Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994 Fjárhagsáætlun Seltjarnarness fyrir árið 1994 samþykkt Hitaveita Seltjarnarness lækkar verð á vatni um 10% BÆJARSTJÓRN Seltjarnarness hefur samþykkt fjárhagsáætlun bæjar- ins fyrir árið 1994. Tekjur eru áætlaðar 458.200.000 krónur og gjöld 387.387.000. Gert er ráð fyrir að útsvar verði 8,4% og að fasteigna- gjöld vegna íbúðarhúsnæðis verði 0,375%. Ákveðið hefur verið vegna góðrar afkomu hjá Hitaveitu Seltjarnarness að lækka verð á vatni um 10% frá siðustu áramótum. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, gerði grein fyrir ijárhagsáætlun bæjarins við síðari umræðu. Fram kom að vegna breytinga á tekjustofn- um sveitarfélaga hækkuðu tekjur bæjarsjóðs um 37 millj. að frádregnu aðstöðugjaldi og landsútsvörum sem falla niður en þessi tekjustofn var um 23 milljónir á síðasta ári. Þessi hækkun verður til þess að hægt er að falla frá 33 milljóna lántöku til holræsamála sem fyrirhuguð var. Þá hefur stjóm veitustofnana Seltjam- amess gengið frá fjárhagsáætlun Hitaveitu og Vatnsveitu Seltjamar- ness og vegna góðrar afkomu hjá hitaveitunni var ákveðið að lækka vatnsverð um 10% frá síðustu ára- mótum. Gert er ráð fyrir 0,15% vatns- skatti og að hreinsigjald verði 2.800 krónur og að sorpeyðingargjald verði 4.000 krónur. Helstu tekjur em út- svar sem áætlað er 383 millj., fast- eignagjöld em áætluð 63 millj. og arður af fyrirtækjum er áætlaður 12 milljónir. Samþykkt var samhljóða að veita 15.000 króna afslátt af fast- eignagjöldum til elli- og lífeyrisþega. Helstu gjaldliðir að frádregnum tekjum, öðmm en skatttekjum, em almannatryggingar og félagshjálp 79,6 millj., skólamál 79 millj., gatna- og holræsagerð 47,6 millj., stjórn sveitarfélagsins 33 millj. og almenn- ingsgarðar og opin svæði 23 milljón- ir. Til íþrótta- og æskulýðsmála er áætlað að veija 20 millj., í fjármagns- kostnað fara 20 millj., til skipulags- mála fara 12 millj. ogtil menningar- og félagsmála er varið 15 milljónum. Helstu framkvæmdir á árinu verða í holræsamálum eða við hreinsun strandlengjunnar og er áætlað að veija til þess 25 milljónum. 12 millj. verður varið til stækkunar Valhúsa- skóla og 22 millj. til lokaáfanga við Hjúkrunarheimilið Eir í Grafarvogi. Auk þess verður varið 45 milljónum til gatnagerðar og umhverfismála. Bókun minnihluta Fjárhagsáætlunin var samþykkt með fimm atkvæðum en tveir bæjar- fulltrúar, þær Siv Friðleifsdóttir og Guðrún K. Þorbergsdóttir, sátu hjá og lögðu fram bókun, þar sem fram kemur að vegna mikilla viðbótar- tekna bæjarins í kjölfar nýrra tekju- stofnalaga telji þær að endurskoða beri fjármálastefnu bæjarins. Lagt er til að áhersla verði lögð á landa- kaup á vestursvæðinu, viðbyggingu við Mýrarhúsaskóla, nýr 3-4 deilda leikskóli sem leysti Fögrubrekku og Litlubrekku af hólmi og loks sjóvam- ir. VEÐUR I DAG kl. 12.00 Hsimild: Veðurstofa (slanda (Byggt á voðurspá M. 16.30 f gær) VEÐURHORFUR I DAG, 18. FEBRUAR YFIRLIT: Um 500 km suðvestur af Reykjanesi er 970 mb víðáttumikil lægð sem þokast norðvestur, en yfir Austur-Grænlandi er 1.025 mb hæð. Langt suövestur í hafi er vaxandi 995 mb lægð sem hreyfist norð- austur með stefnu á landið vestanvert. SPÁ: Suðaustfæg átt, víða stinníngskaldi. Rigning suðaustanlands og einnig öðru hverju suðvestan- og vestanlands, en úrkomulítið verður norðan heiða. Annað kvöld hvessir um landið sunnanvert. Hiti verður víðast á bilinu 3-8 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAGiAllhvöss suðaustanátt á iandinu. Rigning um allt sunnan- og vestanvert landið og einnig austanlands, en þurrt að mestu norðanlands. Hiti 5-6 stig. HORFUR Á SUNNUDAG Sunnan- og suðvestankaldi eða stinning- skaldi. Skúrir sunnan- og vestanlands, en þurrt um norðan- og norðaust- anvert landið. Hiti 2-3 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Fremur hæg S- og SA-átt. Dálítil siydda SV- og V-lands en að mestu úrkomulaust annars staðar. Hiti um frostmark. Nýir veðurfregnatfmar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsítni Veðurstofu (slands — Veðurfregnir: 990600. o A Sunnan, 4 vindstig. Vindðrin sýnirvindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. r r r * r * * * * • Á * 10° Hitastig r r r r r * / r * r * * * * * v v V v Súld ] Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél tl = Þoka ^ FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Allgóð vetrarfærð er nú á vegum landsins. Steingrímsfjarðarheiði er ófær en verður mokuð á morgun. Einnig verður vegurinn um Mosfells- heiði opnaður. Veruleg hálka er víða á vegum, einkum norðanlands. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f síma 91-631500 og ígrænniiinu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hltl veður 4 skýjað 6 rigningýs.klst. Björgvln 0 Helslnki +4 Kaupmannahöfn 1 Narssarssuaq +1 Nuuk Óaló Stokkhólmur +4 Þórshöfn 4 hálfskýjað skýjað skafrenningur -f-10 heiðskírt +5 þokumóða léttskýjað skýjað Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg London LosAngeles Lúxemborg Madrtd 1 +1 Mallorca Montreal NewYork OHando París Madelra Róm Vín Washington Winnipeg 15 háffskýfað 3 léttskýjað 12 hálfskýjað +2 léttskýjað vanter skýjað skýjað +2 mistur 0 léttskýjað 6 alskýjað 13 rígning vantar 9 heiðskírt 16 heiðskírt 13 skýjað +11 skýjað +6 léttskýjað 16 skúrás.klst. 2 jjokumóða 17 hálfskýjað 10 þokumóða +6 skafrenningur +1 þokumóða +12 alskýjað Morgunblaðið/Þorkell Islandia til Grænhöfðaeyja RANNSÓKNASKIPIÐ Islandia hélt áleiðis til Grænhöfðaeyja síðdegis í gær. Siglingin suður mun taka þtjár vikur og verður skipið afhent stjórn- völdum á eyjunum í byijun fnars, sem hluti af þróunaraðstoð íslands. Frambjóðendur Nýs vett- vangs og Kvennalista valdir GUÐRÚN Ögmundsdóttir borgarfulltrúi Kvennalistans mun skipa 3. sætið á sameiginlegum framboðslista minnihlutaflokkanna í Reyly'avík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor og Steinunn Óskarsdóttir, starfskona hjá Kvennfélagasambandi íslands, skipar 7. sætið á listan- um. Þá hefur borgarmálaráð Nýs vettvangs, samþykkt að Guðrún Jóns- dóttir borgarfulltrúi Nýs vettvangs taki 10. sæti á listanum. Frambjóðendur Kvennalistans voru valdir með þeim hætti að upp- stillingamefnd gerði skoðanakönnun meðal kvennaiistakvenna í Reykjavík og raðaði upp frambjóðendum með hliðsjón af niðurstöðum hennar. Var tillaga uppstillingamefndar síðan samþykkt einróma á félagsfundi í Kvennalistanum í fyrrakvöld. Niður- staðan varð sú að Guðrún Ögmunds- dóttir varð í 1. sæti, Steinunn Ósk- arsdóttir í 2. sæti, Hulda Ólafsdóttir sjúkraþjálfari í 3. sæti, Kristín A. Amadóttir, starfskona á alþjóða- skrifstofu Háskóla íslands, í 4. sæti, Margrét Sæmundsdóttir, varaborg- arfulltrúi, í 5. sæti og Kristín Blön- dal, myndlistarkona og fóstra, i 6. sæti. Guðrún Jónsdóttir Nýjum vett- vangi, sagði að 10. sætið hafí verið boðið óháðum frambjóðanda úr sín- um röðum en Nýr vettvangur var kosningabandalag Birtingar, Al- þýðuflokks, óháðra og Reykjavíkur- félag. Málefnasamningur um mánaðamót Ingibjörg Sólrún Gísladóttir al- þingiskona hefur ekki gefið endan-' iegt svar hvort hún tekur 8. sætið sem borgarstjóraefni á sameiginlega listanum og er ekki gert ráð fyrir að það skýrist fyrr en málefnasamn- ingur framboðsins iiggur fyrir um eða upp úr næstu mánaðamótum. ------»■.«------- Björk kærð BRESKUR lagahöfundur Simon Lovejoy, öðru nafni Simon Fisher, hefur kært Björk Guðmundsdótt- ur, vegan höfundarréttar á fjórum lögum af metsöluplötunni „Deb- ut“. í yfirlýsingu Bjarkar og fyrirtækis hennar One Little Indian Records er því staðfastlega neitað að Björk og Simon Fisher hafí sameiginlega sam- ið lög á plötunni „Debut“. Lögfræð- ingar hafí fengið kæruna til meðferð- ar. í frétt breska dagblaðsins Daily Mail í gær er haft eftir lögfræðingi Simons Fishers, sem er sagður sér- fræðingur í málum er varða höf- undarrétt, að kæran nái til laganna „Human Behaviour", „Venus as a Boy“, „Aeroplane" og „Crying". Verði Björk dæmd er talið að hún muni þurfa að greiða rúmlega fímm milljónir króna í skaðabætur. Hún er nú stödd í París á hljómleikaferða- lagi, en segir ekkert um málið að ráði lögfræðinga sinna. Jón Björnsson rithöfundur látinn JÓN Björnsson rithöfundur lést á Elliheimilinu Grund sl. þriðjudag, á áttugasta og sjöunda aldursári. Jón fæddist 12. mars árið 1907 í Holti á Síðu í Vestur-Skaftafells- sýslu, sonur Björns Runólfssonar, bónda og hreppstjóra þar, og Marínar Þórarinsdóttur. Jón stundaði nám á Lýðháskólan- um í Voss í Noregi 1929-1930 og Askov í Danmörku 1930-1932. Hann var búsettur í Kaupmannahöfn 1932- 1945 þar sem komu út eftir hann sjö skáldsögur og drengjabækur á þeim tíma en síðan flutti Jón tii Reykjavíkur og starfaði sem bók- menntagagnrýnandi við Morgun- blaðið 1948-1955. Hann var bóka- vörður við Borgarbókasafn Reykja- víkur 1959 til 1977 er hann lét af störfum sökum aldurs. Jón sat í stjórn Félags íslenskra rithöfunda 1949-1951. Meðal rita hans má nefna skáldsögurnar Heiður ættar- innar, sem út kom 1946, Jón Ger- reksson, 1947, Máttur jarðar, 1949, Búddhamyndin, 1948, Dagur fagur prýðir veröld alla, 1950, Valtýr á grænni treyju, 1951, en hún kom út í danskri þýðingu 1977, Eldraunin, 1952, Bergljót, 1954, Allt þetta mun ég gefa þér, 1955, Jómfrú Þórdís, 1964, og drengjabækurnar Leyndar- dómur fjallanna, 1947, Smyglararnir í Skeijagarðinum, 1948, Sonur öræf- anna, 1949, Á reki með hafísnum, 1950, og Steini Ásdal, 1957. Auk þess leikritið Valtýr á grænni treyju, 1953, Dauðmannskleif, þættir, árið 1954, Maðurinn og hafið, smásaga, og fleiri smásögur og greinar sem birtust í blöðum og tímaritum á Norðurlöndum og víðar. Hann rit- stýrði Heima er best 1952-1955 og ýmsum afmælisritum, Jón kvæntist Bjamfríði Guðbjörgu Sigurðardóttur fótsnyrtisérfræðingi árið 1939. Hún lést árið 1967. Jón kvæntist síðan Grétu Sigfúsdóttur rithöfundi árið 1973. Hún lést árið 1991.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.