Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994 23 Mat sérfræðinga á vegum utanríkis- og viðskiptaráðuneytisins Landbúnaðarráð- herra fært nánast alræðisvald yfir matarinnflutningi Gjöld á einstakar vörur gætu hækkað úr 30% í 7-800% ÞAD ER mat sérfræðinga sem unnið hafa á vegum utanríkis- og viðskiptaráðuneytisins að breytingar þær á búvörufrumvarpi rík- isstjórnarinnar sem nú eru til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd feli í sér verulegar efnisbreytingar miðað við það samkomulag sem gert var milli stjórnarflokkanna í desember. Þær feli í sér svo víðtækar breytingar að það færi nánast alræðisvald til landbúnaðarráðherra varðandi allan matvælainnflutning og að í krafti heimilda til álagning- ar verðjöfnunargjalda geti landbúnaðarráðherra útilokað nánast all- an matvælainnflutning af verðlagsástæðum. Gjöld á einstakar land- búnaðarvörur sem nú eru að hámarki 30% skv. tollalögum geta að mati þeirra hækkað upp í allt að 7-800% eða meira eftir gildistöku nýja GATT-samningsins. Sérfræðingarnir telja að með breytingunum við frumvarpið sé í raun verið að skapa tæki til fram- leiðslustýringar í íslenskum iðnaði færa innflutningsmál áratugi aftur í tímann. Frumvarpið brjóti núver- andi GATT-samning og marga aðra milliríkjasamninga sem Island er aðili að. Sem dæmi um heimildir sem landbúnaðarráðherra fengi ef breytingarnar verða lögfestar þá gæti hann lagt 70% verðjöfnunar- gjöld á niðursoðið grænmeti sem ber engin slík gjöld í dag. Á tímabil- inu 15. mars til 1. nóvember hafði ráðherra heimild til að leggja 445% gjald á kartöflur, 240% gjald á tóm- ata, 517% gjald á salathöfuð, 377% gjald á gulrætur, 296% á gúrkur og 649% gjald á innflutt blóm en í dag eru gjöld á allar þessar vörur að hámarki 30% skv. tollalögum. Eftir að GATT-samningurinn tekur gildi fengi ráðherra t.d. heimild til að leggja 538% gjald á innflutt svínakjöt og skinku, 467% á kjúkl- inga, 586% á mjólk og 674% á smjör. Nær til allra til- svarandi samkeppnisvara Það er álit sérfræðinganna að þó svo virðist sem ekki sé bætt við vöruflokkum sem bannað er að flytja inn í dag séu heimildir til álagningar verðjöfnunargjalda verulega útvíkkaðar frá því sam- komulagi sem gert var í desember. Heimildirnar nái ekki aðeins til þeirra vöruflokka sem taldir eru upp í viðauka frumvarpsins heldur einnig til allra landbúnaðarvara sem jafnframt eru framleiddar hér- lendis, allra vara sem innihalda landbúnaðarhráefni og allra tilsvar- andi vara sem eru í samkeppni við landbúnaðarvörur. Landbúnaðarráðherra fengi heimildir til að leggja gjöld á vörur sem innihalda landbúnaðarhráefni sem í mörgum tilvikum geti verið langt umfram það sem hingað til hefur verið gert ráð fyrir, á vörur eins og pasta, pítsur, kex og súkku- laði og fleira sælgæti og yrði fjár- málaráðherra þá sviptur öllum lagaheimildum sem hann hefur hingað til haft til að leggja verðjöfn- unargjöld á margar þessar vörur. Bent er á að í upphaflegu frum- varpi hafi verið skýrt afmarkaðar heimildir til álagningar verðjöfnun- argjalda sem áttu að brúa mismun á innflutningsverði landbúnaðar- vara og innanlandsverði en breyt- ingarnar sem gerðar hafa verið í landbúnaðarnefnd feli hins vegar í sér heimildir til þess að leggja á verðjöfnunargjöld sem nema mis- muninum á innanlandsverði og heimsmarkaðsverði. Það þýði álagningu verndartolla langt um- fram innanlandsverð. Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi Ellefu efstu sætin samkvæmt prófkjörí Akranesi. GUNNAR Sigurðsson umboðsmaður og formaður Knattspyrnufélags ÍA verður efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar á Akranesi í vor en listinn var endanlega samþykktur á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna 1 vikunni. EHefu efstu sæti listans eru skipuð í samræmi við niðurstöður prófkjörs flokksins á dögunum. Listinn er þannig skipaður: 1. Gunnar Sigurðsson, umboðs- maður, Espigrund 3. 2. Pétur Ottesen, trésm./afgrm., Vallarbraut 3. 3. Elínbjörg Magnúsdóttir, fisk- vm., Skarðsbraut 17. 4. Sigríður Guðmundsdóttir, skrif- st.m., Jörundarh. 6. 5. Þórður Þórðarson, bifreiðastj., Bjarkargr. 30. 6. Bjarki Jóhannesson, framkv.stj., Vesturgötu 51. 7. Jóhannes Finnur Halldórsson, viðskfr., Vesturgötu 51. 8. Guðmundur Guðjónsson, fram- kv.stj., Grenigrund 22. 9. Gunnar Ólafsson, húsasmíða- meist., Víðigrund 20. 10. Hjörtur Gunnarsson, tæknifr., Garðarbraut 22. 11. Guðjón Georgsson, rafvirki, Vesturgötu 136. 12. Guðrún Hróðmarsdóttir, hjúkr- unarfr., Jörundarh. 182. 13. Guðjón Theódórsson, sjómaður, Heiðarbraut 55. 14. Herdís Þórðardóttir, fiskverk- andi, Bjarkargrund 8. 15. Ásmundur Ólafsson, forstöðu- maður, Jörundarholti 114. 16. Þóra Björk Kristinsdóttir, hjúkr- unarfr., Bjarkargr. 2. 17. Valdimar Indriðason, fyrrv. al- þingism., Höfðagrund 21. 18. Benedikt Jónmundsson, útibús- stjóri, Bakkatúni 10. J.G. AF INNLENDUM VETTVANGI PÉTUR GUNNARSSON 24 aðilar grunaðir um innflutning á 45 kg af hassi og 6 kg af amfetamíni í umangsmiklu fíkniefnamáli Söluverð fíkniefnanna hér um 95 milljónir kr. Rannsókn lokið og málið nú til afgreiðslu hjá ríkissaksóknara RANNSÓKN stóra fíkniefnamálsins sem verið hefur til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar siðan í júli i sumar er nú lokið og hefur málið verið sent ríkissaksóknara. Málið er umfangsmesta fíkniefnamál sem komið hefur til kasta lögreglu hér á landi og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er niðurstaða rannsókn- arinnar sú að 24 aðilar eru kærðir fyrir aðild að málinu og er talið að þeir hafí flutt inn til landsins allt að 45 kíló af hassi og allt að 6 kíló af amfetamíni í 19 smyglferðum sem farnar voru frá febrúar 1992 til júlí 1993. Lagt hefur verið hald á um 14 kg af hassi og tæp 2 kg af ametamíni. Miðað við að gramm af hassi kosti 1.500 krónur á götu hér er söluverðmæti hassins í málinu 67,5 milljónir króna og miðað við að gramm af amfetamíni kosti 4.500 krónur er söluverðmæti þess 27 milljónir króna. Þar á með- al eru fíkniefni sem lagt var hald á í fjórum eldri málum sem upp komu á fyrrgreindu tímabili og ekki tókst í fyrstu að upplýsa hveijir hefðu staðið á bak við. Þar á meðal er mál sem komst upp á Seyðisfirði sumarið 1992 þegar 6 kg af hassi og 200 grömm af amfetamíni fundust í bíl í feijunni Norrænu. Aðild þeirra 24 sem koma við sögu í málinu er mismikil en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er stærstur þáttur 38 ára manns sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá þvi 1. september síðastliðinn og hefur verið kallaður höfuðpaur málsins. Hann er talinn hafa átt aðild að inn- flutningi á um það bil 35 kílóum af hassi og allt að 5 kg af amfet- amini í 13 smyglferðum. Algengast er að þeir sem eru á kæruskrá í málinu komi við sögu fleiri ferða en einnar. Sumir hinna kærðu voru einungis svonefnd burðardýr en talið er að sumir þeirra sem báru inn efni til landsins hafi einnig átt þátt í undirbúningi og fjármögnun ferðanna. Játningar á hluta Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru niðurstöður rannsóknarinnar byggðar á fram- burði þeirra sem koma við sögu í málinu, þeim fíkniefnum sem lagt hefur verið hald á en þar er um að ræða 13,8 kg af hassi og 1,7 kg af amfetamíni og einnig hljóð- upptökum sem gerðar voru á heim- ili eins sakborninganna, með sam- þykki hans, kvöldið sem höfuðpaur- inn svokallaði var handtekinn. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins liggja fyrir játningar um verulegan hluta sakargiftanna, þar á meðal hefur höfuðpaurinn játað hluta þess sem honum er gefið að sök. Vegna rannsóknarinnar hafa 15 manns setið í gæsluvarðhaldi um lengri eða skemmri tíma. Tveir menn voru framseldir til landsins frá Svíþjóð og sátu um tíma í haldi hér en eru farnir til síns heima að nýju. Holland, Spánn, Norðurlönd, Leifsstöð, Norræna Fíkniefnin sem um er að ræða í málinu voru samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins nær alltaf keypt í Hollandi en í einhveijum tilvikum á Spáni. Þau voru ýmist flutt til landsins með farþegaflugi frá Amsterdam eða flutt landleiðis til Norðurlandanna og þaðan með flugi til Islands og einnig í a.m.k. einu tilviki með með feijunni Nor- rænu, eins og fyrr var rakið. Algengt að 3-7 aðilar tengist hverri ferð Það mál er eitt þeirra atriða í málinu sem ekki er talið að hinn margnefndi höfuðpaur tengist held- ur hafi staðið að þeirri ferð aðilar sem tengjast höfuðpaurnum og öðrum þeim málum sem hann er viðriðinn. Fleiri ferðanna munu vera þannig til komnar að einhver sem að undirbúningi þeirra stóð hafði áður eða síðar komið nærri skipulagningu einhverra þeirra 13 smyglferða sem höfuðpaurinn svo- kallaði er talinn tengjast. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins er algengt að 3-7 aðilar hafi tekið þátt í undirbúningi, kaupum og innflutningi fíkniefnanna í hverri ferð. Nær ekkert liggur hins vegar fyrir um hvernig staðið var að því að dreifa til neytenda hér- lendis þeim um það bil 30 kílóum af hassi og allt að 4,5 kg af am- fetamíni sem talið er að hafi kom- ist á markað. Önnur eldri mál sem rannsókn lögreglunnar benda nú til að teng- ist þessu máli eru mál manns sem handtekinn var á Keflavíkurflug- velli í ágúst 1992 með 3 kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni í fórum sínum, einnig mál sem kom upp í október 1992 þar sem lagt var hald á um 170 grömm af amfet- amíni í Leifsstöð og loks mál þar sem maður var handtekinn 15. júlí 1993 með 2 kg af hassi í fórum sínum. Þetta síðastnefnda mál kom upp 10 dögum áður en tveir menn voru handteknir í Leifsstöð með 3 kg. af hassi og um það bil 1 kg af amfetamíni í fórum sínum. Við handtöku þeirra og yfirheyrslur hófst sú rannsókn sem leiddi sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins til þess að grunur vaknaði um að um væri að ræða fíkniefnahring sem tengdist hinum svonefnda höf- uðpaur. Að kvöldi 31. ágúst, skömmu eftir að þeim tveimur sem fyrst voru handteknir hafðu verið sleppt úr haldi, kom lögreglan fyrir hlustunarbúnaði á heimili annars þeirra með samþykki hans og síðan voru teknar upp samræður þess manns, höfuðpaursins og annarra sem viðstaddir voru. Þær upptökur eru meðal sönnunargagna í málinu. Flestir tengjast fleiri en einni ferð Meðal þeirra 24 sem eru á kæru- skrá lögreglunnar og mega búast við ákæru ríkissaksóknara í málinu eru a.m.k. 5 manns sem gegndu hlutverki svonefndra burðardýra, þ.e.a.s. fólk sem ekki var á skrám fíkniefnalögreglu og tollgæslu en hafði tekið að sér að bera efnin inn í landið gegn greiðslu sem gat num- ið, að því er fram hefur komið í Morgunblaðinu fyrr í frásögnum af málinu, 250-500 þúsund krón-' um. I öðrum tilvikum var efnið flutt inn af fólki sem einnig hafði átt þátt í fjármögnun og skipulagningu ferðanna og eins og fyrr sagði koma flestir sem málinu tengjast við sögu fleiri en einnar ferðar. Dómsmeðferð hefjist i mars Nú þegar rannsókn málsins er lokið situr hinn svonefndi höfuðp- aur enn í gæsluvarðhaldi sem hann hefur setið óslitið í frá 1. septem- ber síðastliðnum. Gæsluvarðhalds- úrskurðurinn rennur út þann 15. mars og þegar Hæstiréttur fjallaði síðast um gæsluvarðhaldsvist mannsins var í dómi réttarins gerð krafa til þess að rannsókn málsins og dómsmeðferð yrði hraðað. Því búast heimildarmenn Morgunblaðs- ins við því að afgreisla ríkissak- sóknaraembættisins á málinu muni liggja fyrir fyrir þann 15. mars og að þá verði ákæra gefin út gegn fólkinu og síðan verði málið gegn þeim öllum rekið sem eitt sakamál í Héraðsdómi Reykjavíkur vikurnar þar á eftir. Þáttur nokkura hinna 24 á kæruskrá er þó talinn svo lít- ill að hugsanlegt er talið að þætti þeirra verði lokið með sátt og sekt- argreiðslu. Hassþurrð Þá herma heimildir Morgun- blaðsins að ein afleiðing þessarar rannsóknar á starfsemi þessa fíkni- efnahrings sem tengist víða í fíkni- efnaheiminum sé sú að um alllangt skeið hafí verið lítið framboð af fíkniefnum hér á landi. Einkum er það sagt eiga við um hass en fram- boð af því er sagt vera minna nú en um langt árabil. Þetta hafa heimildarmenn Morgunblaðsins bæði til marks um það að þeir aðil- ar sem komið hafi við sögu þessa máls hafi verið umsvifamiklir og með víðfeðm tengsl á markaðinum og einnig um það að vegna málsins hafi aðrir fíkniefnasalar haldið að sér höndum. Einnig fjársvikamál Auk fíkniefnamálanna tengist einnig þessum aðilum umfangsmik- il fjársvikastarfsemi sem verið hef- ur til rannsóknar hjá RLR. Þar koma ýmsir úr fíkniefnahringnum við sögu, m.a. höfuðpaurinn. Um var að ræða svik sem m.a. voru framin með fölsun nafnritana á^ tryggingarvíxla og raðgreiðslu- samninga vegna greiðslukorta- notkunar og er samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins um veruleg- ar fjárhæðir að ræða. Talið er víst að fjársvikaþátturinn verði samein- aður fíkniefnamálinu við dómsmeð- ferð málanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.