Morgunblaðið - 26.01.1994, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vetrarstemmning við Naustir
GOTT veður hefur verið á Akureyri undanfarna daga og oft hafa myndast fallegar vetrarstemmn-
ingar þegar sólin hefur náð að brjótast fram úr skýjunum, eins og sést á þessari mynd sem tekin
var við bæinn Nausti.
Tvíburatrollveiðideilan hjá Samheija
Viðræður hafnar
„ÞAÐ er bjartara yfir þessu, betra hljóð í mönnum,“ sagði Kon-
ráð Alfreðsson formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar eftir fund
með forsvarsmönnum Samherja hf. i gær þar sem rætt var um
ágreining sem uppi er milli aðila um uppgjör til sjómanna sem
stunda svokallaðar tvíburatrollveiðar.
Konráð sagði að deiluaðilar væru
nær því en áður að ná samkomu-
lagi og er annar samningafundur
fyrirhugaður fyrir hádegi í dag,
miðvikudag. „Þetta var ágætur
fundur, menn eru samstarfsfúsir.
Vissulega hafa báðir aðilar þurft
að slá aðeins af fyrri kröfum sínum
til að nálgast hver annan, rétt eins
og í samningaumræðum yfirleitt,"
sagði Konráð.
Opið hús í Miðstöð fólks í atvinnuleit
Atvinnumál og íþróttír
MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit
verður með opið hús í safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í dag,
miðvikudag, frá kl. 15 til 18.
Gestir á þessari samverustund
verða Einar Sveinn Ólafsson verk-
smiðjustjóri og Helgi Pálsson fram-
kvæmdastjóri íþróttafélagsins Þórs.
Einar Sveinn mun ræða um stöðu
atvinnumála í bænum eins og þau
horfa við honum, en hann er einn
af stjórnendum Fóðurverksmiðj-
unnar Laxár, en jafnframt er hann
stjórnarmaður i Þór og ætlar ásamt.
Helga framkvæmdastjóra þess að
kynna boð félagins til atvinnulausra
um afnot af , heilsugæslustöðunni
sem Þór starfrækir í félagsheimili
sínu, Hamri.
Allir eru velkomnir á þessa sam-
verustund og kaffi og brauð verður
- á borðum að vanda þátttakendum
að kostnaðarlausu. Nánari upplýs-
ingar um starf miðstöðvarinnar eru
gefnar í síma milli kl. 15 og 17 á
þriðjudögum og föstudögum.
(Fréttatílkynning.)
Yfirlæknir bamadeildar FSA
Magnús Stefánsson ráðinn
Frá upphafi æfinga á Óperudraugnum.
Söngleikur í lok leikárs Leikfélags Akureyrar
Æfingar hafnar á
Operudraugnum
SKAMMT er stórra högga á milli hjá Leikfélagi Akureyrar, æfing-
ar á söngleiknum Óperudraugnum hófust á mánudag, en um
helgina var leikritið BarPar frumsýnt í nýju lcikliúsi og þá hefur
jólaleikritið Góðverkin kalla verið sýnt fyrir fullu húsi að undan-
förnu.
MAGNÚS Stefánsson hefur verið
ráðinn yfirlæknir bamadeildar
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri. Hann tekur við stöðunni af
Baldri Jónssyni sem sem verið
hefur yfirlæknir á barnadeild um
árabil.
Magnús Stefánsson er fæddur
árið 1936. Hann lauk prófi frá
Læknadeild Háskóla íslands árið
1964 og hefur hann almennt lækn-
ingaleyfi á íslandi og Svíþjóð. Þá
HITAVEITA Akureyrar hefur
tekið í notkun 1.770 hestafla dís-
ilrafstöð með 1.500 K.W.A. rafal.
í hófi sem haldið var í aðaldælu-
stöðvarhúsi Hitaveitunnar á Ytra-
Laugalandi kom fram hjá Franz
Amasyni veitustjóra að vélin hefði
kostað 11 milljónir króna og reikn-
aði hann með að kostnaður við upp-
setningu búnaðarins yrði 3,5 millj-
ónir króna.
hefur hann haft
sérfræðingaleyfi í
almennum barna-
lækningum frá ár-
inu 1975, en hann
hefur frá því ári
starfað sem sér-
fræðingur á
barnadeild FSA.
Magnús Stefáns- Auk Magnúsar
son sóttu Geir Frið-
geirsson og Hákon Hákonarson um
stöðuna.
Þetta verður varaaflstöð og hefur
næga framleiðslugetu til að fram-
leiða rafmagn fyrir allar dælur hita-
veitunnar í Eyjafjarðarsveit. Mögu-
leiki er að tengja þessa varaaflstöð
út á dreifikerfi Rafmagnsveitna rík-
isins sem gæti komið sér mjög vel
fyrir aðra raforkunotendur á svæð-
inu.
Benjamín
Sú hefð hefur skapast hjá
Leikfélagi Akureyrar að frumsýna
söngvaverk í lok hvers leikárs og
verður ekki brugðið út af venjunni
þetta árið, því hafnar eru æfingar
á Óperudraugnum eftir Ken Hill
með söngperlum úr ýmsum fræg-
um óperum.
Leikhúsupplifun
Þessi leikgerð á Óperudraugn-
um er byggð á hinni frægu sögu
Gastons Leroux og er leikgerð
Kens Hills nú á fjölunum víða um
heim og þykir hin mesta leikhús-
upplifun.
Þórhildur Þorleifsdóttir er leik-
stjóri, en hún kemur nú aftur til
starfa hjá LA eftir tíu ára hlé,
síðast sviðsetti hún sýningu á My
Fair Lady, sem sló öll aðsóknar-
met, en til þeirrar sýningar má
rekja upphaf söngleikjahefðarinn-
ar hjá félaginu.
Tónlistarstjóri er Gerrit Schuil,
píanóleikari og hljómsveitarstjóri,
leikmynd og búninga gerir Sigur-
jón Jóhannsson, ljósahönnuður er
Ingvar Bjömsson en Böðvar Guð-
mundsson íslenskaði verkið.
í helstu hlutverkum eru Bergþór
Pálsson, Marta G. Halldórsdóttir,
Ragnar Davíðsson, Már Magnús-
son, Agústa Sigrún Ágústsdóttir,
Michael Jón Clarke, Aðalsteinn
Bergdal, Þráinn Karlsson, Sigur-
veig Jónsdóttir, Dofri Iiermanns-
son, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigur-
þór Albert Heimisson, Sunna Borg
og fleiri, auk hljómsveitar og að-
stoðarmanna. Fyrirhugað er að
frumsýna Óperudrauginn í lok
mars.
Leikur einn
í Freyvangi
og á Dalvík
LEIKFÉLAG Kópavogs ætlar
að sýna leikdagskrána Leikur
einn í tvígang í Eyjafirði um
næstu helgi og nýtur þar gest-
risni Freyvangsleikhússins og
Leikfélags Dalvíkur.
Dagskráin er samansett úr þrem-
ur þekktum gamanleikjum frá ýms-
um tímaskeiðum, en þeir eru
Draumur á Jónsmessunótt eftir W.
Shakespeare, Lýsistrata eftir Ari-
stofanes og ímyndunarveikin eftir
Moliére.
Leikendur hafa tekið þáttí nám-
skeiði í vetur undir stjórn Ásdísar
Skúladóttur sem nefnist Skoppara-
kringlan þar sem skoppað var á
ölduföldum leiklistarsögunnar. Af-
raksturinn varð tæplega klukku-
tíma löng leikdagskrá sem félagið
ætlar nú að sýna Eyfirðingum.
Sýningarnar verða tvær, í Frey-
vangi föstudagskvöldið 28. janúar
kl. 21 og í Ungó, Dalvík, laugardag-
inn 29. janúar kl. 17.
-----» ♦ ♦----
Fargjöld
SVA hækka
FARGJÖLD í Strætisvagna
Akureyrar hækka 1. febrúar
næstkomandi.
Almennt fargjald fullorðinna
hækkar úr 75 krónum í 80 krónur
og 20 miða kort úr 1.200 krónum
í 1.280 kr., framhaldsskólanemar
greiða 1.100 kónur fyrir 25 miða í
stað 1.050 og aldraðir greiða 550
kr. fyrir 20 miða í stað 515 króna.
Barnafargjöld hækka úr 28 krónum
í 30 krónur hvert fargjald, en 20
miðar kosta eftir hækkun 400 kón-
ur í stað 380 áður.
Nýr vagn af gerðinni Volvo hefur
verið keyptur til Strætisvagna Ak-
ureyrar, en innan skamms verður
leiðakerfinu breytt og tekinn upp
akstur í Giljahverfi.
Morgunblaðið/Benjamín
Öryggið eykst
NÝ varaaflstöð sem framleitt getur rafmagn fyrir allar dælur veit-
unnunnar í Eyjafjarðarsveit hefur verið tekin í notkun fyrir Hita-
veitu Akureyrar, frá vinstri Ari Rögnvaldsson vélsljóri, Sigurður
J. Sigurðsson, formaður veitustjórnar, og Franz Árnason veitustjóri.
Ný varaaflstöð Hitaveit-
unnar tekin í notkun
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
I
1
I
[
E
I
I
L
I
I
I
I
e
i