Morgunblaðið - 18.02.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
21
TALA látinna eftir jarðskjálftann á Súmötru aðfaranótt miðvikudags hækkar enn og er nú komin í 184. Yfir
1.500 manns slösuðust í skjálftanum, sem Indónesar telja hafa verið 6,5 á Richter en Bandaríkjamenn um 7,2
stig. Hér er fólk að reyna að bjarga einhverju af eigum sínum úr rústunum.
Tala fórnarlamba í 184
Reuter
Tímamótaaðgerð á
fóstri 1 móðurkviði
Boston. Reuter.
LÆKNAR við Wayne-ríkisháskólann í Detroit í Bandaríkjunum gerðu
fyrir nokkru tímamótaaðgerð á fóstri í móðurkviði, en það hefði
að öðrum kosti látist þar sem hjarta þess hafði ekki við að dæla
blóði til tvíburasystkinis þess, sem hafði hvorki hjarta né heila.
Agerðinni er lýst í nýjasta hefti New England Journal of Medicine
og er haft eftir Bandarisku barnalækningastofnuninni að aðgérðin
sé hin fyrsta sinnar tegundar og marki tímamót í aðgerðum á fóstr-
um og i skurðlækningum.
Læknarnir framkvæmdu aðgerð-
ina á fóstrinu með örfínum áhöld-
um, sem ásamt myndatökuvél voru
voru þrædd inn um lítil göt á kviði
móðurinnar. Enginn skurðanna var
breiðari en 2 mm. Aðferðin er svip-
uð og þegar gerðar eru aðgerðir í
kviðarholi, t.d. gallblaðran numin
brott. Myndatökuvélin gerði lækn-
unum kleift að sjá til og bundu
þeir fyrir naflastrenginn til þess
fóstursins sem átti enga lífsmögu-
leika. Telja læknarnir að þessi
tækni geri þeim kleift að gera ýmis
konar aðgerðir á fóstrum, svo sem
fjarlægja æxli.
Miklar líkur voru á því að heil-
brigða fóstrið hefði einnig látist,
hefði aðgerðin ekki verið fram-
kvæmd en hjarta þess dældi blóði
um eigin líkama og til hins fósturs-
ins.
Móðirin er 24 ára og hafði geng-
ið með í 20 vikur er aðgerðin var
framkvæmd. Fóstrið, sem hvorki
hafði heila né hjarta, vóg aðeins
28 grömm er það dó. Hitt var full-
komlega heilbrigt er það fæddist
sextán vikum síðar.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut^
Kopavogi, simi
671800
Opið sunnudaga
kl. 13-18.
Bosníumaður fyrir dansk-
an rétt vegna stríðsglæpa
Tekinn höndum þegar annað flóttafólk frá Bosníu
bar kennsl á hann úr króatískum fangabúðum
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Múhameðstrúarmanni frá Bosníu, sem sótt hefur um landvistarleyfi
í Danmörku, hefur verið stefnt fyrir rétt fyrir ofbeldi og að vera
meðsekur um manndráp. Maðurinn kom sem flóttamaður til Dan-
merkur í janúar. Hann var tekinn höndum fyrir nokkru eftir ábend-
ingar frá fólki, sem sagðist hafa orðið að þola ofbeldi frá hans hendi.
Eftir að hafa athugað lagabókstafinn er Ijóst að Danir verða að
rétta yfir manninum þar sem stríðsdómstóll hefur enn ekki verið
settur yfir grunaða stríðsglæpamenn frá fyrrum Júgóslavíu.
Ruslið er
mest vestra
Boston. Frá Karli Blöndal, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
HELMINGI meira sorp
hleðst að jafnaði upp hjá
Bandaríkjamönnum en
þjóðum Evrópu ef marka
má könnun, sem tölfræði-
stofnun Evrópusambands-
ins birti á miðvikudag.
Að sögn bandarísku frétta-
stofunnar AP voru niðurstöð-
urnar þær, að í Bandaríkjun-
um nemur árlegur úrgangur
718,5 kg á hvert mannsbarn.
íslendingar eru ekki hálf-
drættingar á við Bandaríkja-
menn og sendir hver ekki frá
sér nema rétt rúm 309 kg á
ári.
Finnar, Hollendingar,
Danir og Norðmenn eru efst-
ir Evrópuþjóða og sendir hver
þeirra um 500 kg árlega á
haugana.
Eftir að maðurinn sótti um hæli
í janúar var honum komið fyrir í
flóttamannabúðum, en þar bíða
flóttamenn þess að mál þeirra verði
tekið fyrir. í búðunum voru fyrir
menn, sem héldu því fram að þeir
og nánir aðstandendur þeirra hefðu
mátt þola ofbeldi af hendi mannsins
í króatískum fangabúðum við
landamæri Bosníu og Króatíu. Mik-
il geðshræring greip um sig meðal
flóttamannanna, þegar þeir báru
kennsl á Bosníumanninn og varð
lögreglan að flytja hann á ónefndan
stað, ásamt eiginkonu og tveimur
börnum.
Maðurinn hefur verið í haldi und-
anfarið, meðan athugað var hvernig
fara ætti með mál hans. Nú er ljóst
að Danir eru skyldugir til að fylgja
Genfarsáttmálanum frá 1949, en í
dönskum lögum er einnig ákvæði
um að sækja eigi fólk til saka, ef
mál þess falla undir alþjóðlega sátt-
mála. Þar sem ekki hefur verið sett-
ur alþjóðlegur stríðsdómstóll vegna
stríðsglæpa í fyrrum Júgóslavíu og
ekki er hægt að framselja manninn
til heimalands hans verður höfðað
mál gegn honum í Danmörku.
Chevrolet Blazer S-10 sport '91, 4,3 I.
vél, vínrauöur, sjálfsk., ek. 46 þ. km., rafm.
í rúðum, álfelgur o.fl. V. 1980 þús. stgr.
MMC Colt EXE '92, 1500, 5 g., ek. 44
þ., rafm. í rúðum, álfelgur, spoiler, central
o.fl. V. 990 þús.
Toyota Corolla 1.6 Sl ’93, steingrár, 5
g., ek. 10 þ., álfelgur, rafm. í rúðum. V.
1280 þús.
Toyota Douple Cap diesel '92, rauður, 5
g., ek. 46 þ., upphækkaður, 33" dekk,
lengd skúffa, brettakantar o.fl. Vsk-bíll.
ER LIF EFTIR
DAUÐANN?
Ráðstefna í sal 2 í Háskólabíói laugardaginn 19. febr. frá kl. 13.00-16.30
Þetta er spurning sem flestir
velta fyrir sór og leita sífellt
svara við. Um hana verður
fjallað frá ýmsum sjónarhornum
á þessari ráðstefnu. Þar gefst
fólki kostur á að hlusta á
túlkun ýmissa aðila á því, hvað
verður um okkur eftir dauðann
og leggja fyrirspurnir fyrir
framsögumenn.
Framsögumenn eru:
Guðmundur
Vésteinn
Þórhallur H.
Jörmundur
Þórhallur G.
Guðmundur Einarsson, fyrrv. form. Sálarrannsóknarfél. (slands,
fjallar um miðilsrannsóknir sínar og sambönd við framliðna.
Vésteinn Lúðvíksson, rithöfundur,
fjallar um líf eftir dauðann frá sjónarhorni búddista.
Þórhallur Heimisson, prestur,
fjallar um líf eftir dauðannn frá sjónarhorni lútersku
kirkjunnar.
Jörmundur Ingi Hansen, settur
allsherjargoðiásatrúarmanna,
fjallar um líf eftir dauðann frá
sjónarhorni ásatrúarmanna.
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
fjallar um starf sitt sem miðill og verður
síðan með SKYGGNILÝSINGU.
Miðasala í Háskólabíói frá kl. 12 ráðstefnudaginn - verð kr. 700.
Snæfellsás hf.
MMC Pajero V-6 '91, grár/blár, sjálfsk.,
ek. 52 þ., sóllúga, álfelgur, rafm. í öllu
o.fl. V. 2.2 millj., sk. á ód.
Toyota 4Runner V-6 ’92, blár, 5 g., ek.
32 þ., 33“ dekk, sóllúga, brettakantaro.fi.
V. 2750 þús.
Toyota Corolla XLi '93, rauður, sjálfsk.,
ek. 14 þ., spoiler o.fl. V. 1180 þús.
Toyota Carina E '93, sjálfsk., ek. 26 þ.,
rafm. í rúðum o.fl. V. 1450 þús.
Toyota Corolla XL station '91, hvítur, 5
g., ek. 20 þ., 2 dekkjagangar á felgum.
V. 850 þús.
Toyota Corolla GLI ’93, 4ra dyra, hvítur,
5 g., ek. 10 þ., rafm. í rúðum o.fl V. 1270
þús.
Toyota Tercel ’87, 5 g., ek. 82 þ. V. 620
þús.
VW Vento GL ’94, sjálfsk., ek. 2 þ., 2
dekkjagangar, central læs. V. 1500 þús.
Cherokee Laredo '86, sjálfsk., ek. 80 þ.
mílur, 5 dyra, álfelgur. V. 1050 þús., skipti
á fólksbíl o.fl. Gott eintak.
Mazda 323 GLX 1600 '91, hvítur, 5 g.,
ek. 46 þ., samlitaðir stuðarar, rafm. i rúö-
um. V. 860 þús., sk. á dýrari + 300 þús.
Subaru Legacy station ’90, brúnsans, 5
g., ek. 55 þ., rafm. í rúöum o.fl. V. 1270
þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade TS EFi 16v '93, rauð-
ur, 1300 vól, bein innsp., 5 g., ek. aðeins
6 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús.
MMC Galant 2000 GTi '89, rauður, 5 g.,
ek. 86 þ., álfelgur, sóllúga, rafm. í öllu
o.fl. Toppeintak. V. 1180 þús., sk. á ód.
V.W. Golf GT 1800 '88, rauður, 5 g., ek.
68 þ., sóllúga, vökvast. Fallegur bíll.
V. 690 þús.