Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 32
88 32 i*eer aAöflaa'í .si HUDAcnrraöa GiöAjawjDiiOM MOTÍGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR‘1994 + Astkær eiginmaður minn, SKÚLI ÁRNASON frá Gnýsstöðum, lést í sjúkrahúsinu á Hvammstanga 16. febrúar. Ragnheiður Eyjólfsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI SIGURÐSSON, Kirkjubraut 17, Innri-Njarðvík, lést 16. þ.m. á Garðvangi í Garði. Jarðarförin auglýst síðar. Vandamenn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EGILL GUÐJÓNSSON vörubifreiðastjóri, Rauðholti 11, Selfossi, andaðist í Borgarspítalanum 16. febrúar. Svanborg Egilsdóttir, Sigfús Ólafsson, Páll Egilsson, Guðjón Egilsson, Stefán R. Egilsson, Pálmi Egilsson, Gunnar Egilsson, Guðríður Egilsdóttir, Sigrún Egilsdóttir, Sigrfður Egilsdóttir, Hanna B. Bjarnadóttir, Ólína María Jónsdóttir, Katrín Ríkharðsdóttir, Heiðdfs Þorsteinsdóttir, Sæunn Lúðvíksdóttir, Guðmundur B. Sigurðsson, Stefan Persson, Guðmundur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF ÞORLEIFSDÓTTIR, Hrauntungu 81, Kópavogi, lést á heimili sínu föstudaginn 11. febrúar. Útför hennar fer fram frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 18. febrúar kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hennar, lóti Krabba- meinsfélagið njóta þess. Haukur Ársælsson, Gísli Kr. Hauksson, Hrafnhildur Snorradóttir, Sigurlaug Þ. Bragadóttir, Helga Haraldsdóttir, Ólafur Hauksson, Ársæll Hauksson, Þorleifur Hauksson, Jóhann G. Hauksson, Björk Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Elskuleg fósturmóðir mín og amma okkar, ÞÓRHALLA GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Meiri-Tungu, Holtum, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju, Holtum, laugardaginn 19. febrúar kl. 14.00. Jóna Steinunn Sveinsdóttir og börn. + Útför sonar okkar og bróður, ÞORSTEINS SÆVARS JENSSONAR fþróttakennara, sem andaðist 15. febrúar, fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugar- daginn 19. febrúar kl. 14.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Margrét Guðmundsdóttir, Jens Kristjánsson og systkini hins látna. + Þökkum innílega auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, TÓMASAR ELÍASAR SIGURÐSSONAR bifvélavirkja, Brekastfg 7c, Vestmannaeyjum. Erna Tómasdóttir, Guðjón Stefánsson, Hrefna Guðbjörg Tómasdóttir, Kristinn Viðar Pálsson, Sigurjón Arnar Tómasson, Marfa R. Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Minning Þorsteinn Sætran rafvirkjameistari Fæddur 27. október 1911 Dáinn 4. febrúar 1994 Lífið var afskaplega einfalt þegar ég var að alast upp. Maður átti að trúa á Guð og Sjálfstæðisflokkinn, ganga hratt framhjá Máli og menn- ingu, frekar keyra bensínslaus en að skipta ekki við Skeljung og það var bara til einn rafvirki í heiminum sem kunni að vinna. Það var Þor- steinn Sætran. Mamma, Ingunn Ámadóttir frá Stóra-Hrauni, var ekkert að skafa af hlutunum þegar kom að því að lýsa fólki og hún átti ekki til nógu sterk orð til að lýsa honum Sætran, en því nafni var hann alltaf kallaður af okkur á Smáragötunni. Og nafnið hans átti ekki að bera fram með „e“ eins og tíðkaðist í útlöndum, heldur með „æ“ því þannig var lögð áhersla á hvað maðurinn var sætur. Þorsteinn Sætran var hluti af líf- inu á Smátagötu 3. Hann var mað- urinn sem mátti hringja í eftir mið- nætti ef ein pera virkaði ekki. Hann kom og skipti og kvartaði aldrei. Ég er ekki einu sinni viss um að hann hafi alltaf viljað fá borgað. Kaffið í eldhúsinu hjá ömmu virtist nægja honum. Eftir að amma hafði misst sjónina og hana skipti engu hvort logaði á einni peru fleiri eða færri — mætti Sætran samt og passaði að allt væri í lagi. Þau voru vinir, amma og hann. Svo ríkulega tilheyrði Þorsteinn Sætran okkur Smáragötufólkinu að það hlaut að koma að því að besti heimilisvinurinn, hann Jói, yrði skotinn í Sigrúnu dóttur hans. Og við hvern átti dóttir þeirra, Hrefna Rósa, að dansa þegar hún fór að læra dans og æfa fýrir alvöru? Auðvitað einhvern ættaðan af Smáragötunni, hann Daníel systur- son minn. Þannig varð Þorsteinn Sætran áfram óijúfanlegur hluti af lífi okkar ásamt gömlu, góðu minn- ingunum af Smáragötunni; frá ár- unum þegar alltaf var sól og aldrei kom það vor að ekki væri hægt að vera úti á hvítum hálfsokkum og sandölum að sippa. Það er erfitt að segja einhver huggunarorð við elsku litlu Hrefnu Rósu og Sissu, sem hafa misst ömmu og afa, mömmu og pabba á örfáum mánuðum. Hugur okkar, minn, Lízellu og Ellu er hjá ykkur, elsku Sissa, Hrefna Rósa og Jói. Rafvirkjameistarann Sætran kveð ég með virðingu og þakka honum áratuga löng og góð kynni. Anna Kristine Magnúsdóttir. Mér fannst Þorsteinn Sætran alltaf vera eins, frá þeirri stundu sem ég sá hann fyrst fyrir rúmum þrjátíu árum og þar til við hittumst síðast í nóvember. Ég man fyrst eftir Þorsteini sem „rafvirkjanum henar ömmu“; manninum sem kom með jólin á Smáragötu 3, þegar hann setti upp marglitar jólaperur fyrir ofan innganginn. Á þessum tíma var ég bara lítil stelpa og talaði líklega ekkert mik- ið við þennan góðlega mann, en svo kynntumst við sem fullorðið fólk fyrir nokkrum árum þegar dóttur- dóttir hans, Hrefna Rósa, fór að æfa dans með Daníel, syni mínum. Hrefna Rósa bjó í sama húsi og amma hennar og afi og var auga- steinninn þeirra, enda er það örugg- lega einsdæmi að fólk á níræðis- aldri sæki hverja einustu dans- keppni og danssýningar sem haldn- ar eru. Afi Þorsteinn borgaði sig meira að segja inn á keppni um ungfrú Reykjavík og ungfrú ísland bara til að sjá litla ljósið sitt dansa, þó ekki væru nema nokkrir dansar. Hrefna Rósa er einn þeirra nem- enda í dansskólum borgarinnar sem ætlar í danskeppni til Blackpool í vor og ein fjáröflunarleið krakk- anna var sala á munum og kökum í Kolaportinu í nóvember. Meðal fyrstu viðskiptavinanna sem mættir voru við borðið snemma morguns var Þorsteinn afi sem ætlaði ekki að láta sitt eftir liggja til að dóttur- dóttirin kæmist til Englands — enda ætlaði hann með í þá ferð. Þorsteinn lifði fyrir Hrefnu Rósu og Sissu dóttur sína sem var hans stoð og stytta alla tíð, ekki síst eftir að Þorsteinn missti Rósu, konu sína, síðastliðið sumar. Þau feðgin höfðu keypt. sér íbúð saman því Sissa vildi ekki vita af pabba sínum einum eftir að mamma hennar lést. Þvi miður var Þorsteini ekki ætlað að eiga stundir með stelpunum sín- um tveimur og Jóhanni tengdasyni sínum, því stuttu eftir að þau höfðu komið sér fyrir á nýja heimilinu fékk hann heilablóðfall sem síðar dró hann til dauða. Hann lést á Heilsuvemdarstöðinni þar sem hann dvaldi síðustu vikur lífs síns, alltaf með Sissu sér við hlið. Það eru ekki bara ég og fjöl- skylda mín sem eigum eftir að sakna þess að sjá ekki Þorstein á danskeppni hér eftir. Þeir em nefni- lega margir sem muna eftir þessum heiðurshjónum, Rósu og Þorsteini, sem horfðu svo stolt á Hrefnu Rósu sína. Við erum þess líka alveg full- 7 + Móðir okkar og tengdamóðir, AÐALBJÖRG EGILSDÓTTIR, Þórsmörk 5, Selfossi, sem lést 8. febrúar, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 13.00. Jarðsett verður í Villingaholti. Fyrir hönd aðstandenda, Hafsteinn Þorvaldsson, Ragnhildur Ingvarsdóttir, Eysteinn Þorvaldsson, Hörn Harðardóttir, Svavar Þorvaldsson, Hrafnhildur Arnadóttir, ^ Gunnar Kr. Þorvaldsson, Guöríöur Steindórsdóttir. + Alúðar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okk- ar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS STEFÁNSSONAR, Skógargötu 19, Sauðárkróki, og heiðruðu minningu hans. Margrét Jóhannsdóttir, Árni M. Jónsson, Sigríður Ögmundsdóttir, Kjartan I. Jónsson, Ingibjörg Amundadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. viss að þótt við sjáum Þorstein ekki í keppninni stóru í Blackpool — þá verður hann þar með okkur. Ég, Trausti, Daníel og Róbert sendum elsku Hrefnu Rósu, Sissu okkar og Jóa hjartanlegustu samúð- arkveðju og biðjum guð að vera með þeim og styrkja þau á sorgar- stundu. Inga. Afí minn er allur. Hann lést 4. febrúar. Þó að hann hafi verið orð- inn 82 ára var ég ekki við því búinn að missa hann strax. Afi fæddist á Akureyri 27. októ- ber 1911. Hlaut hann nöfnin Þor- steinn Bertram við skírn. Afí var þriðja barn hjónanna Síverts Sætr- an og Kristínar Hansdóttur. Elzta bam þeirra dó ungt, en upp kom- ust þrír synir: Hans, Þorsteinn og Jón. Lífsbaráttan var erfíð. í von um betri afkomu fluttist ijölskyldan til átthaga Síverts í Noregi, þegar afí var kornungur. Þar ólst afi svo upp til 16 ára aldurs, en þá fluttist fjöl- skyldan aftur til íslands. Dvölin í Noregi var afa mjög minnisstæð og hafði hann gaman af að rifja upp ýmis atvik úr æsku. Stuttu eftir að ljölskyldan fluttist til íslands varð hún fyrir þeirri sáru sorg að Hans dó úr berklaveiki. Bræðumir tveir, sem eftir lifðu, fóru í iðnskóla og lærðu þar raf- virkjun, en lífsbaráttan var enn erf- ið. Eitt eða fleiri sumur fóru þeir með móður sinni í síldarvinnu til Siglufjarðar. Afi minntist þess að stundum höfðu þau þurft að vinna marga sólarhringa í röð án teljandi hvíldar. Að námi loknu starfaði afi að mestu leyti í Reykjavík. Þó vann hann allnokkuð úti á landi við raf- lagnir á sveitabæjum, sérstaklega á fyrri hluta aldarinnar. Nálægt 1950 tóku afí og amma saman, en amma mín var Rósa Þorsteinsdóttir frá Gerði í Suður- sveit. Ekki var auðæfunum fyrir að fara, en bæði Iögðu þau samt barn í bú. Afí hafði verið giftur áður og átti ungan son, Sívert Bjama, en amma átti dótturina Þórhildi, Sem síðar varð móðir mín. Nokkra síðar eignuðust afí og amma dótturina Sigrúnu Kristínu. Eitt það skemmtilegasta sem afí gerði var að fara í veiðiferðir og man ég hve sæll hann var, þegar hann stóð á vatnsbakka með veiði- stöngina í höndunum. Afí átti einstaklega auðvelt með að umgangast annað fólk og yfir- leitt gat hann komið auga á það jákvæða í tilveranni. Þó held ég að andlát ömmu í júní sl. hafí orðið honum ákaflega þungbært og vald- ið honum mikilli einmanakennd. Síðustu vikur í lífí afa vora þung- bærar. Hann hafði veikst alvarlega og við vissum að hann myndi aldrei komast til heilsu framar. Þó að við afi væram í rauninni ekki skyldir hefði ég ekki getað hugsað mér betri afa og mun ég ævinlega vera honum þakklátur fyrir alla þá umhyggju sem hann sýndi mér. í dag verður afi jarðsettur við hlið ömmu og að skilnaði iangar mig að segja: Hvíl þú í friði. Rafn Ingi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.