Morgunblaðið - 18.02.1994, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
‘I-
Þingsályktunartillaga um byggðaáætlun næstu 4 ára
Stefnt að aukinni opinberri
þjónustu á landsbyggðinni
EITT meginmarkmið byggða-
stefnu er að efla byggð á svæð-
um þar sem hægt er að reka
fjölbreytt og arðsamt atvinnulíf
og veita þjónustu að kröfum
nútímasamfélags og á í því sam-
bandi að stefna að því að auka
opinbera þjónustu og starfsemi
opinberra stofnana á lands-
landshlutum, verði fyrst og fremst
í stærstu þéttbýlisstöðunum og
jafnframt verði stefnt að því að
draga ekki úr þeirri opinberu þjón-
ustu á vegum ríkisins sem nú er
veitt á landsbyggðinni.
Þá segir að stefna skuli að vald-
dreifíngu með því að færa verkefni
frá ríki til sveitarfélaga. Forsenda
fyrir því sé sameining eða samn-
ingsbundið samstarf sveitarfélaga.
Til að ná þessu fram verði opinber
þjónusta og starfsemi opinberra
stofnana aukin á landsbyggðinni
en dregin saman á höfuðborgar-
svæðinu að sama skapi.
byggðinni en draga hana saman
á höfuðborgarsvæðinu að sama
skapi. Þetta kemur meðal annars
fram í þingsályktunartillögu um
stefnumótandi byggðaáætlun
1994-1997 sem forsætisráð-
herra hefur lagt fram á Alþingi
og rædd var í gær. Forsenda
tillögunnar er skýrsla sem
Byggðastofnun sendi frá sér á
síðasta ári.
í ályktuninni segir, að megin-
markmið byggðastefnu séu að
treysta byggð þannig að gæði
Talsmaður breska sjávarútvegsins um ferð Óttars Birtings
Reglurnar leyfa ekki fisk
veiðar á Rockall-svæðinu
landsins og aðrar auðlindir til lands
og sjávar verði nýttar með hag-
kvæmum hætti. Að efla samfelld
atvinnu- og þjónustusvæði og
draga úr fólksflutningum til höfuð-
borgarsvæðisins þannig að mann-
virki þjóðarinnar nýtist skynsam-
lega.
Togarinn veiðir á alþjóðlegu frjálsu svæði segir útgerðarmaðurinn
Aukin þjónusta
Stefnt verði að því að ný opinber
þjónusta, sem almenningur þurfi
að leita til og þjóna skuli heilum
TOGARINN Óttar Birtingur er á leið til lönguveiða rétt utan
við 200 mílna landhelgi íslendinga á Hatton-Rockall-svæðinu.
Unnsteinn Guðmundsson, útgerðarmaður togarans, segist
ekki hafa ástæðu til að ætla annað en togarinn fái að veiða
þar í friði enda sé þetta alþjóðlega fijálst svæði og þar hafi
veiðar verið stundaðar, þótt íslendingar hafi ekki farið þang-
að áður svo hann viti. Talsmaður breska sjávarútvegsráðu-
neytisins segir að reglur leyfi ekki veiðar á svæðinu.
„Spumingin er hvað Rockall-
svæðið er stórt, hvort það nær inn
í íslensku landhelgina. Við höfum
ekki ástæðu til að ætla annað en
við fáum að veiða þarna í friði en
svo á eftir að koma í ljós hvort
við veiðum eitthvað, kannski er
enginn fískur þarna. Bretarnir eru
aðallega að pæla í botninum á
Forsætisráðherra vegna tilmæla frá hagsmuna- og félagasamtökum sjómanna
Greenpeace á ekki skil
ið að eiga aðild að IMO
„GREENPEACE á ekki skilið að eiga aðild að öryggisstofnun sem
Alþjóðasiglingamálastofnuninni," sagði Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að honum voru afhent
tilmæli til ríkisstjórnarinnar frá sex félags- og hagsmunasamtökum í
sjávarútvegi um að hún beiti sér fyrir því á vettvangi Alþjóðasiglinga-
máiastofnunar, IMO, að Greenpeace verði synjað um endurnýjun á
áheymaraðild að stofnuninni vegna ágangs við fjóra íslenska skuttog-
ara í Smugunni í október á síðasta ári. Forsætisráðherra mun leggja
tilmælin fyrir á ríkisstjóraarfundi næsta þriðjudag.
Davíð Oddsson sagði í samtali við
Morgunblaðið að eftir framgöngu
Greenpeace á sjó, meðal annars í
Smugunni síðastliðið haust, sýndist
honum sem samtökin ættu ekki skil-
ið að eiga aðild að öryggisstofnun á
borð við Alþjóðasiglingamálastofn-
unina. Tilmælin verða lögð fyrir
ríkisstjómina á þriðjudaginn kemur.
I þeim segir meðal annars að þegar
áheymaraðild Greenpeace-samtak-
anna hafí verið samþykkt árið 1991
hafí þau skuldbundið sig til þess að
starfa í samræmi við markmið
stofnunarinnar sem er að efla öryggi
sæfarenda. Var þeim jafnframt gert
að skuldbinda sig til þess að fara
eftir alþjóðasiglingareglum auk þess
að bijóta ekki í bága við sæmdarregl-
ur um siglingar.
Ágangur í Smugunni
Greint er frá ágangi af hálfu
Greenpeace vegna hvalveiða og nú
síðast vegna veiða íslendinga í
Smugunni í október á síðasta ári.
Er tiltekið dæmi þegar Solo, skip
samtakanna, réðst að fjórum íslensk-
um togurum við veiðar á svæðinu.
Með vísan til sjóprófa sem haldin
voru vegna tveggja tiltekinna at-
burða í október og nóvember í Smug-
unni telja félags- og hagsmunasam-
tökin sex að fullsannað sé að Green-
peace hafí brotið gegn þeim skilyrð-
um sem sett voru fyrir áheymaraðild
þeirra að Alþjóðasiglingamálastofn-
uninni. Telja samtökin að Green-
peace eigi ekkert erindi á starfsvett-
vang „siðaðra siglingaþjóða" á með-
an meðlimir þeirra ógni öryggi sæ-
farénda á alþjóðahafsvæðum.
Ljóst sé hvemig þau ógni tilveru-
rétti fískveiðiþjóða með öfgafullum
áróðri og ólöglegum aðgerðum. Til-
mælunum lýkur með áskorun um að
snúa vöm í sókn áður en íslendingar
og aðrar fískveiðiþjóðir bíði frekari
skaða af en undir þau skrifa fulltrú-
ar Farmanna- og fískimannasam-
bandsins, Fiskifélagsins, LÍÚ, Land-
sambands smábátaeigenda, Sjó-
mannasambandsins og Vélstjórafé-
lagsins.
landgrunninu,“ sagði Unnsteinn.
Aðspurður um hvað gert yrði við
fískinn, ef einhver veiddist, sagði
hann að það yrði bara að koma í
ljós.
Skipið fór til veiða í Flæmska
hattinum við Nýfundnaland fyrir
u.þ.b. hálfum mánuði en veiddi
ekki neitt „því þar var fískurinn
bara blóðnæli", eins og Unnsteinn
orðaði það. Hann segir skipið hafa
lent í brælu á leiðinni þaðan og
enn séu einhverjir dagar í að það
komi á Rockall-svæðið.
Óttar Birtingur er 800 tonna
skip með 24 menn í áhöfn. Það
er gert út af útgerðarfélaginu
Skriðjökli á Fáskrúðsfirði en er
skráð í Panama. „Undarleg íslensk
lög sem leyfa ekki skráningu á
svona gömlu skipi gera það að
verkum að við getum ekki verið
algjörir íslendingar í veiðum,“
sagði Unnsteinn.
Talsmaður ráðuneytisins sem
fer með sjávarútvegsmál í Bret-
landi segir að nafni skipsins verði
komið á framfæri við það emb-
ætti sem samsvarar íslensku land-
helgisgæslunni en óvíst sé hvað
síðan taki við. „Yfírvöld á íslandi
þekkja reglurnar í kringum Rock-
all og þær leyfa ekki veiðar."
Lagafrumvarp tíl breytmga á leikskólalögum
Færsla yfír til sveit-
arfélaga innsigluð
Ný menntastefna
Skólaár lengt - námstími styttur 7
Sótt á Bandaríkjamarkað
íslensk naut án aðskotaefna 15
I :
Kirkjumwr meim \nrpn ,
***«•'■**• tZXMli
jsS5S^f»f
Aðgerð á fóstri i móðurkviði
Bjargað með örfínum áhöldum 21
Leiðari
Kalkúnalæraskjálfti 22
Fosteignir
► Nýtt hverfi á Álftanesi -
Verðmunur á verzlunarhús-
næði - Lagnafréttir - Innan
veggja heimilisins - Brot úr
sögu húsanna
Daglegt líf
Hvað gerðu þær við pening-
ana? - Vortískan - Lífrænt
ræktað grænmeti - Indland -
Hálendisferð - Skíðastaðir er-
lendis
MENNTAMÁLARÁÐHERRA, Ólafur G. Einarsson, hefur kynnt í
ríkisstjórninni frumvarp til breytinga á leikskólalögum. Ólafur segir
að öll meginmarkmið fýrri laga séu í heiðri höfð í nýju frumvarpi
og helstu breytingarnar þær að verið sé að innsigla að leikskólinn
sé kominn alfarið til sveitarfélaga.
Menntamálaráðherra skipaði
nefnd í ársbyrjun 1993 til að endur-
skoða lögin um leikskóla. Henni var
falið að taka mið af verkaskiptalög-
um milli ríkis og sveitarfélaga frá
1989 og fara yfir hlutverk og
ábyrgð ráðuneytis, foreldra, leik-
skóla, kennara og sveitarfélaga
varðandi faglega og rekstrarlega
þætti leikskólans.
Hilmar Sigurðsson í Mosfellsbæ
var formaður nefndarinnar en aðild
að henni áttu Samband íslenskra
sveitarfélaga, Foreldrasamtökin,
Fóstrufélag Islands og deildarstjóri
leikskóladeildar menntamálaráðu-
neytisins. Nefndin lauk störfum sl.
haust og hefur frumvarpið verið til
athugunar í menntamálaráðuneyt-
inu síðan.
Helstu breytingar segir mennta-
málaráðherra vera þær að með nýju
frumvarpi séu t.d. leyfísveitingar
fyrir rekstri leikskóla færðar frá
ráðuneytinu yfir til sveitarstjórna.
I breyttum lögum er ákvæði um
að sameiginleg nefnd grunnskóla
og leikskóla fari með málefni leik-
skólans í umboði sveitarstjórna.
Með hliðsjón af því er einnig gert
ráð fyrir að grunnskóli flytjist yfír
til sveitarfélaga á næsta ári og lagt
til að starfsemi leikskólanna tengist
skolaskrifstofu viðkomandi grunn-
skólaumdæmis en ekki fræðslu-
skrifstofum eins og er í gildandi
lögum. Þá verður losað um tengsl
við ráðuneytið eða fyrirmæli þaðan.
Gert er ráð fyrir að menntamála-
ráðuneyti fari með yfírstjórn leik-
skolans eins og a öðrum skólastig-
um og að þar verði stefnan mótuð.