Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
KNATTSPYRNA
HM í Bandaríkjunum 1994
KAMERÚN
NÍGERÍA
MAROKKÓ
ASÍA
SUÐUR-KÓREA BANDARÍKIN g
SAUDI ARABÍA wmmwmmmsmimmmmæmmmm
Detroit/
pontiac/BÖston
Chicago
San
Francisco
Bay
Los Angeles/Pasadena
Washington
d.c;
East
Rutherford/
Piscataway,
N.J.
DallasB
Orlando/
Kissimmee-
St. Cloud
iflMaajaaa
ÞÝSKALAND 1
RÚSSLAND
GRIKKLAND
NOREGUR
SVÍÞJÓÐ
HOLLAND
ÍTALÍA
SVISS
BELGÍA
RÚMENÍA
BÚLGARÍA
SPÁNN
ÍRLAND
ARGENTÍNA
BRASILÍA
KÓLUMBÍA
BÓLIVÍA
MEXÍKÓ
Frægir söngvarar
opna HM í Las Vegas
Rod Stewart og Elton John verða í sviðsljósinu þegar dregið
verður í riðla í HM í Bandaríkjunum ídag. Aldrei áður hafa
eins miklirpeningarverið íboði fyriráranguríHM
MARGIR sakna þess sárt að Englendingar og Skotar eiga ekki
fulltrúa í heimsmeistarakeppninni í Bandaríkjunum 1994, enda
hafa landslið þjóðanna verið í hópi þeirra sterkustu undanfarna
áratugi. Það er svo í knattspyrnunni eins og í þjóðlífinu um allan
heim, að margir eru kallaðir, en aðeins fáeinir útvaldir. Skotar
og Englendingar geta huggað sig við það að þessu sinni, að
þeir eiga góða fulltrúa þegar dregið verður í riðla í HM í dag, í
gleðiborginni frægu Las Vegas, þar sem fulltrúar tuttugu og fjög-
urra þjóða setjast við spilaborðið. Fulltrúar Skotlands og Eng-
lands eru ekki ófrægari kappar en poppsöngvararnir Rod Stew-
art, hinn tryggi stuðningsmaður skoska landsliðsins og Elton
John, fyrrum eigandi enska félagsins Watford. Þeir munu taka
lagið þegar dregið verður, eins og stuðningsmönnum Skotlands
og Englands er einum lagið og hafa gert í áratugi á helstu knatt-
spyrnuvöllum heims.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Það eru ekki aðeins tónlistar-
menn sem eiga sína fulltrúa,
þegar dregið verður í riðla í fímmt-
ándu heimsmeist-
arakeppninni í
knattspymu. Knatt-
spyrnumenn eiga
einnig sýnar stjöm-
ur við dráttinn — og ekki ófrægari
menn en Franz „Keisari" Becken-
bauer frá Þýskalandi, Bobby
Charlton frá Englandi og jafnvel
Marco van Basten frá Hollandi taka
þátt í hátíðahöldunum og verða i
sviðsljósinu þegar kúlurnar með
nöfnum þjóðanna sem taka þátt í
HM í Bandaríkjunum, verða dregn-
ar upp úr skálunum — og þjóðum
skipað í riðla. Kúlurnar verða átján,
því að nú þegar hefur sex þjóðum
verið skipað í fyrsta styrkleika-
flokk: Bandaríkjunum, Þýskalandi,
•Argentínu, Ítalíu, Brasilíu og Belg-
íu. Bandaríkjamönnum sem gestg-
jöfum, Þjóðverjum sem heimsmeist-
urum, en fjórum þeim síðastnefndu
eftir árangri þeirra í HM frá keppn-
inni á Spáni 1982.
Heimsmeistarakeppnin hefst á
jjjóðhátíðardegi íslendinga, 17. júní.
Astæðan fyrir því er ekki sú að
íslendingurinn Leifur Eiríksson
fann Ameríku — Vínland hið góða,
heldur vegna þess að þjóðhátíðar-
dag okkar ber nú upp á sunnudag.
Keppnin stendur frá sunnudeginum
17. júní fram til 17. júlí, sem er
einnig sunnudagur, en þá fer úr-
slitaleikurinn fram.
Það verða Þjóðvetjar sem hefja
titilvöm sína með því að leika opn-
unarleikinn í Chicago, en Þjóðveijar,
sem leika í C-riðli, leika tvo leiki þar
og einn í Dallas. Bandaríkjamenn,
sem leika í A-riðli, hefja keppni í
Detroit, en leika síðan næstu tvo
leiki sína í riðlinum í Los Angeles.
Það er ekki endanlega búið að
ákveða hvar hinar fjórar þjóðirnar,
sem eru í fyrsta styrkleikaflokki
verða staðsettar, en það fer allt
eftir því hvemig niðurröðun í riðla
verður. Fastlega er reiknað með að
ítalir verði í E-riðli, þar sem mjög
mikið að fólki ættuðu frá Italíu er
búsett í New York og nágrenni.
Tveir fýrstu leikir Ítalíu myndu þá
fará fram í New York og sá þriðji
í Washington DC.
Peningar og aftur peningar
Nú þegar er Ijóst að öll fyrri met
varðandi peninga og aðsókn verða
slegin í Bandaríkjunum; peningar
verða meiri fyrir þátttöku, árangur
og sjónvarpsútsendingar og meiri
peningar koma í kassann af miða-
sölu en áður, því miðaverð hefur
aldrei verið eins hátt og í Bandaríkj-
unum.
Sýnt beint í Eurosport
Þeir sem hafa aðgang að sjónvarpsstöðinni Eurosport geta fylgst
með þegar dregið verður í riðla í heimsmeistarakeppninni í Bandaríkj-
unum 1994 — en bein útsending frá athöfninni hefst kl. 20 á sunnu-
dagskvöldið. Margir á íslandi hafa aðgang að Eurosport, en þeim, sem
hafa það ekki, má benda á að útsendingar stöðvarinnar nást t.d. í
höfuðstöðvum margra íþróttafélaga.
Þegar Ólympíuleikarnir fóru
fram í Los Angeles, létu Banda-
ríkjamenn leiki á ÓL fara fram um
víðan völl í Bandaríkjunum. Þá var
metaðsókn og næsta ár verður einn-
ig metaðsókn, því reiknað er með
að uppselt verði á alla leiki. í fyrsta
skipti verður leikið innanhúss og
eru Bandaríkjamenn nú þegar byij-
aðir að undirbúa að rækta gras á
völlunum innanhúss, en á þeim hef-
ur hingað til verið gervigras. Til-
raunir hafa lofað góðu.
Þær þjóðir sem fá það hlutskipti
að leika innanhúss koma til með
að hrósa happi, því að þá skín sólin
ekki beint niður á höfuð leikmanna
um hábjartan dag, en allir leikimir
í HM í Bandaríkjunum fara fram
að degi til kl. 14 eða kl. 16, eða
þegar sól er hátt á lofti. Astæðan
fyrir þessari tímasetningu er að þá
er kl. 17 og 19 í Evrópu, en allar
sjónvarpsútsendingar miðast við
áhorfun í Evrópu, þaðan sem flest
landsliðin koma og flestir horfa á.
Þegar rætt er um peninga, vil ég
fræða lesendur Morgunblaðsins um
nokkrar staðreyndir í þeim málum.
Knattspymusambönd þeirra þjóða
sem verða með í HM 1994 fá 6,3
milljónir ísl. kr. fýrir að vera við-
staddar dráttinn í Las Vegas í dag.
Þegar HM hefst fær hver þjóð 800
þús. ísl. kr. á dag í dvalarkostnað
og er þá miðað við fímm daga fyrir
fyrsta leik og tvo daga eftir síðasta
leik. Fyrir utan þessa upphæð fær
hver þjóð 30 millj. ísl. kr. fyrir hvem
leik sinn í HM. Þær þjóðir sem kom-
ast alla leið í úrslitaleikinn fá því
400 milljónir ísl. kr. í sinn hlut frá
Alþjóða knattspymusambandinu
(FIFA), en þá eiga eftir að koma
greiðslur frá hinum og þessum
styrktaraðilum HM, sem em margir
og íjársterkir. Fram hefur komið að
hver leikmaður sem kemst í úrslita-
leikinn, fái 20 milljónir ísl. kr. fyrir
— aðeins frá FIFA, en þá eiga bónus-
greiðslur frá landssamböndum eftir
að bætast við, þannig að leikmaður
sem tekur þátt í úrslitaleiknum
gæti fengið um 30 milljónir ísl. kr.
í vasann áður en hann yfirgefur
Bandaríkin. Þeir leikmenn myndu
þá þéna eina millj. ísl. kr. á dag
meðan á keppninni stendur.
Óvæntar uppákomur
Heimsmeistarakeppnin bíður
ávallt upp á óvæntar uppákomur.
Hver man ekki eftir hinu umdeilda
Mætlr kappinn sjálfur til leiks? Diego Maradona er óútreiknanlegur. Það
segir sagan, en hvað segir hann?
marki Geoff Hurst á Wembley 1966
— þegar knötturinn skall á þver-
slánni og þaðan niður á marklínu?
Mark sem var dæmt gilt. Hver man
ekki eftir ævintýralegri markvörslu
Englendingsins Gordon Banks 1970
í Mexíkó, þegar hann varði skalla
frá kónginum Pele frá Brasilíu?
Hver man ekki éftir úrslitaleik V-
Þýskalands og Hollands 1974 í
Miinchen, eða þá úrslitaleik Argent-
ínu og Hollands 1978 í Argentínu?
Eruð þið nokkuð búin að gleyma
þegar Paolo Rossi, hinn ítalski,
stöðva^i sambadans Brasilíumanna
á Spárií 1982, eða þá þegar hinn
feiti og pattaralegi Diego Maradona
skoraði mark með „hendi Guðs“
gegn Englandi 1986 í Mexíkó? Ekki
trúi ég því að þið séu búin að gleyma
þegar Maradona og félagar hans
ætluðu sér að verða heimsmeistarar
í vítaspyrnukeppni á Ítalíu 1990.
Maradona er enn að — hann var
kallaður til þegar Argentínumenn
áttu í erfiðleikum og þurftu að leika
tvo leiki gegn Ástralíu um sæti í
HM í Bandaríkjunum. Argentínu-
menn voru þeir síðustu til að tryggja
sér farseðilinn til Bandaríkjanna og
eftir það sagði Maradona að hann
væri orðinn of gamall til að leika
með félögum sínum í Bandaríkjun-
um. Hvað gerist á næsta ári —
mætir kappinn enn á ný til leiks
og spyr þegar hann mætir í salinn:
„Þið verðið að trúa því — ég er
mættur! Voruð þið ekki annars að
bíða eftir mér?“ Maradona gæti
orðið fyrsti leikmaðurinn í sögu HM,
til að taka á móti heimsmeistara-
styttunni í annað sinn sem fyrirliði.
Hann gerði það í Mexíkó 1986 —
missti af tækifærinu á Ítalíu 1990;
og grét. Hann getur fengið tæki-
færi til þess að segja í Bandaríkjun-
um á næsta ári: „Sá hlær best sem
síðast hlær.“ Ef það gerist, þá mun
ég gleðjast með honum, enda er
það svo að hláturinn lengir lífið!
Hvarverðurleikið á HM?
Nú þegar hefur verið ákveðið að leika á átta leikvöllum í Bandaríkjunum.
Hér fyrir neðan er listi yfir leikvelli — í hvaða borgum þeir eru, hvað
þeir heita, hvenær þeir voru byggðir, hve marga áhorfendur þeir taka
og hvaða riðlar verða leiknir á völlunum:
Los Angeles: Rose Bowl, Pasadena.......
San Francisco: Stanford Stadium........
Detroit: Pontiac Silverdome............
Chicago: SoldierField..................
Boston: Foxboro Stadium................
Dallas: Cotton Bowl....................
New York: Giants Stadium...............
Orlando: Citrus Bowl...................
Washington: Robert F. Kennedy Stadium
1922 102.083 A/B
1921 86.019 A/B
1975 72.794 A/B
1922 66.814 C/D
1970 61.000 C/D
1930 67.500 C/D
.1976 76.891 E/F
.1976 70.188 E/F
.1961 56.500 E/F
Leikir í 16-liða úrslitunum fara fram á öllum völlunum nema í Detroit.
Leikir í 8-liða úrslitunum fara fram í San Francisco, Boston, Dallas
og New York. Leikir í undanúrslitum fara fram í Los Angeles og New
York. Leikur um þriðja sætið fer fram í Los Angeles, en þar verður úr-
slitaleikurinn einnig leikinn 17. júli,