Morgunblaðið - 18.02.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 18.02.1994, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994 Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Halldór Haraldsson píanóleik- ari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Tríó Reykjavíkur leikur í Hafnarborg Verk eftir Beethoven, Vagn Holmboe og Dvorak á efnisskránni FJÓRÐIJ og síðustu tónleikar Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar á þessu starfsári verða haldnir sunnudaginn 20. febrúar kl. 20 í Hafnarborg, Hafnarfirði. Þar kom fram meðlimir Tríós Reykjavík- ur, þau Halldór Hararldsson pianóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Verkin sem leikin verða á þess- um tónleikum eru Kakadú-til- brigðin op. 121A eftir Beethoven, tríóið „Nugien“ op. 129 eftir danska tónskáldið Vagn Holmboe og hið fræga Dumky-tríó op. 90 eftir Dvorak. DAGBÓK HJÁLPRÆÐISHERINN. Gospelkórinn, samkirkjulegur kór unglinga, syngur á lofgerð- arsamkomu í Herkastalanum í kvöld kl. 20.30. Liv Gundersen talar. SJÖUNDA dags aðventistar á íslandi: Á laugardag: AÐVENTKIRKJAN, Ingólfs- stræti 19: Biblíurannsókn kl. 9.45. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Martin Anthony. SAFNAÐÁRHEIMILI að ventista, Blikabraut 2, Kefla- vík: Guðsþjónusta kl. 10.15. Biblíurannsókn að guðsþjón- ustu lokinni. Ræðumaður Einar Valgeir Arason. SAFNAÐARHEIMILI að- ventista, Gagnheiði 40, Sel- fossi: Guðsþjónusta kl. 10. Bibl- íurannsókn að guðsþjónustu lokinni. Ræðumaður Kristján Friðbergsson. AÐVENTKIRKJAN, Breka- stíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíurannsókn kl. 10. AÐVENTSÖFNUÐURINN Hafnarfirði, Góðtemplara- húsinu, Suðurgötu 7: Sam- koma kl. 10. Ræðumaður Stein- þór Þórðarson. Tríó Reykjavíkur er á förum tii Danmerkur þar sem það mun halda fimm tónleika í Kaupmanna- höfn, á Sjálandi og Jótlandi. ----♦ ♦ ♦-- Kjarvalsstaðir Skúlptúrar Sólveigar Aðalsteins- dóttur SÝNING á skúlptúrum eftir Sólveigu Aðalsteinsdóttur opn- ar að Kjarvalsstöðum laugar- daginn 19. febrúar kl. 16. Sólveig hefur haldið sex einka- sýningar í Reykjavík, á ísafirði og í Sviss og tekið þátt í samsýning- um víða um heim. í fréttatilkynningu segir: Skúlp- túrar Sólveigar Aðalsteinsdóttur eru á margan hátt ögrun við hefð- bundið gildismat áhorfandans þar sem efniviður þeirra er oft og ein- att það sem flokka má undir úrk- ast eða úrgang neyslusamfélags- ins. í þeim er hvorki að finna marmara né brons og hvorki eðal- málma eða eðalsteina. Form þeirra er hvorki upphafín mynd af af- mörkuðum veruleika, né úthugsuð ímynd eða stíll og þeir eru lausir við þá áru heilagleikans sem hin heilaga kirkja listarinanr sveipar listmunina á markaðstorginu og er til þess fallin að veita okkur falska öryggistilfinningu. Sýningin er opin daglega frá kl. 10-18 og stendur til sunnu- dagsins 27. mars. Hvítabandið 60 ára 00 eftir Onnu Birnu Jensdóttur í dag, 18. febrúar, er Hvítaband- ið 60 ára, en það var vígt 18. febrú- ar 1934. Á Hvítabandi eru starf- ræktar tvær deildir Borgarspítal- ans; hjúkrunardeild fyrir aldraða og dagdeild fyrir geðsjúka. Hvíta- bandið dregur nafn sitt af kvenfé- laginu Hvítabandinu, sem stofnað var árið 1895. Félagið var í fyrstu eingöngu bindindisfélag, en varð síðan kristi- legt bindindis- og góðgerðarfélag. Hvítabandskonur létu fljótt fátækt- armál til sín taka og síðar hjúkrun- armál. Á bandalagsfundi kvenna 1917 var fyrst rætt um stofnun hjúkrun- arheimilis í Reykjavík og varð það síðar sérmál Hvítabandsins og að- alsmerki þess í mörg ár. Hafist var handa við byggingaframkvæmdir árið 1932, en af ýmsum ástæðum, einkum í sambandi við lántökur, var fyrirkomulagi breytt og það látið vera sjúkrahús, sem stæði á eignar- lóð. Fyrsti sjúklingurinn var lagður inn á sjúkrahús Hvítabandsins 20. febrúar 1934. Kvenfélagið Hvíta- bandið starfrækti sjúkrahúsið í tæp 9 ár eða þar til sjúkrahúsið var afhent Reykjavíkurbæ til eignar í ársbyrjun 1943. Hvítabandið var starfrækt sem almennt sjúkrahús þar sem sjúk- lingár á handlækningadeild voru í allmiklum meirihluta fram á haust 1968, en þá var starfseminni breytt í kjölfar stofnunar Borgarspítalans. Starfsemi geðdeilda Borgarspítal- ans var síðan á Hvítabandinu til ársloka 1981, en þá var hafist handa við að setja á stofn hjúkrun- ardeild á 2. og 3. hæð hússins, sem tók til starfa 25. mars 1982. Húsið hefur frá þeim tíma þjónað því hlut- „Sá grunnur sem hvíta- bandskonur lögðu með byggingu Hvítabands- ins hefur reynst ómet- anlegur í þágu sjúkra- húsmála í Reykjavík og þjónustu við geðsjúka og aldraða í seinni tíð.“ verki, sem hugur hvítabandskvenna stóð til í öndverðu. Hjúkrunardeildin tilheyrir nú ný- stofnaðri öldrunarlækningadeild Borgarspítalans. Aldraðir einstakl- ingar með langvinnar sjúkdóms- breytingar í heilavef, sem leiða til truflana í hugsun og háttum dvelja á deildinni. Algengasti sjúkdóms- valdur langvinnra sjúkdómsbreyt- inga í heilavef er Alzheimer-sjúk- dómnr, en aðrir sjúkdómar sem valda óafturkræfri breytingu á hug- arstarfi eru sjaldgæfari og af ýms- um toga spunnir. Markmið hjúkrun- ar felast í því að tryggja öryggi og vellíðan sjúklinga og standa vörð um sjálfsímynd þeirra og sjálfsvirð- ingu. Helstu leiðir að þessum mark- miðum eru m.a. að fylgjast með einkennum sjúkdómsins og heilsu- fari almennt og gera viðeigandi ráðstafanir þegar þörf krefur. Koma í veg fyrir álag með því að hafa heimilislíf í föstum skorðum, tryggja handleiðslu og vísbendingar í umhverfinu og leitast við að hafa umhverfi heimilislegt, aðgengilegt og hættulaust. Stuðlað er að vellíð- an með því að tryggja að undir- stöðuþarfir séu uppfylltar og leitast er við að standa vörð um sjálfs- mynd einstaklingsins með því að stuðla að virkri þátttöku hans í eig- in umönnun og tryggja valmögu- leika hans í athöfnum daglegs lífs. Hvítabandið við Skólavörðustíg. ÓbærilegTir ódaunn eftir Gunnlaug Þórðarson Grein Sigurðar B. Stefánssonar framkvæmdastjóra Verðbréfa- markaðs Islandsbanka hér í blaðinu 8. febrúar sl. út af grein minni 3. febrúar sl. gefur tilefni til nokkurra stuttra athugasemda. Útreikningur minn á söluverði SR-mjöls stendur óhaggaður, það er að rétt söluverð sé a.m.k. 2,5 milljarðar kr. Reyndar hafa sér- fræðingar á þessu sviði bent mér á að rétt nettóverð hinna seldu eigna hafi verið nær 5 milljörðum króna en 2,5 milljörðum kr. og þeir spá því að kaupendurnir muni geta greitt kaupverðið upp með ágóða næstu tveggja ára. í grein minni var lauslega vikið að því hve óhönduglega hefði tekist til um sölu SR-mjöls og vitnað til forustugreinar Jónasar Kristjáns- sonar, ritstjóra, í DV 4. janúar sl., en þar sagði m.a.: „Hver einasta málsgrein í alþjóðlegum stöðlum útboða var brotin, þegar einkavæð- ingarnefnd ríkisstjórnarinnar lét bjóða út SR-mjöl.“ Þessi ásökun stendur eftir sem áður óhögguð og byggisl m.a. á eftirfarandi atriðum: 1. Tilboði þess aðila, sem bauðst til að selja fyrirtækið með lægstum kostnaði, var ekki tekið. 2. Fyrírfram var reynt að fá aðeins einn ákveðinn aðila til að gera til- boð. 3. Hagsmunatengsl. Að vísu getur stundum verið erfitt að sneiða hjá hagsmunatengslum í okkar litla þjóðfélagi. 4. Hæsta boði var ekki tekið. 5. Opnun tilboða fór ekki fram á réttan hátt með því að tilboðsgjöf- um var ekki gefinn kostur á að vera viðstaddir opnun tilboða. 6. Frágangi tilboðsgagna var áfátt. Gunnlaugur Þórðarson „Það er auðvitað krafa alþjóðar að staðið sé að sölu ríkisfyrirtækja eða ríkiseigna með þeim hætti að slík ráðstöfun sé hafin yfir alla gagn- rýni og verði ekki til- efni til þess að vera kölluð „upptaka á al- mannafé“.“ Samið um kaupverð og fyrirkomu- lag greiðslna eftir á. Fleira mætti tína til, en undirrit- uðum skilst að málið bíði úrlausnar dómstóla og því er ekki ástæða til að tíunda fleiri atriði. Þess má geta að hagnaður af rekstri fyrirtækisins sl. ár var um 300 milljónir króna og það hefði átt að opna augu manna fyrir því að söluverðið var of lágt metið. Það er sorglegt þegar verðbréfa- sölu er falin sala ríkisfyrirtækis, að ekki skuli takast betur til. Hætt er við að slík stofnun glati því trausti sem henni er nauðsynlegt á hveijum tíma. Það er auðvitað krafa alþjóðar að staðið sé að sölu ríkisfyrirtækja eða ríkiseigna með þeim hætti að slík ráðstöfun sé hafin yfir alla gagnrýni og verði ekki tilefni til þess að vera kölluð „upptaka á aI- mannafé". Það hlýtur að vera hveijum stjórnmálamanni til vansa að fnyk leggi af einhverri athöfn hans. Eng- inn þeirra sem kynnir sér þetta mál neitar að af því leggur óbærilegan ódaun. Frá almennu sjónarmiði er óskilj- anlegt að nokkur ráðherra og síst sjávarútvegsráðherra, skuli vilja láta undirmenn sína í einkavæðing- arnefndinni standa í þvílíku verki og því sem hér hefur verið minnst á. Það kom hins vegar engum á óvart, hér um árið, þótt Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. fjármála- ráðherra, léti sig slíkt engu varða, er hann lét selja ríkiseignina í Þor- móði Ramma hf., sem vakti al- menna hneykslun vegna þess hvernig að málum var staðið. Nefna mætti fleiri dæmi slíks. Vænta mátti þess að slík vinnu- brögð heyrðu sögunni til. Hitt er víst að mat manna á því hvaða hagsmuni ber að virða er augljós- lega mismunandi og að þar hafa ótrúlegustu atriði áhrif. Sala SR- mjöls er og verður uggvekjandi og gefur þeim falleinkunn sem að verki voru. Höfundur er hæstaréttardómari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.