Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
Bílasala Globus styrk-
ir barnaspítalasjóð
í TILEFNI af ári fjölskyldunnar hefur Globus hf. ákveðið að
láta hluta af andvirði söluverðs notaðs bíls sem fyrirtækið sel-
ur, renna til góðgerðamála. Með þessu vill fyrirtækið vekja at-
hygli á því úrvali og þeirri þjónustu sem fyrirtækið veitir í sam-
bandi við notaða bíla og um leið láta aðra njóta góðs af þeim
viðskiptum.
í fyrstu hefur verið ákveðið að
láta 7.000 kr. af hveijum seldum
bíl sem selst í febrúar og til 15.
mars renna til nýbyggingar
Barnaspítalasjóðs Hringsins vegna
barnaspítala. Við upphaf kynning-
ar á söluátaki á notuðum bílum
og söfnunar til Barnaspítalans af-
henti Þórður H. Hilmarsson, for-
stjóri Globus hf., Elísabetu Her-
mannsdóttur, formann kvenfé-
lagsins Hringsins, ávísun að upp-
hæð 56.000 kr. sem er hluti and-
virðis af seldum notuðum bílum
fyrstu daga í febrúar.
Notaðir bílar í eigu Globus hf.
eru seldir í Bílahöllinni, Bíldshöfða
5, en Globus hf. er hluthafi í því
fyrirtæki. Fyrirtækið er til húsa í
nýlegu og glæsilegu húsnæði og
veitir sá landskunni rallökumaður
Jón Ragnarsson fyrirtækinu for-
stöðu.
ff-ÍS'&l'
Elísabet G. Hermannsdóttir tók við fyrsta framlagi Globus hf. til
nýbyggingar Barnaspitalans úr hendi Þórðar H. Hilmarssonar.
Prestvígsla í Dónikirkjunni
BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, vígir sunnudaginn 20. febr-
úar tvo guðfræðinga til prestþjónustu. Þeir eru Ágúst Einarsson sem
settur verður til þjónustu I Raufarhafnarprestakalli í Þingeyjarpróf-
astsdæmi og Kristinn Jens Sigurþórsson sem skipaður verður sóknar-
prestur í Þingeyrarprestakalli, Isafjarðarprófastsdæmi.
Vígsluvottar verða sr. Baldur
Vilhelmsson, prófastur í ísafjarðar-
prófastsdæmi, sr. Guðmundur Ósk-
ar Ólafsson, sóknarprestur í Nes-
kirkju, Reykjavík, sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson, Dómkirkjuprestur, og
sr. Öm Friðriksson, prófastur í
Þingeyjarprófastsdæmi, sem jafn-
framt lýsir vígslu.
Organisti verður Marteinn H.
Friðriksson dómorganisti.
Athöfnin fer fram í Dómkirkjunni
í Reykjavík og hefst kl. 10.30 á
sunnudagsmorgun.
T j vi íf* • « • p • MorgunDirtOiu/ívnsLinn
Yerðlaunahalarmr og stjornin
HEIÐURSVERÐLáUNAHAFAR Brunabótafélagsins í ár eru í fremri röð frá vinstri: Magnús Scheving,
Þrúður Kristjánsdóttir tók við verðlaununum fyrir hönd dóttur sinnar, Hönnu Dóru Sturludóttur, Dóra
Pálsdóttir tók við verðlaunum fyrir hönd eiginmanns síns Daníels Hálfdánarsonar, Sigrún Eldjárn,
Eygló Magnúsdóttir tók við verðlaunum fyrir hönd bróður síns, Steinarrs Magnússonar, og Tómas
Tómasson tók við verðlaunum fyrir hönd sonar síns, Tómasar Tómassonar. í aftari röð er stjórn Bruna-
bótafélags íslands: F.v. eru Andrés Valdimarsson, Valdimar Bragason, Guðmundur Oddsson, Ingi R.
Helgason, Jónas Hallgrímsson og Friðjón Þórðarson.
Sex hlutu heiðurslaun
Brunabótafélagsins
HEIÐURSLAUN Brunabótafélags íslands voru aflient í tólfta sinn s.l.
miðvikudag. Sex einstaklingar voru valdir úr hópi 76 umsækjenda að
sögn Inga R. Helgasonar, stjórnarformanns, sem kynnti verðlaunaveit-
inguna. í þeim hópi eru þrír söngvarar, íþróttamaður, röntgentæknir
og myndlistarmaður. Heiðurslaunin nema tveggja mánaða launum yfir-
kennara í menntaskóla.
Brunabótafélagið hefur afhent
heiðurslaun þessi frá árinu 1982 og
er það stjórn félagsins sem velur úr
umsóknunum. Þau eru veitt til þess
að gefa einstaklingum kost á að
sinna sérstökum verkefnum til hags
fyrir íslenskt samfélag á sviði vís-
inda, lista, menningar, íþrótta eða
atvinnulífs.
Ingi R. Helgason sagði að í upp-
hafi hafi ekki verði búist við mörgum
umsóknum en arinað hefði komið á
daginn og yfirleitt hefðu umsækjend-
ur verið um 30-40. í ár hefði umsókn-
um svo fjölgað verulega og voru þær
76. Hver heiðurslaunahafí hlýtur
launin í 2 mánuði og nema þau um
260-270 þúsund krónum.
Listir, íþróttir
og geislameðferð
Þeir sex aðilar sem hlutu heiðurs-
laun að þessu sinni eru:
Daníel Hálfdánarson, geislaröntg-
entæknir, frá Hafnarfirði. Hann
hlaut styrk til þess að stunda fram-
haldsnám í geislameðferð í Noregi.
Hanna Dóra Sturludóttir, sópr-
ansöngkona, fékk heiðurslaun til
þess að stunda frekara söngnám í
Berlín.
Magnús Scheving, þolfimleika-
maður, fékk styrk til að undirbúa sig
fyrir heimsmeistaramótið í þolfimi
sem haldið verður í Japan í apríl
næstkomandi.
Sigrún Eldjárn myndlistarmaður
og rithöfundur hlaut heiðurslaun til
að helga sig listsköpun sinni.
Steinarr Magnússon, tenórsöngv-
ari, fékk þau til að stunda söngnám
í Vín og Tómas Tómasson, bassa-
söngvari' hlaut heiðurslaun í tvo
mánuði til að leggja stund á fram-
haldsnám í söng í London.
* »
Aðeins sáu um þrjú þúsund manns Evgení Onegín
„Hið opinbera þarf
að auka framlagið“
UM ÞRJÚ þúsund manns sáu óperuna Évgení Ónegín í upp-
færslu íslensku óperunnar áður en sýningum var hætt en
meðalfjöldi áhorfenda á uppfærslum óperunnar er yfirleitt um
tíu þúsund. En hver er skýringin og hvers vegna var sýningum
hætt? Árni Tómas Ragnarsson, læknir og stjórnarmaður Is-
Iensku óperunnar, segir erfitt að samræma listrænan metnað
og fjárhagsleg sjónarmið og þegar metnaðarfull verk séu válin
til uppfærslu, sem ekki eru þekkt af þorra fólks, komi einfald-
lega færri. Þá segir hann aðstandendur óperunnar verða að
miða við að þegar kvöldið standi ekki undir sér lengur verði
að hætta sýningum.
Árni Tómas segir að þótt óp-
eran hafí verið hvött til að vera
djarfari í verkefnavali hafí hún
ekki efni á því. Hún verði að
halda sig við sk. kassastykki,
enda sé varla grundvöllur til að
færa upp það sem minna er þekkt
í húsi sem hefur ekki nema um
100 þúsund manna byggð á bak
við sig. Hann segir að í raun séu
ekki nema rúmlega 30 óperur
sem séu virkilega þekktar af al-
menningi og flest óperuhús byggi
sínar verkefnaskrá á þeim. „Eg
virði það sjónarmið mikils að leit-
ast við að breikka sviðið með því
að kynna ný verk en á móti kem-
ur að þau eru fyrir svo fáa,“ seg-
ir Ámi.
Sami stofnkostnaður með mun
fleira fólki
Stofnkostnaður við hveija sýn-
ingu, sem Árni segir fáránlega
lítinn miðað við önnur lönd, er á
milli 15 og 20 milljónir, sem sé
svipað og í leikhúsunum. Ámi
segir 5-10 leikara í meðalleik-
sýningu og 5-10 einsöngvara að
meðaltali í óperu. Þar fyrir utan
sé 50 manna hljómsveit, 50
manna kór, söngstjóri og hljóm-
sveitarstjóri. Hið opinbera styrkir
óperuna um 40 milljónir króna á
ári og miðað við 20.000 gesti á
tveimur uppfærslum nemur nið-
urgreiðsla með hveijum miða
2.000 krónum. „tjóðleikhúsið fær
300 milljóna króna ijárveitingu
og um 100 þúsund gesti og því
nemur niðurgreiðsla með hveijum
miða þar 3.000 krónum á sýning-
um sem ættu að kosta minna en
óperusýniijgar. Þegar við setjum
upp á sviði eitt kvöld þá kostar
það hátt í milljón en við borgum
einsöngvurum, kór, hljómsveit og
öðru starfsfólki. Þótt við séum
með fullt hús þá rétt dekkum við
að borga kostnaðinn til baka. Við
sitjum því alltaf með stofnkostn-
aðinn á bakinu, sama hvað við
seljum vel. Á síðustu sýningum
Égvenís Ónegíns voru seldir um
og yfír 300 miðar hvert kvöld en
þær sýningar stóðu samt sem
áður ekki undir sér. Þó var upp-
selt á lokasýningu. Þegar sú staða
kemur upp er sýningum hætt,“
sagði Árni Tómas.
Þyrfti að fá 60 miHjónir
Ámi segir forsvarsmenn óper-
Évgení Ónegín
Á ANNAÐ hundrað manns tóku þátt í sýningu íslensku óperunn-
ar á Évgení Ónegin
unnar þurfa að semja við ríkið
um að skapa óperunni betri for-
sendur en hann telur nauðsynlegt
að setja upp tvær sýningar á ári.
Til þess hafí hún ekki bolmagn
eins og stendur, þrátt fyrir að
skuldastaða hennar hafi batnað
til muna. Framlag hins opinbera
þurfí að nema 60 milljónum króna
á ári.
Ámi segir það sérstöðu ís-
lensku óperunnar miðað við er-
lend ópemhús hversu breiður
áhorfendahópurinn sé. Inn í óper-
una komi venjulegir Íslendingar
sem líti ekki á sjálfa sig sem sér-
fræðinga heldur hafi þeir einfald-
lega gaman af því að hlusta á
óperur og söng. Ámi Tómas seg-
ir forsvarsmönnum það þvert um
geð að hækka miðaverð því það
myndi útiloka ýmsa frá því að
koma á sýningarnar.
Árni Tómas segist hafa af því
nokkrar áhyggjur hvaða áhrif það
muni hafa fyrir óperuna í framtíð-
inni ef rétt reynist að Þjóðleikhús-
ið ætli áð greiða Kristjáni Jó-
hannssyni mjög há laun, vel yfir
hálfa milljón fyrir kvöldið, í óperu
sem Þjóðleikhúsið hyggst færa
upp með honum í aðalhlutverki
næsta haust. Óperan borgi söngv-
urum í aðalhlutverkum nú um
20.000 krónur fyrir kvöldið og
150.000 krónur í æfingalaun.
„Ég á eftir að sjá þann söngvara
sem glaður tæki tuttugu þúsund
kallinn eftir _að sú staða kemur
upp,“ sagði Árni Tómas.