Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 1

Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 1
80 SIÐURB/C STOFNAÐ 1913 40. tbl. 82. árg. FOSTUDAGUR 18. FEBRUAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vextírnir lækkaðir Frankfurt. London. Reuter. ÓVÆNT vaxtalækkun þýska seðlabankans í gær varð til þess að verðbréf hækkuðu á evrópsk- um fjármálamörkuðum og gengi Bandaríkjadollars styrktist gagn- vart þýska markinu og japanska jeninu. Hækkunin á verðbréfamörkuðum var þó aðeins skammvinn því í ljós kom að ekki var hreyft við skamm- tímavöxtum seðlabankans, svoköll- uðum lombard-vöxtum sem eru 6,75% eða endurkaupavöxtum verð- bréfa en þeir eru 6%. Þýski seðlabankinn lækkaði for- vexti um hálft prósentustig í 5,25% og er það fyrsta breyting sem gerð er á þessum vöxtum frá í október sl. Lækkunin var rökstudd með því að verðbólga færi lækkandi og mark- ið hefði verið að styrkjast. Sérfræð- ingar í fjármálaheiminum sögðu að búast mætti við frekari vaxtalækk- unum í Þýskalandi á næstu vikum og mánuðum. Seðlabankar Hollands, Belgíu og Austurríkis fóru að dæmi þýska seðlabankans og lækkuðu vexti sömuleiðis. Reuter Vissu ekki hvor af annarri BANDARÍSKU skautadrottningarnar Nancy Kerrigan (tv.) og Tonya Hard- ing æfðu samtímis á ólympíusvellinu í Hamar í Noregi tvisvar sinnum í gær að viðstöddum aragrúa frétta- manna og ljósmyndara. Er það í fyrsta sinn sem þær eru í návígi frá því Kerrigan varð fyrir líkamsárás líf- varða Hardings fyrir sex vikum. Mikl- ar öryggisráðstafanir voru viðhafðar af hálfu framkvæmdaraðila Ólympíu- leikanna í Lillehammer, 150 lögreglu- menn voru á verði innan hallarinnar og utan meðan á æfingunni stóð eða fimm sinnum fleiri en venjulega. Kerr- igan og Harding deildu ekki búnings- klefa í höllinni og eftir því var tekið að þær létu sem þær vissu ekki hvor af annarri allan tímann. Væri önnur þeirra á svellinu stóð hin út við vegg, sneri baki í svellið og spjallaði eða flissaði við aðstoðarmenn. Skautuðu þær samtímis horfðu þær aldrei hvor á aðra. Harding átti í erfiðleikum með ýmsar æfíngar og bar við ökklaeymsl- um. Báðar báru sig þó vel og veifuðu til viðstaddra er þær luku æfingu og héldu frá höllinni hvor í sinni bifreið- inni. Sjá fréttir á bls. 42 og 43. Hergagnaflutningar sagðir hafnir fyrir alvöru frá Sarajevo Rússar fá Bosníu-Serba til að aflétta umsátri Gert klárt TÆKNIMENN í flugmóðurskipinu Ark Royal koma ljósmyndabúnaði fyrir í þotu fyrir könnunarflug yfir Bosníu í gær. Sar^jevo, Washington, New York. Reuter. BOSNÍU-Serbar hófu mikla liðsflutninga frá fjöllunum um- hverfis Sarajevo í gær og hétu því að vera farnir á brott með umsáturssveitir sínar og þungavopn fyrir laugardag, að sögn Bills Aikmans, talsmanns friðargæslusveita Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) í Bosníu (UNPROFOR) í gærkvöldi. Bandarísk, bresk og frönsk yfirvöld brugðust af varfærni við þessum fregnum en Owen lávarður, sáttasemjari í Bosníudeilunni, sagði að reyndust þær réttar drægi úr líkum á loftárásum Atlantshafs- bandalagsins (NATO) á skotmörk Serba við Sarajevo. Samþykkja að valdaráns- mönnunum verði sleppt Jeltsín hyg-gst stofna ráðgjafarþing við hliðina á dúmunni Moskvu. Reuter. LÍTIÐ vantaði uþp á að rússneska þingið samþykkti í gær að gefa þeim upp sakir sem stóðu að valdaránstilraununum gegn Míkhaíl Gorbatsjov, þáveranda forseta Sovétríkjanna, og síðar Borís Jeltsín, forseta Rússlands. Er litið á tillöguna sem beina ögrun við Jeltsín en hann svaraði fyrir sig á öðrum vettvangi þegar hann tilkynnti í gær að stofnað yrði eins konar ráðgefandi þing, sem ætti að vera tengiliður milli hans og almennings í land- inu. Er búist við að þingið eða dúman þar sem andstæðingar hans eru í meirihluta muni bregðast illa við því. Það var flokkur þjóðernisöfga- mannsins Vladímírs Zhírínovskíjs, Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn, sem bar fram tillöguna um sakar- uppgjöf valdaránsmannanna og fékk hún atkvæði 200 þingmanna en 75 voru á móti. Voru margir fjarverandi en tilskilinn meirihluti í dúmunni er 223. Var tillögunni vísað til þingnefndar og verður lík- lega borin upp aftur. Tillagan var bein atlaga að Jelts- ín, sem vill draga valdaránsmenn- ina fyrir dóm þótt það virðist raun- ar erfitt vegna þess hve ófullkomin rússneska refsilöggjöfin er. I tilkynningu frá skrifstofu Jeltsíns sagði að nýja ráðgjafar- þingið eða -ráðið yrði skipað full- trúum 250 samtaka, stjórnmála- flokka, trúfélaga, verkalýðsfélaga, samtaka í atvinnulífinu og ann- arra. Á ráðið að vera tengiliður milli forsetaembættisins og al- mennings og taka til meðferðar ýmis mikilvæg þjóðfélagsmál. Á það koma saman reglulega einu sinni í mánuði en þess á milli mun 15 manna forsætisnefnd vera að störfum. í tilkynningunni var ekki minnst á dúmuna, hið eiginlega þing, sem kjörið var 12. desember en með stjórnarskránni, sem þá var einnig samþykkt, voru völd þess skert frá því, sem áður var. Jeltsín hefur raunar lýst yfir, að það sé aðeins í aukahlutverki í rússneskum stjórnmálum og undirgefið forset- Rússar buðust í gær að senda állt að 800 hermenn til friðargæslu- starfa á Sarajevo-svæðinu og sagði Radovan Karadzic leiðtogi Bosníu- Serba að það hefði orðið til þess að Serbar féllust á að draga sveitir sín- ar og vopn til baka. „Það eiga mikl- ir liðsflutningar sér stað, heilu her- gagnalestirnar eru að fara úr fjöllun- um,“ sagði Aikman. Fulltrúar bandarískra og breskra stjórnvalda sögðu að framtak Rússa í Bosníu væri fagnaðarefni ef það leiddi til þess að þungavopn hyrfu frá Sarajevo. Talsmenn NATO sögðu að engin breyting yrði á afstöðu bandalagsins til umsáturs Serba um Sarajevo. Hótunin um að gera loftárásir frá og með miðnætti á sunnudagskvöld á stórskotasveitir þeirra í allt að 20 km fjariægð frá borginni stæði óhögguð. Þeir sögðu að samkomulag Rússa og Bosníu-Serba væri til kom- ið vegna ákvörðunar NATO. Vítalíj Tsjúrkin aðstoðarutanríkisráðherra Rússa sagði hins vegar í gær að loftárásir yrðu óþarfar, það yrðu einfaldlega engin skotmörk til. Talsmenn NATO sögðu allt þar til að samkomulag Rússa og Bosníu-Serba lá fyrir að langt væri í land með að bæði múslimar og Bosníu-Serbar uppfylltu skilyrði bandalagsins um afhendingu þunga- vopna eða brottflutning þeirra frá Sarajevo. Grikkir gagnrýndir Grikkir voru harðlega gagnrýndir í gær af bandamönnum þeirra í Evrópusambandinu fyrir að loka fyr- ir aðdrætti til Makedoníu um hafnar- borgina Saloniki. Ákvörðun Grikkja, sem fara með forystuhlutverk í Evr- ópusambandinu, hefur orðið til þess að auka á pólitíska kreppu milli þeirra og annarra sambandsríkja. Frakkar sögðu hana hafa orðið til þess að auka spennu á Balkanskaga þegar þörf væri á að draga úr við- sjám, Danir lýstu hneykslan sinni því verið væri að loka landamærum Evrópusambandsins gagnvart þriðja ríki og ÞjóðveFjar sögðust myndu kanna hvort Grikkir hefðu gerst sek- ir um brot á reglum sambandsins eða öðrum alþjóðasamþykktum. Sagði Jacques Delors forseti fram- kvæmdastjórnarinnar í óvenju ber- orðri yfirlýsingu að ákvörðun Grikkja gengi gegn hagsmunum sambandsins. í stríð við Benetton París. Reuter. LUCETTE Michaux-Chevry, ráðherra mannúðarmála í frönsku stjórninni, sagði Benetton-fyrirtækinu stríð á? hendur í gær og hvatti fólk til að sniðganga vörur þess. Ástæðan fyrir stríðsyfirlýs- ingu frú Michaux-Cheviy er nýjasta auglýsingaherferð Ben- etton þar sem blóði drifin föt Bosníu-Króata, sem féll í bar- daga við Mostar í fyrrasumar, eru notuð til að vekja athygli á litaglöðum fatnaði fyrirtækis- ms.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.