Morgunblaðið - 26.01.1994, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 1994
Tímamót í Hafnarfirði
eftir Sigurð
Einarsson
Það verða tímamót í Hafnarfirði
frá og með bæjarstjómarkosningum
í vor. Kjósendum hlýtur að vera ljós
sú óstjórn sem á sér stað á fjármun-
um þeirra.
Víða eru fyrirtæki og opinberir aðil-
ar að taka veruleg gæðastökk, til
bættrar þjónustu og samkeppnis-
hæfni, ekki síst með væntanlegt
Evrópusamstarf í huga. Hjá Hafn-
arfjarðarbæ hefur slíkt verið ófram-
kvæmanlegt sökum stefnu Alþýðu-
-flokksins í mannaráðningum, sem
öllum er kunn. Þessu þarf að breyta.
Nútímavæðing á rekstri Hafnar-
fjarðarbæjar er löngu tímabær.
Verði Hafnarfjörður tilraunasveit-
arfélag er hægt að ganga mjög langt
í átaki gæðastjómunar. Auka þarf
ábyrgð forstöðumanna stofnana
bæjarins á rekstri og krefjast sam-
svarandi endurskipulagningar og
fyrirtæki landsins verða að kasta sér
út í, eigi þau að hafa möguleika á
því að lifa og dafna. Markmiðið hlýt-
ur að vera að þjóna bæjarbúum vel
fyrir sem lægsta skatta.
Skipulagsstefna
Stefna Hafnarfjarðarbæjar í
skipulagsmálum hefur verið í anda
hentistefnu síðustu misserin. í tíð
stjórnar Sjálfstæðisflokksins í bæn-
um var lagður grunnur að miðbæj-
arskipulagi sem byggði á ímynd
Hafnarijarðar þ.e. miðbærinn átti
að undirstrika eðii og fegurð byggð-
arinnar sem fyrir er. Meirihluti Al-
þýðuflokks hafði ekki hæfileika og
vilja til að stýra því skipulagi til
útfærslu. Skipulaginu var breytt eft-
ir hugmyndum flokksfélaga, vina og
kunningja meirihlutans. Ekki voru
þær breytingar byggðar á frumleg-
um fyrirmyndum. Hermt var eftir
miðbæjum nýbyggðra hverfa og
bæja á höfuðborgarsvæðinu, þegar
miðbær hins rótgróna Hafnarfjarðar
var mótaður. Þær fyrirmyndir sem
„Markmið húsnæðis-
sýninga er fyrst og
fremst að stuðla að
framþróun á sviði hús-
næðismála.“
ég vitna í eru Borgarkringlan og
miðbæir Garðabæjar og Mosfells-
bæjar.
Ekki þarf að fara út fyrir bæjar-
mörkin til að leita að einhverjum
háleitum skipulagshugmyndum. Við
þurfum ekki annað en að líta á
bæinn okkar með gestsauga og þá
blasa við gull og gersemar, sem er
gamli bærinn. Slík fyrirmynd og
þarfir húsnæðismarkaðarins eins og
hann er núna, fara mjög vel saman.
Lítil hús með garði án allskyns
krafna um bílskúr, aukahæð eða
dýrt byggingarlag er það sem fólk
vill.
Við Hafnfirðingar höfum yfir frá-
eftir Magnús
Kjartansson
Nú fer sú helgi í hönd þegar sjálf-
stæðismenn ganga að kjörborði og
áhvarða skipan lista síns fyrir bæj-
arstjórnarkosningar í vor.
Þetta er mikilvæg og þörf aðgerð,
en vandasöm engu að síður. Þarna
raðast upp listi hæfra frambjóðenda
sem sumir eiga eftir að verða fyrir
vonbrigðum með gengi sitt á meðan
aðrir fagna sigri. Sár myndast sem
vandasamt verður að græða, bæði í
fremstu og öftustu röð, og mikið og
vandasamt starf er framundan við
að koma flokknum í vinnustuð eftir
harða og átakasama baráttu ein-
staklinga um völd og frama í flokkn-
um.
bæru byggingalandi að ráða og stór
hluti af stækkun höfuðborgarsvæð-
isins næstu áratugina, verður innan
okkar bæjarmarka.
Húsnæðissýning
Það hefur lengi verið skoðun mín
að „verktakabærinn" eigi að ganga
á undan þróun og gerð húsnæðis og
byggja upp hverfi sérstaklega fyrir
húsnæðissýningu. Markmið hús-
næðissýninga er fyrst og fremst að
stuðla að framþróun á sviði hús-
næðismála. Með sýningum er hægt
að ná út til mjög stórs hóps aðila
sem áhuga og hagsmuni hafa af slík-
um nýjungum og framförum.
Sýningin þarf ekki að vera stór
og ýmis þemu koma til greina. Sem
dæmi mætti nefna íbúðir við höfn,
íbúðir í hrauni eða hús byggð við
norðlægar aðstæður með áherslu á
aðgengi allra.
Hér á ég að sjálfsögðu ekki við
að Hafnarfjarðarbær ausi peningum
„Leggjum öll hendur á
árar við að róa bæjarfé-
lagi okkar útúr skulda-
feni kratanna."
Það að þrír hæfir menn skuli gefa
kost á sér í fyrsta sæti listans endur-
speglar átök og baráttu í flokknum,
en er í senn lýsandi dæmi um kosti
lýðræðisins.
Á undanförnum vikum höfum við
fengið yfir okkur áróður frá fram-
bjóðendum. Þar kennir ýmsra grasa,
allt frá fullyrðingum um að flokkur-
inn eigi sér ekki viðreisnar von nema
í höndum eins, og til þess að breyt-
inga sé þörf breytinganna einna
vegna. Einnig hefur borið á því að
A elleftu stundu
Veljum Magnús Gunn-
arsson í fyrsta sætið
eftir Eggert Isaksson
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði heldur prófkjör til útnefningar
á frambjóðendum á lista flokksins
við næstu bæjarstjórnarkosningar.
Að þessu sinni stendur valið milli
26 frambjóðenda.
Val á frambjóðendum er vanda-
samt verk og hafa verður í huga
samsetningu listans við röðun á próf-
kjörsseðli ogþá ekki síst hver kemur
til með að leiða listann. Sjálfstæðis-
flokkurinn í Hafnarfirði þarf nýja
forystu, mann sem leitt getur flokk-
inn til sigurs í komandi kosningum.
Ég tel að Magnús Gunnarsson hafi
þau manngildi sem forystumaður í
Sjálfstæðisflokknum þarf til að bera.
Hann hefur víðtæka reynslu í félags-
málum og þekkir þarfir atvinnulífs-
ins í gegnum reynslu sína af rekstri
eigin fyrirtækja og annarra. Enn-
fremur er Magnús fjölskyldumaður
sem veit af eigin raun hverjar eru
þarfir fjölskyldunnar og mikilvægi
heimilisins.
Fylgi Sjálfstæðisfiokksins í síð-
ustu bæjarstjórnarkosningum var,
illu heilli, ekki nægjanlegt til að
flokkurinn og það sem hann stendur
fyrir kæmist til áhrifa við stjórn á
bæjarfélaginu. Alþýðuflokknum,
sem tók við stjórn bæjarfélagsins
1986, hefur ekki lánast að stjórna
fjármálum bæjarsjóðs og er nú svo
komið að skuldir hans nálgast
hættumörk. Við þessu verður að
bregðast og eins og ævinlega þegar
saman þarf að fara aðhald í fjármál-
um og markvissar aðgerðir verða
Hafnfirðingar að treysta á leiðsögn
Sjálfstæðisflokksins.
Magnús hefur verið fyrsti vara-
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á
yfirstandandi kjörtímabili. Hann
Eggert ísaksson
„Ég- tel að Magnús
Gunnarsson hafi þau
manngildi sem forystu-
maður í Sjálfstæðis-
flokknum þarf til að
bera.“
hefur setið, sem fulltrúi flokksins, í
húsnæðisnefnd og hafnarstjórn og
valinn til forystu í æðstu trúnaðar-
stéður Sjálfstæðisflokksins í Hafn-
arfirði á undanförnum árum, fyrst
sem formaður fjárhagsnefndar og
nú síðastliðin ár sem formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Hafnarfirði. Reynsla Magnúsar af
félagsmálum er víðtæk. Nægir þar
Magnús Gunnarsson
að nefna stjórnarstörf hans fyrir
fjölda félagasamtaka í Hafnarfirði
svo sem Lionsklúbbinn Ásbjörn,
Öldrunarsamtökin Höfn en þar situr
Magnús sem fulltrúi Lionsklúbbins,
Körfuknattleiksdeild Hauka, Skóg-
ræktarfélag Hafnarfjarðar, en skóg-
rækt og umhverfismál eru sérstök
hjartans mál Magnúsar og svo sem
mætti áfram telja.
Vil ég því hvetja alla stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins til að taka
þátt í komandi prófkjöri og kjósa
Magnús Gunnarsson í fyrsta sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins i
bæjarstjórnarkosningum í vor.
Höfundur er fyrrverandi
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði.
Sigurður Einarsson
í aðra sýningu á borð við Vor ’93.
Húsnæðisstofnun hefur sýnt hug-
myndinni áhuga t.d. með því að fá
forsvarsmenn norsku íbúðarsýning-
anna til að halda fyrirlestur hér á
iandi um málefnið. En undirbúi bæj-
arfélagið jarðveginn fyrir verktaka
landsins, eru möguleikarnir miklir
og þannig tæki bæjarfélagið á hend-
ur sér forystuhlutverk um bætt hús-
næðismál. Sem hugmynd gæti íbúð-
arsýning á íslandi t.d. í tengslum
við HM ’95 haft eftirfarandi mark-
mið:
1. Íbúðarpólitík, mismunandi
íbúðarform fyrir mismunandi
íbúa með mismunandi sérþarfir.
2. Hluti íbúða notaður til að
hýsa gesti HM. .
3. Markaðsfærsla Hafnarfjarðar
og Islands.
4. Byggt við íslenskar/ Hafn-
firskar aðstæður.
Samfara húsnæðissýningunni
mætti halda húsbyggjendasýningu í
íþróttahúsinu, standa fyrir ráðstefnu
í miðbænum t.d undir yfirskriftinni
„Byggt við íslenskar aðstæður",
tengja myndlist og tónlist við bygg-
ingarlistina með sérsýningum og
tónleikum þessu samfarandi.
Höfundur erarkitekt og tekur
þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
Magnús Kjartansson
bæjarbúum sé órótt vegna svokall-
aðs ofríkis Mathiesena. Margir eru
ekki sáttir við að hafa þijá menn í
í samkeppni um fyrsta sætið og öðr-
um finns úrvalið ekki nógu gott.
Látum þetta samt ekki verða til
þess að draga úr okkur að mæta í
kosninguna og láta skoðun okkar í
Ijós. Það er réttur sem við höfum
og okkur ber að virða. Hafnfirðingar
eiga allir sem einn að taka afstöðu
til jafn mikilvægs atburðar í bæjar-
lífinu sem þessa.
Sú fullyrðing hefur verið sett fram
að Hafnfirðingar hafi ekki jafn mik-
inn áhuga á bæjarmálapólitík og
aðrir íbúar landsins og sé það vegna
nálægðar bæjarins við höfuðborgina.
Þetta er skömm ef satt er. íbúum
Kanada hefur verið kennt um það
sama og nálægð þeirra við Bandarík-
in líkt við músina sem sefur við hlið-
ina á fílnum og hvílist ekki af
hræðslu við að fíllinn velti sér. Hafn-
firðingar, látum nálægð okkar við
Reykjavík og áhyggjur af stöðu
mála þar ekki trufla okkur við að
taka afstöðu til okkar mála, þau eru
það brýn.
Leggjum öll hendur á árar við að
róa bæjarfélagi okkar útúr skulda-
feni kratanna.
Tökum afstöðu. Allt er betra en
að sitja heima. Mætum og sýnum
að við getum sjálf tekið ákvörðun
um hvernig við viljum að listi sjálf-
stæðismanna líti út og látum engan
segja okkur fyrir verkum í því sam-
bandi. Það er ekki lýðræði, og engum
sæmandi að framkvæma vilja ann-
arra í þeim efnum. Ég tel mig hafa
stundað heiðarlega baráttu og
treysti því staðfastlega að ég verði
ekki látinn gjalda þess að hafa ekki
tekið þátt í flokkadráttum eða blok-
keringum neins konar. í Hafnarfjörð
hafa undanfarin ár flutt íbúar alls
staðar af landinu. Við þetta fólk vil
ég segja að lokum:
Bjóðið ykkur sjálf velkomin til
Hafnarfjarðar og látið að ykkur
kveða. Þið hafið sama rétt og allir
aðrir bæjarbúar, hversu lengi sem
þið hafið búið í bænum. Látið skoð-
un ykkar í ljós óg styðjið mig í 4.
sæti. Stígum fyrsta skrefið til að
flýta fyrir því að Hafnafjörður og
Hafnfirðingar geti allir tekið á móti
nýrri öld skuldlausir og með bros á
vör og gleði í hjarta.
Ég bið um stuðning í 4. sæti.
Höfundur er frambjóðandi í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði.
SÆKIST EFTIR
S JÖUNDA SÆTI
eftir Þ. Hinrik
Fjeldsted
Ég, Þ. Hinrik Fjeldsted, vil koma
því á framfæri að í komandi próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík sækist ég eftir því að verða
kosinn i sjöunda sæti listans. Það
er ekki ætlun mín að blanda mér
í þá baráttu sem fram fer í sex
efstu sæti listans. Ég tel það
óþarft, þar sem ég fæ ekki séð að
það verði mér neitt frekar til fram-
dráttar í viðleitni minni til að ná
kosningu í sjöunda sætið.
Einnig vil ég benda á að ég tel
mig málsvara þeirra félaga í Sjálf-
stæðisflokknum sem ekki teljast
til eignamanna eða fyrirtækjaeig-
enda, þar sem ég er sjálfur laun-
þegi á hinum almenna húsaleigu-
markaði.
Höfundur er frambjóðandi í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík.
Þ. Hinrik Fjeldsted