Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
11
Vistaverur, bjartar og djúpar
Málþing um listsköpun fatlaðra
AÐILAR á vegum Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalags Islands funduðu síðasta vor um listsköpun fatlaðra, auk
fulltrúa samtaka fatlaðra og listamanna. Var það niðurstaða fundar-
ins að gott væri að koma á fót sameiginlegum vettvangi varðandi
listsköpun fatlaðra. Fannst fundarmönnum stofnun hagsmunasam-
taka fatlaðs og ófatlaðs fólks, sem hefur áhuga á listsköpun fatl-
aðra, vera kjörin leið til að styðja fatlaða listamenn og auðvelda
þeim að vinna að og koma verkum sínum á framfæri. Félagið
gæti einnig virkað sem hvati á stjórnvöld til þess að gefa málefn-
inu meiri gaum. I þessu félagi yrðu bæði einstaklingar og fulltrú-
ar hópa sem vinna að málefninu.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá einni af lokaæfingum Leikfélags Selfoss á gamanleiknum Leikið
lausum hala.
Leikfélag Selfoss
Selfossi.
LEIKIÐ lausum hala heitir leik-
verk sem Leikfélag Selfoss frum-
sýnir á föstudagskvöld, 18. febr-
úar, klukkan 20.30 í leikhúsi fé-
lagsins við Sigtún.
„Þetta er gamanleikur með
söngvum," sagði Sigurgeir Hilmar
Friðþjófsson höfundur, leikstjóri og
einn af leikendum. Tónlistin í leik-
verkinu er eftir Davíð Kristjánsson
og hljóðfæraleik annast tónlistar-
menn frá Selfossi.
Efnisuppistaðan er sótt í samtím-
ann og fjal'ar um fanga sem fá
helgarfrí frá Litla-Hrauni og lenda
í óvæntum ævintýrum, en verkið
gerist á nokkrum stöðum í Árnes-
Var ákveðið í framhaldi af fund-
inum að boða til málþings um list-
sköpun fatlaðra, laugardaginn 19.
febrúar kl. 10-16, í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Boðið er upp á
fjölbreytta dagskrá, þar sem ofan-
greind hagsmunasamtök um list-
sköpun fatlaðra verða væntanlega
formlega stofnuð.
Auk undirbúnings að stofnun
hagsmunasamtakanna verða á mál-
þinginu flutt erindi um listsköpun
hinna ólíku fötlunarhópa. Meðal fyr-
irlesara verða Hjálmar Ragnarsson,
Sjöfn Guðmundsdóttir, Guðmundur
Magnússon, Sveinn Bjömsson,
Omar Bragi Waiderhaug, Sigríður
Eyþórsdóttir og Miyako Þórðarson.
Einnig verða flutt leikatriði, tón-
listaratriði og ljóðalestur og að auki
sýnd myndlistarverk eftir fólk sem
býr við einhvers konar fötlun. Þar
kemur fram sá sköpunarkraftur sem
býr í hverjum einstaklingi og sem
fötlun á engan hátt hindrar í að
leita útrásar.
Málþing um listsköpun fatlaðra verður
19. febrúar.
Gerðubergi laugardaginn
Myndlistarsýningin stendur frá
19. febrúar til 6. mars, og er opin
frá kl. 10-22 mánudaga til fímmtu-
daga og kl. 13-16 föstudaga til
sunnudaga.
Aðgangur að málþinginu er
ókeypis og allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir. Túlkað verður á tákn-
máli. Gott aðgengi er fyrir fatlaða
að Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi.
(Fréttatilkynning)
Leikið lausum hala
frumsýnt 18. febrúar
sýslu. Minnst er á þekktar sunn-
lenskar persónur í verkinu, sem
gefa því hressilegan og líflegan blæ.
Hugmyndin er að fá gesti í eigin
persónu inn í verkið á hverri sýn-
ingu.
Leikfélag Selfoss hefur á að
skipa mörgum mjög góðum leikur-
um sem hafa tekist á við erfið hlut-
verk og skilað þeim vel. Lokaæfing-
ar sýna að gestir verða ekki fyrir
vonbrigðum með þetta verkefni.
önnur sýning verður 20. febrúar
og næstu sýningar þar á eftir 24.,
25. og 26. febrúar. Alls koma um
30 aðilar að undirbúningi gaman-
leiksins.
- Sig. Jóns.
Stefnumót
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Lítil listhús eru orðin ráðandi
farvegur listsýninga á höfuðborg-
arsvæðinu, og hvergi eru þau
þéttari en í nágrenni gatnamóta
Skólavörðustígs og Bankastrætis;
þaðan er ekki meira en mínútu
gangur til alls sex sýningarstaða,
sem hver um sig hefur á stundum
boðið upp á athyglisverða mynd-
list.
Einn hinna yngri í þessum hóp
er Listhúsið Ófeigur að Skóla-
vörðustíg 5. Þar stendur nú yfir
samsýning sjö listamanna, sem
hefur hlotið yfirskriftina „Stefnu-
mót“; meðal sýnenda eru fimm
íslendingar, einn Finni og einn
Bandaríkjamaður, þannig að
segja má að listafólkið mætist hér
á miðri leið. - Þeir sem eiga verk
á sýningunni eru Helga Magnús-
dóttir, Hringur Jóhannesson, Jo-
uni Jáppinen, Páll Guðmundsson,
Robert Dell, Sigurður Þórir og
Þorri Hringsson.
Listhúsið Ófeigur er lítið, og
fyrirfram má ætla að það beri
tæpast samsýningu svo margra
listamanna. Það kemur því á óvart
hve listáverkin rúmast vel hér,
enda flest smá og því mögulegt
að raða þeim þétt. Fyrir bragðið
ræður hins vegar stærð nokkru
um hvað vekur mesta athygli, þó
hin smærri verk séu oft ekki síður
áhugaverð.
Robert Dell á hér málmverk,
sem ber nokkurn svip af þeim
formathugunum, sem hafa ein-
kennt þau verk sem hann hefur
sýnt hér á landi. Dell er sennilega
þekktastur fyrir verk sitt Hita-
vættur, sem stendur fyrir framan
Perluna á Ösljuhlíð og er þannig
útbúið að í því er ljós sem knúið
er orku heita vatnsins. Jouni Jápp-
inen sýnir hér nokkrar afar lát-
lausar skálar, sem ekki ná að
vekja á sér athygli, e.t.v. vegna
hins ríkulega umhverfis.
íslensku sýnendurnir eru allir
þekkt myndlistarfólk, og meðal
þeirra eru feðgarnir Hringur Jó-
hannesson og Þorri Hringsson.
Mögulega er þetta í fyrsta sinn
sem þeir eiga verk á sömu sýn-
ingu, og í öllu falli er samanburð-
urinn athyglisverður; Þorri sýnir
hér hnitmiðaðar klippimyndir, en
verk Hrings eru kunnuglegri og
sem oftar takast þau vel, einkum
hið stærsta þeirra.
Páll Guðmundsson hefur síð-
ustu ár verið þekkastur fyrir
steinmyndir sínar, en hér getur
að líta afar skemmtilega vatns-
litamynd frá hans hendi; þessi
miðill á greinilega ekki síður við
hann en steinninn. Það umhverfi
að Húsafelli, sem hann vinnur
mest í, er enda vel þekkt af vatns-
litamyndum, t.d. fyrir verk Ás-
gríms Jónssonar.
Helga Magnúsdóttir og Sigurð-
ur Þórir eru á kunnuglegum slóð-
um í sínum myndum, en hér má
segja að formgerðin í myndum
Helgu komi fram með sterkara
móti en oft áður, einkum í stærstu
myndinni.
I heildina má segja að „Stefnu-
mót“ komi á óvart fyrir það
hversu mikið kemur fram í þessu
litla rými; þannig má í raun taka
sýninguna sem enn eitt dæmi um
hin eilífu sannindi að það sé ekki
magnið (eða stærðin) sem skipti
máli, hejdur fyrst og fremst gæð-
in.
Samsýningin „Stefnumót" í
Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg
mun standa framyfir næstu mán-
aðamót.
TILBOÐ 2XTLTV0 I EINU
Nýr sambyggður æfingabekkur og þrekstigi.
Æfingakerfi með meira en 30 æfingum.
Gólfpiáss 84 x 196 cm.
Tilboðsverð aðeins kr. 21.000, 19.950 stgr.
CRT 70072 EIN MEÐ OLLU
Fjölhæf og fyrirferðarlítil æfingastöð með þrekstiga.
Ný endurbætt útgáfa á enn betra verði kr. 53.656,kr.
49.900 stgr. Æfingakerfi, meira en 30 æfingar.
Gólfpláss 119 x 170 cm, hæð 193 cm.
Skeifan 19, 108 Reykjavík,
Sími 681717
SPORTVER, Akureyri