Morgunblaðið - 18.02.1994, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
Ríkisarfinn í N-Kóreu
sagður mikið slasaður
Embættismenn í S-Kóreu hafna fréttinni en aðrir tengja hana stefnubreytingu í kj amorkumálum
Reuter
Leiðtoginn ástkæri
KIM Jong-il, leiðtoginn ástkæri eins og hann er kallaður í Norður-
Kóreu. Fyrir 20 árum var ákveðið, að hann tæki við af föður sínum,
Kim Il-sung, leiðtoganum mikla.
Seoul. Reuter.
HELSTI leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Suður-Kóreu, Lee Ki-taek,
sagði í gær, að Kim Jong-il, sonur og erfingi Kim Il-sungs, leiðtoga
Norður-Kóreu, væri alvarlega slasaður og kvaðst hann hafa fréttina
frá bandarískum embættismönnum. Suður-kóreskir embættismenn
vísa því hins vegar á bug. Svo vill til, að þessi frétt kemur á sama
tíma og tilkynning Norður-Kóreustjórnar um að hún hafi breytt um
stefnu og hyggist nú leyfa eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar að skoða kjarnorkuver í landinu. Eru vangaveltur
um, að þessi mál kunni að vera tengd.
„Ég veit ekki hvort um var að
ræða bílslys eða skotárás en kring-
umstæðurnar virðast hafa verið eitt-
hvað grunsamlegar," sagði Lee en
frá Norður-Kóreu hafa engar fréttir
borist fremur venju. Suður-kóreska
fréttastofan Yonhap og ríkissjón-
varpið höfðu það hins vegar eftir
háttsettum embættismanni Suður-
Kóreustjórnar, að orðrómurinn væri
ekki á rökum reistur.
Ekki sést í tvo mánuði
Lee sagði, að Kim Jong-il hefði
hvergi komið fram, ekki einu sinni
í sjónvarpi, þegar haldið var upp á
52 ára afmæli hans í fyrradag og
starfsmaður Naewoe-útgáfunnar,
sem fylgist með fjölmiðlum í Norður-
Kóreu, sagði, að Kim yngri hefði
ekki sést opinberlega síðan 9. desem-
ber þegar hann var viðstadjdur fund
norður-kóreska þingsins. Á það er
hins vegar bent, að hann sé ekki
vanur að koma oft fram opinberlega.
Lee kvaðst hafa fengið fréttina
hjá bandarískum embættismanni
fyrir fimm dögum og þar sem um
væri að ræða mikilvægt mál, sem
snerti öryggi landsins, yrði að ganga
úr skugga um sannleiksgildi þess.
Talsmaður Hvíta hússins í Washing-
ton og bandarísku leyniþjónustunnar
vildu ekkert um málið segja.
Fátt er vitað um krónprinsinn í
síðasta vígi stalínismans en hann var
útnefndur arftaki „Leiðtogans
mikla“, föður síns, 1974 og hefur
orð á sér fyrir að vera mjög óútreikn-
anlegur. í júní í fyrra sagði háttsett-
ur embættismaður í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu, að litlir leið-
togahæfileikar Kim Jong-ils gætu
ýtt undir valdarán hersins þegar
faðir hans félli frá.
Lýst yfir stríðsástandi
Talið er, að Kim Jong-il, sem er
yfirmaður hersins að nafninu til,
hafi ráðið því, að lýst var yfir hálf-
gerðu stríðsástandi í Norður-Kóreu
fyrir ári þegar Suður-Kóreumenn og
Bandaríkjamenn efndu til sameigin-
legra heræfinga og hann er einnig
sagður hafa ákveðið, að alþjóðlegum
eftirlitsmönnum yrði bannað að
skoða kjarnorkuver og rannsókna-
stöðvar í Iandinu.
Fréttir um að Kim Jong-il sé al-
varlega slasaður koma á sama tíma
og Norður-Kóreustjórn lýsir yfir, að
hún ætli að leyfa eftirlit með kjarn-
orkuverum í landinu. Velta sumir
því fyrir sér, að reynist það rétt, að
krónprinsinn sé slasaður, kunni það
að tengjast þessari stefnubreytingu.
Stálu andstæð-
ingar fósturey ð-
inga Opi Munchs?
Ósló. Reuter.
NORSKIR andstæðingar fóstureyðinga gáfu í gær í skyn að þeir
hefðu stolið einu þekktasta listaverki heims, Ópi eftir Edward
Munch, úr Norska ríkislistasafninu á laugardag. Borre Knudsen,
fyrrum prestur og hatrammur andstæðingur fóstureyðinga, sagði
að hugsanlega mætti endurheimta málverkið, yrði umdeild mynd
um fóstureyðingar, „Hið hljóða óp“ sýnd í norska ríkissjónvarpinu.
„Ég hef verið að velta þessu fyr-
ir mér. Hefði ríkissjónvarpið til
dæmis sýnt „Hið hljóða óp“, hefði
Ópinu verið skilað," sagði Knudsen.
Hann neitaði hins vegar að stað-
festa að andstæðingar fóstureyð-
Veiðibann á
Miklabanka
Brussel. Reuter.
AÐILDARRÍKI Norðvestur-Atl-
antshafsfiskveiðiráðsins hafa
samþykkt að banna þorskveiðar
á Miklabanka við Kanada út
þetta ár. Var það niðurstaða
þriggja daga fundar, sem hald-
inn var að kröfu Kanadamanna.
Á síðasta ári var leyft að veiða
6.000 tonn af þorski á suðurhluta
Miklabanka en rányrkjan á miðun-
um hefur verið slík, að Brian Tob-
in, sjávarútvegsráðherra Kanada,
kallaði hana ,jafn mikinn umhverf-
isglæp og eyðingu regnskóganna, í
síðustu viku. Það eru einkum skip
frá Spáni, sem hafa stundað mikia
rányrkju á þessum slóðum, en auk
þeirra hefur skipum undir hentifána
Qölgað mjög á síðustu árum.
inga hefðu tekið myndina og gat
ekki gefið tryggingu fyrir því að
henni yrði skilað. „Við getum ekki
tjáð okkur opinskátt um málið. Við
höfum gefið merki sem við viljum
að skiljist og við verðum að vera
dálítið leyndardómsfull.“ Er Knuds-
en var spurður hvort hann hefði
verið reiðubúinn að stela Ópi
Munchs til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri, sagði hann svo
vera.
Barn eða málverk?
í gær barst símbréf til norskrar
útvarpsstöðvar með mynd sem sýn-
ir konuhnefa kreista æpandi fóstur.
í bakgrunni er kvenkyns _ útgáfa
Ópsins að því er virðist. Á texta
með myndinni stendur: „Hvort er
mikilvægara, barn eða málverk?"
Norska lögreglan hyggst kanna
málið. Segir talsmaður hennar að
vel geti verið að Knudsen og Lud-
vig Nessa verði færðir til yfir-
heyrslu en báðir hafa verið sviptir
kjóli og kalli vegna hatrammrar
baráttu sinnar gegn fóstureyðing-
um. Þeir hafa margoft notað eftir-
prentanir af Ópinu í baráttu sinni
og segja það vel geta verið mynd
af konu sem hafi farið í fóstureyð-
ingu.
Reuter
Einn á Norðurpólinn
BRESKI heimskautakönnuðurinn Rupert Hadlow ráðgerir að slá öll fyrri
met í pólferðum með því að ganga einn og óstuddur á Norðurpólinn.
Hyggst hann leggja upp frá Resolute-flóa í Kanada 3. mars nk. Á mynd-
inni krýpur hann við sleða sem hann mun draga á eftir sér en á honum
verður margskonar búnaður og vistir.
Klofningnrinn
var aðeins flétta
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKI þjóðernisöfgamaðurinn Vladímír Zhírínovskíj sagði í gær
á þingi, að klofningurinn í flokki hans, sem skýrt var frá í fyrradag,
hefði verið ákveðin aðferð eða flétta til að afhjúpa „leynilega útsend-
ara“ innan hans.
„Þáð var enginn klofningur í
fiokknum, er ekki og verður ekki,“
sagði Zhírínovskíj og Víktor Kobelev,
sem lýsti því yfir í fyrradag, að hann
hefði sagt sig úr þingflokknum, hafði
nú ekkert til málanna að leggja. Á
fundi með fréttamönnum sagði Zhír-
ínovskíj hins vegar, að þeir Kobelev
hefðu nú jafnað með sér ágreininginn
en minntist ekkert á neina fléttu.
Ekki er ljóst hvort Kobelev og Alex-
ander Pronín, sem einnig sagði sig
úr þingflokknum, munu ganga í hann
aftur.
Afþakkar
nefndar-
störf hjá SÞ
MARY Robinson,' forseti ír-
lands afþakkaði í gær boð um
að sitja í forsæti nefndar sem
fara átti yfir starfsemi Samein-
uðu þjóðanna. Ástæða þess var
að ríkissaksóknari írlands taldi
að það bryti í bága við stjórnar-
skrána og gæti haft áhrif á
starf hennar.
Unga fólkið
sagt illlæst
MARGIR breskir unglingar
ljúka skólanámi án þess að
geta lesið og skrifað með sóma-
samlegum hætti eða fyllt út
eyðublöð vegna atvinnuum-
sókna, að því er fram kom í
könnun sem kynnt var á þriðju-
dag. Atvinnurekendur kvört-
uðu meðal annars yfir því að
réttritun vefðist jafnvel fyrir
fólki með háskólapróf.
Atvinnuleysi
eykst í Hol-
landi
ATVINNULEYSI í Hollandi
jókst um 32% á síðustu þremur
mánuðum og hefur ekki verið
hærra frá árinu 1987. Tala at-
vinnulausra hefur farið hækk-
andi frá miðju síðasta ári, úr
5.8% atvinnuleysi meðal vinnu-
færra manna og upp í 7.5%.
Renault og
Volvo skilin
að skiptum
RENAULT og Volvo bílaverk-
smiðjurnar tilkynntu formlega
í gær um aðgerðir til að draga
úr tengslum þeirra. Áætlanir
um samruna þeirra runnu út í
sandinn í desember. Tilkynntu
talsmenn þeirra að hvor fram-
leiðandi um sig myndi endur-
heimta fullt frelsi hvað varðaði
hlutabréf í fyrirtækjunum og
samninga þeirra um samvinnu.
Líks Gamsak-
hurdia leitað
NEFND skipuð Tsjetsjenum og
Georgíumönnum staðfesti í
gær, að borin hefðu verið
kennsl á lík Zviads Gamsakhur-
dias, fyrrum forseta Georgíu,
en það var grafið upp í Vestur-
Georgíu. Var það með skotsár
á höfði en tsjetsjenískir emb-
ættismenn munu fljúga með
það úr landi og greftra í
Tsjetsjeníu.
Liz Taylor
á sjúkrahús
KVIKMYNDALEIKKONAN
Elizabeth Taylor fer á sjúkra-
hús snemma í mars, þar sem
skipt verður um mjaðmarlið í
henni. Hefur leikkonan þjáðst
af slitgigt í vinstri mjöðm.
Engin áhrif
kvöldvor-
rósarolíu
BRESKIR læknar segja að
kvöldvorrósarolía, sem fjöldi
kvenna á breytingaskeiði tekur,
dragi ekki úr hitaköstum sem
htjá margar konur við tíða-
hvörf. Þetta eru niðurstöður
athugunnar sem gerð var á 56
konum í 17 mánuði og birtust
niðurstöðurnar í Brítish Medic-
a 1 Journal. í þeim sagði að eng-
in munur hefði verið á líðan
þeirra kvenna sem tóku olíuna
og þeirra sem tóku lyfleysur.