Morgunblaðið - 26.01.1994, Page 44
SlMI 091100, SÍMBRÉF «91181, PÓSTHÓLF^SMO^/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Ný vega-
bréf í
vændum
-öll verða gefin
út í Reykjavík
HJÁ dómsmálaráðuneytinu
er í undirbúningi útgáfa
nýrra vegabréfa sem inni-
halda fleiri öryggisatriði en
eru í eldri útgáfum. Einnig
verður stefnt að því að gefa
vegabréfin út á einum stað,
hjá lögreglustjóranum í
Reykjavík, í stað þess að
nú eru þau gefin út hjá öll-
um lögreglustjórum á land-
inu. Verður komið á stofn
neyðarþjónustu í þeim til-
vikum þar sem fólki gefst
ekki tími til að bíða nokkra
daga eftir afgreiðslu. Ekki
hefur staðsetning hennar
verið ákveðin en líklegir
staðir eru taldir á Keflavík-
urflugvelli eða í Reykjavík.
Þegar vegabréfsáritun var
afnumin til Bandaríkjanna
gengust Islendingar undir þá
kvöð að tölvulesanleg vega-
bréf yrðu tekin upp. Er það
meginástæða þess að farið er
út í útgáfu nýrra vegabréfa
að sögn Hjalta Zophaníasson-
ar hjá dómsmálaráðuneytinu.
Skilyrði fyrir afnámi
áritunar
„Útgáfa slíkra vegabréfa
voru eiginlega skilyrðin fyrir
því að vegabréfsáritun yrði
afnumin. Einnig kemur að því
að við þurfum að kaupa lesara'
til að lesa tölvurákir, en sú
aðferð er að ryðja sér til rúms
víðast hvar,“ sagði Hjalti.
Hjá Ríkiskaupum fengust
þær upplýsingar að verið væri
að vinna að útboði slíkra vega-
bréfalesara. Munu tækin
verða tengd tölvuneti Útlend-
ingaeftirlitsins.
Gömlu bréfin óbreytt
Hvorki stendur til að breyta
þeim vegabréfum sem fyrir
eru né að hækka það gjald
sem tekið er fyrir útgáfu
vegabréfa.
AHALUMIS
Morgunblaðið/Rax
Staðgreiðsluhlutfall skatta við innheimtu verður 41,84% á árinu 1994
Langflest sveitarfélög
innheimta 9% útsvar
Tæplega fjórðungur innheimtir leyfilegt hámark, 9,2%
STAÐGREIÐSLUHLUTFALL skatta við innheimtu á árinu 1994
verður 41,84%, hálfu prósentustigi hærra en á árinu 1993 þegar
það var 41,34%. Tekjuskattshlutfallið er 33,15% og innheimta
útsvars er að meðaltali 8,69%, en útsvar er nokkuð mismunandi
eftir sveitarfélögum. Útsvarsprósenta langflestra sveitarfélaga
er 9%. Tæplega fjólðungur innheimtir leyfilegt hámark, sem er
9,2%, og 16 innheimta Ieyfilegt lágmark, 8,4%, þar á meðal nokk-
ur stærstu sveitarfélögin, svo sem Reykjavík, Kópavogur, Garða-
bær, Vestmannaeyjar og Seltjarnarnes.
Búvörufrumvarp væntanlega lagt fram í dag
Togast á um tollnúmer
FRUMVARP ríkisstjórnarinnar um að innflutningur tiltekinna búvara
sé óheimill nema að fengnu leyfi landbúnaðarráðherra var ekki lagt
fram í gær, eins og stefnt hafði verið að. Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra segir að frumvarpið hafi verið afgreitt á ríkisstjórnarfundi
í gærmorgun. Eftir hafi verið að ganga frá örfáum atriðum en ekki
unnist tími til þess í gær. Frumvarpið yrði væntanlega lagt fram á
Alþingi í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vill landbúnaðar-
ráðherra hafa fleiri vörur inni í frumvarpinu en viðskiptaráðherra.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra sagði í gær, þegar hann var
spurður af hveiju hann hefði ekki
lagt frumvarpið fram í gær, að hann
hefði ekki heimild Alþýðuflokksins
til þess. Rannveig Guðmundsdóttir,
formaður þingflokks Alþýðuflokks-
ins, sagðist reyndar hafa verið er-
lendis í fyrradag þegar samið var
um frumvarpið en hún vissi ekki
annað en að rætt hafi verið við alla
þá þingmenn flokksins sem voru
heima og þeir fallist á það. Hún sagði
að ekki stæði að minnsta kosti til
að kalla þingflokkinn saman vegna
þessa máls.
Þó búvörufrumvarpið hafi verið
afgreitt í ríkisstjórninni er eftir að
ganga endanlega frá því hvort nokkr-
ar vörutegundir, meðal annars vörur
þar sem kjöt er lítill hluti heildar-
þyngdar vörunnar, falli undir það eða
ekki. Þannig var pasta með 20% kjöt-
innihaldi eða meira á listanum sem
þingflokkar stjórnarflokkanna fjöll-
uðu um á mánudag, en ekki pasta
með minna en 20% kjötinnihaldi.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins vill landbúnaðarráðherra að
frumvarpið taki til fleiri vörutegunda
en aðrir ráðherrar, ekki síst Sighvat-
ur Björgvinsson viðskiptaráðherra.
Ef breytingar verða gerðar frá frum-
varpinu þarf að hafa samráð milli
ráðuneytanna og er búist við að
gengið verði frá málinu í dag.
Samkvæmt lögum sem sett voru
skömmu fyrir áramót getur álagning
útsvars verið 8,40% til 9,20%, en
áður var eingöngu kveðið á um há-
mark útsvarsálagningar, ekki lág-
mark. Hámarkið í fyrra var 7,5%.
1,5 prósentustig af tekjuskattsinn-
heimtu á síðasta ári færast nú yfir
til sveitarfélagana vegna tekjutaps
þeirra af afnámi aðstöðugjalds. Til
bráðabirgða voru í janúarmánuði inn-
heimt í staðgreiðslu 41,79% þar sem
lögin voru samþykkt á Alþingi svo
síðla á árinu að sveitarfélögunum
vannst ekki tími til að ákvarða álagn-
ingarprósentu útsvars.
Hámark í 44 sveitarfélögum
Af 197 sveitarfélögum í landinu
er i 44 lagt á hámark þess útsvars
sem heimilt er eða 9,2%. Á síðasta
ári voru það 173 sveitarfélög sem
innheimtu leyfilegt hámark, 7,5%.
Langflest sveitarfélögin nú inn-
heimta 9% í útsvar eða 128. Þar er
um beina tilfærslu að ræða á tekju-
skattsprósentunni yfir til sveitarfé-
laga en í þeim sveitarfélögum þar
sem útsvarið hækkar um 1,7 pró-
sentustig er að auki um að ræða
hækkun um 0,2 prósentustig. Stað-
greiðsluhlutfallið getur því hæst orð-
ið 42,35% hjá þeim sveitarfélögum
þar sem útsvarsálagningin er í há-
marki. í þeim sveitarfélögum þar sem
lagt er á lágmark útsvars verður
álagningin 41,55% eða 0,8 prósentu-
stigum lægri en þar sem hún er
hæst. Við endanlega álagningu fá
þeir greitt til baka sem búa í sveitar-
félögum þar sem innheimt er lág-
mark útsvars en þeir sem búa í sveit-
arfélögum þar sem innheimt er leyfi-
legt hámark þurfa að greiða það sem
vantar upp á staðgreiðsluprósentuna.
Prófkjör á Akureyri
Reyndustjafn-
ir í 3. sæti
ÓLJÓST er hver muni skipa þriðja
sætið á lista Sjálfstæðisflokksins
við bæjarstjórnarkosningarnar í
vor eftir endurtalningu atkvæða
og úrskurði um vafaatkvæði úr
prófkjöri fiokksins. Niðurstaðan
varð sú að Þórarinn B. Jónsson
og Jón Kr. Sólnes bæjarfulltrúi
eru hnífjafnir í þriðja sæti en eft-
ir fyrri talningu var Þórarinn í
þriðja sæti en Jón Kr., sem þá var
talinn hafa einu atkvæði minna í
það sæti, var í fimmta sæti.
Haraldur Sveinbjörnsson formað-
ur kjörnefndar sagði í gærkvöldi að
frambjóðendumir sjálfir gætu komist
að samkomulagi um þriðja sætið og
einnig væri hægt að varpa hlutkesti.
Sagði hann að kjörnefndin myndi í
dag ræða við Jón og Þórarin.