Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 44
fHttrgtmlrlafrUr
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUAUGIYSINGAR
Matreiðslu- og
kjötiðnaðarmeistari
Rúmlega þrítugur fjölskyldufaðir sem er
bæði matreiðslu- og kjötiðnaðarmeistari ósk-
ar eftir starfi úti á landsbyggðinni. Húsnæði
þarf að fylgja.
Lysthafendur leggi inn nafn og símanúmer
á auglýsingadeild Mbl. merkt: „M - 3876“.
Dagmamma/amma
4ra manna fjölskylda í Vesturbæ Kóp. óskar
eftir barngóðri heimilishjálp frá og með 3. jan.
’94. Vinnutími frá kl. 8-13 5 daga vikunnar.
Uppl. með nafni og síma sendist augldeild
Mbl., merktar: „Kóp. ’94“, fyrir 28. des. ’93.
Dómritari
Skurðstofuhjúkrun-
arfræðingur
óskast í 80% deildarstjórastöðu.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist til Handiæknastöðvarinnar hf.,
Álfheimum 74, fyrir 28. desember 1993.
Upplýsingar gefnar í síma 686311.
Sjúkrahús Akraness
Yfirlæknir
handlækningadeildar
Staða yfirlæknis í handlækningadeild við
Sjúkrahúsið á Akranesi er laus til umsóknar.
Sjúkrahús Akraness er .deildaskipt svæðis-
sjúkrahús með vaxandi þjónustu í helstu
greinum handlækninga, kvensjúkdóma og
fæðingarhjálpar auk lyflækninga.
Á fæðingarhandlækningadeild eru 16 rúm
auk dagdeildar. Við deildina starfa sérfræð-
ingar í bæklunarskurðlækningum og þvag-
færaskurðlækningum.
Umsóknir með ítarlegri náms- og starfsferils-
skrá sendist framkvæmdastjóra, Merkigerði
9, 300 Akranesi, fyrir 15. febrúar nk.
Búseta á staðnum er skilyrði ráðningar.
Nánari upplýsingar veitir Ari Jóhannesson,
yfirlæknir, í síma 93-12311.
Laus störf
1. Viðgerðarmaður hjá opinberu fyrirtæki.
Viðgerðir á ýmsum áhöldum og tækjum
á verkstæði fyrirtækisins. Mjög góð að-
staða. Leitað að laghentum manni á aldr-
inum 25-50 ára. Verkmenntun ekki skil-
yrði.
2. Sölumaður á vélum, tækjum og búnaði
til útgerðarfyrirtækja og fiskvinnslu-
stöðva. Leitað er að aðila með góða
reynslu af sölustörfum. Æskilegt er að
viðkomandi hafi stundað nám í Fisk-
vinnsluskólanum eða hafi þekkingu á fisk-
iðnaði.
3. Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu hjá
fyrirtæki tengdu fiskiðnaði. Vinna við til-
raunir og einfaldar mælingar. Leitað er
að röskum og drífandi manni sem lokið
hefur stúdentsprófi og hefur einhverja
reynslu af fiskvinnslu.
Umsóknarfrestur er til og með 22. desember
1993.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofunni frá Jfl. 9-15.
Skólavörðustlg la - 101 Reykjavlk - Slmi 621355
Dómritara vantar til starfa í Héraðsdómi
Reykjavíkur frá áramótum.
Krafist er góðrar íslenskukunnáttu og góðs
hraða í ritvinnslu.
Skriflegum umsóknum skal skila til skrifstofu-
stjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, Dómhúsinu
við Lækjartorg, í síðasta lagi 24. desember.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Administration of occupational safety and health
Bíldshöíöa 16 • Pósthólf 12220 • 132 Reykiavík
Laus staða
Eftirlitsstarf á höfuðborgarsvæðinu
er lausttil umsóknar
Starfið felst í eftirliti með aðbúnaði, hollustu-
háttum og öryggi á vinnustöðum skv. lögum
nr. 46/1980.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menptun
og starfsreynslu á heilbrigðis- eða tækni-
sviði. Önnur menntun kemur þó til greina.
Upplýsingar um starfið veitir Guðmundur
Eiríksson, umdæmisstjóri, í síma 91-672500,
kl. 09-12.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, skal skila til Vinnueftirlits
ríkisins, Bíldshöfða 16, fyrir 10. jan. '94.
Tölvutæknideild
Óskum eftir að ráða mann til starfa í tækni-
deild hjá þjónustufyrirtæki á Norðurlandi.
Starfssvið: Viðhald vélbúnaðar og tölvukerfa
í PC umhverfi. Aðstoða notendur við notkun
kerfanna. Uppsetning vélbúnaðar og hug-
búnaðar.
Við leitum að manni með menntun í rafvirkj-
un eða rafeindavirkjun. Einhver tölvumennt-
un æskileg. Haldgóð þekking á PC umhverfi
og nettengingum nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Tölvutæknideild 311 “ fyrir 28. desember nk.
Hagvangur h if
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Lögmaður
óskast sem meðeigandi að gamalgróinni
fasteignasölu í borginni. Lítið fjárframlag.
Vaxandi almenn lögfræðistörf og innheimta
ef áhugi er fyrir hendi. Góð starfsaðstaða.
Einstakt tækifæri.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
kl. 16.00 23. þessa mánaðar merkt:
„Trúnaðarmál - 3882“.
Heilsugæslustöðin
í Hveragerði
Heilsugæslustöðin í Hveragerði óskar eftir
að ráða hjúkrunarforstjóra í hálft starf á
móti núverandi hjúkrunarforstjóra, sem fram
til þessa hefur starfað í fullu starfi.
Laun eru samkvæmt launakjörum opinberra
starfsmanna. Æskilegt er að umsækjandi
geti hafið störf sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 98-34229. Umsóknir skulu vera skrifleg-
ar og sendast formanni stjórnar heilsugæslu-
stöðvar, Breiðumörk 19, Hveragerði.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar nk.
Stjórn heilsugæslustöðvarinnar
í Hveragerði.
GREININGAR- OG
RÁÐGJAFARSTÖÐ RÍKISINS
Sálfræðingur
Óskað er eftir sálfræðingi í 50% starf frá
1. mars nk. Um er að ræða námsstöðu til
eins árs með möguleikum á framlengingu.
Starfið felst í þátttöku á þverfaglegri grein-
ingar- og ráðgjafarvinnu.
Meginhlutverk Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins er rannsókn og greining á
fötluðum börnum, svo og ráðgjöf til foreldra
og þeirra sem annast þjálfun, kennslu og
meðferð. Þar starfa 35 manns úr ýmsum
starfsstéttum, flestir sérfræðingar í fötlunum
barna. Mikil áhersla er lögð á nána samvinnu
starfsstétta.
Bent skal á að námsdvöl við stofnunina get-
ur nýst til sérfræðiviðurkenningar í sálfræði.
Nánari upplýsingar gefur yfirsálfræðingur.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist fyrir 15. janúar nk.