Morgunblaðið - 18.02.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
7
Tillögur að lagafrumvarpi um framhaldsskóla
Skólaárið lengt og
námstíminn styttur
Yfirlýsing
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing:
Vikublaðið Eintak birti 17.
febrúar „einkunnagjöf" fyrir þing-
menn og ráðherra og segist hafa
„leitað til þingfréttaritara af öllum
dagblöðunum og fréttastofum út-
varps- og sjónvarpsstöðva“. Tekið
skal fram að blaðamaður Eintaks
hafði samband við undirritaða
þingfréttamenn Morgunblaðsins,
Útvarpsins og Sjónvarpsins sem
höfnuðu að taka þátt í „miðsvetr-
arprófi þingfréttaritara“, eins og
vikublaðið kallar það.
Atli Rúnar Halldórsson
þingfréttamaður Útvarps,
Helgi Már Arthúrsson
þingfréttamaður Sjónvarps,
Valgerður A. Jóhannsdóttir
þingfréttamaður Útvarps,
Guðmundur Sv. Hermannsson
blaðamaður Morgunblaðsins,
Ómar Friðriksson
blaðamaður Morgunblaðsins.
NEFND um mótun menntastefnu afhenti menntamálaráðherra
tillögur að frumvarpi til laga um framhaldsskóla í gær og gera
þær ráð fyrir víðtækum breytingum á uppbyggingu framhalds-
skólakerfisins. Er þannig gert ráð fyrir skólaárið verði lengt úr
níu mánuðum í tíu og heildarnámstími til stúdentsprófs verði stytt-
ur úr fjórum árum í þrjú, til að nýta betur skólatíma framhalds-
skóla. Einnig er lagt til að starfsnám verði stóreflt og að aðilar
atvinnulífsins taki virkan þátt í stefnumótun og tillögugerð um
skipan og framkvæmd starfsnáms með þátttöku í stjórnun þeirra.
Einnig er lagt til að sett verði sveigjanleg inntökuskilyrði fyrir
nemendur til að innritast á einstakar námsbrautir framhalds-
skóla. Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, sagði í gær að
tillögurnar fælu í sér mestu og jákvæðustu breytingar á mennta-
kerfinu seinustu áratugi.
„Að hluta eru tillögurnar við- aftur til þess tíma að allt niður í
brögð við þeim vanda að nemendur unga nemendur hafi greiðan að-
hafa ekki sama aðgang að vinnu gang að atvinnu yfir sumartímann,
og áður. Seinustu ár hafa töluverð- eins og var og einkenndi bæði skóla-
ir kraftar farið í að búa til verkefni kerfi og atvinnulíf. Með þessu er
fyrir það unga fólk sem fær ekki ungu fólki séð fyrir uppbyggilegum
vinnu og við hverfum jafnvel aldrei viðfangsefnum í stað þess að ráfa
------------------------------- lengi um atvinnulaust," segir Ólaf-
ur.
Styttan
af Jón-
asi færð
Allt að 5 ára aðlögunartími
Nefndin um mótun menntastefnu
hefur sl. tvö ár unnið undir for-
mennsku Sigríðar Önnu Þórðardótt-
ur, alþingismanns, að tillögum um
breytingar á lögum um menntun
hérlendis að háskólastigi og mun á
næstunni skila tillögum varðandi
grunnskóla og eru þær tengdar
hugmyndum um breytingar á fram-
haldsskólum. Tillögurnar nú verða
kynntar í ríkisstjórn á næstu dög-
um, samtímis því að ýmsir aðilar
fá þær sendar til umsagnar, s.s.
samtök kennara og foreldra, skóla-
stjórar og aðilar í atvinnulífi. Gert
er ráð fyrir að frumvarpið verði
lagt fyrir Alþingi í vor og stefnt
er að því að skólakerfið hafi allt
að fimm ára aðlögunartíma að
breytingunum, verði það samþykkt.
Ólafur sagði tillögurnar fela í sér
verulega hagræðingu, þótt ekki
hafi verið kannað hvort breyting-
arnar geri skólakerfið ódýrara en
nú er. Bætt skólakerfi sem skili
betri nemendum sé markmiðið.
Hann kveðst ekki búast við að til-
lögurnar mæti mikilli mótspyrnu,
þar sem vitneskja um galla skóla-
kerfisins og þörfina á úrbótum hafi
aukist mjög undanfarin ár, eins og
viðvaranir frá Háskóla íslands
vegna árangurs nýnema hafi leitt
í ljós. „Ekki er verið að loka neina
úti með þessum breytingum þó að
gerðar séu meiri kröfur, heldur er
verið að opna fleiri leiðir sem hæfa
hveijum og einum. Starfsnám er
eflt því í dag er of rnikil áhersla
lögð á bóknámsbrautir og stúdents-
STYTTAN af Jónasi frá Hriflu
sem stóð á milli Safnahússins
við Hverfisgötu og Arnarhvols
var tekin niður af stalli sinum
fyrir skömmu og færð í
geymslu ásamt stallinum.
Steindór Guð-
mundsson, for-
stöðumaður
Framkvæmda-
sýslu ríkisins,
sagði í samtali
við Morgunblað-
ið að styttan hafi -
verið flutt vegna
fyrirhugaðra
framkvæmda við
hús Hæstaréttar
og eigi að rísa á
horni Sölvhóls-
götu og Ingólfs-
strætis fyrir
framan rnennta-
málaráðuneytið
með vorinu. Hafi flutningurinn
verið í samráði við forystu Fram-
sóknarflokksins.
Styttan af Jónasi Jónssyni frá
Hriflu er eftir Einar Jónsson og
var sett upp í fjármálaráðherratíð
Albeits Guðmundssonar árið
1985.
Styttan af Jón-
asi frá Hriflu
--------i—:---
Morgunblaðið/Sverrir
Tillögur afhentar
ÓLAFUR G. Einarsson, menntamálaráðherra, veitir viðtöku tillögum
um frumvarp til laga um framhaldsskóla úr hendi Sigríðar Önnu
Þórðardóttur, formanns nefndar um mótun menntastefnu.
prófið þó að því ljúki ekki nema
um 35% af árganginum og brottfall-
ið er ótrúlega mikið, eða um helm-
ingur sem finnur ekki neitt sér við
hæfi,“ segir Ólafur.
Meiri fjölbreytni
Sigríður Anna segir að hlutfall
þeirra sem ekki ljúka framhald-
skólanámi sé mun hærra hérlendis
en í nágrannalöndum okkar. Gagn-
rýni fulltrúa atvinnulífsins á skóla-
kerfið hafí jafnframt aukist. Muni
breytingarnar leiða til meiri fjöl-
breytni í námsframboði en verið
hefur til þessa og að fleiri nemend-
ur ljúki námi. „Nám í framhalds-
skóla hefur allt miðað að stúdents-
prófi en við leggjum til meiri verka-
skiptingu skóla og að við upphaf
náms verði námið miðað við loka-
markmiðið, þannig að fjölbreytileiki
þess eykst gagnvart mismunandi
einstaklingum með mismunandi
hæfileika," segir Sigríður.
Tillögur þær sem nefndin skilar
á næstunni varðandi grunnskóla
gera m.a. ráð fyrir að samræmdum
prófum verður fjölgað á grunn-
skólastigi og einnig samræmdum
könnunarprófum, í þeim tilgangi
að uppgötva námserfiðleika og fyr-
irbyggja slakan námsárangur nem-
enda á fyrstu stigum kennslunnar.
-
m
ALDREI BETRA VB
-
DÆMI
KR BDO
MARIO BUXUR
BERT SILKIVESTI
KR. 1800
DiA PILS
KR. 1990
BARBÖ SILKIPEYSA
KR. 2290
FANCY BUTAPtLS
KR. 2490
KR. 2990
OCEAN KJOLL
SENDUM f PÓSTKRÓFU
VERO mODA
LAUGAVEGI 81 SÍMI: 9 1 - 2 1 44 4 KRINGLAN 8-12 SÍMI: 9 1 - 6 8 624 4