeins
tólf einstaklinga sem eiga það sam-
eiginlegt að hafa starfað lengi hjá
fyrirtækinu eða á vegum þess, sum-
ir hálfa öld eða lengur. Af sögu-
mönnum eru tíu Islendingar, einn
Breti og einn Dani. Hver um sig
rekur sögu sína, bæði utan og innan
fyrirtækis, segir frá störfum sínum
og lýsir skoðunum sínum á fyrirtæk-
inu og reyndar einnig á lífinu og
tilverunni almennt. Oft er vanda-
samt að velja heiti á bók. Allra helst
á það að vera klárt og Iýsandi. í
þessu dæminu hefði það mátt gefa
betur til kynna hvað bókin fjallar
um.
Allir segja þessir Eimskipsmenn
vel frá, hispurslaust, skrumlaust og
án mælgi. Þetta er lífsreynt fólk,
komið til aldurs og veit hvað það
er að segja. Og í góðu jafnvægi eins
og títt er um þá sem búið hafa við
fjárhagslegt og persónulegt öryggi.
Sumir vilja einatt vera að breyta til
í lífinu, sífellt að leita að einhveiju
»betra«. Aðrir kjósa að starfa ævi-
langt á sama staðnum, jafnvel þótt
eitthvað »betra« bjóðist. Hvort
tveggja má hafa sína kosti og galla.
Þarna kynnumst við síðari mann-
gerðinni. Þetta er ekki ævintýrafólk.
Ekki er þó þar með sagt að sjón-
hringur þess sé þröngur. Oðru nær.
Og eitt má alveg sérstaklega af frá-
sögnum þess ráða: Hve vinnustaður-
inn er raunverulega sterkur þáttur
í lífi einstaklingsins ekki síður en
heimili og nágrenni.
Stofnun Eimskipafélags íslands
var á sínum tíma leikur í þrátefli
£ jímqk:
Jónína Michaelsdóttir.
sjálfstæðisbaráttunnar, áhrifarík
ógilding Gamla sáttmála. »Það þótti
mikið lán að komast í vinnu hjá Eim-
skip,« segir Jón Kristjánsson verk-
stjóri. »SIíkir menn gátu orðið efna-
menn og keypt sér hús.«
Efnamenn! Þannig var litið á
málin fyrir stríð. Efnamaður var sá
kallaður sem hafði fasta vinnu og
átti þak yfir höfuðið. Og Jón Krist-
jánsson segir fleira athyglisvert.
»Meðan ég hafði mannaforráð,« seg-
ir hann, »gætti ég þess að skipa
mönnum ekki fyrir verkum. Ég bað
þá um að gera hlutina og það var
gert.« Sama segir Englendingurinn,
Jack D. Wright: »Ég hef gert mér
far um að stjórna mínu fyrirtæki
þannig að ég leiði fólk og sé sam-
ferða því fremur en segi því fyrir
verkum.« Sagt er að íslenskum fyr-
irtækjum sé ekki öllum vel stjórnað.
Ef til vill hefðu hikandi og tvílráðir
stjórnendur gott af að lesa þessa
bók. Hún er að minnsta kosti byggð
á langri reynslu. Ennfremur býr hún
yfir heilmikilli sálfræði.
Jörgen Hoim heitir Daninn sem
tengst hefur Eimskip gegnum árin.
Hann segist hafa mætur á íslenskri
náttúru. »Ég er öðruvísi á íslandi
en annars staðar,« segir hann. Að
sjálfsögðu hefur hann kynnst íslend-
ingum náið vegna starfs síns og
segir á þeim kost og löst. Eitt ein-
kenni íslendinga kveður hann vera
»virðingarleysi þeirra fyrir tímanum.
Þeir eru óstundvísasta fólk sem ég
hef kynnst og hef ég þó víða verið.«
Jörgen Holm hefur eigi að síður átt
hér góðar stundir og eignast hér
vini sem hann nafngreinir. Hann
hefur mjög fjölbreytilega lífsreynslu
að baki sem hefur meðal annars
kennt honum að sannleikurinn sé
»vandfundinn því hann er alltaf eitt-
hvað annað en hann lítur út fyrir að
vera.«
Athyglisverður er líka þáttur
Trausta Kristinssonar bílstjóra.
Fyrstu áratugir bílaaldar voru ein-
hver merkasti kafli í samgöngusögu
þjóðarinnar. Sá kapítuli hefur þó
aldrei verið skráður í heild. Sögur
einstakra manna eins og Trausta eru
því mikils virði.
Eins og títt er um gömul og gró-
in fyrirtæki ríkir karlveldi hjá Eim-
skip. Af tólf sögumönnum bókarinn-
ar er einungis ein kona, Sigríður
Guðmundsdóttir bókari. Hún fæddist
aldamótaárið 1900, réðst til Eim-
skips 1926 en lét af störfum í árslok
1965. »í þrjátíu og fimm ár starfaði
ég með fólki sem var andríkt, orð-
heppið og ljúflynt, auk þess að vera
framúrskarandi í sínu fagi,« segir
Sigríður. Slíkur starfsandi skapast
ekki nema allir leggist á eitt. Af
kynnum þeim, sem lesandinn fær
af Sigríði, má hugsa sér að hún
hafi ekki látið sitt eftir liggja til að
skapa þann andblæ sem hún lýsir.
Að öllu saman lögðu er óhætt að
segja að bók þessi sé vel og skipu-
lega unnin. Stíllinn er gagnorður og
lipur þótt að ýmsu megi finna, t.d.
málkæk þeim að biðja einhvern um
að koma eða um að fara. »Um« er
þarna alóþarft og fer illa í texta.
^GI
Nýjar bækur
SIEMENS
Framtíð jarðar
ÚT ER komin bókin „Framtíð
jarðar — leiðin frá Ríó“ eftir
Gunnar G. Schram. Fjallar hún
um stöðu og horfur í helstu um-
hverfismálum veraldar, við hvern
vanda er þar að glíma og hverjar
eru helstu leiðir til lausnar hon-
um.
í fyrri hluta bókarinnar er fjallað
um mikilvæga þætti umhverfismála,
svo sem loftmengun, eyðingu óson-
lagsins, mengun hafsins og mann-
fjölgunarvandann. Þá er rætt um
áhrif iðnaðar og orku á umhverfið,
hættuleg úrgangsefni og eyðingu
náttúrugæða. Byggt er á upplýsing-
um frá Umhverfísmálastofnun SÞ í
þessum efnum.
í síðari hluta bókarinnar er birt
Ríóyfírlýsingin um umhverfí og þró-
un og ítarlegur útdráttur úr Dag-
skrá 21, framkvæmdaáætlun í um-
hverfismálum fyrir næstu öld. Fjöldi
skýringarmynda er í bókinni.
Össur Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra skrifar formála bókarinn-
ar. Birt er ávarp forseta íslands,
Vigdísar Finnbogadóttur, á Ríóráð-
stefnunni 1992 og stuttar greinar
rita Amþór Garðarsson form. Nátt-
úruvemdarráðs, Auður Sveinsdóttir
form. Landverndar og Hulda Val-
Heimilistcékin frá SIEMENS eru heimsþekkt
fyrir hönttun, %œði oggóðaeruHngu.
Gefðu vandaðajólagjöf- gefðu SIEMENS heimilistœki.
Gunnar G. Schram
týsdóttir form. Skógræktarfélags
íslands.
Framtíð jarðar er 240 bls. Út-
gefandi er Alþjóðamálastofnun
Háskóla íslands. Oddi annaðist
prentverk. Bókin kostar 3.200
krónur.
SMITH & NORLAND
tftiotaiít
Nýr geisladiskur
Hörður Áskelsson leikur á
Verk Pálm
ars Þ. Ejj-
ólfssonar
Falleg og merk gjöf til vina, -heima
og erlendis, og um leiö stuöningur
viö Orgelsjóö Hallgrímskirkju.
Hér er fyrsta útgáfa hljóbrítunar
hins nýja orge/s HaHgrímskirkju.
Okkureránægja aögeta boöiö
þennan vandaöa hljómdisk á
einstöku veröi - aöeins kr. I.2O0
Komiö í Hallqrímskirkju eöa hafiö samband
ísímum : 7 0745og 62 1475.
Viö sendum í póstkrófu og bjóðum einnig
greiöslukortaj^jónustu.
Opiö alla daga frá kl. 10:00-1 7:00,
nerma mánudaga frá kl. 13:30-17:30.
ÚT ER kominn geisladiskur með
28 tónverkum Pálmars Þ. Eyjólfs-
sonar organista í flutningi fjöl-
margra kóra, kvartetts og ein-
söngvara víðsvegar að af landinu.
Ekkert verkanna hefur áður kom-
ið út.
Pálmar Þ. Eyjólfsson hefur starfað
sem organisti við Gaulvetjabæjar-
og Stokkseyrarkirkju í hartnær hálfa
öld en iðkað tónsmíðar frá unglings-
ámm. Af kunnun tónlistarmönnum,
sem Pálmar rekur ættir til, má nefna
Pál heitinn ísólfsson og Sigfús Ein-
arsson. Hugmyndin að útgáfunni
varð til fyrir rúmum tveimur árum,
er tónskáldið varð sjötugt.
Dreifing er í höndum Japis hf. og
er diskurinn fáanlegur um allt land,
sem og hljómsnælda með upptökun-
um.
~n * Ágóbi rennur til Orgelsjóbs Hallgrímskirkju