Morgunblaðið - 18.02.1994, Page 18

Morgunblaðið - 18.02.1994, Page 18
18 MORGUN'BLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994 Héraðsdómur Norðurlands eystra Kröfu bæjarins um 1. veðréttítæki Striksins hafnað Grímseyingar vaktir með bolluvendi Grímsey. Þau voru snemma á fótum börnin í Barnaskóla Grímseyjar aðfara- nótt bolludagsins, síðastliðinn mánudag, en áralöng hefð er fyr- ir því að þau fara saman í hóp milli bæja að morgni bolludags með bolluvendina sína og vekja íbúana með flengingu og þiggja síðan góðgæti í poka frá húsráð- endum. Krakkamir hittust um miðja nótt, eða klukkan hálf fjögur við bama- skólann, og síðan var arkað á milli allra bæja i eynni. Ástæða þess að þau byija svo snemma er auðvitað sú að sjómennirnir eru iðulega snemma á ferðinni og ef á að ná þeim í rúminu þýðir ekki annað en leggja af stað í býtið. Börnin fara bæ af bæ með bollu- vendina á lofti, læðast inn, flengja húsráðendur í tilefni dagsins og þiggja síðan hjá þeim ijómabollur eða annað góðgæti sem þau safna saman í poka. Ferðin tók röska þrjá klukkutíma, en bömin voru komin hvert til síns heima um kl. 7 um morgunin. " Morgunbiaðið/Hólmfriður Haraldsdðttir Bolla, bolla VÍGALEGIR ungir Grímseyingar fóru milli bæja aðfaranótt bollu- dagsins, veifandi bolluvöndum sem notaðir voru til að vekja íbú- ana. Þarna eru krakkarnir komnir inn að rúmgafli eins húsráð- enda í eynni. 30 manns bíða Um 30 manns á svæðinu eru nú í misbrýnni þörf fyrir þjónustuhús- næði, en að sögn Valgerðar hefur óvissa sem ríkt hefur um framtíð Skjaldarvíkur haft í för með sér að ekki hefur verið mikið um óskir um vistun þar. Talið er að breyting verði þar á eftir að rekstur heimilis- ins er tryggður í kjölfar samkomu- lags sveitarfélaganna að minnsta kosti um stundarsakir. Á samningstímanum er ekki gert ráð fyrir neinum breytingum á hús- næðinu eða meiriháttar viðhaldi umfram það sem áður hafði verið ákveðið og verður reksturinn með sambærilegum hætti og verið hef- ur. Daglegur rekstur hefur verið í höndum öldrunardeildar Akur- eyrarbæjar. þrota árið 1992 og lýsti Akureyrar- bær kröfu í búið vegna trygginga- bréfs sem veitt var vegna einfaldr- ar bæjarábyrgðar er fyrrverandi eigendur keyptu skóverksmiðjuna af Sambandí íslenskra samvinnu- félaga. Með tryggingabréfinu voru Akureyrarbær veðsettar allar vél- ar, tæki og áhöld skóverksmiðjunn- ar. Þorsteinn Hjaltason skiptastjóri viðurkenndi ekki kröfu bæjarins sem veðkröfu en hins vegar sem almenna kröfu. Tryggingabréfi Akureyrarbæjar var aldrei þinglýst og í því voru vélar, tæki og áhöld sem sett voru að veði fyrir bæjarábyrgðinni ekki sérgreind, en ónóg sérgreining er talin leiða til þess að viðkomandi veðsetning er metin ógild. í dómi Ásgeirs Péturs Ásgeirs- sonar héraðsdómara kemur fram að þó að í tryggingabréfinu sé kveðið á um að veðsetningin nái til allra véla, tækja og áhalda breyti það ekki því að veðrétturinn er í raun í óákveðnum munum sem einkenndir eru einu almennu nafni. Veðsetningin er því metin ógild og kröfu Akureyrarbæjar um að 1. veðréttur hans í vélum tækjum og búnaði þrotabúsins var því hafnað. KRÖFU Akureyrarbæjar um að viðurkenndur verði 1. veðréttur bæjarins í vélum, tækjum og búnaði þrotabús Striksins sam- kvæmt tryggingabréfi sem gefið var út árið 1988 var hafnað í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra. Einnig var hafnað kröfu um að hnekkt verði ákvörðun skiptastjóra þrotabúsins um að krafa Akureyrarbæjar njóti ekki veðréttinda og þar með for- gangsréttar. Skiptastjóri þrotabús Skóverk- smiðjunnar Striksins krafðist lausnar á ágreiningi sem reis við gjaldþrotaskiptin um viðurkenn- ingu á lýstri kröfu Akureyrarbæjar að fjárhæð um 10,3 milljónir króna. Strikið var úrskurðað gjald- Bygging leikskóla boðin útímars BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær að fela tæknideild að bjóða út framkvæmdir við leikskóla í Giljahverfi. Einar Jóhannsson hjá bygg- ingardeild Akureyrarbæjar sagði að verkið yrði boðið út í næsta mánuði eða um leið og teikningar yrðu tilbúnar. Leikskólinn verður reistur við Kiðagil og verður um 650 fermetr- ar að stærð. Um 80 heilsdagspláss verða í þessum nýja leikskóla, þannig að gera má ráð fýrir að 100 til 120 böm fái þar vistun. í fjárhagsáætlun þessa árs er áætlað að veija 40 milljónum króna til verksins og sagði Einar að það væri um helmingur þess fjár sem þyrfti til að fullbúa leikskólann. Bygging hans er á svokallaðri þriggja ára áætlun bæjarins um rekstur og framkvæmdir þannig að verkinu verður væntanlega lok- ið á næsta ári. Atta sveitarfélög semja um rekstur Skjaldarvíkur ÁTTA sveitarfélög í Eyjafirði hafa gert með sér samkomulag um rekstur dvalarheimilisins Skjaldarvíkur með rýmum fyrir allt að 50 vistmenn og er samningurinn til tveggja ára. Sveitarfélögin taka öll þátt í greiðslu rekstrarkostnaðar samkvæmt samkomulaginu. Valgerður Hrólfsdóttir, formaður öldrunarnefndar á þjónustusvæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akur- eyri, sagðist vona að þetta væri fyrsta skrefið í auknu samstarfí sveitarfélaganna í öldrunarmálum. Sveitarfélögin eru Akureyrar- bær, Arnarneshreppur, Eyjafjarð- arsveit, Glæsibæjarhreppur, Háls- hreppur, Skriðuhreppur, Svalbarðs- strandarhreppur og Öxnadals- hreppur. í sámkomulagi milli sveit- arfélaganna kemur fram að Akur- eyrarbær vill síður framselja til nágrannasveitarfélaganna heimild- ir sínar til rekstrar þjónusturýma og fór því fram á að sveitarfélögin sjö sæki um leyfí til að reka 25 þjónusturými í Skjaldarvík þann tíma sem samkomulagið gildir, en fram til þessa hafa slíkar heimildir skort. Morgunblaðið/Rúnar Þór Viðamikið verk LEIKFÉLAG Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýndi í gærkvöld söngleikinn Jósep og er þetta ein viðamesta sýning sem félagið hefur sett upp, en um sjötíu manns hafa unnið að uppfærslunni. Leikfélag Verkmenntaskólans frumsýnir söngleikinn Jósep LEIKFÉLAG Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýndi í gær- kvöld söngleikinn Josep eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice við mikinn fögnuð áhorfenda. Þessi sýning er ein sú viðamesta sem félagið hefur ráðist í, en um sjötíu manns unnið að uppfærslu hennar og hefur undirbúningur staðið yfír allt frá því síðasta vor. Leikstjóri er Sigurþór Albert Heimisson, en Micael Jón Clark sá um útsetningu tónlistar. Þórarinn Hjartarson þýddi verkið. Með aðal- hlutverkið fer Ingólfur Freyr Guð- mundsson, en sögumenn eru þær Andrea Ásgrímsdóttir, Vigdís Garð- arsdóttir og Kristbjörg Hermanns- dóttir. Sagan er fengin úr Biblíunni, en hún er um Jakob og syni hans. Jakob hefur mikið dálæti á Jósep, en bræðurnir verða afbrýðisamir og selja Jósep til Englands sem þræl þar sem hann lendir í miklum hremmingum. Önnur sýning á söngleiknum verður á laugardagskvöld og hin þriðja á sunnudagskvöld, 20. febr- úar. Alls verður verkið sýnt 6 sinn- um og verða þijár sýningar um aðra helgi. Sýnt er í Gryfjunni, sal Verkmenntaskólans á Akureyri. Húsavík Ráðstefna um sam- göngumál RÁÐSTEFNA um sam- göngumál verður haldin á Hótel Húsavík í dag, föstu- daginn 18. febrúar, en fyrir henni gengst Eyþing, sam- band sveitarfélaga í Eyja- firði og Þingeyjarsýslum. Ráðstefnan hefst kl. 10, en að lokinni setningu flytur Halldór Blöndal samgöngu- ráðherra ávarp. Þá verða flutt erindi um samgöngur og at- vinnulíf, en frummælendur eru Reynir Adolfsson, Jóhann A. Jónsson og Jón Þór Gunn- arsson. Sigurður Guðmundsson flytur erindi um áhrif bættra samgangna á byggð og at- vinnulíf, Valtýr Sigurbjarnar- son ræðir um áhrif tengingar Norður- og Austurlands og Jónína B. Oskarsdóttir greinir frá mannlífi í Ólafsfirði fyrir og eftir tilkomu jarðgangna. Þorgeir Pálsson fjallar um framtíðarsamgöngukerfið, áherslubreytingar og stefnu- mörkun í samgöngumálum, Guðmundur Svafarsson ræðir um ný viðhorf og þróun í vega- málum og Kristján Kristjáns- son um mat á gildi samgöngu- bóta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.