Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 10
!ío
MÓRGÚÚBLAÐIÐ' FÖáTÚDAGUá’ 18.' FEBÉ'ÚÁR Í9§4
UM HELGINA
Erla B. Axelsdóttir
Erla B. Axels-
dóttir sýnir í
Borgarnesi
Erla B. Axelsdóttir opnar sýningu á
verkum sínum í Safnahúsi Borgarfjarð-
ar, Bjarnabraut 4-6 í Borgarnesi, laug-
ardaginn 19. febrúar nk. kl. 14.
Erla hefur haldið átta einkasýning-
ar, síðast sýndi hún í Listasafni ASI.
Jafnframt hefur Erla tekið þátt í sam-
sýningum hér heima og erlendis, síðast
nú í desember í alþjóðlegri smámynda-
sýningu sem haldin var í Del Bello
gallerí í Toronto í Kanada.
Erla starfrækir Art-Hún gallerí og
vinnustofur ásamt ijjórum öðrum lista-
konum á Stangarhyl 7 í Reykjavík.
Á sýningu Erlu í Safnahúsi Borgar-
ijarðar- gefur að líta olíumálverk og
pastelmyndir unnar á undanförnum 2-3
árum. Við opnun sýningarinnar sér
Bjöm Leifs um tónlist.
Sólveig Eggertsdóttir
Sólveig- Eggertsdóttir
sýnir í Galleríi Sólon
Islandus
Sólveig Eggertsdóttir opnar sýningu
á lágmyndum í Gallerí Sólon íslandus
í Bankastræti á morgun laugardaginn
19. febrúar kl. 15.
Verkin á sýningunni eru unnin á sl.
sumri og í vetur. Efnið er gifs, vax og
plast.
Sólveig útskrifaðist úr skúlptúrdeild
MHÍ vorið 1990 og hefur haldið tvær
einkasýningar og tekið þátt í samsýn-
ingum.
Sýning Sólveigar er opin daglega frá
kl. 11-18 og stendur sýningin fram á
mánudag 14. mars.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Þóra Sigurjónsdóttir með eina
af myndum sínum í galleríinu
heima.
Þóra Sigurjóns sýnir í
Lóuhreiðri
Sýning á myndum eftir Þóru Sigur-
jónsdóttur listakonu frá Lækjarbakka
í Gaulveijabæjarhreppi stendur yfir í
kaffistofunni Ijóuhreiðri á Laugavegi
59 í Reykjavík. Um er að ræða akrýl-
myndir og myndir málaðar á gijót og
tré.
Þóra starfrækir gallerí á heimili sínu,
Lækjarbakka í Gaulveijabæjarhreppi.
Bærinn stendur niður undir sjó og þar
er góður gestagangur þegar færð og
veður leyfa. í myndunum, sem málaðar
eru á steina og tré, birtast ýmsar kynja-
myndir og hulduverur sem boða sigur
hins góða.
Þýskur listamaður
sýnir í Portinu
Sýning þýska listamannsins Ric-
hards Mansfeld opnar á morgun, laug-
ardag, kl. 15 í Portinu, Strandgötu 50
í Hafnarfirði.
Richard Mansfeld sem er fæddur í
fyrrum Austur-Þýskalandi hefur haldið
margar einkasýningar þar í landi og
víðar í Evrópu. Hann starfar nú sem
gestalistamaður í Listamiðstöðinni
Straumi.
Sýningin stendur tjl 6. mars. Sýning-
arsalir Portsins eru opnir alla virka
daga nema þriðjudaga frá kl. 14-18.
Sýningin „Listin sigr-
ar“ í Galleríi Greip
Jóhann Torfason og Halldór Baldurs-
son opna sýningu á morgun, laugar-
dag, undir yfirskriftinni „Listin sigrar"
í Gallerí Greip, Hverfisgötu 82. Þeir
útskrifuðust úr MHÍ 1989 og hafa síð-
an unnið saman að ýmsu sem viðkemur
menningarmálum segir í kynningu,
m.a. hafa þeir staðið að myndasögu-
blaðinu GISPI, veggmyndagerð og
myndlistarsýningum.
Á sýningunni verða málverk, vatns-
litamyndir, teikningar og installation.
Sýningin er sú fyrsta í röð þriggja sýn-
inga sem listkafaramir standa að í
Gallerí Greip. Listkafararnir er hópur
ungra myndlistarmanna sem myndaðist
í kringum sýningahald í Djúpinu 90-91
og er þráðurinn hér með tekinn upp
að nýju.
Eyþór Stefánsson
Kolateikningar og
vatnslitamyndir í
Listasafni ASÍ
Eyþór Stefánsson opnar myndlistar-
sýningu í Listasafni ÁSÍ, Grensásvegi
16 á morgun, laugardag, kl. 15. Þetta
er fjórða einkasýning Eyþórs, en auk
þess hefur hann tekið þátt í nokkrum
samsýningum. Aðaluppistaða sýning-
arinnar verða kolateikningar auk
vatnslitamynda.
Eyþór stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla íslands í kennaradeild og
málaradeild 1978-1983 og síðan fram-
haldsnám við Statens Kunstakademi í
Ósló 1983-1987.
Eyþór kennir nú á listasviði fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. Sýningin
varir til 6. mars nk. og verður opin frá
kl. 14-19 alla daga en lokað á miðviku-
dögum.
Erla Þórarinsdóttir í
Nýlistasafninu
Erla Þórarinsdóttir opnar myndlist-
arsýningu í Nýlistasafninu, Vatnsstfg
3b, á morgun, laugardaginn 19. febr-
úar kl. 16.
Á sýningunni gefur að líta málverk,
teikningar og rýmisverk, módel af
umhverfls- og víðavangsverkum, ljós,
liti, salt og sykur.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-18 og lýkur sunnudaginn 6. mars.
Eitt verka Guðjóns Ketilssonar
Lágmyndir og gólf-
verk í Gerðubergi
Guðjón Ketilsson opnar myndlistar-
sýningu í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
Sænskar bókmenntir
og Lars Andersson
Laugardaginn 19. febrúar kl. 16
verður fyrsta norræna bókakynningin
í röð kynninga sem sendikennarar í
Norðurlandamálum við Háskóla íslands
halda árlega í Norræna húsinu í sam-
vinnu við bókasafn hússins. Sænskar
bókmenntir verða þá til umfjöllunar og
verður sænski rithöfundurinn Lars
Andersson gestur á kynningunni. Hann
mun segja frá ritstörfum sínum og lesa
upp. Ylve Hellerud sendikennari segir
frá þvf markverðasta í sænskri bókaút-
gáfu 1993.
Lars Andersson er fæddur 1954 og
kom fyrsta skáldsaga hans „Brandlyra"
út árið 1974. Hann gaf út nokkrar
skáldsögur í viðbót an það var fyrst
með bókinni „Snjöljus" sem hann vakti
athygli. Bókin er eins konar spennu-
saga með pólitfsku og sálfræðilegu
fvafi. Hann hefur skrifað talsvert af
greinum og ritgerðum í sænsk blöð og
tímarit. Nýjasta bók hans „Vattenorg-
eln“ hefur verið lýst sem „íhugun á
síðasta tug fyrri aldrar“. Sjónarsvið og
hughrif frá aldamótunum er hugvit-
samlega skeytt saman við heild sem
er yfirgripsmeiri en lokaniðurstaðan.
Nils-Ole Lund
Fyrirlestur um nor-
ræna byggingarlist
Nils-Ole Lund, danskur prófessor í
bygginarlist, mun halda fyrirlestur í
Norræna húsinu sunnudaginn 20. febr-
úar kl. 16. Fyrirlesturinn er jafnframt
upphafið að nýjum dagskrárlið f Nor-
ræna húsinu. Á hveijum sunnudegi kl.
16 verður dagskrá þar sem fjallað verð-
ur um það sem efst er á baugi á sviði
stjórnmála, lista, trúarbragða, lýðhá-
skóla o.s.frv. Dagskráin fyrir vormán-
uðina mun Iiggja frammi í Norræna
húsinu á sunnudag.
Nils-Ole Lund sendi frá sér fyrir fjór-
um árum bókina Nordisk arkitektur.
Hún fjallar um nokkur sérkenni er
varða alþjóðlega strauma í byggingar-
list og hvernig norræn byggingarlist
tekur við og aðlagar þessa strauma og
er bókin síðust í röð margra bóka sem
Nils-Ole Lund hefur skrifað um svipað
efni.
Nils-Ole Lund hefur um árabil verið
rektor við Arkitektaskólann í Árósum.
Hann hefur átt þátt í að auk hróður
skólans, ekki síst á sviði fræðilegrar
byggingarlistar. Auk starfa sinna sem
prófessor hefur Nils-Ole Lund fengist
við að gera klippimyndir og mun hann
taka nokkrar með sér og verða þær til
sýnis f Norræna húsinu í tengslum við
fyrirlesturinn.
og Kristinn Örn Kristinsson pianóleik-
ari halda tónleika í Logalandi í Borgar-
firði á Konudaginn, sunnudaginn 20.
febrúar kl. 15.
Ljóð um konur skipa öndvegi á tón-
leikunum. Fluttur verður lagaflokkur-
inn „Helga hin fagra“ eftir Jón Laxdal
við ljóð Guðmundar Guðmundssonar.
Ljóðasöngvar eftir Schubert, Mozart,
Schumann og Hugo Wolf þar sem sung-
ið er um konuna verða einnig á dag-
skrá ásamt íslenskum sönglögum m.a.
eftir Karl O. Runólfsson, Árna Björns-
son, Elísabetu Jónsdóttur og Björn Jak-
obsson.
Margrét Bóasdóttir nam söng hjá
Barnadagskrá o g
kvikmyndasýning
Bamadagskrá verður í Norræna hús-
inu sunnudaginn 20. febrúar kl. 14.
Inger Christiansen alþýðutónlistarmað-
ur frá Danmörku verður með dagskrá
fyrir börn þar sem farið verður í leiki,
dansað og spiluð tónlist.
Að því loknu, kl. 15, verður sýnd
danska myndin „Et lojerligt eventyr".
Þetta er ævintýri með galdrakerlingu,
kóngi og prinsessu ásamt mörgum öðr-
um. Myndin er með dönsku tali og er
30 mín. að lengd.
Allir eru velkomnir og er aðgangur
ókeypis.
Nú standa yfir æfingar hjá Skjalibandalaginu á verkinu „Dóna-
lega dúkkan“.
Leikhópurinn Þormaguð
Þormaguð frumsýnir
einþáttunga
Leikhópurinn Þormaguð fmmsýnir
laugardaginn 19. febrúarkl. 17 einþátt-
ungana; „Besti volgi bjórinn í bænum“
í leikstjóm Guðmundar Haraldssonar,
leikendur eru Magnús Jónsson, Þor-
steinn Bachmann, Guðmundur Ilar-
aldsson og „Nætur í Hafnarfirði" í leik-
stjórn Þorsteins Bachmann, leikendur
eru Guðmundur Haraldsson og Magnús
Jónsson. Höfundur verkanna er Jason
Milligan, leikhópurinn hefur þýtt og
staðfært. Sýnt verður að Vesturgötu
6, Naustkjallaranum.
Æfingar hafnar á
„Dónalegu dúkkunni“
Nú standa yfir æfíngar hjá Skjall-
bandalaginu á verkinu „Dónalega
dúkkan" eftir Dario Fo og Fröncu
Rame, sem sýnt verður í húsnæði leik-
hópsins Frú Emilíu í Héðinshúsinu nú
á næstunni. Frumsýning er áætluð 8.
mars nk.
Skjallbandalagið byijaði samstarf í
kringum Óháðu listahátíðina í Reykja-
vík sl. vor og setti þá upp verkið „Við
höfum öll sömu sögu að segja“.
„Dónalega dúkkan" er verk þar sem
höfundar taka fyrir konuna í hinum
ýmsu myndum og velta fram á stundum
gi’átlegan og þó helst sprenghlægilegan
hátt persónum og-uppákomum þar sem
ítalskur hiti og ástríður kvenna fara
með aðalhlutverk. Dario Fo er þekktur
fyrir að nota leikhússkriftir sínar sem
deilur á samfélagið undir merki gaman-
leiksins og farsans og er „Dónalega
dúkkan" gott dæmi um sniffi hans, seg-
ir í kynningu.
Leikþættirnir þrír sem standa saman
undir nafninu „Dónalega dúkkan“ eru
af ásettu ráði ýktir og farsakenndir.
Elísabetu Erlingsdóttur og síðan við
þýska tónlistarháskóla í Heidelberg og
Stuttgart, þar sem hún m.a. sérhæfði
sig í Ijóðasöng. Hún hefur haldið marga
tónleika hér heima og erlendis, radd-
þjálfað kóra, kennt söng við Tónlistar-
skólann á Akureyri og verið stjómandi
Kvennakórsins Lissýjar í Þingeyjar-
sýslu. Hún kennir nú við guðfræðideild
Háskóla íslands og starfar fyrir barna-
kóra á vegum embættis Söngmála-
stjóra Þjóðkirkjunnar.
Kristinn Öm Kristinsson nam píanó-
leik við Tónlistarskólana á Akureyri og
í Reykjavík og stundaði síðan fram-
haldsnám í Bandaríkjunum. Hann er
nú skólastjóri Suzuki-tónlistarskólans í
Reykjavík. Kristinn hefur leikið með
fjölmörgum söngvurum og hljóðfæra-
leikurum og einnig einleik með hljóm-
sveitum.
Fyrirlestur
Kvikmyndir
Leiklist
Atriði úr Týndu teskeiðinni
Týnda teskeiðin
á Reyðarfirði
Leikfélag Reyðarfjarðar hefur hafið
starfsemi eftir 9 ára hlé og frumsýnir
Týndu teskeiðina eftir Kjartan Ragn-
arsson í dag, föstudaginn 18. febrúar,
í Félagslundi. Önnur sýning verður á
morgun, Iaugardag. Leikstjóri er Jón
Júlíusson.
Þeir bera þess sterk merki að vera
upprunnir úr ítölsku menningarsamfé-
lagi, tilfinningaríkir, hraðir, ögrandi og
sérstaklega litríkir.
Tónlist
Tónleikar í Logalandi
Margrét Bóasdóttir sópransöngkona
bergi sunnudaginn 20. febrúar kl. 15.
Verkin sem Guðjón sýnir em lágmynd-
ir og gólfverk unnin í tré.
Guðjón stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands og Nova Scot-
ia College of Art and Design í Kanada
og lauk þaðan námi 1980. Sýningin í
Gerðubergi er 11. einkasýning Guðjóns
en hann hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og erlendis.
Sýningin er opin frá kl. 10-22
mánud. - fimmtud. og frá kl. 13-16
fóstud. - sunnud. Sýningunni lýkur 20.
mars.
Bókmenntir